• Default
  • Foliage
  • Clouds
  • Flokkar

  • Eldri færslur

Samningaviðræður halda áfram

Já, við bíðum enn. Húsráðin hafa verið reynd eitt af öðru og við erum búin að koma öllu í stand eins og hægt er fyrir barnið. Við höfum jafnvel farið út í samningaviðræður, reynt að útskýra fyrir barninu að nú sé allt klárt og óhætt að koma í heiminn.
„Þú veist að vaggan er tilbúin, kerran er komin og við erum komin með bílstól svo við getum tekið þig með okkur heim?“ … Ekkert svar.
„Hefurðu áhyggjur af veðrinu? Ég er viss um að afi þinn og amma komast örugglega yfir Víkurskarðið áður en við förum með þig heim. Vaggan kemst alveg til skila og ef ekki, þá er örugglega nóg pláss á milli okkar í risastóra rúminu fyrir eina nótt eða svo.“ … Ekkert svar.
„Það bíða allir í röðum eftir að fá að dást að þér. Það verður nefnilega ekkert smá stuð að láta dást svona að sér.“ … Ekkert svar.
„Ertu að bíða eftir dönunum? Það er eflaust betra að vera komin(n) nokkrum dögum á undan þeim, vera búin(n) að átta sig aðeins á lífinu og tilverunni áður en þau koma til að dást líka.“ … Ekkert svar.
„Veistu hvað er geðveikt stuð hérna úti? Þú getur prófað að anda, grenja, borða, stressa upp foreldra þína og láta dást að þér. Það er svaka gaman. Svo ber fólk miklu meiri virðingu fyrir þér ef þú ert orðin(n) að sjálfstæðri manneskju. Hættir algjörlega að kalla þig svona nöfnum eins og Kúlubúinn. Prófaðu bara, það er geggjað hérna úti.“ … Ekkert svar.
„Hefurðu áhyggjur af því að amma þín nái ekki að fljúga að sunnan í svona veðri?“ Spark!
Þar höfum við það. Barnið vildi ekki koma í gær því það hefur áhyggjur af ömmu sinni fljúgandi í þessu veðri. Amman hefur í millitíðinni lýst því yfir að hún komi á skírdag. Vonandi verður barnið komið á undan henni…

Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/04/samningavi%c3%b0r%c3%a6%c3%b0ur-halda-afram/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.

8 Comments  

  • Kjartan S says:

    Gangi ykkur vel. Við hjónakornin erum sjálf að fara í start í fyrramálið.
    Kv.
    Kjartan

  • Edda Rós says:

    Kannski hefur barnið svona áhyggjur af skaðræðinu, frænda sínum, sem er sko á leiðinni til að fara að hjálpa Valdísi og Tryggva að hugsa um þetta barn… Vonandi er þetta bara merki um það hversu mikið rólegheitabarn þetta er ;-) Þið gætuð prufað að spyrja það hvort að það sé ekki komið með leið á því að vera bara það, það sé sko miklu svalara að vera hann eða hún heldur en það ;-)

  • Valdís says:

    Gangi ykkur rosalega vel með það!

  • Elva says:

    Ekkert nema tillitsemin, barnið greinilega. Eða svona útspekulerað með að fæðast á einhverjum afmælisdegi.
    En jú, það er miklu meira kúl að vera hún eða hann heldur en það ;)

  • mamma says:

    Það er sko ekki leiðinlegt að fæðast á afmælisdegi Eddu afasystur sem er í dag 2. apríl eða á morgun þegar Heiðar ömmubróðir á afmæli. Segðu barninu að það sé önnur kerra í Hrísateig svo að það er strax kominn valkvíði um hvaða kerra er betri eða flottari.

  • Stefán says:

    Koma svo. You can do it. Sendi ykkur baráttukveðjur. Og veðrið er bara sallafínt í dag. Nú er veður til að…

  • Eikin says:

    Haha frábærar samningaviðræður :) þær bera örugglega árangur fyrr en síðar, svo það er bara um að gera að halda áfram að dásama hinn ytri heim :) Gangi ykkur rosalega vel þegar ÞAÐ ákveður að koma :)

  • Amman umrædda er búin að bóka sér flug norður þannig að það er hægt að fara að sauma að þessum samningaviðræðum af fullum krafti!

RSS feed for comments on this post