Algjör bilun?

Við Tryggvi erum í hálfgerðu sjokki, vorum að skrifa undir kauptilboð sem seljandinn er búinn að gangast inná. Við erum semsagt að fara að kaupa Ásveg 20, efri hæð. Það verður nýja höllin keisarans, eða hið nýja Völundarhús. Í tilefni þessa var rándýra viskýflaskan, sem keypt var fyrir dýrmæt sterlingspund, opnuð og bragðað á innihaldinu með viðhöfn.

Tags:

12 Responses to “Algjör bilun?”

  1. mamma Says:

    Til hamingju með keisarahöllina. Vonandi er þetta ekki það Völundarhús að þið villist þar inni.

  2. Dönskukennarinn Says:

    Til hamingju. Þetta er sannkölluð kennaragata, þú ert komin á spjöld sögunnar. Og góður staður maður.

  3. Edda Rós Says:

    Kúl, hlakka til að koma í heimsókn :-)

  4. Elva Says:

    Þetta er náttúrlega óskhyggja en mér líst vel á bæði stofuna sem og eldhúsið sem spilasali ;)

  5. Tryggvi R. Jónsson Says:

    Eldhúsið kannski síður en það má nota auðvitað einhvern hluta af stofunni undir svoleiðis. Svo reyndar er gluggalaust herbergi í kjallara sem einhver myndi nú segja að hentaði fyrir svona DM-ing… en það er reyndar eins og uppspeyti saunaklefinn í útleigu ;)

  6. valdis Says:

    Þetta átti eflaust að vera “uppsteypti” hjá mínum manni… En kyndiklefinn hefur reyndar heilmikla möguleika… stór, dimmur… það mætti alveg koma fyrir awesome spilaherbergi í honum.

  7. Tryggvi R. Jónsson Says:

    Já steypa átti þetta að vera :) Bíddu varstu ekki búin að fórna kyndiklefanum í anddyri fyrir leiguíbúðina ;)? En jú drungalegur er hann!

  8. valdis Says:

    Nei, nei. Bara byggja léttan vegg sem hólfar kyndiklefann af frá nýja innganginum. Þá er kyndiklefinn sjálfur eftir sem drungalegt svæði til spila ;)

  9. Tryggvi R. Jónsson Says:

    Held þú sért að ofmeta stærðina á þessu en kannski var bara svo dimmt að maður sé þetta ekki almennilega.
    http://www.trigger.is/gallery2/hus/asvegur-solumyndir2008/Asvegur+20+0+kjallari.jpg.html
    Er nú ekki nema hvað..3×3 metrar að stærð?

  10. Edda Rós Says:

    Þröngt mega sáttir sitja…

  11. Tryggvi R. Jónsson Says:

    Spurning hvernig sættið verður eftir mikið kók og flóknar reglur ;)

  12. Friðrika Kr. Stefánsdóttir Says:

    Vá, til hamingju!

Leave a Reply