Er þetta blogg mitt bara að deyja? Ég veit ekki, en tveggja mánaða hlé milli færslna gefur ekki góðar lífslíkur. Vandamálið hefur eiginlega verið að það hefur ekki verið mikið að gerast hjá mér, fyrir utan alla stórsigrana sem ég horfi á son minn vinna. Fréttir af þeim fara yfir á síðuna hans.
Það vantar svo sem ekki að ég hafi skoðanir á þjóðmálunum þessa dagana, en er endilega á það bætandi að blogga um Icesave, stjórnmál, stjórnarkreppu, vælið í stjórnarandstöðunni og bullið í hinum og þessum sem allir telja sig vita betur en allir aðrir? Æ, ég held ekki. Berjumst fyrir einum Icesave-lausum degi!
Kannski ég ætti að breyta þessu bloggi í handavinnublogg? Ég er búin að vera frekar dugleg að prjóna undanfarið og hef uppgötvað að til er ýmiskonar yndislegt garn, annað en Tinnu garnið. Undanfarið hef ég t.d. verið að prjóna úr Katia Scotch Tweed, afar skemmtilegu garni sem er mestmegnis silki og ull.
Ég held að ég fari að hugsa málið… eitthvað ætti ég að reyna til að blása líf í bloggið.



Hæ
Mikið rosalega er ég sammála þér í þessu um landsmálin. Maður er farinn að þrá þann dag þegar ekki verður minnst á “efnahagsmálakreppuhrunið” í fréttum. Þetta er að gera mann brjálaðann. Svo bætast við endurtekningar á fréttum frá síðasta hausti, ef einhver hefði nú misst eitthvað úr.
Svo er miklu skemmtilegra að fylgjast með afrekum dóttursonarins..
Ekki láta bloggið deyja! Endilega breyttu þessu þá í handavinnublogg eða bara eitthvað
(ekki að ég sé dugleg að blogga reyndar)
Hafið þið ekki heyrt fréttirnar? Facebook er búið að taka við af blogginu. Ég verð samt að segja það að mér finnst skemmtilegra að lesa heilar færslur heldur en einstakan status hér og þar.