Með ýmislegt á prjónunum

Ég er búin að vera að prjóna töluvert undanfarið, enda finnst mér það svo óskaplega þægilegt t.d. yfir sjónvarpinu á kvöldin, að hafa eitthvað í höndunum. Ég skal bráðum setja inn myndir af því sem ég hef verið að gera, en núna er ég að vinna í vesti handa Hartmanni. Mig dauðlangar nefnilega í fallegt vesti handa honum með V-laga hálsmáli og svo þegar ég fann Sirdar Snuggly Babybamboo garnið (80% bambus, 20% ull) á útsölu hjá Quiltbúðinni fannst mér alveg tilvalið að prófa. Ég hafði reyndar ekki fundið neina uppskrift sem mér líkaði almennilega við, svo að ég ákvað að gera tilraun til að búa hana bara til uppúr sjálfri mér. Í ljós kom að ég átti ekki til rétt númer af prjónum, þannig að ég ákvað að nota stærri prjóna og búa til prjónfestuprufu. Þá fann ég hvað þetta garn verður geðveikislega mjúkt þegar búið er að prjóna úr þessu.

Hér að neðan sést hvernig vestið er orðið en ég birti frekari myndir þegar ég er búin að klára.

Tags: , ,

One Response to “Með ýmislegt á prjónunum”

  1. Edda Rós Says:

    Æði :-)
    Gaman að systurnar mínar séu farnar að blogga aðeins aftur (að mér meðtalinni)

Leave a Reply