Taska úr Katia Scotch Tweed

Hérna er taska sem ég prjónaði um daginn sem afmælisgjöf handa mömmu. Garnið er Katia Scotch Tweed, frekar skemmtilegt garn sem ég fékk í Quiltbúðinni en þar voru restarnar af þessu garni á útsölu. Mér skilst að það sé ekki framleitt lengur. Það er 65% silki, 19% ull og 6% viscose, frekar gróft og skemmtilega ójafnt.

Svo var ég að klára vestið á Hartmann. Það virðist passa og er alveg endalaust mjúkt, en það er samt býsna þykkt eins og vill oft verða þegar maður gerir litamunstur.

Tags: , , , , ,

One Response to “Taska úr Katia Scotch Tweed”

  1. mamma Says:

    Taskan er flott og ekki er vestið síðra. Hartmann er flottur í því.

Leave a Reply