Var að hlusta á „umfjöllun“ morgunútvarpsins á heimsendaspám áðan. Er ekki hægt að finna einhvern aðeins áræðanlegri en Gunnar í Krossinum til að segja fólki frá því hvað „vísindasamfélagið segir“?? Væri ekki hægt að velja að handahófi einhvern eðlisfræðing, stjörnufræðing eða bara einhvern sem veit eitthvað um vísindi til að segja hvaða kenningar eru ofaná í dag? Óttast útvarpsmenn að svarið verði líklegast „Jú, jörðin ferst sennilegast á endanum, ekki svo mikið í eldi og brennisteini heldur líklega frekar í glóandi vetni og helíum. Þetta gerist sennilega eftir u.þ.b. fimm milljarða ára. Ég er ekki stressuð yfir því.“ Gallinn við slíka umfjöllun er að hún hræðir fólk ekki, sennilega þess vegna sem þessi leið er ekki farin.
„Vísindasamfélagið segir…“
This entry was posted on 11/11/2009 (Wednesday) at 10:01 am and is filed under Uncategorized. You can follow any responses to this entry through the RSS 2.0 feed. You can leave a response, or trackback from your own site.
Printed from: http://www.valdisbjork.com/archives/2009/11/%e2%80%9evisindasamfelagi%c3%b0-segir%e2%80%9c/ .
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.
© Valdís Björk Þorsteinsdóttir 2010.



Ja, hann Gunnar hefur náttúrulega svaka góðar heimildir. Er hann ekki í beinu sambandi við himnaföðurinn? Hvað gæti það verið betra en það?
Það er örugglega langbest, en ef hann Gunnar hefur upplýsingarnar að ofan, þá ætti hann bara að segja það, ekki reyna að klína því á vísindasamfélagið
Iss, hann gerir þetta bara svona út af öllum fordómunum í garð trúaðra