Hlutverkaskipting heimilisins
Mér finnst það frekar fyndið en pínu sorglegt að sjá hvernig stofnanir og fyrirtæki virðast gera ráð fyrir því hvernig hlutverkum er skipt hér á heimilinu. Svo virðist vera að hinir og þessir aðilar haldi að ég sé „umönnunaraðili barns“ og Tryggvi sé „húsráðandinn“.
Þetta sér maður einkum á póstinum sem berst hingað. Ég fékk t.d. í dag póst frá Pampers, með prufubleyju. Ekki fékk Tryggvi neitt frá Pampers. Ég hef líka fengið póst frá MS með upplýsingum um Stoðmjólk (reyndar ekki með neinni prufu).
Tryggvi fær hins vegar reikningana fyrir rafmagninu, fasteignagjöldunum og afborgunum lána og póstur frá Akureyrarbæ sem ætlaður er húsráðanda er stílaður á hann. Þetta hefur meira að segja gengið svo langt að þegar við yfirtókum lánin sem hvíldu á Ásveginum, þá settum við nafn mitt í reitinn „lántaki“ en nafn Tryggva í reitinn „maki“ á umsókninni til LSR. Þegar gögnin komu til baka var búið að snúa hlutverkunum við, þó að ég sé sjóðfélagi í LSR en ekki Tryggvi!
Ég get ekki annað en glott yfir þessu öllu saman, en samt er frekar sorglegt að hugsunarhátturinn sé ennþá svona.
December 2nd, 2009 at 11:12 pm
Oft er reyndar reglan sú að sá eldri er settur sem aðal.
December 2nd, 2009 at 11:16 pm
Okkur fannst það líkleg skýring á bréfaskrifunum frá Akureyrarbæ. Hins vegar fannst okkur þetta stórskrítið með LSR, þar sem ég er að borga í þennan sjóð en ekki Tryggvi.
December 2nd, 2009 at 11:25 pm
Ef þetta væri aldurstengt þá finnst mér að Stoðmjólkurpósturinn og Pamperspósturinn hefðu átt að vera stílaðir á Hartmann
December 2nd, 2009 at 11:30 pm
Á ég þá ekki að fá neinn póst?? Fnuss!
December 2nd, 2009 at 11:31 pm
er einhver póstur til sem er ekki gluggapóstur eða auglýsingar(og rusl) ?
December 3rd, 2009 at 1:13 pm
Iss Valdís þú mátt fá Svenson bæklinga og eitthvað svoleiðis…
Þú ert nú bara húsfreyjan, það er ekki einsog það sé eitthvað merkilegt sem að þær gera
December 5th, 2009 at 11:15 pm
haha, ég hef einmitt lent í þessu og bloggaði um það árið 2004 http://www.reykjalin.com/blog/archives/2004/11/kynjaskipta_hei.html
nei, sumt breytist bara ekki, ef ég væri pampers myndi ég pottþétt senda á pabbana, það myndi vekja miklu meiri athygli
December 7th, 2009 at 4:34 pm
Pampers má ekki senda á börnin og verður því að senda á foreldrana. Ég er enn að fá draugahringingar frá hinu ýmsu aðilum sem bjóða áskrift gegnum síma þar sem beðið er um minn fyrrverandi og hann var aldrei skráður fyrir þessu símanúmeri, þó við værum skráð í sambúð. Bíddu bara róleg þangað til Hartmann fer í skóla/leikskóla þá fær Tryggvi engan póst bara mamman