Enn og aftur átak

Eftir að ég fór að sjá lokatakmarkið í sjónmáli lagðist yfir mig ákveðin leti. Allt of oft þótti mér ásættanlegt að mjakast upp í þyngd, allt of oft ætlaði ég bara að gera þetta betur næst. Í síðustu viku tók ég hins vegar þá ákvörðun að klára þetta. Til að ég myndi það örugglega að það væri ekki leyfilegt að þyngjast, þá bað ég Þórhildi og Sirrý að búa til nýtt spjald fyrir mig, svo ég myndi nú telja frá núlli. Stuttri en góðri viku seinna mætti ég í vigtun og var þá laus við 1,1 kg. Þetta byrjar vel.

Núna ætla ég að losa mig við 12,1 kg og fara niður í 64 kíló. 1,1 kg eru farin og nú verða það a.m.k. 0,7 kg á viku!

Ritað 30. apríl 2007 kl. 16:03 um átak| Skoðanir (1)

Loksins niður aftur

Loksins loksins fór ég niður aftur í vigtun. Síðustu þrjár vigtanir hef ég alltaf farið upp og var komin töluvert undir 30 kílóa markið aftur. Núna fór ég í vigtun og hafði losað mig við heilt kíló. Þarna held ég að hreyfingin sé farin að skila sér loksins, vöðvarnir búnir að bæta við sig massanum og eru farnir að brenna líka. Nú er bara málið að halda áfram, passa matardagbókina og mæta af krafti í ræktina!

Ritað 27. febrúar 2007 kl. 14:02 um átak| Skoðanir (1)

Vonbrigði

Ég fór í vigtun í síðustu viku eftir að hafa skrópað tvisvar. Eins og búast mátti við þá þyngdist ég um 1,9 kg. Síðustu vikuna hef ég samt verið mjög dugleg. Dugleg að elda og versla góðan mat, dugleg að halda matardagbók og meira að segja dugleg að hreyfa mig. Samt sýndi vigtin 0,2 kg þyngingu þegar ég steig á hana í hádeginu. Ég er vonsvikin með það, hélt að ég hefði verið svo flott á þessu.

Ég fór að telja saman sveiflurnar mínar. Ég er samtals búin að léttast um 38,3 kg síðan ég byrjaði í þessu, en því miður hef ég líka samtals þyngst um 10,3 kg. Ef ég hefði sleppt þessum freistingum í þessi samtals 20 skipti sem ég hef þyngst, þá væri ég búin að þessu núna. Ég held að ég verði að fara að dingla verðlaununum mínum meira fyrir framan mig... í hvert skipti sem mig langar í auka brauðsneið eða popp að hugsa „MacBook Pro! Þú ert að fórna MacBook Pro!“

Ritað 13. febrúar 2007 kl. 14:12 um átak| Skoðanir (8)

Nettir strengir

Algjörlega án þess að ætla að vera með neina kaldhæðni eða tala undir rós, þá er ég með rosalega netta strengi. Finn ekkert fyrir þeim nema þegar ég teygi mig upp til að skrifa efst á töfluna, þá man ég allt í einu: „Ó, já, ég er víst með brjóstvöðva!“ Ég fór nefnilega í gravity tíma í gær í fyrsta skiptið. Þetta var nokkuð gaman og ég bíð spennt eftir næsta tíma.

Ritað 6. febrúar 2007 kl. 13:59 um átak| Skoðanir (1)

Kveikt á þyngdaraflinu

Ég hef staðið í stað svo lengi, með lokatakmarið í sjónmáli en þó svo ófáanlegt, að ég hef ákveðið að breyta aðeins til. Ég ætla að fara að hreyfa mig aðeins með þessu og hef því skráð mig í gravity námskeið á Bjargi. Námskeiðið byrjar á mánudag og stendur í þrjár vikur. Ég hlakka til að fara að taka aðeins á því.

Ritað 2. febrúar 2007 kl. 09:38 um átak| Skoðanir (2)

Ráðist á spikið

Gubbupestin í síðustu viku gerði sitt til að taka skarð úr jólaspikinu sem ég hlóð utan á mig yfir hátíðarnar. Af kílóunum þremur sem komu yfir jólin, skóf ég af mér 1,3kg yfir síðustu viku. Núna er málið bara að halda þessu áfram, fara að sækja fundi og vera dugleg.

Ritað 16. janúar 2007 kl. 20:07 um átak| Skoðanir (0)

Afleiðingar gjörða minna

Ég mætti lúpuleg í vigtun áðan og tók afleiðingum gjörða minna um helgina. Þessa helgi fékk ég mér áfengi, súkkulaði, flögur og allskonar óhollustu, meira að segja franskar. Ég hefði getað látið ólifnaðinn takmarkast við laugardagskvöld, en á sunnudag og mánudag hélt vitleysan áfram og ég fór ekki inn í almennilegt mataræði fyrr en í dag.

Fyrir þetta alltsaman borgaði ég. 1,2 kíló uppávið sagði vigtin hjá Vigtarráðgjöfunum og þar með var étinn upp allur léttingur síðustu tveggja vikna. Einhvernveginn setti ég þetta samt ekki í samhengi, fyrr en núna áðan þegar ég uppfærði síðuna með töflunni minni. Fiskurinn minn á stikunni færðist til baka og sagði mér að það væru 8,1 kg eftir í staðinn fyrir 6,9! Þetta var almennilegt spark í rassgatið!

Núna ætla ég að vera dugleg í vatninu, passa matinn alla vikuna og vera dugleg sama hvað gengur á! Mér er alveg sama hvað menn bjóða mér í vinnunni eða á þessum fundum á föstudag og laugardag! Ég ætla að standa mig vel! Svo ég vitni í Bruce úr Finding Nemo: „I'm having fish tonight!“

Ritað 7. nóvember 2006 kl. 16:45 um átak| Skoðanir (2)

Góðar mælingar

Ég fór í allskonar mælingar í dag. Byrjaði á heilsufarsmælingu í morgun og fékk að vita að ég er með passlega mikið kólesteról (4,61), passlega mikinn blóðsykur (5,0) og passlegan blóðþrýsting (110/80). Hjartslátturinn er frekar hraður (84) en það gæti verið út af því að þegar hann var mældur var kona búin að vera að stinga mig til blóðs á puttanum...

Svo fór ég í vigtun í hádeginu og þar fór enn eitt kílóið. Það var svo sem bara betra, enda var ég búin að fara lítillega upp síðustu tvær vikurnar. Núna er allt á réttri leið.

Ritað 10. október 2006 kl. 16:57 um átak| Skoðanir (1)

30 kíló!!

... ég sagði 30 kíló!! Þrjátíu kíííílóóóóó!!!!

Jamms, ég fór yfir 30 kílóa múrinn áðan, enda búin að vera alveg rosalega fróm þessa vikuna. Nú er mín orðin 71,9 kg og hef ekki verið svo létt síðan í grunnskóla.

Jésúsminn, ég er gersamlega að rifna úr monti!

Ég skal skella inn myndum seinna í dag.

Ritað 19. september 2006 kl. 12:58 um átak| Skoðanir (17)

Sokkabuxur

Alveg finnst mér merkilegt að eftir að hafa misst tæp 30 kíló, skuli ég ennþá lenda í sömu vandræðunum við að versla sokkabuxur! Lendið þið í þessu? Ég keypti mér allavegana sokkabuxnapar í fyrradag sem samkvæmt framleiðanda hefði átt að duga fyrir manneskju sem væri 85kg, en ég er 73,5kg. Þegar ég reyndi að fara í þær komst ég að þeirri niðurstöðu að sokkabuxnaframleiðendur nota einhverja allt aðra skilgreiningu á kílói en restin af heiminum. A.m.k. gæti ég helst trúað að sú 85kg manneskja sem myndi passa í þessar buxur yrði sennilegast að vera lóðalyftandi vöðvabúnkt (með alla vöðvana í öxlum, ekkert í lærum) og einnig þyrfti hún að vera með þau svakalegustu brjóst sem fyrir finndust.

Mér finnst leiðinlegt að á meðan ég get tekið alltaf minni og minni númer í öðrum fötum, að þá lendi ég í sömu leiðinlegu vandræðunum alltaf þegar ég fer í nælonsokkabuxur.

Ritað 4. september 2006 kl. 11:00 um átak| Skoðanir (0)

Ekki hafðist það í þetta sinn

Vigtunin er frá í dag, -300g í þetta skiptið. Ekki alveg þessi -1,1 sem ég hafði gert mér vonir um. Samt voðalega mikið í takt við undanfarnar vikur. Ég ætla bara að vona það að þokkalegur dugnaður í komandi viku dugi mér til að ná þessum -800g sem mig vantar til að brjóta -30kg múrinn. Enda kominn tími til! Það eru komnar 16 vikur síðan ég fór yfir -25kg markið og mig langar til að fara að komast áfram í þessu. Ég bind samt vonir mínar við það að nú fari allt af stað aftur þegar kennsla hefst og meiri regla kemst á mitt daglega líf.

Á eftir er samt stefnan tekin norður þar sem ég þarf að leggja fyrir próf á föstudaginn.

Ritað 23. ágúst 2006 kl. 14:10 um átak| Skoðanir (4)

Allt að koma

Það hefur gengið mjög hægt í átakinu í sumar. Rúmir þrír mánuðir hafa liðið síðan ég komst yfir 25kg markið og ég er búin að sveiflast bæði upp og niður. Núna hef ég náð tveimur vigtunum í röð sem færðu mig aðeins niður, þó lítið sé í bæði skiptin. Þá kom mjög upplífgandi athugasemd frá Kristínu ráðgjafa: „Nei, sko. Þú ferð bara að nálgast 30 kílóin!“ Það var alveg rétt, mig vantar bara 1,1kg í það mark. Svo að nú fer allt af stað: ég ætla að háma í mig appelsínur, borða gúrkurnar og gulræturnar mínar, labba aðeins á hverjum degi og sleppa alveg öllu því sem heitir áfengi eða sykur næstu vikuna. Djöfulli væri gaman að ná þessu marki!

Ritað 16. ágúst 2006 kl. 14:14 um átak| Skoðanir (3)

Slísíbörger og DDV

Jæja, nú er allt búið að ganga mjög rólega í átakinu hjá mér. Vikurnar orðnar 9 síðan ég náði -25kg markinu og í flestum tilfellum frekar smá skref sem ég hef tekið síðan þá. Það er samt langt frá því að ég sé að heltast úr lestinni, þetta gæti bara tekið aðeins lengri tíma en gert var ráð fyrir. Það er allavegana að verða útséð með það að ég mun ekki útskrifast fyrir 20. september, eins og ég áætlaði í byrjun. A.m.k. ekki ef ég held mig við 60kg markið mitt.

Gærkvöldið var frekar langt frá DDV fræðunum. Fórum og fengum okkur slísíbörger til að hita upp fyrir slömmbíóferð. Sáum The Fast and the Furious: Tokio Drift, alveg sérdeilis lélega mynd. Núna er það samt bara að fara aftur á bak, taka restina af vikunni alveg 100% og vonast til þess að næsta vigtun verði þokkaleg.

Ritað 6. júlí 2006 kl. 09:37 um átak| Skoðanir (0)

Endalaus gleði

Búin í vigtun, 1,5 kg farin þessa vikuna. Ég er endalaust mikið glöð! Vonandi er nú lokið 6 vikna tímabili þar sem lélegur árangur hefur ríkt. Svo er 30 kg markið í sjónmáli...

Ritað 20. júní 2006 kl. 13:21 um átak| Skoðanir (2)

Enn ein léleg vigtun

Fór í vigtun í dag og staðfesti að 700g eru farin til viðbótar. Þetta er fjórða viktunin í röð þar sem ég missi innan við kíló. Þessi nýjasta er samt skrárri en síðustu þrjár. Nú fer mig að langa í límmiða í bókina mína! Þetta dútl er leiðinlegt. Ætla að einbeita mér að því að halda mig 100% við mataræðið þessa vikuna. Það er ekki einfalt í próftíð þegar samkennarar mínir halda 2 fermingarveislur á dag í tvær vikur... Verð bara að vera hörð við sjálfa mig.

Ritað 30. maí 2006 kl. 21:10 um átak| Skoðanir (1)

Takk fyrir veturinn og gleðilegt... umm... sumar?

Ég tók til við að kveðja nemendur mína í dag. Nokkra sé ég á morgun en kvaddi í dag þá sem ég á ekki eftir að kenna meira á önninni og þakkaði þeim samveruna (ég var mjög heppin með hópa þessa önnina, að mínu mati). Það var þetta venjulega: Takk fyrir veturinn, gangi ykkur vel í prófunum og gleðilegt... ummm.... (litið út um gluggann þar sem kyngdi niður snjónum) ...sumar? Akureyri hefur ekki verið sérlega sumarleg síðustu daga. Ég vona bara að þetta sé ávísun á gott sumar og gott gengi nemendanna í prófunum (það er örugglega auðveldara að sitja inni og halda sig að verki þegar snjóar úti en þegar er glampandi sól og 20° hiti úti).

Annars gekk ágætlega í vigtun í dag, miðað við litla hreyfingu og töluvert svindl á laugardaginn. 400g fuku í viðbót og fleyttu mér yfir í ofeldisflokk skv. BMI. Ég er semsagt ekki lengur offitusjúklingur heldur er aðeins ofalin. Þetta kom reyndar viku seinna en ég ætlaði að hafa það, en jæja þá...

Ritað 23. maí 2006 kl. 22:40 um mitt, átak| Skoðanir (3)

Óstjórnleg sjálfstjórn

Montimont! Í afmæliskaffinu á kennarastofunni í morgun forðaðist ég rjómatertuna, skúffukökuna og hin sætindin (en fékk mér reyndar smá brauðrétt). Eftir hádegi vildi 2F fara í Brynju en ég lýsti því yfir að ég ætla að losna við a.m.k. 0,5 kg fyrir næsta þriðjudag, þannig að ég vildi bara engan ís! Svo stóð ég bara við það að borða mitt kiwi núna í kaffinu þó að tertuafgangar flæddu um flest borð.

Núna þarf ég samt að taka mig taki því að ég þarf að fara yfir óhemju magn af verkefnum og prófum og sólskinið úti lítur svo vel út...

Ritað 10. maí 2006 kl. 15:44 um átak| Skoðanir (4)

Nýja græjan mín: Töfrasproti

Ég keypti mér töfrasprota með minihakkara í gær. Fór heim og prófaði að nota hann. Ég trúi varla að ég sé búin að vera í danska í yfir 8 mánuði án þess að eiga svona græju! Þetta er æðislegt. Í staðinn fyrir að standa tímunum saman að saxa niður lauk og annað svoleiðis, þá tekur þetta örfáar sekúndur! Og svo bjó ég mér til berjasjeik um kvöldið með ferskum jarðarberjum og frosnum hindberjum. Það var svo rosalega miklu betra að nota töfrasprotann á þetta en að nota blandara. Ég sé sko ekki eftir þessum pening!

Ritað 6. maí 2006 kl. 11:57 um átak| Skoðanir (0)

Að halda út

Ég sá alveg frábært innlegg áðan frá henni Bleep á umræðuvef Íslensku vigtarráðgjafanna. Hún var að svara þeim sem voru þá að gefast upp á átakinu:

Þetta er svona svipað og að ætla sér að mála hvítt herbergi rautt: maður fer út í búð og kaupir rauða málningu og byrjar að mála. En þegar bara hálfur veggur er eftir klárast málningin. Hvort er þá gáfulegra að gefast upp og fara út í búð, kaupa hvíta málningu og mála allt herbergið hvítt aftur...eða fara út í búð og kaupa smávegis rauða málningu til að klára vegginn???
Ótrúlega góður punktur að mínu mati.

Ritað 5. maí 2006 kl. 09:19 um átak| Skoðanir (2)

Enn einn áfanginn

Jæja, nú er mín búin að missa rúmlega 25 kíló! Mér reiknast svo til að ég hafi sennilegast étið yfir 150 kíló af grænmeti síðan ég byrjaði og það hefur skilað sér svona :D Ofeldisflokkurinn er aðeins 700g í burtu og svo nálgast 75kg markið (það léttasta sem ég hef verið á fullorðinsaldri). Áfram til sigurs!!!

Ritað 2. maí 2006 kl. 15:06 um átak| Skoðanir (15)

Ofeldi?

Ég settist niður áðan og fór að reikna. Í ljós kom að ég er við blábrúnina á því að komast niður úr offituflokknum skv. BMI stuðlinum. Í dag er BMI stuðull minn 31 en ef ég kemst niður fyrir 30 þá er ég komin niður í ofeldisflokkinn. Til þess þarf ég bara að léttast um 2,6 kíló í viðbót. Þess vegna vil ég setja mér þetta markmið:

Ég vil ná mér niður úr offituflokknum fyrir 9. maí, en í síðasta falli fyrir 16. maí.
Svo verður bara plægt áfram, það verður ekkert hætt fyrr en komist er niður í kjörþyngd!

Ritað 20. apríl 2006 kl. 17:18 um átak| Skoðanir (0)

Þreytt, en vel þreytt

Ég var dugleg í vinnunni í dag (bjó til heimadæmi sem ég þarf ekki að afhenda krökkunum fyrr en eftir viku) þannig að ég ákvað að verðlauna mig aðeins. Fékk mér ljósatíma í Abaco og var svo upprifin eftir hann að ég ákvað að drífa mig og nýta kortið sem ég fjárfesti í um daginn í Bjargi. Þar hamaðist ég á nokkrum vélum þar til það varð leiðinlegt. iPod og upphandleggsband eru alveg málið fyrir svona hegðun.

Hvernig fylgir maður svo eftir svona heilsusamlegum degi? Nú með því að pota hvítlaukssneiðum í lifur, þekja hana með Lamb Islandia frá Pottagöldrum, heilsteikja hana í ofninum og borða með steiktu grænmeti og helling af sterkri karrísósu. Svaka gott (ekkert lifrarbragð). Öllu saman fylgt eftir með DDV karamellu ís. Mmmmmm....

Ritað 19. apríl 2006 kl. 21:26 um átak| Skoðanir (0)

Dugnaðarkvöld

Ég tók rosalegt kvöld í gær. Byrjaði á vigtun seinni partinn, þar staðfestust 700g farin í viðbót, verslaði, vaskaði upp og eldaði mat. Svo var rúntað út í þorp, keypt kort í Bjargi og skellt sér í Body Balance, þar sem ég hitti Fríðu frænku. Tíminn reyndi aðeins meira á hendurnar á mér en ég hefði viljað, en ég ætla að prófa samt aftur, þetta gæti kannski styrkt þær... Nú svo fórum við Ragna systir að koma bílnum hennar af stað, en greyið stóð straumlaus og á kafi í snjó niðri á MA plani. Við grófum okkur niður á bílinn og komum honum af stað, bara til að komast að því að hann sat fastur. Hreint, ómengað GirlPower fór þá í gír og með þrjósku og þrautseigju (og tveimur gólfmottum úr bílnum) tókst okkur að losa greyið.

Ég held að allur þessi hamagangur hafi einmitt hjálpað mér töluvert, því að ef ég hefði setið heima hefðu eftirköst kókosbollanna í gær herjað á mig með sterkri sykurfíkn.

Gleymdi reyndar, ekki síður merkilegu, í færslunni í gær, að á mánudaginn vorum við Hrafnkell Myrkvi að djamma saman á meðan foreldrar hans voru í vinnunni/skólanum. Það var fínt, en honum fannst held ég ekkert verra þegar Pabbi hans kom fyrr heim en við var búist.

Ritað 29. mars 2006 kl. 11:30 um átak| Skoðanir (1)

Loksins, loksins! 21,2!

Jæja, núna kom þetta loksins! Eftir vandlega yfirlegu yfir matardagbókinni, algjörlega anal stjórn á hverjum bita (ja, svona næstum því), endalausu vatnsþambi og göngutúr í gær náði ég að hreinsa burtu þessi 300g sem mig vantaði, og 1200g til viðbótar við það! Ég er komin niður í 81,5kg sem setur mig í -21,2 kg miðað við byrjunina fyrir 6 mánuðum síðan. Ég er svo ánægð að ég næ varla niður á jörðina. Vííííí!!!

Ritað 21. mars 2006 kl. 13:54 um átak| Skoðanir (9)

Heil og sæl?

Þátturinn Heil og sæl hefur verið mikið gagnrýndur undanfarið en í honum ausir ljóshært lukkutröll út úr sér allskonar „fróðleik“... sem virðist vera svona 50/50 nokkuð rökréttar ábendingar og algjör steypa. Með henni er svo ótalandi dani sem blandar saman íslensku, ensku og dönsku svo að úr verður algjörlega óskiljanlegur hrærigrautur (betra væri ef hann héldi sig við eitt mál, þó það sé e.t.v. ekki íslenska, það má alltaf texta). Nú hafa skriðið úr felum næringarfræðingar sem gagnrýna það sem út úr lukkutröllinu kemur og þeir gagnrýna líka að hún skuli halda því fram að hún viti eitthvað um málið, verandi hvorki læknir né næringarfræðingur.

Þá fór ég að skoða málið... Hvað hefur t.d. Gillian McKeith til síns máls? Smá gúglun leiddi í ljós að hún hefur (skv. vef Channel 4) B.A. gráðu í tungumálum og málvísindum, M.A. í alþjóðasamskiptum, M.S. í „holistic nutrition“ frá dularfullum bandarískum bréfaskóla sem er ekki metinn af bandaríska ríkinu og svo Ph.D. í sama fagi frá sama skóla. Sem sagt ekkert vísindalegt grunnnám og í besta falli vafasamt framhaldsnám...

Þetta leiddi mig til að íhuga aðeins... nú er ég sjálf að fylgja kerfi sem hefur orðið að svakalegri tískubylgju, sem sagt danska kúrnum. Hann er hugarfóstur Inge Kauffeldt og hefur verið til staðar í 25 ár núna. Ég veit samt ekkert um það hvað hún Inge er menntuð eða hvaða réttindi hún hefur til að gefa þær ráðleggingar sem hún gefur... Nú veit ég að fleiri danskir detta stundum hingað inn, vitið þið þetta?

Ritað 15. mars 2006 kl. 10:08 um átak| Skoðanir (9)

-20 í sjónmáli

Ég er búin að vera að horfa á -20kg markið í tvær vikur núna. Með hressilegri viku hefði ég átt að geta tekið þetta fyrir vigtunina í síðustu viku, með frekar venjulegri viku hefði ég átt að ná þessu fyrir vigtunina í dag. En nei, í bæði skiptin niður um 400g og ég er ennþá 300g frá markinu. Næst skal ég sko ná því og jafnvel skjóta vel framhjá! Samt ergilegt að sjá markið svona nálægt og komast ekki yfir það...

Svo eru bara um 3kg í næsta mark: Nýr tugur!

Ritað 7. mars 2006 kl. 21:27 um átak| Skoðanir (8)

Fyrir/eftir myndir

Ég setti upp síðu með myndum af ferlinu í átakinu mínu. Þar eru nokkrar myndir frá því áður en ég byrjaði og svo bæti ég við myndum eftir því sem á líður. Nýjasta myndin er frá því í gær.

Ritað 5. febrúar 2006 kl. 16:10 um átak| Skoðanir (9)

Skoppedískopp!!!

Þegar ég fór í vigtun áðan var það svipuð tilfinning eins og að mæta í próf, vitandi að maður sé svo vel undirbúinn að ekkert annað komi til greina en 10! Og viti menn! 1,9 kg niður sem setti mig í -16,1 kg!! Ég er yfir mig ánægð! 15 kg markið komið!

Ég verðlaunaði mig með því að fara og kaupa mér skó, buxur og topp til að geta farið í ræktina.

Ritað 24. janúar 2006 kl. 16:44 um átak| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

400 jólagrömm í viðbót

Ég var alveg steinhissa áðan þegar Þórhildur hjá Íslensku Vigtarráðgjöfunum sagði mér að ég hefði lést um 400 grömm yfir jólin! Ég fékk meira að segja límmiða uppá það. Ég sem bjóst alveg eins við því að hafa þyngst um eitt-tvö kíló, sérstaklega þar sem vigtin sem ég hafði laumað mér á í Huldugilinu hélt alltaf fram að ég væri farin yfir 90 kílóin aftur. Þá vil ég frekar trúa þessari vigt niðri í bæ! En allavegana, allt sukkið yfir jólin (sem reyndar var í minna lagi þessi jólin) hafði ekki verri áhrif en þetta. Víííí!!!

Ritað 3. janúar 2006 kl. 17:33 um átak| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Sykurfíkn

Undanfarna þrjá daga hef ég á hverjum degi dottið í sykurneyslu þrátt fyrir góð fyrirheit um að halda mig við Danska yfir jólin. Í gær keyrði um þverbak þegar ég fékk einhverja útlenska ávaxta- og marsípanköku hjá ömmu og afa Tryggva á Dalvík. Á leiðinni til baka leið mér hálf illa af öllum þessum sykri og þess vegna ákváðum við Tryggvi að skreppa bara í gönguferð. Við fórum upp í Kjarnaskóg og tókum einn hring þar. Það var fínt, svo lengi sem hjarnið entist, en svo tók svell við og þá varð yfirferðin erfiðari. Minnti mig helst á nýlega sögu frá Full Frontal.

Jæja, ég ætla allavegana að reyna að forðast sykurinn aðeins meira yfir jólin og vera dugleg að borða grænmetið mitt. Blogga sennilegast ekki meira fyrr en eftir aðfangadag.

Gleðileg jól!

Ritað 23. desember 2005 kl. 10:36 um átak| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)

Nýr tugur!

Ég er svo montin núna! Fór í vigtun áðan og síðustu vikuna, árshátíðarvikuna n.b., fóru 1,4 kg! Ég er komin niður í 89,8 kg úr 102,7 kg upphaflega og er þar með búin að missa 12,9 kg. Þetta er svo frábært! Ég er búin að setja inn töflu á síðuna, þar sem árangurinn er skráður.

Ég fór í gær og keypti mér garn og prjóna. Ég ætla að prjóna mér peysu í medium. Hún er voða sæt, með breiðum kraga og berum öxlum... ég held að það verði einmitt mjög skemmtilegt þegar ég verð orðin nógu grönn og sæt til að fara í medium föt... sjáum til hvernig það heppnast.

Ritað 6. desember 2005 kl. 16:27 um átak| Skoðanir (8) | Tilvísanir (0)

10,1kg!!!

Ég er komin yfir 10 kílóín í árangrinum!! Ég er svo roggin núna að ég held að ég gæti sprungið! 3...2...1... BANG!! Síðustu vikuna hafa matardagbókin og litla hvíta heftið verið biblían mín og ég hef borðað svo gott sem hvern einasta ávöxt og hvern grænmetisbita sem ég átti að gera, enda græddi ég á því, 1,9 kg þessa vikuna! Víííííí!!!!

Ritað 15. nóvember 2005 kl. 16:22 um átak| Skoðanir (5) | Tilvísanir (0)

8,2 kg farin!!

Ég er orðin 8,2 kg minni manneskja en áður, vigtaðist 1,6 kg léttari í dag en fyrir viku! Það er fátt sem getur lífgað jafn mikið upp á skapið eins og svona fréttir. 1-2 vikur eftir í 10 kg markið :D Mér finnst þetta frábært, ekki síst að fólk er þegar farið að segja mér að það sjái mun á mér. Ég sé hann reyndar aðeins sjálf, sérstaklega á kinnbeinunum og undirhökunni. Prófaði skyrtu um daginn sem ég átti inni í skáp og hafði ekki komist í með góðu móti í einhverja mánuði, núna komst ég alveg í hana (það er reyndar aðeins í það að hún fari mér vel, en jæja). Í sömu heimsókn í fataskápinn tók ég líka til um 5 gamlar buxur og ákvað að jafnvel þó ég komist einhverntíman aftur í þær þá séu þær ekki á leiðinni aftur í notkun svo ég henti þeim, ásamt annarri skyrtu sem er með gati á olnboganum. Hin nýja, fína, sæta, flotta og GRANNA ég ætlar sko ekki að fara að ganga í gömlum, ljótum, götóttum fötum! Held ég verðlauni mig þegar ég næ nýjum tug með því að fá mér einhver föt...

Ritað 1. nóvember 2005 kl. 15:02 um átak| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Note to self...

...ekki setja grænmetisskammtinn saman úr 300g af gulrótum og rófum, ósoðnum. Mikið svakalega er ég þreytt í kjálkunum eftir að borða þetta.

Ritað 20. október 2005 kl. 12:21 um átak| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

Danska prógrammið

Nú er ég búin að vera á danska prógramminu í þrjár vikur og hef kvatt 5 kíló, vonandi fyrir fullt og allt. Þetta er pínu snúið, maður þarf að hugsa fram í tímann, skipuleggja heilmikið og svo virðist mjög mikill tími fara í eldamennsku. Ég hafði orð á því í gær að mér finndist að ég gerði voða lítið utan vinnu en að versla mat, elda mat, borða mat og vaska upp. Held að ég verði að finna tímasparandi aðferðir við þetta...

Ritað 12. október 2005 kl. 13:02 um átak| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Næringar spælingar

Ég vona að næsta vika gangi betur í því að halda sig við prógrammið. Ég hef nefnilega ekki haft neina orku í gegnum hálsbólguna og hitann til að pæla út hvað ég eigi að borða í hverri máltið og það er langt frá því að hálsinn minn gúdderi einhver 600g af grænmeti á dag. Mantra síðustu þriggja daga hefur verið að drekka sem mestan vökva, til að bæta fyrir það sem ég svitna frá mér, og reyna svo að innbyrða eitthvað sem inniheldur einhverjar hitaeiningar, helst sykur, svo líkaminn geti notað til að framleiða allan þennan hita sem hann býr til. Þegar hamstra-lookið (klikkað bólgnir eitlar) og músaröddin kveður ætla ég að hella mér aftur í grænmetið.

Ritað 25. september 2005 kl. 13:27 um átak| Skoðanir (3) | Tilvísanir (0)

Veik :(

Hringdi í morgun í Hlyn og tilkynnti honum að ég væri veik. Fór svo aftur að sofa. Ég er með massíva hálsbólgu, mest í kokinu, er með hita og hausverk og er voðalega mikill aumingi. Held að ég verði samt að fá mér eitthvað að borða... meika samt ekki 300g af grænmeti eins og er.

--- Það segir kannski mest um það hvað ég er búin að vera veik að ég skrifaði þessa færslu í gær en birti hana ekki af einhverri ástæðu. Ég er skárri í dag, þó ekki það góð að ég treysti hálsinum mínum í kennslu.

Ritað 23. september 2005 kl. 13:12 um átak| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Borðaðu grænmetið þitt!!

Batnandi manni og allt það, þið vitið. Ég fór nefnilega í dag niður í Furuvelli og sótti fund hjá dönsku vigtarráðgjöfunum. Þar fengum við fræðslu og vorum vigtuð (látum það liggja á milli hluta :S ). Fundurinn var langur, voðalega mikið af fólki til að byrja með og ótrúlega margir símar sem virtist ekki vera hægt að slökkva á. Mér leist vel á prógrammið og ætla að reyna að standa við þetta, en þó var það allra fyrsta verk þegar þessu öllu var lokið að brjóta eina af skáletruðu reglunum á forsíðunni... ég fór nefnilega dauðsvöng í búð. Ja, það var annað hvort það eða vera dauðsvöng áfram, ekki ætur biti heima. Held samt að samsetningin í pokanum hafi verið sú heilsusamlegasta hjá mér í óratíma. Ég kom heim og byrjaði að brytja grænmeti. Og meira grænmeti. Og ennþá meira grænmeti. Alls á ég að borða 300g með kvöldmatnum og 300g með hádegismatnum. Trúið mér: 300g af grænmeti er alveg helvítis hellingur!! Ég endaði með kúfaðan disk af grænmeti og smá kjötlufsur með, plús smá sósusletta (sem ég veit ekki ennþá hvort sé í lagi, en ég gat ekki hugsað mér að éta þetta þurrt). Eftir heillangan tíma að borða var ég alveg pakksödd og með þreytta kjálka eftir að tyggja allt kálið.

Ég er allt of þreytt núna til að stúdera uppskriftirnar sem ég fékk og reglurnar. Ætla að setja upp plan fyrir næstu viku á morgun. Verð að hugsa út hvernig ég kem öllum þessum fiski fyrir auk lifrarinnar sem ég á að éta einu sinni í viku, en hafa samt eitthvað sem Ragna greyið getur borðað (gikkur!).

Áttaði mig samt á því áðan að ég var allt of mikið upptekin af því hvað ætti að fara inn í líkamann þegar ég var að versla áðan, en ekki því sem kemur út. Þegar ég kom heim var klósettpappírinn alveg jafn búinn og þegar ég fór í vinnuna í morgun, sem þýddi neyðarferð í 10-11.

En jæja, ef þetta danska dót gengur hjá mér geta allir glaðst með mér yfir því hvað ég verð fín og flott :D Ef ég koksa á því megið þið hins vegar alveg benda á mig og hlæja, það er sem sagt opinbert skotleyfi ;)

Ritað 20. september 2005 kl. 21:03 um átak| Skoðanir (5) | Tilvísanir (0)