Night at the Museum (2006)
Við Elva skelltum okkur í bíó í gær á Night at the Museum. Ég mæli sko með þessari mynd! Svona mikið hef ég ekki hlegið í langan tíma. Ben Stiller var stórskemmtilegur sem nýi næturvörðurinn á náttúrugripasafni og þar sem allt lifnar við á nóttunni. Ég hafði samt mesta gamanið af Owen Wilson og Steve Coogan sem mini-gaurarnir. Mest fyndnir.
Annars varð ég rosalega gömul og þreytt innra með mér í gær þegar við rákumst svo á Bylgju með háskólavinkonunum sínum... ein þeirra var stelpa sem ég kenndi í GRUNNSKÓLA! Ég fékk verk í bakið við tilhugsunina um það að nemandi sem ég hafði kennt í grunnskóla, væri ekki bara BÚINN með framhaldsskóla, heldur búinn með heila önn í háskóla líka! Hvað á þetta að þýða???
Ég held ég þurfi að gera eitthvað til að mér finnist ég vera ung aftur... held samt að yfirferð yfir STÆ103 muni ekki gefa mér fixið sem ég þarf :$
Ritað 20. janúar 2007 kl. 14:35 um bíó| Skoðanir (0)
Clerks II (2006)
Bíóferð í gærkvöldi með Elvu systur, fórum að sjá Clerks II. Ég verð að viðurkenna að það er langt síðan ég sá mynd sem ég hló svona mikið að. Myndirnar hans Kevin Smith eru að jafnaði mjög fyndnar og þessi var engin undantekning. Mæli með þessu.
Ritað 16. september 2006 kl. 14:54 um bíó| Skoðanir (2)
Raunveruleikatékk
Ég fór að hugsa meira um X-men myndina í gær. Það var eitt atriði sem hafði truflað mig töluvert þegar ég horfði á myndina, nefnilega þegar engillinn stekkur í gegnum glerið á háhýsinu (tel þetta ekki spoiler þar sem þetta var sýnt í trailerum). Ég gat ekki annað en hugsað: „Nei, þetta gengur ekki. Glerið er örugglega bæði þykkt og sérstaklega styrkt fyrst það er uppi í háhýsi. Hann ætti ekki að drífa í gegn.“ Er þetta ekki merki um það að þessi fantasíu mynd hafi verið mjög góð? Ég var búin að kokgleypa því að fólk gæti hlaupið í gegnum veggi, stjórnað allskonar hlutum með huganum, leikið sér með bæði eld og ís, skotið klóm úr líkama sínum, ráðið veðrinu og skipt um form. Samt var það gaurinn sem hefði ekki átt að geta brotið glerið sem mér svelgdist á!
Ritað 6. júní 2006 kl. 13:37 um bíó| Skoðanir (3)
X-men: The Last Stand
X-men: The Last Stand stóð undir væntingum. Fyrsta myndin var góð, önnur myndin var ennþá betri en þriðja myndin var ekki alveg jafn góð. Þó var hún alveg þokkaleg. Mér fannst gaman að sjá framlög Kelsey Grammer og Vinnie Jones til myndarinnar.
Borgarbíó fær samt falleinkunn, því að ég vil halda því fram að þegar maður borgar 800 kall fyrir að fá að sjá mynd, þá á maður að fá að sjá hana alla! Þó virðist vera að vélin hafi ekki verið stöðvuð á meðan hléið var, því að þegar við komum til baka var atriðið búið sem klippt var á (í miðri setningu) og annað til viðbótar við það.
Ritað 5. júní 2006 kl. 22:31 um bíó| Skoðanir (0)
Mujeres al borde de un ataque de nervios (1988)
Gustavo sýndi okkur myndina Konur á barmi taugaáfalls eða Mujeres al borde de un ataque de nervios. Ég verð að mæla með þessari mynd! Hún er ótrúlega fyndin, mjög skemmtilegur farsi. Það kom mér reyndar á óvart að Antonio Banderas gæti leikið stamandi, hallærislegan lúða...
Ritað 23. mars 2006 kl. 21:21 um bíó| Skoðanir (0)
Rent (2005)
Rent reyndist vera alveg afbragðsgóð mynd. Leikararnir voru frábærir og sérstaklega var skemmtilegt að sjá ýmis andlit í öðru umhverfi en venjulega. Sérstaklega fannst mér Wilson Jermaine Heredia frábær sem homminn Angel og einnig Jesse L. Martin (svarti gaurinn í Law&Order) sem Tim Collins, kærasti Angel. Þessar tvær persónur skáru sig úr. Mér fannst verkið stórskemmtilegt og það náði vel að spila á tilfinningarnar.
Ritað 13. mars 2006 kl. 13:45 um bíó| Skoðanir (1)
Harry Potter
Harry Potter and the Goblet of Fire var málið hjá mér á þriðjudagskvöldið. Myndin var frábær og í henni var mjög vel farið með söguna. Þegar ég las bókina voru ýmsir hlutir sem mér fannst einmitt mjög erfitt að sjá fyrir mér og mér fannst einmitt myndin fara mjög vel með það. Einnig fannst mér myndin betri þegar kom að því að fjalla um togstreituna milli Harry, Ron og Hermione, því að þar fannst mér bókin einmitt of langdregin. Myndin dró töluvert úr þessari áherslu og ég held að hún hafi orðið betri fyrir það.
Ritað 2. desember 2005 kl. 17:12 um bíó| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Batman Begins (2005)
Við sáum Batman Begins áðan. Ágætis afþreying, kannski engin glansandi snilld en þó alveg vel áhorfandi. Það sem mér fannst einna best við þessa mynd er að ólíkt öllum hinum Batman myndunum þá leiddist mér aldrei yfir þessari. Hún var aldrei langdregin eða leiðinleg eins og hinar. Ef Katie Holmes hefði verið skipt út fyrir einhverja aðra, hefði hún jafnvel orðið ennþá betri.
Ritað 29. júní 2005 kl. 21:30 um bíó| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Mr & Mrs Smith (2005)
Systraferð í bíó í gær. Fórum á Mr. & Mrs Smith. Það er óhætt að mæla með þessari mynd. Plottið var stórskemmtilegt, mikið af húmor og action.
Ritað 22. júní 2005 kl. 16:07 um bíó| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Helgarskýrslan
Mín skellti sér suður um helgina til að reyna að hressa sig upp. Síðasta vika var nefnilega búin að vera massív, þó hún væri stutt. Hver vinnudagur mjög langur og margt að gera. Því var ákveðið að drífa sig suður og skella sér á Júróvisjón partý. Ferðirnar suður og aftur norður gengu báðar mjög vel, töluvert rok en annars ágætt. Partýið var mjög skemmtilegt þó að Noregur næði ekki að sigra í þetta skiptið.
Á sunnudag ákváðum við Tryggvi svo að kíkja í þrjúbíó á Revenge of the Sith. Mjög góð mynd, sérstaklega gott hvernig tekst að binda lausa enda án þess að öll myndin fari í það. Ég hafði áhyggjur af því að myndin yrði öll svona samtengingar-mynd til að tengja saman myndir II og IV en það kom samt vel út. Helsti gallinn við bíóferðina var þáttur sem framleiðendur höfðu engin áhrif á, nefnilega áhorfendurnir. Meðalaldur í salnum slefaði kannski upp í 12 ár, fólk var á stanslausu rápi, gat ekki þagað og bara vesen á því. Mér finnst alltaf skemmtilegast í bíó þegar maður hefur salinn svo gott sem út af fyrir sig, en ef það gengur ekki, þá vil ég helst að aðrir áhorfendur hagi sér þannig að ég geti gleymt því að þeir séu þarna. Sem sagt: ekki tala, ekki senda SMS (glampinn pirrar mig), ekki sparka í bakið á sætinu mínu, ekki byrja að flissa þegar hádrama-senan er í gangi (sér Reykvískt dæmi úr Romeo+Juliet) og ekki öskra þvert yfir þrjár raðir til að láta kasta í þig munntóbaksdós (sér Húsvískt dæmi úr Red Dragon). Kannski er ég voðalega sérvitur.
Ritað 23. maí 2005 kl. 15:40 um bíó, mitt| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)
The Hitchhiker's Guide to the Galaxy
Nýja Bíó var ekki alveg að standa sig með sýningar á Gædinum, því að á föstudagskvöldið var búið að auglýsa sýningu kl. 22 en það reyndist vera vitleysa, og svo þegar við fórum á sunnudag á myndina þá var hljóðkerfið on the fritz. Hins vegar stóð myndin alveg fyrir sínu, bæði með söguþræði sem var töluvert heilsteyptari en sá sem er í bókinni, og svo laumaði hún á ýmsu góðu. Alan Rickman stóð sig vel sem rödd Marvin, það var gaman að sjá persónur úr gömlu sjónvarpsþáttunum birtast í myndinni og svo fannst mér hlutverk Trillian hafa fengið skemmtilega breytingu frá því sem var í bókunum. Ég er frekar ánægð með myndina og hlakka til að sjá framhaldið.
Ritað 16. maí 2005 kl. 17:05 um bíó| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)
Á fólk sér ekkert líf??
Samkvæmt frétt á mbl.is þá er fólk þegar farið að safnast í biðröð fyrir framan bíóið þar sem Star Wars á að vera sýnt 19. maí. Við erum að tala um tæplega einn og hálfan mánuð þar sem þetta fólk er að bíða í biðröð. Þarf þetta fólk ekki að mæta í vinnu??? Ég hef gaman af Star Wars eins og margir aðrir, en þetta er bara sjúkt.
Ritað 7. apríl 2005 kl. 13:13 um bíó| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)
Phantom of the Opera
Ég er að fara í bíó á eftir. Framtakssamir nemendur í MA standa fyrir sérstakri forsýningu á myndinni Phantom of the Opera í Nýja Bíó, en myndin verður frumsýnd á Íslandi 4. mars. Ég hlakka til að sjá þetta því að allar auglýsingar sem ég hef séð um myndina benda til þess að hún sé verulega vönduð, auk þess sem mér finnst þetta verk alveg frábært. Einnig hlakka ég til að sjá hvað hefur breyst miðað við söngleikja uppsetninguna, því að ég sá verkið á sviði í London fyrir nokkrum árum. Þetta verður gaman.
Ritað 2. mars 2005 kl. 15:11 um bíó| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Ein heimsendamynd á leiðinni, önnur dó í meðgöngu
Ég sá teaser fyrir Hitch Hiker's Guide to the Galaxy sem á að koma út núna 6. maí. Lofar góðu. Ég hugsa að þessi mynd gæti verið hörku góð (getur allavegana ekki verið verri en síðasta mynd sem ég fór á í bíó).
Hins vegar fannst mér sorglegara þegar ég kannaði málin og komst að því að Good Omens hafði orðið andvana fædd. Terry Gilliam hafði verið orðaður við að leikstýra myndinni sem átti að vera byggð á bók eftir Terry Pratchett og Neil Gailman. Æi, jæja, maður fær víst ekki allt sem maður vill ;)
Ritað 28. janúar 2005 kl. 08:30 um bíó| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Alexander (2005) - Varúð! Ógnun við geðheilbrigði
Við systurnar fengum voðalega gott tilboð í gær: Miðar á Alexander á 400 kr. Við ákváðum að skella okkur. Þetta var klassískt dæmi um það að stundum er betra heima setið en burtu farið. Þvílíka leiðinlega myndin.
Alexander er bandarísk mynd, út í gegn. Samtölin eru löng og leiðinleg með voðalega miklu væli og kveini. Myndin í heild sinni hefði getað verið a.m.k. hálftíma, ef ekki klukkutíma, styttri ef menn hefðu bara skeint upp eitthvað af þessari munnræpu. Aldrei hef ég séð svona marga karlmenn skæla svona mikið. Konurnar skældu hins vegar ekki, þær voru allt of töff til þess.
Bardagasenurnar voru stórar og tiltölulega raunverulegar, en hey, hvaða mynd hefur það svo sem ekki nú til dags?
Ef einhver er að hugsa um að kíkja á þessa mynd hef ég þessar ráðleggingar: Þú getur a) horft á sjónvarpið, b) lesið bók, c) rölt út á vídeóleigu og leigt einhverja mynd sem vert er að horfa á, eða d) setið heima og borað í nefið, því að hvort sem þú velur a, b, c eða d þá verður það sennilega skemmtilegra en að horfa á Alexander. Ef þú ert forvitin(n) um að fræðast um Alexander Mikla þá vil ég benda á hinar ýmsu sögubækur sem hafa töluvert um hann, t.d. ritröð AB.
Ritað 20. janúar 2005 kl. 08:27 um bíó| Skoðanir (6) | Tilvísanir (1)
Bíóferð og fleira
Við Elva fórum í gær á The Stepford Wives í tilefni þess að Marimba hópurinn hennar Rögnu var að skoða myndir heima í stofu... sem þýðir að það væri mest lítið að gera fyrir okkur. Myndin var alveg þokkaleg, hægt að hlæja mikið að henni og margir góðir punktar. Reyndar margir staðir þar sem maður fór að hugsa "Karlmenn! Hmmmff!" en svo endaði allt vel. Reyndar var ekki erfitt að sjá hvar Hollywood hafði prjónað við gömlu myndina sem endaði ekki jafn vel. Í heildina litið ágætis afþreying sem fólk ætti að skella sér á, en það er kannski ekki nauðsynlegt að sjá hana í bíó.
Nú, svo spiluðum við systurnar og Doddi á föstudagskvöld. Reyndar var kvöldið kannski ekki sérlega spennandi fyrir suma í hópnum því að stór hluti tímans fór í prófið sem galdrastelpan mín þurfti að taka. Ragna, til dæmis, fékk ekki að gera neitt nema sækja vatn og skoða ættfræðibækur. Reyndar komst ég að þeirri niðurstöðu að galdrarnir sem gellan mín kunni voru ekki mikils virði í baráttu við Ogre Mage, en það er spurning um að nota þá á frumlegan hátt. Til dæmis kastaði ég Mending á buxurnar hans svo þær "gerðu við sig" og hann flæktist í þeim. Annars er lítið sem maður getur gert við galdra eins og Gaze Reflection og Continual Light. Jæja, það verður gaman næst!
--------
Ritað 22. ágúst 2004 kl. 10:53 um blogger, bíó, roleplay| Skoðanir (0)
Ágætur afmælisdagur
Ég átti afmæli í gær! Þá náði ég þeim ágæta aldri, 26 ára, fyrir utan það að Edda á enn eftir að gefa mér rúmteppið sem hún lofaði mér í 25 ára afmælisgjöf, þannig að skv. samkomu lagi okkar verð ég 25 ára fram að afhendingu þess. Reyndar fylgdi með í samkomulaginu að ég fengi ekki að verða yngri en hún þannig að seinasti mögulegi afhendingardagur verður 28. des 2007. Ég hef engar áhyggjur, því að hún Edda systir er hörku handverkskona þegar hún vill það og ég efast ekki um að þetta verður vandað rúmteppi sem ég fæ!
Allavegana, þá eyddi ég mjög sólríkum degi í Reykjavík í gær (já, það virðist líka koma sól stundum í Reykjavík). Við Tryggvi röltum niður í miðbæ, horfðum á fólkið, fórum í bíó á Fahrenheit 9/11, fengum okkur Mexíkóst að borða og fylgdumst með afskaplega glöðum Skotum. Ég er alveg á því að það ætti alveg endilega að fá þessa Skota sem oftast til Íslands og helst að leyfa þeim að vinna í hvaða leikjum sem þeir spila, því að það er alveg hörkugaman að fylgjast með þeim skemmta sér eftirá!
Nú, svo má ekki gleyma að minnast á það að ég gerði tilboð í íbúð á mánudag og samþykkti gagntilboð í gærmorgun, þannig að þegar ég kem mér norður til a skrifa undir þá verð ég orðinn stoltur íbúðareigandi! Ég er ekkert smá ánægð!
--------
Ritað 12. ágúst 2004 kl. 14:49 um blogger, bíó, mitt| Skoðanir (0)
Páskafríinu er að ljúka
Jæja, páskafríinu lýkur í dag og á morgun er það bara back to the trenches. Þetta er búin að vera ágætishvíld þó. Maður er bæði búinn að liggja í leti og vera duglegur af og til, t.d. bónaði ég bílinn minn í gær, nokkuð sem hefur held ég ekki gerst síðan bíllinn skipti um eigendur. Það er samt ótrúlegt hvað smá bón getur gert fyrir bíl, hann er núna rauður í staðinn fyrir að vera að nálgast frekar skelfilegan bleikan lit.
Ég hef eytt þónokkru af frítímanum mínum í að horfa á Family Guy sem ég fékk lánaðan frá Krissu. Fyrir þá sem hafa gaman af svipuðum húmor eins og Simpsons og Futurama þá er Family Guy alveg frábær. Ég færi mig bráðum yfir í Futurama, sem er alveg klassík.
--------
Ritað 13. apríl 2004 kl. 16:46 um blogger, bíó, mitt| Skoðanir (0)
Píslarsaga Eddu Rósar
Edda systir var að skrifa um það í blogginu sínu þegar hún fór á Píslarsögu Krists í gær. Miðað við greinina þá held ég að öllum sé óhætt að sleppa þessari...
--------
Ritað 31. mars 2004 kl. 17:23 um blogger, bíó| Skoðanir (0)