Herbergið tilbúið

Einhvernvegin gerir maður sér ekki grein fyrir því hvað lítil aðgerð eins og að mála eitt herbergi getur verið stór. Sem betur fer hafði ég nú hjálp við stóral part af þessu, en samt var eftirvinnan drjúg. En í gær tókst mér samt að klára þetta, rútta öllu draslinu út úr herberginu, þrífa, setja upp gardínukappann, hurðirnar á skápinn, skrúfa dósirnar á innstungurnar og setja upp rúllugardínuna. Þar að auki fór ég í Rúmfatalagerinn og keypti mér tilbúnar gardínur, sem þó þurfti að customiza pínulítið, þ.e. klippa lykkjurnar ofan af þeim og sauma borða á í staðinn. Þegar þær voru komnar upp renndi ég rúminu inn, bjó um og smellti af nokkrum myndum (þær koma fljótlega inn).

Það sem er samt öllu verra er að þegar maður stendur í svona verkefnum þá er ekki eins og öll önnur heimilisstörf vinnist sjálfkrafa, heldur verður maður að vinna þau líka. Þar af leiðandi sat ýmislegt á hakanum, sem ég held ég þurfi að skella mér í á eftir. Kassarnir standa ennþá í stöflum, hreinn og óhreinn þvottur þarfnast athygli minnar og gólfin sárlega vantar að strokið sé yfir þau. Á ganginum er til dæmis athyglisverður stígur í rykið því að auðvitað gat rykið ekki haldið sig inni í herbergi þegar maður var að pússa!

Jæja, vonandi gef ég mér einhvern tíma til að sinna þessum störfum, en það er ekki víst því að nú er ég víst búin að eignast lén! Ég þarf að leika mér aðeins meira að því áður en ég birti slóðina og færi bloggið yfir á réttan stað. Það kemur bráðlega, ásamt fyrir/á meðan/eftir myndum af herberginu nýmálaða.
--------

Ritað 9. september 2004 kl. 14:12 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

ADSL pælingar

Ég er búin að vera mikið að pæla síðustu daga í því hvort maður þurfi ekki að fá sér ADSL og þá frá hverjum maður ætti að kaupa þetta. Mér sýnist að maður endi með því að kaupa græjurnar hjá Margmiðlun en ég er samt tvístígandi í þessu. Það sem ég hef sérstaklega áhyggjur af er hvernig fjárhagsstaðan verður hjá mér á næstu mánuðum. Nú er ég búin að skipta um starf og fá launahækkun, en ég er líka búin að kaupa íbúð og með því fylgja aukin útgjöld... Þetta er erfitt mál...
--------

Ritað 8. september 2004 kl. 10:49 um blogger, tölvur| Skoðanir (3)

No rest for the wicked...

... segir í máltækinu. Þannig var líka hjá mér í gær, ég var ekki fyrr búin að vinna í skólanum að ég kem heim og byrja að pússa spartl. Ég hata spartl. Eftir að hafa nuddað og juðað í um þrjá tíma var loksins kominn tími til að mála. Núna er svefnherbergið komið með tvo fína dekkri veggi. Þegar ég kem heim í dag get ég málað seinni umferðina og tekið draslið úr herberginu... kannski fæ ég myndavél lánaða og birti fyrir/eftir myndir af herberginu. Sé til...
--------

Ritað 7. september 2004 kl. 08:34 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Massív helgi :-)

Síðastliðin helgi var alveg massív. Dinner og næs hjá tengdó á föstudagskvöld, málningarvinna á laugardag, AD&D á laugardagskvöld og haustferð kennara í MA á sunnudag! Ekki reyndi mikið á mann í kvöldmatnum, en flest annað reyndi töluvert á mann. Til dæmis þurfti að spartla alveg helling áður en hægt var að mála, og reyndar en enn eftir að mála dekkri litinn. Það er nú svo sem ekki erfitt að spartla, en það er erfiðara að pússa spartlið niður svo að vel fari. Ég á sem sagt eftir að þurfa að fara heim á eftir og pússa og pússa, en vonandi næ ég allavegana einni umferð í kvöld.

AD&D gekk mjög vel, þó svo að við urðum að púsla saman borði til að nota. Að sjálfsögðu fórum við í smá "Dungeon-crawling" og níddumst á helling af goblins. Galdragellan mín val lang best ;) réði niðurlögum flestra skrímsla, bæði með fireball, magic missiles og irritation.

Haustferðin var ágæt, frekar löng og mín var orðin mjög þreytt þegar heim var komið. Já, ótrúlegt en satt en nú er yours truly búin að fara í tvær svona gönguferðir á sama sumrinu! Það fer bráðum að verða ástæða til að kaupa sér gönguskó!
--------

Ritað 6. september 2004 kl. 11:57 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Innflutningar

Jæja, þá er maður kominn inn í íbúðina. Familían hjálpaði mér í gær að taka draslið mitt og flytja það upp á 4. hæð í Tjarnarlundi 9. Fékk meira að segja litlu systur Krissu og kærastann hennar (systurinnar) til að hjálpa til. Þegar draslið var allt komið inn voru allir alveg uppgefnir (skiljanlega) og fegnir að komast heim. Að sjálfsögðu dreif ég í því að setja hreint utan um rúmið, fara í sturtu og svo að sofa! Það var yndislegt að geta loksins sofið í eigin rúmi, í eigin íbúð!

Í dag hef ég verið að dunda mér við það að koma mér fyrir. Ég er búin að koma fyrir flestu draslinu sem fer í eldhúsið og hugsa að bráðum verði óhætt að kveikja á ísskápnum. Svo er maður búinn að sækja sér filttappa undir húsgögnin og ýmislegt fleira sem þarf til að koma þessu af stað. Fór niður í MA áðan og fékk þessa fínu IBM ThinkPad tölvu sem ég hef til afnota í vetur, það er bara verst að þegar ég ætlaði að láta hana hringja sig inn á netið þá kannaðist hún ekki við að eiga neitt módem, þannig að ég þurfti að tengja gömlu Brio til að komast á netið.
--------

Ritað 2. september 2004 kl. 15:07 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Bíóferð og fleira

Við Elva fórum í gær á The Stepford Wives í tilefni þess að Marimba hópurinn hennar Rögnu var að skoða myndir heima í stofu... sem þýðir að það væri mest lítið að gera fyrir okkur. Myndin var alveg þokkaleg, hægt að hlæja mikið að henni og margir góðir punktar. Reyndar margir staðir þar sem maður fór að hugsa "Karlmenn! Hmmmff!" en svo endaði allt vel. Reyndar var ekki erfitt að sjá hvar Hollywood hafði prjónað við gömlu myndina sem endaði ekki jafn vel. Í heildina litið ágætis afþreying sem fólk ætti að skella sér á, en það er kannski ekki nauðsynlegt að sjá hana í bíó.

Nú, svo spiluðum við systurnar og Doddi á föstudagskvöld. Reyndar var kvöldið kannski ekki sérlega spennandi fyrir suma í hópnum því að stór hluti tímans fór í prófið sem galdrastelpan mín þurfti að taka. Ragna, til dæmis, fékk ekki að gera neitt nema sækja vatn og skoða ættfræðibækur. Reyndar komst ég að þeirri niðurstöðu að galdrarnir sem gellan mín kunni voru ekki mikils virði í baráttu við Ogre Mage, en það er spurning um að nota þá á frumlegan hátt. Til dæmis kastaði ég Mending á buxurnar hans svo þær "gerðu við sig" og hann flæktist í þeim. Annars er lítið sem maður getur gert við galdra eins og Gaze Reflection og Continual Light. Jæja, það verður gaman næst!
--------

Ritað 22. ágúst 2004 kl. 10:53 um blogger, bíó, roleplay| Skoðanir (0)

Rólegir dagar

Þessir síðustu dagar hafa verið mjög rólegir hjá mér. Ég er búin að eyða tímanum hér fyrir sunnan í Borg Bleytunnar, sem er síður en svo að standa undir nafni. Í seinustu viku var nefnilega alveg svínslega heitt eins og þekkt er orðið og í þessari viku hefur verið alveg þokkalegt veður, þó svo að það séu ekki sömu brjáluðu hitatölurnar í gangi. Ég skrapp reyndar norður á föstudag til að skrifa undir kauptilboð og spila með systrum mínum og mági (AD&D, hvað annað) en brunaði beint suður daginn eftir. Það fer nú samt að styttast í það að maður fari að koma sér norður aftur til að ganga frá fasteignakaupum og svoleiðis...
--------

Ritað 18. ágúst 2004 kl. 16:25 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Karlotta snýr við blaðinu

Karlotta fór hinumegin á vefinn sinn áðan... smellti af henni mynd. Hérna sér maður bakið á henni, en áðan sást bara kviðurinn...

--------

Ritað 12. ágúst 2004 kl. 18:19 um blogger, myndir| Skoðanir (0)

Karlotta á veiðum

Sá þessa flottu könguló í garðinum hans Tryggva og reyndi að taka myndir af henni. Hún var búin að búa sér til þennan flotta vef og akkúrat þegar ég byrjaði að taka myndirnar flaug fluga í vefinn svo ég gat fylgst með því þegar Karlotta veiddi fluguna og pakkaði henni inn.

--------

Ritað 12. ágúst 2004 kl. 16:28 um blogger, myndir| Skoðanir (0)

Ágætur afmælisdagur

Ég átti afmæli í gær! Þá náði ég þeim ágæta aldri, 26 ára, fyrir utan það að Edda á enn eftir að gefa mér rúmteppið sem hún lofaði mér í 25 ára afmælisgjöf, þannig að skv. samkomu lagi okkar verð ég 25 ára fram að afhendingu þess. Reyndar fylgdi með í samkomulaginu að ég fengi ekki að verða yngri en hún þannig að seinasti mögulegi afhendingardagur verður 28. des 2007. Ég hef engar áhyggjur, því að hún Edda systir er hörku handverkskona þegar hún vill það og ég efast ekki um að þetta verður vandað rúmteppi sem ég fæ!

Allavegana, þá eyddi ég mjög sólríkum degi í Reykjavík í gær (já, það virðist líka koma sól stundum í Reykjavík). Við Tryggvi röltum niður í miðbæ, horfðum á fólkið, fórum í bíó á Fahrenheit 9/11, fengum okkur Mexíkóst að borða og fylgdumst með afskaplega glöðum Skotum. Ég er alveg á því að það ætti alveg endilega að fá þessa Skota sem oftast til Íslands og helst að leyfa þeim að vinna í hvaða leikjum sem þeir spila, því að það er alveg hörkugaman að fylgjast með þeim skemmta sér eftirá!

Nú, svo má ekki gleyma að minnast á það að ég gerði tilboð í íbúð á mánudag og samþykkti gagntilboð í gærmorgun, þannig að þegar ég kem mér norður til a skrifa undir þá verð ég orðinn stoltur íbúðareigandi! Ég er ekkert smá ánægð!
--------

Ritað 12. ágúst 2004 kl. 14:49 um blogger, bíó, mitt| Skoðanir (0)

I'm a published artist

Jæja, diskurinn er kominn út! Fékk hann í hendurnar áðan þegar kórfélagar Hóffýar voru forsöngvarar á brennunni á Mærudögum á Húsavík áðan. Það var frekar gaman að sjá liðið aftur, það eru nú nokkrar vikur síðan ég hitti flesta þeirra. Að sjálfsögðu tek ég mig frábærlega vel á diskinum :D
--------

Ritað 5. ágúst 2004 kl. 22:46 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Versló og íbúðaskoðanir

Verslunarmannahelgin í ár var held ég sú besta hingað til. Meginhluti helgarinnar fór í ágætis samveru með "tengdó" sem maður var að hitta í fyrsta skipti... ágætis fólk, ferlega "þvalt". Fór á ball á föstudagskvöld, ágætis partý áður og bara gaman. Það sem var meira óvenjulegt var samt laugardagurinn þar sem ég fór í gönguferð upp í Glerárdal með tengdafjölskyldunni. Að hugsa sér, ÉG að eyða fleiri klukkutímum í að LABBA! Skrítið. Restin af versló var samt róleg, bara að njóta lífsins.

Ég fór að skoða íbúðir í dag með Mömmu. Við sáum allt frá verstu "white-trash" vítisholum yfir í bara nokkuð sæmilega mannabúsaði. Það sem við vorum helst að leita að er íbúð sem þarf ekki mikið að gera við og ekki þarf að standa í einhverjum major framkvæmdum við. Svo er líka skilyrði að geta gengið frá sölu fyrir mánaðarmót því að ég þarf að flytja inn þá. Fundum allavegana tvær sem okkur leist á og ætlum að skoða fleiri á morgun. Ég set kannski nokkrar myndir inn þegar ég er komin nær því að kaupa.
--------

Ritað 4. ágúst 2004 kl. 21:36 um blogger| Skoðanir (0)

Ég hannaði þessa framhlið líka, þetta er geisladiskur Samkórsins, Allt brosir á Húsavík. Ég syng með á þessum disk og er meira að segja með einsöng! 

--------

Ritað 28. júlí 2004 kl. 11:31 um blogger| Skoðanir (0)

Ég hannaði þessa framhlið á geisladisk Stúlknakórs Húsavíkur sem kemur út í sumar. Reyndar ætti hann að fara að berast hvað úr hverju...  

--------

Ritað 28. júlí 2004 kl. 11:30 um blogger| Skoðanir (0)

Bílamál

Ég fór og skolaði af bílnum mínum í gærkvöldi. Ég var ekki að þvo hann neitt alvarlega, heldur öllu heldur að skola af honum fuglaskítinn sem hafði safnast upp yfir helgina. Svo virtist nefnilega vera að á meðan við fórum á ættarmót hafi allir þrestir í Reykjahverfi safnast saman og farið í keppni undir yfirskriftinni "Hver getur kúkað mest á bílinn hennar Valdísar?" Mér sýndist að margir hefðu reynt og staðið sig með algjörri príði því að hraukarnir voru skuggalega stórir. Greinilega nóg af krækiberjum í kringum Hrísateig...

Annar bíll sem á það ekki nógu gott þessa dagana er Cherokee-inn hans Dodda. Við vorum rétt ókomin í Varmahlíð þegar fóru að blikka aðvörunarljósin á Cherokee-num og hann lét sig renna inn á útskot. Þá kom í ljós að kúplingin var dáin og við byrjuðum að gera ráðstafanir til að koma græjunni niður í byggð. Ég get ímyndað mér það að það hafi verið frekar spaugilegt að sjá bílinn hennar Elvu (Hyundai Pony) draga jeppann hans Dodda (Cherokee) niður í Varmahlíð. Þar var sameinað í bílinn hennar Elvu og keyrt til Akureyrar.
--------

Ritað 27. júlí 2004 kl. 11:08 um blogger| Skoðanir (0)

Frábært ættarmót!

Ég er farin að halda það að ættin mín sé farin að verða frekar leikin í því að halda ættarmót. Þetta ættarmót gekk allavegana alveg þrusuvel. Maður mætti þarna á föstudagskvöld, frekar þreyttur, en það tók nú ekki langan tíma fyrir fólk að byrja að skemmta sér. Við tókum okkur saman, nokkuð góður frænkuhópur, og spiluðum Mr. and Mrs. og Actionary. Við Bylgja vorum saman í liði og algjörlega rústuðum keppinautunum í Actionary. "Atgeir!" Fólk var svo bara í góðum gír frameftir nóttu.

Laugardagurinn var ekki síðri, svona fyrir utan kannski kvöldskemmtunina, sem var að mínu mati lágpunktur ættarmótsins. Frekar langdregin og leiðinleg skemmtiatriði og bragðlaus matur... Það var svo sem allt í lagi því að fólk fór strax að skemmta sér meira þegar það var sloppið út úr salnum. Arnóri frænda var sett fyrir að spila á gítarinn sinn sem hann og gerði með mikilli príði allt kvöldið. Söngelskustu ættingjarnir rottuðu sig saman og héldu vöku fyrir börnunum, en það var svo sem í lagi...

Ég held að þetta ættarmót hafi í flesta staði verið vel heppnað, en helsti ókosturinn við það var samt aðstaðan. Tjaldstæðið virtist vera þökulagt ofan á möl svo að hérumbil vonlaust var að reka niður tjaldhæla, salernisaðstaðan samanstóð af einu klósetti og svo einum vaski fyrir utan. Salurinn var eiginlega allt of lítill fyrir allt þetta fólk og maturinn var frekar bragðlaus og smátt skammtaður. Svo var ekkert gsm samband, en maður mátti nú svo sem búast við því. En maður þarf svo sem ekkert að láta svona smáatriði hafa áhrif á skemmtunina.
--------

Ritað 26. júlí 2004 kl. 11:18 um blogger| Skoðanir (0)

Ættarmót

Jæja, þá er komið að því. Það virðist vera orðinn árlegur viðburður hjá mér að fara á a.m.k. eitt ættarmót á hverju sumri... allavegana seinustu ár. Mér finnst ég aldrei vita nákvæmlega hvaða ætt er að fara að hittast, en það er allt í lagi, maður þekkir fólkið þegar maður sér það. Ættarmótin eru farin að verða skemmtilegri síðastliðin ár líka, á tímabili voru þetta með leiðinlegustu samkomum sem maður gat komist á. Svo kom einhver kippur í þetta og eftir það er þetta bara gaman.

Allavegana, ég legg af stað með Elvu og Rögnu á eftir og við ætlum að bruna sem leið liggur í Bjarkarlund. Frekari fréttir á mánudag (kannski).
--------

Ritað 23. júlí 2004 kl. 08:23 um blogger| Skoðanir (0)

Picasa og Hello Bloggerbot

Var að prófa að setja inn tvö skemmtileg forrit, Picasa og Hello Bloggerbot. Picasa er forrit til að sjá um myndasafnið hjá manni en það raðar öllum myndum sem það finnur í flokka, sýnir manni smámyndir og gerir manni kleyft að gera minniháttar breytingar eins og að stækka, minnka og taka burtu rauð augu. Picasa er skemmtilega byggt saman við Hello sem gerir manni kleyft að taka myndirnar beint úr tölvunni og skella þeim á Blogger vefdagbókina manns með lýsingum. Nú á ég eftir að prófa þetta betur en mér sýnist að það sé hægt að setja margar myndir í sama bloggið og þetta virkar nokkuð vel, meira að segja með gamla þreytta módeminu mínu.
--------

Ritað 22. júlí 2004 kl. 17:14 um blogger| Skoðanir (0)

Hérna er Magni Steinn frændi minn þegar hann var bara nokkurra tíma gamall. Posted by Hello

--------

Ritað 22. júlí 2004 kl. 17:09 um blogger| Skoðanir (0)

Ótrúlega margir bjartir fletir

Það eru búnir að vera ótrúlega margir bjartir fletir á lífinu og tilverunni seinustu daga. Til dæmis heyrði ég í gær að verðlaun í Landsbankadeild fótboltans hafi verið gerð jafn há hjá konum og körlum. Þetta finnst mér vera ótrúlega mikil framför og vil hrósa þeim sem fyrir þessu standa. Þetta held ég að sé mikilvægt skref í áttina að því að ná fram raunverulegu jafnrétti kynjanna í samfélaginu.

Annar bjartur flötur er að ríkisstjórnin sé loksins að sjá ljósið og sé hætt við þetta fáráðlega fjölmiðlafrumvarp. Reyndar ættu þeir að fara eftir reglunum og halda þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eins og tekið er fram í stjórnarskrá að eigi að gera. Við sjáum til hvernig þessu horfir fram...

Fór að sjá Shrek 2 í gær. Mjög góð afþreying en er þó ekki alveg jafn góð og hin fyrri. Antonio Banderas (borið fram með rámri röddu "Banderaþ") var alveg frábær sem stígvélaði kötturinn. Í myndinni var gert stólpagrín að Hollywood og maður þurfti að hafa sig allan við að fylgjast með öllum skotunum. Söguþráðurinn og boðskapurinn voru reyndar obboðslega grunnir.

Já, og svo fékk ég leyfisbréfið mitt í morgun. Því var troðið frekar ruddalega inn um lúguna hjá mér svo að það er allt krumpað, en engu að síður hef ég núna skjalfest réttindi til að kenna á framhaldsskólastigi. Jippí!
--------

Ritað 20. júlí 2004 kl. 13:42 um blogger| Skoðanir (0)

Um Ömmu mína

Í dag er ár síðan Hulda Amma mín dó. Eftir langa baráttu tapaði hún í baráttu sinni við sitt gamla, lúna hjarta. Hún var seinasti ættingi minn af þessari kynslóð, Jói Afi, Ragnar Afi og Lauga Amma höfðu þegar farið á undanförnum nokkrum árum. Amma mín var oft kölluð "lakkrísamman" af vinum mínum því að alltaf þegar hún kom í heimsókn kom hún með afskorninga af lakkrís úr Appoló þar sem hún vann. Innan ættarinnar var hún stundum kölluð "Amma bandstrik" vegna þess að hún merkti alltaf jólagjafirnar með "Frá: Amma - Afi". Amma var dugnaðarforkur sem alltaf þurfti að vera að, meira að segja þegar hún kom í heimsókn til annarra. Mamma var oft eins og þeitispjald að passa að Amma gamla gegni ekki fram af sér við heimilisstörfin.

Já, Amma mín, hvíldu vel, þú hefur svo sannarlega unnið fyrir því. Huldufólkið saknar þín allt.
--------

Ritað 17. júlí 2004 kl. 10:38 um blogger| Skoðanir (0)

Umsóknin var samþykkt!

Ég fékk gíróseðil í póstinum í gær. Með honum á ég að borga fyrir leyfisbréfið mitt sem gefur mér réttindi til að nota lögverndaða starfsheitið "Grunnskólakennari". Ég var þegar búin að fá og borga gíróseðilinn sem tengdist "Framhaldsskólakennara" en var lengi vel í vafa yfir því hvort ég fengi leyfisbréf á grunnskólastigi, verandi rekstrarfræðingur. Ég hef sem sagt fengið náð fyrir augum nefndarinnar og þegar ég er búin að borga þennan gíróseðil (sem verður reyndar ekki alveg strax, vegna fjárstreymisvandamála) fæ ég fljótlega leyfisbréfið mitt og get kallað mig bæði grunnskólakennara og framhaldsskólakennara! Pínulítið flottara en þessi "leiðbeinanda" titill sem ég hef borið í tvö ár!

--------

Ritað 16. júlí 2004 kl. 14:18 um blogger| Skoðanir (0)

Lífið er gott, en tíminn virðist vera á móti mér...

LIFE virðist vera að verða betra og betra en bölvað kvikindið TIME virðist starfa stanslaust á móti mér. FATE og LADY LUCK virðast aftur á móti loksins vera að veita mér smá athygli...

Einn kostur við að vinna við Tónlistarskólann er hinn ágæti skápur frammi í móttöku með alveg helling af klassískum diskum. Sérstaklega hef ég tekið ástfóstri við laginu O, Fortuna í Carmina Burana (þið vitið, það sem er spilað við busavígslur og svoleiðis). Fann síðu á netinu sem hefur textana og þýðingu á þeim. Skemmtilega þunglyndislegir textar en ég vil líta svo á að þeir séu kannski ekki svona þunglyndislegir, heldur frekar að þeir séu frekar að hæðast að lífinu.
--------

Ritað 13. júlí 2004 kl. 20:54 um blogger| Skoðanir (0)

lífið er gott...

Stundum líður manni bara alveg óviðráðanlega vel... Mér líður þannig núna. Helgin var alveg óumræðanlega frábær. Við hittumst, x-ararnir, á Kaffi Karólínu á laugardagskvöld og mæting var alveg þokkaleg. Hinir sjaldséðu hvítu hrafnar sem dvelja í Danmörku voru meira að segja líka og settu mjög skemmtilegan svip á samkvæmið. Þetta var alveg frábært.
--------

Ritað 12. júlí 2004 kl. 21:59 um blogger| Skoðanir (0)

Leti...

Ég er svo löt þessa stundina að það er ekki einu sinni fyndið... hafði það af reyndar í gær að taka til í íbúðinni svo að ef konan sem Hóffý sagði mér frá ákveður að kíkja á pleisið þá verður það allavegana ekki áberandi fráhrindandi... og ef henni finnst þetta svo ægilegt þá hún um það!
--------

Ritað 9. júlí 2004 kl. 16:25 um blogger| Skoðanir (0)

Quantum Leap

Ég man þá gömlu góðu daga þegar maður var í grunnskóla og á hverju föstudagskvöldi val alveg nauðsynlegt að horfa á Quantum Leap. Þessir þættir voru í þvílíku uppáhaldi hjá mér, ekki síst vegna þess að þeir fjölluðu um svo allt annað en flestir þeir þættir sem sjónvarpsstöðvarnar buðu uppá á þessum tíma. Þetta var þegar við náðum Stöð2 í gegnum loftnet sem stóð efst á tólf metra hárri stöng sem Pabbi reisti ofan á bílskúrinn. Fyrir þetta framtak urðum við með þeim fyrstu í skólanum til að sjá Stöð 2 (það var almennt séð ekki gott samband í sveitunum). Ég man að fyrir þetta varð maður reyndar aðeins utanveltu í samræðum í skólanum, bekkjarsystkyni mín urðu að gera sér að góðu hvað sem RÚV bauð þeim uppá svo að þau vissu yfirleitt ekkert hvað ég var að tala um þegar ég vildi ræða hvað hafði gerst í þáttunum á Stöð2. Það var samt þess virði. Alltaf hefur Sam (Scott Bacula) og Al (Dean Stockwell) setið í huga mínum sem hetjurnar sem ferðuðust um tímann og björguðu öllu því sem fór úrskeiðis. Síðan þá hefur maður séð leikarana alltaf af og til og þá rifjast upp ævintýrin frá því í gamla daga... einkum situr í minni mínu þátturinn þar sem Sam lenti í líkama löggu, á meðan Al var fastur í fangabúðum í Viet Nam... á þeim tíma þegar fyrsta kona Al var einmitt að gefast upp á biðinni og taka saman við þessa löggu... Ótrúlega góður þáttur.

Um daginn sá ég einmitt Dean Stockwell í einhverri mynd (man ekkert hvaða mynd það var) og minntist á það að þessi hefði nú einmitt leikið í Quantum Leap. Þá kváðu við stunur meðal systra minna "Ójá, þeir voru yndislegir". Við ákváðum að athuga hvort hægt væri að nálgast þessa þætti á DVD og viti menn: Ný búið að gefa út fyrstu þáttaröðina! Ég stökk til og pantaði diskana frá Amazon, þeir komu um daginn og ég er að vinna mig í gegnum þá...
--------

Ritað 8. júlí 2004 kl. 11:08 um blogger| Skoðanir (0)

Fjölmiðlalögin

Ég skil ekki hvernig þessir menn sem sitja í ríkisstjórn komust þangað! Í gær frétti ég af því að nú ætli þeir að fara á svig við stjórnarskrána með því að afturkalla lögin og setja önnur í staðinn, næstum því alveg eins. Nú halda þeir því fram að þjóðin fái að tjá sig, en bara á alþingiskosningum 2007. Ég sé reyndar að ef það nær fram að ganga þá geti þeir sennilega nauðgað þessu í gegn án afleiðinga, því að mér sýnist að til að þessir flokkar tapi kosningum þurfi stuðningsmenn þeirra að taka sens og mér hefur fundist að þeir hafi ekki of mikið minni... (svo maður skjóti inn smá cult-lingói: "taktu WIZ tékk"..."critical"). Það sem mig langar samt mest að vita er þetta: hvernig í ósköpunum geta þeir haldið fram að þetta standist stjórnarskrá? Þeir sem eru búnir að væla og skæla yfir því að forsetinn hafi málskotsréttinn... það stendur þó alveg svart á hvítu í stjórnarskránni! Hefur gert það í 60 ár! Þegar þeir eru búnir að samþykkja lög og forsetinn búinn að vísa þeim til þjóðarinnar þá er málið úr þeirra höndum og þeir hefðu átt að kyngja því!

Æji, þegar ég les yfir þennan texta þá sé ég að ég er svo pirruð yfir þessu að ég get ekki einusinni sett saman meira en nokkrar sundurlausar setningar! Ég held ég þurfi að gera eitthvað annað þangað til ég get tjáð skoðanir mínar betur... kannski kemur eitthvað skárra á morgun.
--------

Ritað 6. júlí 2004 kl. 14:46 um blogger| Skoðanir (0)

Yndislegir tónleikar

Eins og fram hefur komið þá fór ég á tónleika með Metallica í fyrradag og skemmti mér alveg þrusuvel. Þeir félagar voru í banastuði, sem og hinir tæplega 18.000 manns sem voru þarna. Verandi manneskja "of the vertically challenged persuasion" þá var ég reyndar á þeirri skoðun að eitthvað mætti gera í því að hafa hæðartakmörkun þarna inni, allt of mikið af hávöxnu fólki sem tók sér stöðu fyrir framan mann og ætluðust til að maður bara sæi í gegnum það... Reyndar skipti það ekki öllu máli, hvað maður sá, heldur hvað maður heyrði! Oh, ég ætla alveg bókað á tónleikana þegar þeir koma næst!
--------

Ritað 6. júlí 2004 kl. 14:11 um blogger| Skoðanir (0)

GEDVEIKT!!!!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júlí 2004 kl. 00:27 um blogger| Skoðanir (0)

Jæja, ta mættu tessir kanar fara ad vinna fyrir kaupinu sinu. Tad er heitt herna!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 4. júlí 2004 kl. 21:39 um blogger| Skoðanir (0)

Komin a stadinn. Upphitunarhljomsveit ad spila. c",)

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 4. júlí 2004 kl. 19:52 um blogger| Skoðanir (0)

Hvaða "Movie Villain" ert þú?

Samkvæmt Liquid Generation er ég Agent Smith!


--------

Ritað 1. júlí 2004 kl. 15:34 um blogger| Skoðanir (0)

Undarlegir dómar

Maður getur ekki annað en hváð þegar maður sér þessar tvær fréttir hlið við hlið á mbl.is: Fangelsi fyrir líkamsárás á Akureyri og Dæmdur fyrir að falsa nafn konu sinnar á dómssátt. Samkvæmt fréttunum fékk maðurinn sem framdi líkamsárásina einn mánuð í fangelsi, en falsarinn fékk tvo. Báðir viðurkenndu brot sín greiðlega og báðir fengu skilorð, árásarmaðurinn í tvö ár, falsarinn í þrjú. Mér finnst þetta frekar skrítið. Af hverju fær maðurinn sem falsaði undirskrift þyngri dóm en maðurinn sem réðst á manneskju svo sá á henni?
--------

Ritað 1. júlí 2004 kl. 14:49 um blogger| Skoðanir (0)

Lágmarksþátttaka í þjóðaratkvæðagreiðslu

Ég hef verið að velta mikið fyrir mér hugmyndum ríkisstjórnarinnar um lágmarksþátttöku í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Fyrstu viðbrögð mín voru "bölvaðir melirnir, reyna allt" en svo fór ég að hugsa um málið. Ég held nefnilega að þetta gæti verið frekar óvitlaus hugmynd. Reyndar vil ég ekki sjá einhver fáráðleg ákvæði eins og að 60% þjóðarinnar verði að kjósa, annars verði ekki tekið mark á niðurstöðum atkvæðagreiðslunnar. Ef svo væri gætu t.d. 42% þjóðarinnar ákveðið að vera heima í fýlu en þeirra sjónarmið fengju samt að ráða þó svo að hin 58% kjósi einróma annað hvort já eða nei. Nei, það gengur ekki. Það sem ég vil frekar sjá er að t.d. 30% atkvæðisbærra manna verði að hafna lögunum til að þau missi gildi sitt.

Ástæðan sem ég sé fyrir þessu er að við höfum öryggisventil sem á að geta virkað ef ríkisstjórnin okkar er að fara þvert á vilja þjóðarinnar, sem sagt að forsetinn getur hafnað að skrifa undir lög og vísað þeim til þjóðarinnar. Að mínu áliti á hann bara að gera þetta ef það er greinilegt að þjóðin sér verulega á móti því sem ríkisstjórnin er að gera, en ekki ef honum sjálfum líst ekki á lögin. Því tel ég t.d. ekki að forsetinn hefði átt að vísa lögunum um Kárahnjúka til þjóðarinnar, því að þar var þessi andstaða ekki svona greinileg. Hins vegar þurfum við held ég líka öryggisventil á öryggisventilinn. Við viljum ekki að forsetinn taki oft völdin af ríkisstjórninni og því þurfa að vera til reglur um að þjóðaratkvæðagreiðslur sýni í raun og veru eindregna mótstöðu við lögin sem um ræðir.

Í þessu samhengi er samt lítill vafi og ég vona að hvað sem ákveðið verður á þingi þá mæti allir sem mögulega geta í þjóðaratkvæðagreiðsluna og, ef það er samkvæmt sannfæringu þeirra, velji að hafna fjölmiðlalögunum.
--------

Ritað 1. júlí 2004 kl. 09:20 um blogger| Skoðanir (0)

Frábær helgi

Seinasta helgi var alveg frábær! Byrjaði eiginlega á fimmtudagskvöld þegar við ákváðum að hittast sem vorum saman í Húsavíkurhópnum í náminu. Við borðuðum heima hjá Þórveigu og kíktum svo á Baukinn. Þar var bara rólegt en við spjölluðum saman aðeins frameftir en þar sem staðnum var lokað upp úr eitt þá var ekki lengi hægt að vesenast þar. Það var svo sem eins gott því að maður þurfti að fara að vinna daginn eftir.

Nú, svo kom föstudagskvöld þar sem maður fór út í sveit að spila. Við vorum búnar að safna saman í spilahóp og tókum nokkuð góða Dragonlance session. Elva stjórnaði okkur. Doddi greyið lenti í ýmsu, m.a. að detta ofan í nasirnar á stórum hval og svo að sjálfsögðu að vera hent út af öllum stöðum sem við fórum inná (fólk er eitthvað svo sjúklega tortryggið gagnvart kender).

Laugardagurinn var samt bestur. Þá ákváðum við að hittast, bekkurinn úr Hafralækjarskóla, útskriftarárgangur '94. Við mættum upp úr hádegi, fengum okkur bjór í boði Vífilfell og Ölgerðarinnar, bárum saman bækur okkar um síðustu 10 ár og spjölluðum. Svo komu börnin upp í okkur svo við þurftum að fara í ávaxtasalat og blikkleik. Ég held það sjái ennþá á öxlunum á mér eftir Ketil. Áfram með leikina: næst var farið í snú-snú og fótbolta, áður en fólk fór í sund. Að sjálfsögðu var tekin smá törn í sundbolta. Svo var borðað og horft á vídeó áður en farið var út á Húsavík þar sem okkur biðu tilboð á barnum á Sölku. Þar var alveg fáráðleg hljómsveit sem spilaði. Á heildina litið alveg frábær dagur og nefndin á hrós skilið fyrir framlagið! Nú bíður maður bara eftir næsta hitting, eigi síðar en eftir 10 ár.
--------

Ritað 29. júní 2004 kl. 13:08 um blogger| Skoðanir (0)

Besta sölu-pitch-id: vid eigum ekki Captain en tad er allt i lagi fyrir ta sem eru ekki a fyrsta glasi

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 27. júní 2004 kl. 00:08 um blogger| Skoðanir (0)

Hittingur hja bekknum ur grunnskola. Hvad annad? Bjor og snu-snu!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 26. júní 2004 kl. 16:42 um blogger| Skoðanir (0)

Eirðarleysi

Ég er eitthvað svo eirðarlaus... get ekki einbeitt mér að neinu... Þetta er frekar óþægilegt þegar eru ýmsir hlutir sem ég þarf að gera en samt get ég ekki fest hugann við neitt nema nokkrar mínútur í einu. Meira að segja þetta stutta blogg er að verða of langt fyrir athyglisspanið hjá mér...

Við systurnar höfum platað hann Dodda til að spila smá AD&D með okkur... við ætlum að hafa session í kvöld. Ég bjó mér til galdra-gellu sem því miður náði ekki of góðum tölum (teningarnir voru ekki hliðhollir mér) en verður samt ágæt held ég. Við höfum þegar fundið okkur drekabarn, látið henda okkur í fangelsi, drepið nokkra City Guards og falið okkur á skipi. Ég held að við verðum að passa okkur svo við verðum ekki að einhverju glæpahyski sem terrorizar Krynn...

Það fer að styttast í Metallica! Nú eru aðeins 9 dagar til stefnu!

Athyglisspan á við gullfisk... "Nei! Vá! Kastali!!!"
--------

Ritað 25. júní 2004 kl. 11:05 um blogger| Skoðanir (0)

Beljur!!

Þegar ég var í Prag var alveg yndisleg listasýning í gangi: úti um alla borg voru beljur úr trefjaplasti sem búið var að skreyta. Til dæmis sá ég þessa rétt fyrir utan mollið við hliðina á hótelinu og þessi er rétt hjá púðurturninum. Marda sagði okkur að þessi sýning væri í gangi um alla Prag og hefði farið þannig fram að hellingur af listamönnum fengu beljur úr trefjaplasti og fengu sjálfir að ráða hvernig þær væru skreyttar. Svo var þeim dreift út um allt. Það fannst mér alveg snilld að labba um göturnar á Prag (áður en ökklinn bilaði) því að alltaf af og til sá maður nýja belju.

--------

Ritað 24. júní 2004 kl. 08:38 um blogger| Skoðanir (0)

Palli var einn í heiminum

Mér líður eitthvað svo undarlega... tékkaði á póstinum mínum áðan... ekkert, ekki einusinni ruslpóstur! Ég fékk reyndar um daginn aðgang að ruslpóstsíu hjá MI sem síar slatta af draslinu (m.a. Garfield myndasögurnar) en hleypir helling í gegn og ég sé enga leið til að segja síunni hverju eigi að hleypa í gegn og hverju ekki. Allavegana, þá fæ ég engan póst...

Annars dreymdi mig furðulegan draum í morgun... ég var á ferðalagi (surprise surprise) og hafði þurft að vera að skipta um hótel og eitthvað vesen... nema bara að þegar allt var í stressi vegna heimferðar átti ég í vandræðum því að ég hafði gleymt að skila herbergislyklinum á einhverju hótelinu, en hafði hins vegar skilað lyklinum að skólanum! Olli mér heilmiklum áhyggjum.
--------

Ritað 24. júní 2004 kl. 08:23 um blogger| Skoðanir (0)

Harry Potter og fanginn frá Azkaban

Ég kíkti í bíó í gær með Elvu systur og Elke og Pere sem bæði vinna á Hvalasafninu með Elvu. Fórum á Harry Potter and the Prisoner of Azkaban. Myndin er mjög góð, afbragðs afþreyingarefni, en því miður er hún ekki nema tveir tímar og 20 mínútur svo að það næst ekki alveg nógu vel að gera henni skil. Ég hefði alveg þegið þriggja tíma mynd. Með því að hafa myndina svona "stutta" finnst mér hún hérumbil hafa verið stytt niður í söguágrip. Engum tíma er eytt í það að velta sér upp úr hlutunum, eins og furðulegri hegðun Hermione. Þrátt fyrir það er myndin vel stytt, og ég man ekki eftir neinum mjög áberandi atriðum sem vantaði.
--------

Ritað 22. júní 2004 kl. 09:26 um blogger| Skoðanir (0)

Á fullu við að slappa af

Jæja, nú þegar ég er komin aftur til Húsavíkur og búin að slappa af í rúman sólarhring er ágætt að fara að skella nokkrum línum inn. Maður skreið inn um dyrnar upp úr kl. 3 um nóttina í fyrrinótt og dugði ekki betur en að skella sér beint upp í rúm. Ferðin frá Zlin í Tékklandi var orðin svo löng að eftir að hafa setið í rútu, flugvél og keyrt bíl norður, voru olnbogarnir mínir fastir í beygðri stöðu (andskotans gigt). Ferðaþreytan er smám saman að víkja fyrir venjulegri leti.

Ég ætla ekki að halda því fram að ég hafi ekkert lært í Tékklandi. Til dæmis lærði maður að aginn þar er allt annar í skólum en hér. Þar standa allir nemendur upp þegar einhver kemur inn í stofuna og setjast ekki aftur niður fyrr en þau fá leyfi. Eldri samkennarar mínir og samstarfsmenn urðu dreymnir á svip þegar þeir sáu þetta því að þetta höfðu þau sko þurft að gera í gamla daga þegar allt var betra... Að sjálfsögðu voru sumir í hópnum sem litu strax svo á (í samræmi við nútíma tískustrauma í fræðslufræðum) að börnin væru afskaplega bæld þar sem þau þurftu að gera þetta (ég gat ekki séð reyndar að þau væru svo merkjanlega vansæl, bara heilbrigðir krakkar.

Annað sem maður lærði reyndar er að tíminn virðist líða á allt annan hátt í Tékklandi en á Íslandi. Ef Tékki gefur upp verð á vöru sem t.d. 10 kórónur þá margfaldar maður með 2,7 til að fá út íslenskar krónur. Það sama gildir um tíma. Ef Tékki segir að eitthvað taki 20 mínútur verður maður að margfalda með a.m.k. 1,5 til að fá út raunverulegan tíma, sem sagt a.m.k. hálftími. Þetta virtist gilda um flest allt, hvort sem um væri að ræða hvað tæki langan tíma að labba á milli staða, hvað yrði rútuferðinn löng, hvað væri langt í matinn... Eftir að maður áttaði sig á kerfinu gerði maður bara ráð fyrir þessu og hætti að stressa sig...

Fleiri fróðleiksmolar síðar...
--------

Ritað 15. júní 2004 kl. 10:37 um blogger| Skoðanir (0)

Nuna er eg allt of treytt og gæti sofnad ofani diskinn minn. Eg se kalda sturtu og rum i hyllingum.

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 10. júní 2004 kl. 17:39 um blogger| Skoðanir (0)

kkur ut med gjöfum. Svo komum vid til Luhacovice tar sem er hægt ad drekka ölkelduvatn (sem midad vid bragdid hlytur ad vera rosalega hollt).¿

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 10. júní 2004 kl. 17:25 um blogger| Skoðanir (0)

Dagurinn er buinn ad vera godur en allt of langur. Krakkarnir i Vizovice voru med frabæra syningu handa okkur med söngvum, dansi og leikjum. Tau leystu oü

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 10. júní 2004 kl. 17:25 um blogger| Skoðanir (0)

I feel like shit! Eins og tad se ekki nog ad madur hafi snuinn okkla, ta tarf madur endilega ad fa kvef lika!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 10. júní 2004 kl. 05:39 um blogger| Skoðanir (0)

Barrtréin herna eru solbrennd

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 9. júní 2004 kl. 08:26 um blogger| Skoðanir (0)

Jæja, ta fer madur fra Prag an tess ad hafa keypt svo mikid sem eitt kristalstaup eda eina strengjabrudu. Hmmfff!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 9. júní 2004 kl. 06:08 um blogger| Skoðanir (0)

Fregnir fra Praha

Ju, nu er madur buinn ad vera i Praha i thrja daga og eg er buin ad hafa tad af ad snua a mer okklann. Eirin var svo god ad teipa a mer loppina en eg geng eins og spitukarl. Eg eyddi tvi deginum i ruminu uppi a herbergi ad vorkenna mer (og ad lesa daVinci Lykilinn). Svona er tad tegar madur drekkur allt of mikid... tad var rosalega gaman i gaerkvoldi, en eg get ekki hugsad mer ad gera tetta oft... ekki ef eg enda svona...

Annars forum vid i frekar skemmtilegan tour i gaer um gamla baeinn en eg missti (skiljanlega) af tournum i dag sem var um kastalahverfid. (Va hvad er erfitt ad pikka a svona baeklad lyklabord). Eg kom allt of seint i kvoldmatinn i gaer tvi ad vid Una villtumst ut um allt. Tvi thurfti eg ad vinna upp glatadan tima og drakk otaepilega.

Well, svona er lifid.
--------

Ritað 7. júní 2004 kl. 20:30 um blogger| Skoðanir (0)

Ljufa Anna lattu mig birtu fa

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 6. júní 2004 kl. 21:54 um blogger| Skoðanir (0)

What happens in fight club stays in fight club

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 6. júní 2004 kl. 21:38 um blogger| Skoðanir (0)

Thu ert svo yndisleg manneskja!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 6. júní 2004 kl. 21:20 um blogger| Skoðanir (0)

Fylleri a gamla torgi... Off the record...

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 6. júní 2004 kl. 21:04 um blogger| Skoðanir (0)

ta getur hann ekki svindlad meir!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 18:40 um blogger| Skoðanir (0)

Allir i stræto, allir i stræto, enginn med Steindori, tvi hann er svo mikill svindlari. Tad verdur gaman, tad verdur gaman, tegar hann Steindor deyr,

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 18:38 um blogger| Skoðanir (0)

Komin til Tekklands og komin med toskuna. Rosaleg svitalykt er af einhverjum!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 18:16 um blogger| Skoðanir (0)

Jæja, ta er frihöfnin afgreidd. Komin med liter af havana club (kostadi jafn mikid og 1 gloss) og nu er allt i ro medan bedid er eftir flugi.

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 13:36 um blogger| Skoðanir (0)

Eg held ad nu se stressid buid. Komin inn i leifsstöd og komin med bjor. Bara mellow. Ta er bara eftir ad kikja i frihöfnina. Gott mal.

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 12:40 um blogger| Skoðanir (0)

Komst eftir langan akstur i borg bleytunnar. Thratt fyrir sol og gott vedur alla leidina stod hun undir nafni og sendi blautar kvedjur.

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 5. júní 2004 kl. 00:04 um blogger| Skoðanir (0)

Hehe... Það les þetta greinilega einhver

Var að kíkja á síður fyrrverandi bekkjarfélaga þegar ég rakst á þessa síðu hér þar sem Már (hver sem það er) tekur saman lista yfir síður bloggara sem voru ánægðir með hann Óla. Hver haldið þið að hafi verið þar á lista önnur en your's truly? Magnað. Það les þetta greinilega einhver.
--------

Ritað 4. júní 2004 kl. 12:44 um blogger| Skoðanir (0)

Nú er stutt í það...

... að ég haldi af stað til Tékklands. Ég býst ekki við því að blogga mikið á meðan ég er þar, nema ég komist á netkaffi úti í Prag. Annars held ég að ég sendi SMS inn á bloggið við og við þannig að síðan verður ekki alveg dauð. Það byggist reyndar svolítið á því að ég finni leið til að hlaða símann minn þegar út er komið, því að ég er ekkert viss um að hleðslutækið mitt virki þarna úti. Pirrandi árátta hjá fólki að þurfa endilega að hafa mismunandi klær úti um allt. Ég meina, bara á okkar litla Íslandi sér maður tvær gerðir af innstungum í veggjum... Ég er farin að röfla um einhverja vitleysu... Ætli maður geti fengið einnota batterí fyrir Nokia 3510...?

Mikið er maður annars orðinn stressaður fyrir þessa ferð. Ég vaknaði kl. 4 í nótt í svitabaði og með kökkinn í hálsinum því að mig dreymdi svo hrikalegan draum. Ég var einhverstaðar úti í rassgati en var alltaf að reyna að komast til Akureyrar því að ég ætlaði að hitta Kristbjörgu. Við höfðum ætlað að borða saman og djamma og gera eitthvað skemmtilegt. Það var eitthvað fólk þarna sem hálf neyddi mig til að vera hjá þeim því þau voru með eitthvað partý og vildu svo endilega að ég væri hjá þeim "í smástund". Svo lít ég á klukkuna og hún er orðin 9 og ég ekki lögð af stað til Kristbjargar. Það fannst mér svo ægilega sorglegt að ég vaknaði, því að mér fannst svo ömurlegt að hafa svikið Krissu, því ég hafði lofað henni að koma. Nóg finnst mér ég vera farin að gefa loforð sem ég get ekki staðið við án þess að fara að svíkja vini mína og láta ekki einu sinni vita af hverju...

Jæja, best að halda áfram að vinna. Ég fer suður eftir skólaslitin í dag, gisti í Hafnarfirði í nótt (takk annars Heiðar fyrir að sækja miðana fyrir mig), fer til Keflavíkur um hádegi á morgun, í loftið upp út tvö og komin til Tékklands einhverntíma seinnipartinn... man ekki kl. hvað.

It's 106 miles to Chicago, we've got a full tank of gas, half a pack of cigarettes, it's dark and we're wearing sunglasses. Elwood, The Blues Brothers (1980)
--------

Ritað 4. júní 2004 kl. 08:35 um blogger| Skoðanir (0)

Ljósið í myrkrinu

Blessaður verði hann elsku forsetinn okkar! Haldiði ekki bara að kallinn hafi neitað að skrifa undir þessa lagaleysu sem ríkisstjórnin ætlaði að troða með afli ofan í kokið á þjóðinni? Ég er svo ánægð með þetta, því að nú, í fyrsta skipti frá því landið fékk sjálfstæði, er það sýnt í verki að lýðræðið virki hjá okkur og að stjórnarskráin sé ekki bara upp á skraut. Loksins fær þjóðin sjálf að tjá sig með raunverulegum hætti um málefni sem kemur henni verulega við. Ég er búin að fá nóg af þessu eilífa fulltrúalýðræði sem við höfum haft í gangi, þar sem þjóðin fær engu að ráða sjálf heldur aðeins hverja úr takmörkuðum hópi takmarkaðs fólks á að velja til að raunverulega ráða. Þegar það eina sem um er að velja er hvaða flokk maður vill kjósa yfir sig er mjög erfitt að tjá sig almennilega um málefnin, því að maður er yfirleitt aldrei alveg sammála flokknum í öllum málefnum. Þá er hætta á því að maður kjósi flokkinn, aðallega vegna þess að maður hefur alltaf gert það.
--------

Ritað 2. júní 2004 kl. 16:41 um blogger| Skoðanir (0)

Geðveiki

Það er allt á fullu í dag. Það er endalaust margt sem maður þarf að gera fyrir helgina og ég held ég sé að drukkna. Úff!! Einkunnir, skýrslur og allskonar hlutir sem maður þarf að ganga frá, að maður tali nú ekki um svona hluti eins og að hafa tíma til að sofa og slappa af. Jæja, 3 dagar í Tékklands-ferð.

Góðar fréttir samt: Metallica miðarnir komu í gær!! Nú eru þeir í vörslu Elvu systur og ég treysti því að hún haldi þeim öruggum þar til í júlí! Gvuð hvað ég hlakka til! 32 dagar í Metallica.
--------

Ritað 2. júní 2004 kl. 14:07 um blogger| Skoðanir (0)

Bjart útlit

Jæja, þá eru bara eftir tveir dagar áður en blessuð börnin tvístrast út í sumarið og sólina... LOKSINS! Það er nett pína að vera að þröngva þessum greyum í gegnum þemavinnu núna. Ég vona að kennarar hafi vit á því að skáka til í skóladagatali næsta vetur svo að þemavinnan lendi ekki seinast á önninni. Þá er skárra að hafa bara þemavinnu um miðja önnina, prófin seinast og svo bara hætta!

Það er að læðast að mér að ég sé að fara í ferð til útlanda, en ég er samt ekki að átta mig á því... Kannski að það fari að hvolfast yfir mann næstu daga, en ég hef bara allt of marga hluti til að vera stressuð yfir þangað til.
--------

Ritað 1. júní 2004 kl. 13:34 um blogger| Skoðanir (0)

Smælaðu framan í heiminn!!!

Ég kom í skólann í dag í fúlu skapi, frústreruð yfir þessar heimsku ríkisstjórn sem við höfum yfir okkur og öllu því sem hún gerir... ég get samt ekki verið frústreruð eða fúl á neinn hátt lengur: ÉG FÉKK STARFIÐ!!!! Ég fékk póst frá Jóni Má áðan þar sem hann býður mér að kenna stærðfræði við MA á næsta ári!! Ég hlakka svo til!! Ég á bara erfitt með að flissa ekki eins og hálfviti!! AKUREYRI, HERE I COME!!
--------

Ritað 25. maí 2004 kl. 08:34 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Rólegt í dag

Dagurinn í dag er frekar góður, rólegur... Ég er búin að leggja fyrir þau próf sem ég kem til með að leggja fyrir, búin að fara yfir þau en núna á ég eftir að meta almennilega þau verkefni sem nemendurnir hafa unnið í vetur. Það á eftir að ganga ágætlega.

Ég tel niður:
- 4 kennsludagar eftir á miðstigi
- 12 dagar til Tékklandsferðar
- 41 dagur í Metallica tónleika!!!!

--------

Ritað 24. maí 2004 kl. 13:37 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Það er allt reynt

Þetta er alveg stórmerkilegt. Ég var að lesa frétt áðan um einhverja stofnun, sem er vandlega styrkt af Microsoft, sem er búin að birta skýrslu um niðurstöður "rannsóknar" um uppruna Linux stýrikerfisins. Þar kemur fram að það geti ekki verið að Linus Torvalds hafi búið til Linux frá grunni heldur hafi hann stuðst við kóða úr Unix eða Minix kerfunum. Það sem mér finnst merkilegast við það sem ég las er að niðustöðurnar virðast bara vera byggðar á spekúleringum um að kannski hafi einhver annar gaur geta gert þetta á lengri tíma, en ekki Linus á sínu hálfa ári með litla reynslu. Ég hef ekki lesið skýrsluna sjálfa, bara fréttina, en ég ætla að vona að þetta fólk hafi ekki byggt alla skýrsluna sína upp á svona lélegum vinnubrögðum.

Jæja, kallið mig barnalega, en ég vil frekar trúa því að hann hafi kannski bara alveg getað gert þetta. Sérstaklega þegar maður tekur tillit til þess að upprunalega útgáfan af Linux var nú ekki beinlínis Linux eins og það er í dag... þetta var beinagrind með helling af böggum en mikla möguleika. Ég vona að Linusi takist að hrista þetta af sér.
--------

Ritað 23. maí 2004 kl. 13:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Þetta er allt á uppleið

Sko, þetta er það sem ég var að meina! Sólskin, gott veður, eitthvað sem maður getur sætt sig við! Smá galli að vera ennþá í vinnunni, en það má nú bara fara að hætta því.

Ég tel niður:
- 0 kennsludagar eftir á unglingastigi fyrir vorpróf
- 5 kennsludagar eftir á miðstigi
- 15 dagar til Tékklandsferðar
- 44 dagar í Metallica tónleika!!!!
--------

Ritað 21. maí 2004 kl. 14:13 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Dilbert er sérstaklega góður í dag

Oh, hvað það er gott að hafa frí í dag. Maður getur sofið frameftir, hugsað um að taka til heima en gert svo ekkert í því, hugsað um að baka, en gert svo ekkert í því heldur, lesið aðeins, þvælst á netinu og fleira skemmtilegt...

Mér fannst dilbert annars sérstaklega skemmtilegur í dag:


Hárið á Pointy Haired Boss er greinilega ekki jafn heimskt og afgangurinn af honum.
--------

Ritað 20. maí 2004 kl. 12:34 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)

Veðrið - update

Sko. Allt er gott í hófi. Mér finnst við vera komin með alveg nógu mikinn vetur í vetur. Ég er alveg steinhætt að nenna þessu. Nú vil ég fá sólskin og fínt veður...

Ég tel niður:
- 1 kennsludagur eftir á unglingastigi fyrir vorpróf
- 6 kennsludagar eftir á miðstigi
- 17 dagar til Tékklandsferðar
- 46 dagar í Metallica tónleika!!!!
--------

Ritað 19. maí 2004 kl. 14:15 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Hvað er málið með þetta veður???

... ég meina, það er kominn 18. maí, for Om's sake. Hverjum dettur í hug að hafa snjó? Jæja, ég vona að þetta sé þó allavegana seinasta hretið í vor. Annars fer þetta að hafa verulega slæm áhrif á gróðurinn og fuglana.

Talandi um fugla, þrestirnir hérna á svæðinu eru eitthvað klikk! Heima hjá Mömmu og Pabba er þröstur sem hefur tekið sig til og búið sér til hreiður ofan á gaskútnum á grillinu þeirra. Svo verður hann ægilega skúffaður ef einhver vogar sér út á pallinn, hypjar sig reyndar, en kíkir á pallinn og kvartar. Ef annar þröstur kemur á pallinn er hann rekinn í burtu með illu.

Nú svo sáum við flugorustu út um gluggann hérna á kennarastofunni í gær. Máríerla átti þar í stríði við þröst. Hún var búin að helga sér hreiður undir þakskegginu en þrösturinn ágrintist það greinilega og gerði ítrekaðar loftárásir á hana. Máríerlan barðist hatrammlega á móti og veitti enga eftirgjöf. Á endanum hrökklaðist þrösturinn í burtu en kannski var hann búinn að skemma hreiðrið eða eggin, því að hvorugt hefur sést í dag. Þrestir geta verið andstyggðar skeppnur og berjast hiklaust fyrir sínu.
--------

Ritað 18. maí 2004 kl. 08:40 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Tilraunum lokið

Ég held ég sé hætt tilraunum í bili. Ég prófaði að setja inn þetta tilbúna útlit í Blogger, fyrst þeir eru farnir að bjóða upp á fleiri útlit en þessi gömlu ljótu. Hins vegar nenni ég ekki að uppfæra útlitið á þessum gömlu til að þær líti út eins og þessi þannig að þær verða alveg eins og út úr kú í bili. Athugasemdirnar verða áfram keyrðar á Haloscan því að Blogger athugasemdirnar virðast virka þannig að bara þeir sem nota Blogger fyrir vefdagbók megi setja athugasemdir inn, nema þeir vilji gera það sem Anonimous. Ekki nógu sniðugt. Ég hefði samt gjarnan viljað geta sett athugasemdakerfi sem tengdist Blogger betur, því að það er pirrandi að þurfa að vinna þetta í mörgum kerfum.

Það eru samt margir góðir kostir við Bloggerinn sem þeir eru búnir að bæta við og ég hlakka til að prófa mig áfram með þá.
--------

Ritað 17. maí 2004 kl. 17:56 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Athugasemdir - frh

Ég held ég haldi áfram að nota Haloscan, mér líst eiginlega ekki á það hvernig Blogger útfærir athugasemdirnar.
--------

Ritað 17. maí 2004 kl. 13:15 um blogger| Skoðanir (0)

Athugasemdir

Ég sá það að Blogger er farinn að bjóða upp á athugasemdir svo að ég þarf ekki að styðjast við Haloscan til að gera þetta. Á meðan ég er að prófa mig áfram með þetta munu athugasemdirnar vera allavegana.
--------

Ritað 17. maí 2004 kl. 10:39 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég er að fara á Metallica 4. júlí!!

Hæ hó jibbí jei, ég er að fara á Metallica! Reyndar var uppselt rétt áður en við komumst inn um dyrnar á Og Vodafone, en það var allt í lagi því að Elva systir vaktaði netið og pantaði miða handa okkur! Við höfðum ætlað að kaupa 7 miða, 1 á mann handa hverri systur (4), 1 handa Dodda og 2 handa Palla vini hennar Kristbjargar. Þar sem Elva náði í 4 miða ætluðum við að bíða lengur í röðinni og athuga hvort við næðum í 3 miða í viðbót, en svo reyndist vera uppselt. Doddi gat samt reddað einum miða svo að við höfðum 5 miða handa okkur og Palli varð því miður að redda sér öðruvísi.

Í biðröðinni var svona tíbísk biðraðar-menning og fólk var með alls konar dót til að gera biðina bærilegri, t.d. gítara, græjur, stóla, teppi og tjöld. Þannig spratt sú mikla speki: "Enginn er verri þó hann sé Rússi". Við svipuð tækifæri komu fram svipaðir gullmolar, eins og "Sjaldan er ein rúðan stök", "Aldrei kemur hjólreiðarmaður þegar maður þarf á honum að halda", "Ef síminn er ekki til þín, farðu þá til Símans" og "Sama hvað gerist höfum við alltaf minninguna um Bigga".

Allavegana, sjáumst á Metallica 4. júlí!!
--------

Ritað 16. maí 2004 kl. 15:38 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

So close, no matter how far... Erum komnar ad andlitinu a Apotekaranum

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 15. maí 2004 kl. 10:59 um blogger| Skoðanir (0)

Va! Rosa framfor! Komnar ad kronunni!

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 15. maí 2004 kl. 10:31 um blogger| Skoðanir (0)

Enginn er verri to hann se russi. Kv ur bidrodinni

Örbloggfærslu sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

--------

Ritað 15. maí 2004 kl. 10:21 um blogger| Skoðanir (0)

Gestabókin komin í lag

Gestabókin mín er komin í lag þannig að það ætti að vera hægt að nota hana núna. Hún virkaði ekki rétt af einhverjum ástæðum, en ég hef skellt henni í lag núna.
--------

Ritað 13. maí 2004 kl. 17:51 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Nú styttist í Metallica miðasölu

Ég er farin að bíða spennt eftir því að kaupa miða á Metallica tónleikana í sumar. Miðasalan hefst á laugardag á hádegi og við systurnar (þessar eldri allavegana) ætlum að hafa herkænsku í gangi til að tryggja það að við náum í miða. Við erum ekki alveg búnar að klára planið en það er öruggt að við ætlum að ná í miða.
--------

Ritað 12. maí 2004 kl. 10:39 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Hreyfimyndir

Ég var að prófa mig áfram með forrit sem heitir WinMorph. Ég sótti það ókeypis hjá Tucows en það er eins og maðurinn sagði, maður fær það sem maður borgar fyrir. Forritið er óstöðugt og hjálpin er alveg vonlaus. Mér tókst samt að fikta í því og búa til þessa skrá.
--------

Ritað 12. maí 2004 kl. 10:20 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Smá slys í gær

Blogger var að setja nýtt útlit á síðuna hjá sér, en það olli smá vandræðum fyrir mig. Ég er nefnilega með nokkur blogg í gangi, s.s. þetta blogg, glósurnar mínar, fréttablogg hjá Tónlistarskólanum og síðan myndablogg fyrir Tónlistarskólann. Ég var vön því að hafa mitt prívat blogg efst svo ég smellti á það og byrjaði að tjá mig. Ég skrifaði sem sagt heillanga grein um helgina og sendi inn en sá svo að greinin hafði endað á glósunum mínum. Þá hafði sem sagt glósubloggið verið efst á lista, en ekki mitt blogg. Ákaflega slæmt því að ég var nýbúin að senda kennaranum mínum slóðina að þessu sem verkefnaskil fyrir eitt verkefnið. Vægt áfall. Reddaði því reyndar með því að eyða því út og setja á réttan stað. Svona getur maður fengið hland fyrir hjartað.
--------

Ritað 11. maí 2004 kl. 15:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Góð helgi

Þetta var hreint út sagt alveg frábær helgi. Maður þurfti að keyra í stressi til Akureyrar á Föstudag eftir að hafa prentað út helling af glærum og sendst á milli staða vegna þess að það þurfti að skrifa undir eignaskiptasamning fyrir íbúðina mína. Til þess að það væri hægt þurftu Mamma og Pabbi að skrifa undir umboð sem veitti mér leyfi til að skrifa undir fyrir þeirra hönd. Það tókst með alls konar tilfærslum.

Nú, svo mættum við í Háskólann á laugardagsmorgun til að flytja verkefnin okkar. Reyndar mættum við kl. 8 bara til að komast að því að dæmið átti allt að byrja kl. 8:30. Auglýsing um það hékk uppi í anddyri skólans, en Bensi karlinn sá sér ekki fært að senda okkur þær upplýsingar, eða dagskrána hjá okkur. Það olli nettum pirringi í hópnum, en hvað um það, the show must go on. Það sem fór kannski meira í taugarnar á fólki, var að við fengum fyrst að vita þarna um morguninn hvernig vægið væri innbirðis milli þeirra þátta sem verkefnið samanstóð af. Sumir höfðu lagt ofuráherslu á skriflegu afurðina sem við áttum að skila til Bensa á miðvikudag, en minna lagt á sig til að æfa fyrirlesturinn eða vanda til glæranna. Svo voru aðrir sem höfðu lagt áhersluna á glærurnar en ekki lagt jafn mikið í skriflegu skýrsluna. Þeir voru þeir heppnu, því að af 60% voru 10% úr skýrslunni en 50% úr kynningunni á laugardaginn. Ég var fegin, því að minn hópur lagði áhersluna á kynninguna.

Kynningarnar voru mjög athyglisverðar, t.d. var hópur sem flutti fyrirlestur um "Finnsku aðferðina" sem byggist að hluta til á hlítarnámi. Eftir kynningarnar ákváðum við að nota seinasta tækifærið okkar til að fara aðeins út á lífið saman. Við skelltum okkur á Greifann, fórum þaðan yfir á Kaffi Amor og enduðum á Vélsmiðjunni þar sem var einhver hörku hljómsveit. Ég prófaði nokkra nýja drykki, t.d. get ég sagt að Mojitos er alveg ljúffengur drykkur með rommi og myntulaufum, en Manhattan er mjög sterkur en rennur frekar ljúft niður. Þetta var alveg frábært, alveg nákvæmlega það sem ég þurfti á að halda, enda ekki komist á alvöru fyllerí í marga mánuði!
--------

Ritað 10. maí 2004 kl. 10:33 um blogger, menntamál, mitt| Skoðanir (0)

post hoc ergo propter hoc

Þetta er latína og þýðir "Eftir þetta, þar af leiðandi vegna þessa". Þetta lýsir einni alveg frábærri rökvillu sem fólk lendir í. Dæmi: Það hefur eitthvað hrikalegt gerst árið 1850 því að allir sem voru á lífi þá eru dánir núna!

Datt bara í hug að deila þessu með ykkur!
--------

Ritað 6. maí 2004 kl. 16:56 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Forsala miða á Metallica tónleika

Nú fer bráðum af stað forsala á miða Metallica og ég þarf að halda vel á spöðunum. Reyndar vefst aðeins fyrir mér hverju maður á að taka mark á. Það segir í þessarri frétt að forsalan hefjist 15. maí, en þeir segja líka að hún hefjist á fimmtudegi. Málið er að 15. maí er á LAUGARDEGI en ekki fimmtudegi. Hvað á maður þá að halda? Jæja, ég finn út úr þessu og ég SKAL ná mér í miða! Ég vona bara að það sé 15. maí...

Hehe... mér finnst reyndar tilhugsunin fyndin ef þetta væri nú á fimmtudegi... ef ég fengi frí frá kennslu til að kaupa miða... hehe obboslega yrðu nemendurnir mínir fúlir að vita til þess að ég væri að fara á Metallica tónleika og færi frá kennslu til að kaupa miðana... híhíhí...
--------

Ritað 5. maí 2004 kl. 11:01 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Furðulegar póstsendingar

Stundum fæ ég furðulegar póstsendingar frá fólki. Yfirleitt er það ruslpóstur en stundum fæ ég póst sem er ætlaður einhverri annarri Valdísi og það getur verið alveg stórfurðulegt. Í morgun fékk ég til dæmis brandara:

((( drrring )))
((((((((((( drrring-g-g-g-g)))))))))))

***svarað ***

"Halló?"
"Hæ, elskan, þetta er pabbi, er mamma þarna?"
"Nei, pabbi, hún er uppi í svefnherbergi með Kalla frænda"
...
Eftir stutta stund segir pabbi:"En þú átt engan Kalla frænda,
elskan!?
"Jú víst, og hann er uppi í herbergi með mömmu núna!"
"Hmm, allt í lagi, gerðu þetta fyrir pabba: Leggðu frá þér símann,
bankaðu á svefnherbergisdyrnar og kallaðu til mömmu og Kalla frænda
að þú hafir séð bílinn hans pabba koma heim?
"Allt í lagi, pabbi!"
Nokkrum mínútum síðar kemur stúlkan aftur í símann:
"Ég gerði eins og þú sagðir, pabbi"
"Og hvað gerðist?" spyr hann.
"Mamma stökk allsber fram út rúminu og hljóp öskrandi út úr
herberginu en hrasaði í mottunni og datt út um gluggann, hún liggur
hreyfingarlaus úti í garði núna...."
"Guð minn góður, hvað með Kalla frænda?"
"Hann stökk allsber út úr rúminu og stökk út um gluggann og lenti í
sundlauginni. Verst að þú lést tæma hana hum helgina til að láta
þrífa hana. Hann liggur þar steindauður!
***löng þögn ***
***lengri þögn ****
Svo segir pabbi:,
"Sundlaug..........................Er þetta ekki 555 2755??"
--------

Ritað 3. maí 2004 kl. 12:14 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)

Og ég sem hélt að það væri komið vor...

Hmmmff! Ég var farin að vonast til þess að það væri komið vor. Nú verður maður bara að vonast til þess að þetta sé þó síðasta hretið í vetur (7-9-13). Þegar ég labbaði í skólann í morgun fór ég framhjá andapollinum og þar sá maður eina vesalings önd syndandi um með skafl á bakinu. Ég vorkenndi henni pínu, en svo kom ég að skafli sem ég þurfti að klofa í gegnum sjálf og þá vorkenndi ég sjálfri mér miklu meira.
--------

Ritað 3. maí 2004 kl. 10:06 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Músagangur á síðunni minni

Ég ákvað að prófa að setja annað útlit á síðuna mína. Með því að skipta um Stylesheet og setja nýjar myndir inn á svæðið mitt er hægt að breyta um útlitið í einu lagi. Skemmtilegt.
Myndirnar eru sem áður frá GraphicGarden.com.
--------

Ritað 29. apríl 2004 kl. 11:21 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Persónuleikapróf: Lord of the Rings?

Galadriel

Galadriel

If I were a character in The Lord of the Rings, I would be Galadriel, Elf, Queen of Lothlorien, wife of Celeborn and grandmother of Arwen.

In the movie, I am played by Cate Blanchett.

Who would you be?
Zovakware Lord of the Rings Test
--------

Ritað 29. apríl 2004 kl. 08:36 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Sniðugur vefur

Orkustofunun er búin að opna gagnasjá þar sem maður getur skoðað Íslandskort, súmmað inn og valið hvers konar hlutir eiga að sjást. Sniðugt.
--------

Ritað 27. apríl 2004 kl. 12:56 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Það er komið sumar!

Svo að ég hætti á að hljóma aðeins Pollýönnu-lega þá er dagurinn í dag bara nokkuð góður. Sólin skín, veðrið er gott og ég vaknaði hress í morgun. Það er ótrúlegt hvað maður getur haft gott af því að fara að sofa upp úr kl. 10. Það er þó einn kostur við það að hafa svona þætti eins og Maður á mann í sjónvarpinu: maður er ekki að missa af neinu þó maður fari snemma að sofa! Ég sé reyndar ekki fleiri kosti við þann þátt, hverjum dettur í hug að þættir eins og Maður á mann, Maður er nefndur og Sjálfstætt fólk hafi eitthvað skemmtanagildi?? Eini munurinn sem ég sé reyndar á Maður er nefndur (sem átti best heima bara í útvarpi) og Maður á mann, er að það eru notaðir litir í Maður á mann og stundum klippt inní einhver myndbrot sem eru tekin annarstaðar. Álíka spennandi og skemmtilegt og soðnar kartöflur!
--------

Ritað 26. apríl 2004 kl. 11:19 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Ævintýri gærdagsins

Samkórinn fór í gær á Eskifjörð að syngja í kirkjunni þar. Það að syngja gekk ágætlega, en aðrir þættir ferðarinnar gengu öllu brösulegar, eins og að komast þangað, til dæmis. Við lögðum af stað um hádegi til að hafa rúman tíma fyrir tónleikana kl. 16. Það var nú líka eins gott því að uppi á miðri Jökuldalsheiði var ægileg þoka og allt í einu negldi bílstjórinn niður. Þá hafði hann séð bíl með hasarljós á veginum. Við fórum framhjá þeim bíl og sáum þá að það lá malarfæriband þvert yfir veginn og vel út af honum öðrumegin. Það hafði þarna einhver bjartsýnismaðurinn ákveðið að leggja af stað á pikköp bílnum sínum með svona líka flykki hangandi aftan í bílnum. Sniðugur! Svo kom það að sjálfsögðu í ljós þegar hann mætti bíl sem var með hestakerru að hann rakst í spegilinn á þeim bíl og missti stjórnina á öllu saman og endaði utan vegar með ónýtan bíl og færibandið þvert yfir veginn. En þessi maður er greinilega bjartsýnismaður út í gegn því að hann vildi ekki að færibandið yrði fært því að hann vildi að löggukall kæmi og tæki myndir, svona fyrir tryggingarnar. Eins og það séu einhverjar líkur á því að tryggingarfélögin segi ekki bara "sorrý, þú lagðir af stað með ólöglegan útbúnað, hefðir geta sagt þér að þú gætir ekki ráðið við neitt ef eitthvað kæmi upp á, þú færð ekkert bætt". En það var ekki komið neinu viti fyrir manninn, svo að við biðum í hálftíma eftir löggu sem tók tvær myndir og svo var draslið dregið frá og við komumst áfram. Við komumst til Eskifjarðar kortér í fjögur og rétt náðum að drífa okkur í önnur föt og svo bara að byrja að syngja!

Það var síðan upplifun útaf fyrir sig. Hljómburðurinn þarna er ótrúlegur, svo mikill og góður að það er eiginlega um of. Þetta er svipuð tilfinning eins og að syngja í Reykholti. Helsti gallinn við hljóminn þarna er að hljóðið er svo lengi að deyja út að maður heyrir bergmál lengi á eftir. Þannig hafði maður oft á tilfinningunni að sópranin væri á undan altinni því að við heyrðum í þeim þegar hljóðið kom til baka til okkar, 0,5 til 1 sek eftir að við sungum. Frekar ruglandi og getur leitt til þess að kórinn hægi á sér eða hraði sér. En það sem skiptir máli er það sem áhorfendurinir heyra og þeir sögðu að þetta hefði verið mjög gott.
--------

Ritað 23. apríl 2004 kl. 08:47 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Mig langar á tónleika

Ég heyrði frétt fyrir nokkrum vikum síðan um að Metallica væri á leiðinni til landsins. Nú er það svo að það hafa þónokkrar hljómsveitir komið til landsins og mig ekki langað meira en bara smá að fara á þá tónleika (fyrir utan Rammstein, mig langaði töluvert að fara á þá). Nú eru aðalgaurarnir að koma og nú langar mig að fara. Ég ætla að reyna að fylgjast með og næla mér í miða þegar miðasalan hefst.
--------

Ritað 20. apríl 2004 kl. 14:23 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Góðar síður sem tengjast samræmdum prófum

Einar Jónsson er með góða síðu með gagnvirkum æfingum og leslistum fyrir náttúrufræði.

Skólavefurinn er með góða síðu með gagnvirkum æfingum. Vefurinn er reyndar alltof þungur og tekur langan tíma að hlaðast ef maður er ekki með þeim mun betri tengingu.

Húsaskóli er með síðu sem tekur saman helling af upplýsingum um samræmdu prófin.
--------

Ritað 19. apríl 2004 kl. 14:42 um blogger, menntamál, tölvur| Skoðanir (0)

Fílabrandarar

Ég elska frekar heimskulega brandara. Þeir bestu af þeim eru oft fílabrandarar. Hérna eru nokkrir af síðu sem ég rakst á: Fílabrandarar

Hvers vegna eru fílar í bláum íþróttaskóm?
Hvítir skór skitna svo fljótt.

Hvers vegna halda fílar sig í stórum hjörðum?
Til þess að fá magnafslátt af bláum íþróttaskóm.

Hvers vegna láta fílar sig fljóta á bakinu?
Til að bleyta ekki íþróttaskóna sína.

Hvað er það sem er klomp, klomp, klomp, skvamp, klomp, klomp, klomp, skvamp?
Fíll í blautum íþróttaskóm.

hehehehe...
--------

Ritað 19. apríl 2004 kl. 11:02 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)

Upptökum lokið

Samkórinn var að streða við það áðan að klára upptökur fyrir geisladiskinn okkar. Við þurftum að eyða rosalegum tíma í að ná sumum lögunum góðum en það tókst (held ég) á endanum. Ég var orðin frekar stressuð fyrir einsöngslagið mitt en það gekk með nokkrum hnökrum. Svo var spennufallið svo mikið þegar við vorum búin með lagið að ég varð alveg máttlaus í hnjánum. Úff! En jæja, nú tekur bara við að hanna forsíðu á diskinn og halda áfram að vinna þá vinnu sem þarf að gera áður en diskurinn er gefinn út. Við ætlum að reyna að vera komin með þá vinnu nokkurn veginn áður en diskurinn kemur úr hljóðvinnslu, svo það þurfi ekki að bíða heillengi eftir útlitinu þegar hljóðið er löngu tilbúið.
--------

Ritað 17. apríl 2004 kl. 19:02 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Pointy Haired Boss er allstaðar...
--------

Ritað 16. apríl 2004 kl. 15:05 um blogger| Skoðanir (0)

Upptaka samkórsins

Samkórinn var að taka upp í gær fyrir diskinn sem við erum að fara að gefa út. Þetta tók á, það má segja það. Okkur tókst að fara yfir lögin Góða tungl, Fyrr var oft í koti kátt, Grafskrift og komumst ríflega hálfa leið í gegnum syrpuna okkar með Andrew Lloyd Webber. Þá var fólk reyndar orðið þreytt og við fórum heim um kl.11. Ég hlakka bara til að klára þetta. Við tökum aftur upp í kvöld en þurfum sennilega að mæta aftur á morgun til að klára þetta.
--------

Ritað 16. apríl 2004 kl. 08:27 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Hvað er að???

Ég er farin að halda það að sjálfstæðisflokkurinn ætti bara að setja í stefnuskrá sína: "Ef þér líkar ekki við landslög, þá skaltu bara brjóta þau, því að þau eru hvort eð er asnaleg!" Þetta sýna allavegana forystumenn þeirra hvað eftir annað í verki. Má ég telja upp:

- Davíð Oddson, í samfloti við Dóra sinn, stóð í samningaviðræðum við Kanana án þess að tala við kóng eða prest. Allt í lagi, það voru víst engir kóngar eða prestar sem áttu að skipta sér að þessu, en hann hefði átt, samkvæmt okkar lögum, að renna málinu í gegnum utanlandsnefnd. Honum fannst það hins vegar asnalegt, svo að hann gerði það ekki.

- Þegar var haldið uppá afmæli heimastjórnar var kallað til fundar ríkisráðs. Einhver skrautfundur haldinn í raun og veru bara fyrir einhvern hégóma, en samt sem áður þá láðist þessum vinum okkar alveg að hafa samband við forsetann okkar. Það virtist vera allt of erfitt fyrir þessa menn að taka upp síma (eins og er nú erfitt að finna svoleiðis tæki nú til dags) og hringja í karlinn og bjóða honum. Þegar þjóðin hváði yfir þessu þá báru þessir mætu menn við: "Ja, það er hvort eð er svo asnalegt að hafa forseta!" Hvað kemur það málinu við? Við erum með forseta og mér finnst að við eigum að sýna honum að minnsta kosti jafn mikla kurteisi eins og við myndum sýna hverjum öðrum manni.

- Nú seinast var Björn Bjarnason að brjóta jafnréttislög. Þá segir hann bara "Þessi lög eru gamaldags og asnaleg." HALLÓ! Lögin eru frá árinu 2000! Það eru FJÖGUR ÁR síðan það var! Heldur maðurinn að heimurinn hafi breyst í grundvallaratriðum síðan það var? Fyrir utan það að það er ekki málið! Lögin eru í gildi og þá áttu að fara eftir þeim Bjössi!

Það sem mér finnst grátlegast við þetta allt saman er það að þessir menn eru við stjórnvöldin í landinu. Þeir eru í bestu stöðu af öllum í landinu til að breyta lögunum. Ef þeir eru svona rosalega ósáttir við lögin eiga þeir að breyta þeim en ekki brjóta þau. Það sem þeir velja hins vegar AFTUR OG AFTUR er að brjóta lögin og þrátt fyrir það eru til mörg þúsund Íslendingar sem eru til í að kjósa þessa vitleysinga aftur og aftur.

Ég sver það, ég er farin að halda það að þeir sem kjósa sjálfstæðisflokkinn séu með minni sem slagar hátt í það sem gullfiskar hafa.
--------

Ritað 15. apríl 2004 kl. 15:43 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)

Óhollusta tölvanna

Nú er búið að gera rannsóknir í Bretlandi þar sem kom fram að þau börn sem hafa tölvur, leikjatölvur eða sjónvörp inni í herbergjum sínum þjást af svefnleysi. Börnin segjast vera að fara að sofa en stelast í tölvurnar og sjónvörpin áður en þau leggja sig. Önnur rannsókn segir að svefnleysi sé að valda nemendum þunglyndi. Tölvur og sjónvarpsáhorf eru semsagt tiltölulega skaðleg heilsu barna. Eða hvað?
--------

Ritað 15. apríl 2004 kl. 11:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (1)

Sniðugar græjur

Ég rakst á þessa sniðugu síðu sem gerir manni kleyft að setja mynd sem sýnir hvernig veðrið er hjá manni á hverjum tíma. Þessi mynd er reyndar tengd Akureyri, en ekki Húsavík, en það var bara ekki boðið upp á Húsavík. Samt, nógu nálægt. Mér fannst þetta sætt. Myndin er á tenglarammanum hérna til vinstri.

The WeatherPixie
--------

Ritað 15. apríl 2004 kl. 10:18 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Vinnuramminn er búinn...

... ég er farin heim!
--------

Ritað 14. apríl 2004 kl. 17:14 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

It's a bright new day

Dagurinn byrjaði vel hjá mér í dag: Ég fór með bílinn minn í skoðun og hann fékk fulla skoðun. Svo fór ég og tók bensín og þá er hann ekki lengur svangur. Bíllinn minn er nýbónaður, nýsmurður og með nýstillta vél. Mér líður eins og ég sé á limma þegar ég keyri hann, hann er eitthvað svo smooth.

Núna er allt á fullu hjá mér, ég er að vinna könnun í tengslum við verkefnið mitt í kennsluréttindanáminu og hún virðist öll vera að ganga upp (7, 9, 13, bank, bank) Svo er Samkórinn að taka upp geisladisk í vikunni þannig að fimmtudags og föstudags kvöld fara í það, auk þess sem maður verður að reyna að vinna sem mest í verkefninu. Ég hlakka reyndar frekar mikið til að heyra hvernig tekst til, en það verður víst einhver bið. Reyndar sagðist Hóffý vera að vonast til að diskurinn verði tilbúinn fyrir Mærudaga en ég ætla nú að vona það að hann verði tilbúinn fyrr. Það væri gott ef hann verður tilbúinn einhverntíma í sumar.
--------

Ritað 14. apríl 2004 kl. 09:22 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Páskafríinu er að ljúka

Jæja, páskafríinu lýkur í dag og á morgun er það bara back to the trenches. Þetta er búin að vera ágætishvíld þó. Maður er bæði búinn að liggja í leti og vera duglegur af og til, t.d. bónaði ég bílinn minn í gær, nokkuð sem hefur held ég ekki gerst síðan bíllinn skipti um eigendur. Það er samt ótrúlegt hvað smá bón getur gert fyrir bíl, hann er núna rauður í staðinn fyrir að vera að nálgast frekar skelfilegan bleikan lit.

Ég hef eytt þónokkru af frítímanum mínum í að horfa á Family Guy sem ég fékk lánaðan frá Krissu. Fyrir þá sem hafa gaman af svipuðum húmor eins og Simpsons og Futurama þá er Family Guy alveg frábær. Ég færi mig bráðum yfir í Futurama, sem er alveg klassík.
--------

Ritað 13. apríl 2004 kl. 16:46 um blogger, bíó, mitt| Skoðanir (0)

Ruslpóstur

Ég byrjaði áðan að sækja póstinn minn í pósthólfið... hætti þegar ég sá að Outlookið sagði "Receiving message 4 of 134". 134!!!! Ég veit að ég er ekki svona vinsæl og það þýðir bara eitt: ruslpóstur. Ég hef verið að berjast við þetta vandamál í smá tíma, fengið svona 10-20 pósta á dag sem hafa flestir borið titlana Re: Hi og Interesting Stuff. Óþolandi. Hvað heldur fólk eiginlega að ég hafi áhuga á að kaupa mikið Viagra, Lavitra eða annað slíkt og hvað heldur það eiginlega að ég hafi mikið að gera með að láta stækka á mér typpið!

Mér sýnist allar líkur vera á því að ég þurfi að fara að skipta um netfang... pirrandi. Ég er búin að nota sama netfangið í fleiri ár og mér þykir vænt um það. Svo er önnur hugsanleg lausn á málinu, að uppfæra aðganginn minn hjá Margmiðlun upp í Silfur eða Gull áskrift svo að ég fái ruslpóst þjónustu hjá þeim. Ég á bara svo fáa peninga þessa dagana að ég vil helst ekki vera að bæta á mánaðarleg útgjöld að óþörfu.

Hins vegar er ég hrædd um að ég eigi eftir að henda pósti frá einhverjum sem ég þekki vegna þess að ég held að hann sé rusl... Þannig að: Vinsamlegast skrifið skýrar og greinargóðar setningar í Subject þegar þið sendið mér póst, því annars gæti ég hent honum ólesnum.
--------

Ritað 6. apríl 2004 kl. 14:16 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Það er komið páskafrí!!!

Ég er svo ánægð með lífið! Ég gat sofið út í morgun, fékk að borða hjá mömmu og pabba í gær, gat leikið mér aðeins með frænda minn og lífið er almennt séð mjög gott. Námshópurinn minn vann aðeins í verkefninu okkar í gær og ég held að þetta verði almennt séð alveg magnað... ég skal segja betur frá því seinna.
--------

Ritað 4. apríl 2004 kl. 16:23 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Nokkrir góðir málshættir

Ég var að fara yfir verkefni hjá krökkunum. Þau áttu m.a. að finna málshætti og skrifa í verkefnið sitt. Þessir voru meðal þeirra sem komu upp úr krafsinu:

Það er til lítils að hlaupa ef stefnt er í skakka átt.
Þegar peningar tala er sannleikurinn mállaus.
Sá skal friðinn ei brjóta, sem friðarins vill njóta.
Þú lærir meira af börnunum en þau af þér.
Listin að vera hamingjusamur er fólgin á því að velja sér einföld gleðiefni.
Segðu ekki allt, sem þú hugsar, en hugsaðu allt, sem þú segir.
Þekking eyðir ótta.
Sé höfðingi dyggður mun lýðurinn vera það líka.
--------

Ritað 1. apríl 2004 kl. 15:18 um blogger, menntamál| Skoðanir (0)

Það er að koma páskafrí...

Það er að koma páskafrí... ég á bara eftir að kenna einn tíma... Víííííííí!!!
--------

Ritað 1. apríl 2004 kl. 11:18 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Síðan stenst staðlana!

Ég keyrði síðuna mína í gegnum vélina hjá W3C og eftir örlitlar tilfæringar reyndist síðan mín standast staðlana til að vera XHTML 1.0! Ég má því setja þetta merki á síðuna mína:

Valid XHTML 1.0!

Ég ætla að finna því einhvern góðan stað bráðum, en ég á enn eftir að láta staðfesta að CSS skráin mín standist staðlana. Svo þarf ég líka að koma fyrir tengli yfir á www.graphicgarden.com, Blogger.com og fleiri svoleiðis staði.
--------

Ritað 1. apríl 2004 kl. 10:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Þak á fæðingarorlof

Mér finnst svo sérstök þessi umræða um þakið á laununum sem fólk á að fá þegar það fer í fæðingarorlof. Margir tala um að þarna sé verið að "mismuna þeim sem hafa há laun" og að launaháir karlmenn þurfi að lækka í launum til að fá að eyða tíma með ungunum sínum. Alveg finnst mér þetta einstakt. Á meðan fólk er að tóra á 88.000 kr. á mánuði þá er verið að vorkenna þessum greyjum sem geta varla látið enda ná saman með 480.000 kr. á mánuði! Sorrý, en ef þú ert með yfir 600.000 kr. á mánuði í laun þá ættir þú alveg að geta andskotast til að leggja bara eitthvað til hliðar þessa níu mánuði meðan þú bíður eftir barninu og tekið til í fjármálunum hjá þér! Í alvörunni talað, þetta eru kannski fordómar hjá mér en ég hef ekki samúð með fólki sem vælir "aumingja, aumingja ég, ég hef svo há laun". ÓHEPPNI!!!
--------

Ritað 1. apríl 2004 kl. 08:28 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)

And they said it couldn't be done...

Ég er óendanlega stolt af sjálfri mér. Ég er búin að setja þessa síðu upp alveg með CSS, algjörlega töflulaust og það sem meira er... HÚN LÍTUR RÉTT ÚT Í MOZILLA!! Nú þarf ég reyndar að athuga hvort hún virkar rétt í Makka, Linux og gvöð má vita hverju.

Allavegana... jei!!
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 22:05 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Píslarsaga Eddu Rósar

Edda systir var að skrifa um það í blogginu sínu þegar hún fór á Píslarsögu Krists í gær. Miðað við greinina þá held ég að öllum sé óhætt að sleppa þessari...
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 17:23 um blogger, bíó| Skoðanir (0)

Gagnvirkar æfingar

Ég er búin að setja gagnvirkar æfingar inn á síðuna, en á þó eftir að setja varanlegan tengil í þær. Þetta eru æfingar í náttúrufræði, teknar upp úr kaflaverkefnum í bókunum sem kenndar eru á unglingastigi grunnskóla. Kíkið á þær: Gagnvirkar æfingar
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 13:15 um blogger, menntamál| Skoðanir (0)

Gallar á síðunni :-(

Jæja, Tryggvi var náttúrulega snöggur til og kíkti á síðuna mína og benti mér á að hún hreinlega bara virkar ekki nema maður skoði hana í Internet Explorer fyrir Windows. Ég fer þá bara í það að reyna að laga hana til svo að hún verði nýtileg þeim líka sem ekki nota þann ágæta vafra eða það ágæta stýrikerfi. Ég vil samt ekki gefast upp á því að það sé hægt að hafa dálka án þess að nota töflu, þeir gera það a.m.k. á síðunni http://www.mozilla.org/. Ég hlýt að geta þetta líka. Ég fer bara í source-inn hjá þeim og skoða hvernig þetta er gert. Ég neita að gefast upp!! (í bili...)
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 13:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Nýja síðan opnuð!!!

Nýja síðan mín er tilbúin og nú geta allir skoðað hana og skilið eftir athugasemdir við færslurnar mínar. Þetta er stórskemmtilegt! Segið mér endilega hvað ykkur finnst og skrifið í gestabókina mína.
--------

Ritað 30. mars 2004 kl. 08:58 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Nýja síðan að skríða saman...

Ég er búin að stilla bloggerinn til að vista bloggið mitt inni á nýju síðunni minni. Núna verður spennandi að vita hvernig gengur að láta þetta allt saman virka...
--------

Ritað 29. mars 2004 kl. 14:30 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ný heimasíða...

Ég er búin að skrá mig fyrir nýju heimasvæði og er að vinna í að setja síðuna upp... Ég skelli hérna inn bráðlega slóðinni á síðuna en ég vil síður setja inn tengil meðan hún er ennþá svona hálf köruð.
--------

Ritað 26. mars 2004 kl. 18:17 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Enn einu sinni...

Þetta er alveg ótrúlegt. Bandaríkjamenn spyrja heiminn "Af hverju er öllum svona illa við okkur?" og hafa ekki hugmynd um af hverju þeir verða fyrir árásum. Þeir sem eru svo réttlátir og góðir og gera aldrei neitt nema til að hjálpa öðrum. Samt sem áður sýna þeir hlutdrægni sýna í verki aftur og aftur og núna seinast með því að beita neitunarvaldi gegn ályktun hjá öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna, en þessi ályktun átti að fordæma aðgerðir Ísraela þegar þeir myrtu Ahmed Yassin, stofnanda Hamassamtakanna. Hvernig ætlast þessi þjóð eiginlega til að hún sé tekin alvarlega? Hvernig ætlast hún til að þjóðir heimsins standi með henni ef hún sýnir í verki að hún leggi blessun sína yfir svona lúalegt athæfi?

Í annan stað þá vil ég líka leggja áherslu mína á það að mér finnst ótrúlegt hvað Íslenskir kjósendur geta verið heimskir og haft minni á við heilaskemmda gullfiska. Okkar eigin stjórnvöld hafa lagt stuðning þjóðarinnar við þessa vitleysinga þarna fyrir vestan og jafnvel þó að flestir Íslendingar séu á móti því, þá eru þessir aular kosnir aftur og aftur... Hvernig væri að sýna í verki að við viljum búa í lýðræðisþjóðfélagi þar sem tveir menn á valdatrippi fá ekki að stjórna öllum högum þjóðarinnar eftir sínu höfði? Þeir segja að árásin 11. september hafi verið árás á lýðræðið, en það er að mínu mati ekkert á við þær árásir sem þessir höfðingjar okkar hafa gert á lýðræði okkar. Mesta ógn lýðræðisþjóðfélagsins hjá okkur er ekki einhverjir múslimar í hermannaleik, heldur okkar eigin stjórnvöld.
--------

Ritað 26. mars 2004 kl. 10:08 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)

Ég hef verið að hugsa málið svolítið... ég held ég haldi áfram að viðhalda blogginu mínu á http://borgarholsskoli.simblogg.is/valdisbj en það svæði er svo mikið tengt vinnunni minni að vil ég ekki vera að birta þar mjög persónulegar upplýsingar um mig og mín mál. Það er frekar fyrir samskipti við nemendur, samkennara og aðra sem tengjast skólanum en ekki til að lýsa timburmönnum, túrverkjum og skemmtanaáætlunum. Þess vegna hef ég ráðgert að vinna meira í því að viðhalda þessu bloggi sem minni reglulegu vefdagbók. Ég ætla líka að fara að vinna meira í útliti þessarar síðu, færa hana á annan þjón og annað svoleiðis dútl.
--------

Ritað 25. mars 2004 kl. 10:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég er búin að setja upp aðra síðu sem samstarfsverkefni milli Borgarhólsskóla, Þekkingar og Hex. Kíkið endilega við. http://borgarholsskoli.simblogg.is/valdisbj
--------

Ritað 27. janúar 2004 kl. 14:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Jæja, loksins smá tími til að anda og skrifa í bloggið. Ég er alveg að fara í sumarfrí, bara tveir starfsdagar eftir... Guð hvað ég get varla beðið.

Ég fór fyrir viku síðan yfir á Ólafsfjarðarmúla með Pabba, Elvu og Eddu til að sjá sólmyrkvann. Ég tók helling af myndum sem eru rosalega fallegar en sýna ekkert sérstaklega vel sólmyrkvann. Við tókum með okkur nesti og rafsuðugler til að horfa í gegnum og þetta var bara alveg magnað. Ég vænti þess að ég komi myndunum inn á netið á næstu dögum, og þá koma líka myndir af tunglmyrkvanum sem varð fyrir um þrem vikum síðan. Hann var líka frekar magnaður.
--------

Ritað 10. júní 2003 kl. 17:00 um blogger, mitt| Skoðanir (0)

Núna er seinasti hnykkurinn fyrir samræmd próf hjá 10. bekk og það gengur allt út á það. Ég tók saman nokkra tengla sem tengjast náttúrufræði hérna. Ég vona að nemendur mínir nýti sér þetta vel.

Gangi ykkur vel krakkar!
--------

Ritað 30. apríl 2003 kl. 12:46 um blogger, menntamál, mitt|