Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Testing

Saturday, December 17th, 2011

Testing

Hlutverkaskipting heimilisins

Wednesday, December 2nd, 2009

Mér finnst það frekar fyndið en pínu sorglegt að sjá hvernig stofnanir og fyrirtæki virðast gera ráð fyrir því hvernig hlutverkum er skipt hér á heimilinu. Svo virðist vera að hinir og þessir aðilar haldi að ég sé „umönnunaraðili barns“ og Tryggvi sé „húsráðandinn“.

Þetta sér maður einkum á póstinum sem berst hingað. Ég fékk t.d. í dag póst frá Pampers, með prufubleyju. Ekki fékk Tryggvi neitt frá Pampers. Ég hef líka fengið póst frá MS með upplýsingum um Stoðmjólk (reyndar ekki með neinni prufu).

Tryggvi fær hins vegar reikningana fyrir rafmagninu, fasteignagjöldunum og afborgunum lána og póstur frá Akureyrarbæ sem ætlaður er húsráðanda er stílaður á hann. Þetta hefur meira að segja gengið svo langt að þegar við yfirtókum lánin sem hvíldu á Ásveginum, þá settum við nafn mitt í reitinn „lántaki“ en nafn Tryggva í reitinn „maki“ á umsókninni til LSR. Þegar gögnin komu til baka var búið að snúa hlutverkunum við, þó að ég sé sjóðfélagi í LSR en ekki Tryggvi!

Ég get ekki annað en glott yfir þessu öllu saman, en samt er frekar sorglegt að hugsunarhátturinn sé ennþá svona.

„Vísindasamfélagið segir…“

Wednesday, November 11th, 2009

Var að hlusta á „umfjöllun“ morgunútvarpsins á heimsendaspám áðan. Er ekki hægt að finna einhvern aðeins áræðanlegri en Gunnar í Krossinum til að segja fólki frá því hvað „vísindasamfélagið segir“?? Væri ekki hægt að velja að handahófi einhvern eðlisfræðing, stjörnufræðing eða bara einhvern sem veit eitthvað um vísindi til að segja hvaða kenningar eru ofaná í dag? Óttast útvarpsmenn að svarið verði líklegast „Jú, jörðin ferst sennilegast á endanum, ekki svo mikið í eldi og brennisteini heldur líklega frekar í glóandi vetni og helíum. Þetta gerist sennilega eftir u.þ.b. fimm milljarða ára. Ég er ekki stressuð yfir því.“ Gallinn við slíka umfjöllun er að hún hræðir fólk ekki, sennilega þess vegna sem þessi leið er ekki farin.

Vesti og trefill

Tuesday, November 3rd, 2009

Ég kláraði nýlega vesti á Hartmann úr Sirdar Snuggly Baby Bamboo garninu. Það er rosalega þægilegt að prjóna úr þessu garni og afurðin verður verulega lipur og þægileg, en það olli mér vonbrigðum að sjá að það virtist breyta aðeins um lit við þvott. Þannig komu smá litaskil á bolinn þar sem ég hafði skipt um dokku, þó að dokkurnar væru báðar úr sömu litalotu. Fyrir ofan stroffið og á öxlunum hafði ég mynstur byggt á Daisy Stitch (veit ekki hvað það kallast á íslensku). Hægt er að sjá myndband með aðferðinni á YouTube.

Vesti úr Sirdar Snuggly BabyBamboo.

Vesti úr Sirdar Snuggly BabyBamboo.

Svo langar mig líka til að sýna mynd af treflinum/sjalinu sem ég prjónaði handa tengdó í fimmtugsafmælisgjöf. Trefillinn er úr Katia Scotch Tweed garninu sem ég notaði í töskuna sem ég sýndi um daginn en uppskriftin er fengin af Vogue Knitting.

Trefill/Sjal úr Katia Scotch Tweed

Trefill/Sjal úr Katia Scotch Tweed

Time Machine er gott, makkar eru góðir

Saturday, October 31st, 2009

Já, þegar harðir diskar hrynja (eins og getur gerst á bestu bæjum) súpa sumir hveljur og vandræðast út í eitt. Er allt glatað? Myndasafnið? Öll skjölin sem hafa verið búin til? Endalaus vinna? En hér á bæ fer enginn í kerfi, það er andvarpað, tautað við sjálfan sig „æ, vesen“ og svo er málunum reddað. Nýr diskur er keyptur, tölvugreyið opnað eftir kúnstarinnar reglum, skipt um disk og svo er bara keyrt inn Time Machine afritið sem að sjálfsögðu er til á handhægum diski.

Taska úr Katia Scotch Tweed

Monday, October 19th, 2009

Hérna er taska sem ég prjónaði um daginn sem afmælisgjöf handa mömmu. Garnið er Katia Scotch Tweed, frekar skemmtilegt garn sem ég fékk í Quiltbúðinni en þar voru restarnar af þessu garni á útsölu. Mér skilst að það sé ekki framleitt lengur. Það er 65% silki, 19% ull og 6% viscose, frekar gróft og skemmtilega ójafnt.

Svo var ég að klára vestið á Hartmann. Það virðist passa og er alveg endalaust mjúkt, en það er samt býsna þykkt eins og vill oft verða þegar maður gerir litamunstur.

Með ýmislegt á prjónunum

Monday, October 12th, 2009

Ég er búin að vera að prjóna töluvert undanfarið, enda finnst mér það svo óskaplega þægilegt t.d. yfir sjónvarpinu á kvöldin, að hafa eitthvað í höndunum. Ég skal bráðum setja inn myndir af því sem ég hef verið að gera, en núna er ég að vinna í vesti handa Hartmanni. Mig dauðlangar nefnilega í fallegt vesti handa honum með V-laga hálsmáli og svo þegar ég fann Sirdar Snuggly Babybamboo garnið (80% bambus, 20% ull) á útsölu hjá Quiltbúðinni fannst mér alveg tilvalið að prófa. Ég hafði reyndar ekki fundið neina uppskrift sem mér líkaði almennilega við, svo að ég ákvað að gera tilraun til að búa hana bara til uppúr sjálfri mér. Í ljós kom að ég átti ekki til rétt númer af prjónum, þannig að ég ákvað að nota stærri prjóna og búa til prjónfestuprufu. Þá fann ég hvað þetta garn verður geðveikislega mjúkt þegar búið er að prjóna úr þessu.

Hér að neðan sést hvernig vestið er orðið en ég birti frekari myndir þegar ég er búin að klára.

Blogg í andarslitunum

Tuesday, October 6th, 2009

Er þetta blogg mitt bara að deyja? Ég veit ekki, en tveggja mánaða hlé milli færslna gefur ekki góðar lífslíkur. Vandamálið hefur eiginlega verið að það hefur ekki verið mikið að gerast hjá mér, fyrir utan alla stórsigrana sem ég horfi á son minn vinna. Fréttir af þeim fara yfir á síðuna hans.

Það vantar svo sem ekki að ég hafi skoðanir á þjóðmálunum þessa dagana, en er endilega á það bætandi að blogga um Icesave, stjórnmál, stjórnarkreppu, vælið í stjórnarandstöðunni og bullið í hinum og þessum sem allir telja sig vita betur en allir aðrir? Æ, ég held ekki. Berjumst fyrir einum Icesave-lausum degi!

Kannski ég ætti að breyta þessu bloggi í handavinnublogg? Ég er búin að vera frekar dugleg að prjóna undanfarið og hef uppgötvað að til er ýmiskonar yndislegt garn, annað en Tinnu garnið. Undanfarið hef ég t.d. verið að prjóna úr Katia Scotch Tweed, afar skemmtilegu garni sem er mestmegnis silki og ull.

Ég held að ég fari að hugsa málið… eitthvað ætti ég að reyna til að blása líf í bloggið.

Flutt og á fullu við að koma okkur fyrir

Saturday, August 1st, 2009

Jæja, nú erum við búin að vera viku í Ásveginum. Síðasta laugardag var leigð lyfta til að flytja allt út úr Tjarnarlundinum og öllu saman var svo ruslað niður í Ásveg. Þar var hins vegar ástandið þannig að hjónaherbergið var í hers höndum, Hartmanns-herbergi líka og baðherbergið eins hrátt og hægt er að hafa það. Síðan þá hefur ýmislegt gerst. Tengdó er búin að mála herbergið hans Hartmanns eftir forskrift frá mér, sem hljóðaði upp á bláan himinn og grænar hæðir. Tryggvi hefur verið mest alla vikuna inni á baðherbergi með Hartmanni eldri og ýmsum iðnaðarmönnum að setja upp baðkar, tengja allskonar pípulagnir og flísaleggja. Ég er búin að dútla við það að taka upp úr kössum eins og hægt er og ganga frá eftir besta megni, auk þess sem ég fékk aðstoð Eddu systur við að þrífa Tjarnarlundinn. Smám saman er íbúðin að skríða yfir í íbúðarhæft ástand. Það sem er eftir núna er að klára baðherbergið, en þar er bara eftir að flísaleggja gólfið og að setja upp innréttingu, láta smíða skáp í hjónaherbergið og þrífa það almennilega svo hægt sé að flytja inn í það. Það besta af öllu er samt að baðkarið er komið í brúklegt ástand, Tryggvi er að vígja það núna og ég ætla að nýta mér það þegar hann er búinn.

Fender-bender, fýluferð og fótbolti

Friday, July 3rd, 2009

Ég lenti í smá fender-bender í gær á bílastæðinu við Skipagötu þegar ég tók af stað út úr bílastæði en gamall kall ákvað að gera slíkt hið sama. Við lentum saman með afturenda bílanna, en mér fannst eiginlega verst að ég þurfti að flauta til þess að hann hætti að keyra á mig, hann virtist ætla bara í gegn. Við sammæltumst um sameiginlega ábyrgð á þessu, fylltum út tjóntilkynningar og fórum með yfir í VÍS. Sem betur fer var ég bara á Accident og það eina sem skemmdist hjá mér var litaða plastið á afturljósinu og svo kom smá beygla fyrir ofan ljósið.

Þessu tók ég með jafnaðargeði en varð aðeins pirraðari yfir fýluferðinni sem við fórum í morgun. Fasteignasalinn hafði boðað okkur í undirritun kaupsamnings fyrir Ásveginn kl. 10 í morgun og við mættum stundvíslega, eftir að hafa vakið Hartmann af morgunlúrnum sínum, en gripum í tómt. Enginn samningur, enginn seljandi. Við vorum smá fúl yfir því. Þetta verður samt vonandi frágengið á mánudag.

Svo höfum við verið að velta því fyrir okkur af hverju tuðarar bæjarins, sem gátu svo aldeilis barmað sér yfir Bíladögum, hafa ekkert látið í sér heyra út af þessu fótboltamóti sem er í gangi. Undanfarna daga hafa verið samfelld öskur og læti, allan liðlangan daginn. Meira að segja í gærkvöldi heyrðum við að sprengdir voru kínverjar fyrir utan hjá okkur, ekki gerðist það á Bíladögum. Og það sem meira er, þá sá maður allavegana dálítið af flottum bílum á Bíladögum, bílarnir sem fylgja þessu liði eru allt annað en flottir.

Annars er ég alls ekki í jafn vondu skapi og restin af færslunni gæti gefið til kynna. Veðrið hefur verið frábært síðustu daga og Hartmann nokkuð hress. Ekki yfir neinu að kvarta, í raun og veru.