Archive for the ‘Uncategorized’ Category

Aukaskattur á trúleysingja

Wednesday, July 1st, 2009

Ég verð að segja að ég er sammála Siðmennt í þessari frétt:

Segja fjárlög mannréttindabrot

Mér fannst alltaf hljóma frekar undarlega að styrkja bara út af því að ég er utan trúfélaga, en þetta er ennþá fáránlegra! Ég á semsagt að borga skatt í ríkissjóð, bara út af því að einhverjum öðrum finnst þægilegt að láta ríkið innheimta klúbbgjöldin sín! Á ekki bara alveg eins að láta mig borga aukaskatt, af því að Tryggvi greiðir félagsgjöld í Ferðaklúbbnum 4×4 og Pjúsarafélaginu?

Íbúðarupdate

Wednesday, June 24th, 2009

Nú er allt á fullri ferð hjá okkur. Tryggvi fór suður í dag og skrifaði undir kaupsamninginn fyrir Öldugrandann, sem þýðir að peningarnir eru farnir að streyma inn. Greiðslumötin eru í fullum gangi hjá okkur, annað hefur verið samþykkt og hitt er að mallast. Vonandi getum við farið að skrifa undir kaupsamninginn fyrir Ásveginn. Á morgun verður svo opið hús í Tjarnarlundinum og við vonumst til að einhverjar hreyfingar verði á þeirri íbúð líka.

Algjör bilun?

Tuesday, June 9th, 2009

Við Tryggvi erum í hálfgerðu sjokki, vorum að skrifa undir kauptilboð sem seljandinn er búinn að gangast inná. Við erum semsagt að fara að kaupa Ásveg 20, efri hæð. Það verður nýja höllin keisarans, eða hið nýja Völundarhús. Í tilefni þessa var rándýra viskýflaskan, sem keypt var fyrir dýrmæt sterlingspund, opnuð og bragðað á innihaldinu með viðhöfn.

Eitthvað að frétta?

Monday, June 8th, 2009

Litla fjölskyldan hefur verið í fýlu undanfarna daga… ekki vondu skapi, bara fýlu. Við höfum nefnilega öll þrjú verið eitthvað skrítin í maganum, tökum það svosem ekki út með kvölum, en loftið í íbúðinni hefur verið svolítið þungt.

Annars bíðum við þess spennt að fá að vita hvað verður úr íbúðamálum hjá okkur. Við vorum nefnilega að gera tilboð í eign í dag og fáum gagntilboð á morgun. Ekki er búið að selja Tjarnarlundinn ennþá (þó það gætu farið að verða hreifingar í þeim málum) en við sáum að við gætum gert þetta tilboð þó hann seljist ekki strax. Ef við náum lendingu í þessu skal ég birta meiri upplýsingar um málið.

Við fórum svo í algjöra barnaveislu áðan, því að Kristbjörg var að skíra hana Karen Irani sína. Þar var náttúrulega stjarna dagsins, hún Karen, tæplega tveggja ára, á spani út um allt, en svo voru frændur hennar, þeir Stefán Þór og Daníel Arnar, þarna líka, en þeir fæddust báðir í vor. Það var ákveðin upplifun fyrir Hartmann að vera ekki minnstur, því að Daníel Arnar er algjör pínupons.

Komin í WordPress

Saturday, May 30th, 2009

Ég hef verið mjög löt að blogga undanfarið, ekki síst vegna þess að ég nenni varla að eiga við Movable Type lengur, eftir að ég prófaði að nota WordPress á blogginu hans Hartmanns. Þess vegna fékk ég Tryggva til að skella blogginu mínu í WordPress líka. Vonandi verð ég aðeins duglegri að blogga í framhaldi af því. Svo fer ég líka í það bráðlega að laga útlit síðunnar meira að mínu skapi.

Prufumynd

Monday, September 22nd, 2008



Prufumynd

Originally uploaded by valdisbjork

Birtist þetta á blogginu mínu?

Öskudagur

Wednesday, February 21st, 2007
Myndina sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Allskonar jólamatur

Friday, December 8th, 2006

Framundan eru bæði jólahlaðborð STAMA (Starfsmannafélag MA) og jólatros MA. Jólahlaðborðið verður nú á laugardaginn á Strikinu en þar verða væntanlega hefðbundnir jólahlaðborðsréttir. Ég er hinsvegar að taka meiri séns með því að skrá mig í jólatrosið. Það verður næsta fimmtudag á Greifanum og þar verður boðið upp á allskonar hefðbundinn íslenskan mat, sem sumir myndu jafnvel kalla skemmdan mat. Þarna verður siginn fiskur, skata, þverskorin graðýsa, hákarl og allskonar svoleiðis undarlegur matur. Síðast þegar ég prófaði að borða skötu fannst mér hún ógeðsleg en það eru mörg ár síðan. Mér finnst ágætt að prófa af og til að reyna á svona hluti, athuga hvort mér finnist matur ennþá vondur sem mér fannst áður vondur því ég veit að smekkur minn breytist. Það er aldrei að vita, kannski hef ég mig í gegnum skötuna?

Af árshátíð

Friday, December 1st, 2006
Hljómsveitin Kusk
Myndina sendi ég
Sent með Símbloggi Hex

Gelligelligell!!

Friday, November 24th, 2006
Er hann ekki æðislegur?
Myndina sendi ég
Sent með Símbloggi Hex