Ferðasagan - Köben

Ferðin til Köben var alveg frábær, ferðin frá Köben ekki jafn mikið. Hrafnkell var hress, Edda þokkalega hress og Doddi var mest megnis í skólanum. Ég fékk að sjá Tívolí, dýragarðinn, Strikið, Fredriksberg-garðinn og það sem var sennilegast merkilegast: þegar Hrafnkell kúkaði í fyrsta skiptið í klósettið. Sögulegur atburður. Ég fékk líka að lesa fyrir Hrafnkel öll kvöldin, alveg magnað.

Þegar ég fór síðan heim þá tók Icelandair sig til og sendi töskuna mína til Búdapest. Gleði.

Ritað 27. júní 2008 kl. 15:22 um ferðalög| Skoðanir (0)

Komin heim frá Bandaríkjunum

Við Tryggvi lentum aftur á Fróni í rauða bítið í gærmorgun. Við ákváðum að taka sem fyrst til við að lagfæra tímamuninn svo að við renndum í Öldugrandann, lögðum okkur í tvo tíma og brunuðum síðan norður. Þá var mætt í matarboð og afmælispartý. Svo að ekki gafst tími fyrir ferðapistil.

Við gerðum ýmislegt þarna úti. Auðvitað tókum við nokkra klassíkera eins og hestvagnaferð í Central Park, fórum upp á útsýnispallinn á Empire State, kíktum inn í Macy's, löbbuðum upp á Brooklyn Bridge, heimsóttum American Museum of Natural History og The Metropolitan Museum og kíktum á holuna þar sem einu sinni voru Twin Towers. Einnig skoðuðum við jólatréð og skautasvellið við Rockefeller Center. Það var þoka og úði í lofti þegar við höfðum hugsað okkur að kíkja á Ellis Island og biðraðirnar ofurlangar, svo að við geymum það til seinni tíma. Ekki gafst heldur tími til að sjá söngleik.

Við prófuðum ýmislegt í mat, t.d. pönnukökur með beikoni og eggi í morgunmat eða ekta New York beyglur með reyktum laxi og sýrðum rjóma. Veitingastaðirnir Tao og Churrascaria fá hæstu einkunn, en eru að öðru leyti gjörólíkir.

Verslanirnar voru margar alveg geggjað flottar. Það að labba upp og niður eftir 5th Avenue og skoða jólaskreytingarnar var alveg skemmtun út af fyrir sig. Það missti kannski marks, því að þær voru svo flottar að ég fann mig engan veginn knúna til að kaupa neitt sérstaklega mikið.

Í heildina var ferðin bara asskoti góð og ég sé ekki eftir að hafa farið. Þetta var bara mjög gaman en ég held að ég tími ekki mörgum jólum í svona flakk.

Ritað 31. desember 2007 kl. 00:39 um ferðalög| Skoðanir (0)

Stokkhólmur, Turku, Fagerholm, Helsinki, Tallin, St. Pétursborg

Þá kemur ferðasagan. Ég ákvað að skrifa ekki langan samfelldan texta heldur frekar styttri punktalista. Hver veit, kannski fleiri nenni að lesa þetta?...

Lesa meira... "Stokkhólmur, Turku, Fagerholm, Helsinki, Tallin, St. Pétursborg"

Ritað 7. júlí 2007 kl. 15:05 um ferðalög| Skoðanir (1)

Á leið til nýrra landa

Ókey, kannski ekki svo ný fyrir þá sem þar búa, en alveg splunkuný fyrir mig. Ég er á leiðinni til Svíþjóðar, Finnlands, Eistlands og Rússlands og legg af stað núna á næstu mínútum. Símbloggið er í einhverju fokki svo að ég mun sennilegast þurfa að treysta á að komast á netkaffi til að blogga.

Ritað 25. júní 2007 kl. 04:18 um ferðalög| Skoðanir (0)

Vorferð MA 2007, 2. kafli

Í gær fór úrvalshópur kennara, starfsmanna og maka í vorferð til Skagastrandar. Á leiðinni höfðum við eðal-leiðsögumenn, þ.e. Örn Þór, Þorlák, Siggu Steinbjörns og Róbert. Því miður hanga engin staðarnöfn í hausnum á mér og ég var ekki með GPS tæki svo ég verð að reyna að skálda upp staðarnöfnunum á leiðinni eftir bestu getu. Leiðin var lögð í gegnum Sauðárkrók, yfir Norðurárdal og tekið var stopp við Skrapatungurétt.


Tekið var stopp á Skagaströnd og skoðuð útsýnisskífa og veðurblíðunnar var notið til hins ýtrasta. Skemmtilegasta stoppið var samt að mínu mati Kálfshamarsvík, þar sem skoða mátti rústir og vita og fuglarnir léku listir sínar af fremsta megni. Einnig sáum við höfrunga skemmta sér í sjónum skammt frá.

Þá var stefnan tekin áfram fyrir Skagann, inn Laxárdal og aftur inn á Sauðarkrók, þar sem snæddur var kvöldverður á Kaffi Krók. Maður hefði haldið að þar með væri ævintýrið búið en svona til að halda okkur vakandi sprakk dekk undir rútunni rétt áður en rennt var inn á Akureyri.

Þessi dagur var í alla staði góður, vel skipulagður af Erni og félögum og alveg afbragðs lokapunktur á önnina. Mikið er gott að vera komin í sumarfrí.

Ritað 20. júní 2007 kl. 15:25 um ferðalög| Skoðanir (0)

Vorferð 2007

Kennarar og starfsfólk fóru í dag ásamt nokkrum mökum í vorferð á Skagaströnd.

Þessi færsla átti að birtast fyrr í dag en hexia.net var alveg að klikka á þessu. Ég set inn frekari upplýsingar síðar, þegar ég er búin að sofa.

Ritað 19. júní 2007 kl. 17:58 um ferðalög| Skoðanir (0)

Laugafell á föstudaginn langa

Við Tryggvi fórum með 4x4 upp í Laugafell á föstudaginn langa. Við klifruðum upp alveg ótrúlegan veg sem virtist vera mest gerður úr drullu. Annars er svo sem ekki mikið frá að segja, einn Econoline datt næstum niður í læk og á einum stað var frekar spennandi að fara yfir á.

Ég setti myndir úr ferðinni á tvo staði. Annars vegar er venjulegi staðurinn, á myndasafninu mínu og hins vegar setti ég upp Google Map sem sýnir leiðina sem farin var.

Ritað 12. apríl 2007 kl. 17:18 um ferðalög| Skoðanir (0)