Nýjar sagnir
Áþreifanlegt afrek Sjálfstæðisflokksins: þrjár nýjar sagnir í íslensku tunguna:
Dæmi um notkun þessara sagna gæti verið: Ég gíslaði starfsferilsskrána mína, en ég held að það verði í lagi ef ég bjössa hana bara, svo lengi sem enginn hefur hannesað hana.
Svo að framangreind málsgrein teljist ekki vera hannesuð er best að get að upprunalega kom hugmyndin frá Tryggva.
Ritað 27. október 2005 kl. 08:10 um fyndið| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Andlaust framhald...
Ég hef verið svo andlaus upp á síðkastið en vil ekki láta bloggið mitt daga uppi þannig að þangað til ég hef eitthvað líf þá skelli ég bara inn smá bröndunum. Hérna er einn góður nördabrandari, frá Physlink.com:...
Lesa meira... "Andlaust framhald..."
Ritað 13. desember 2004 kl. 15:14 um fyndið| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Í tilefni árstíðarinnar
Í tilefni þess hvaða árstíð er núna datt mér í hug að setja inn einn góðan klassíker:...
Lesa meira... "Í tilefni árstíðarinnar"
Ritað 10. desember 2004 kl. 14:41 um fyndið, stærðfræði| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Al-gebra hryðjuverkasamtökin
Tal nokkurra nemenda hjá mér í dag minnti mig á þennan brandara:
At New York's Kennedy airport today, an individual later discovered to be a public school teacher was arrested trying to board a flight while in possession of a ruler, a protractor, a setsquare, a slide rule, and a calculator.At a morning press conference, Attorney General John Ashcroft said he believes the man is a member of the notorious al-gebra movement. He is being charged by the FBI with carrying weapons of math instruction. "Al-gebra is a fearsome cult,", Ashcroft said. "They desire average solutions by means and extremes, and sometimes go off on tangents in search of absolute value. They use secret code names like "x" and "y" and refer to themselves as "unknowns", but we have determined they belong to a common denominator of the axis of medieval with coordinates in every country. "As the Greek philanderer Isosceles used to say, there are 3 sides to every triangle," Ashcroft declared.
When asked to comment on the arrest, President Bush said, "If God had wanted us to have better weapons of math instruction, He would have given us more fingers and toes. "I am gratified that our government has given us a sine that it is intent on protracting us from these math-dogs who are willing to disintegrate us with calculus disregard. Murky statisticians love to inflict plane on every sphere of influence," the President said, adding: "Under the circumferences, we must differentiate their root, make our point, and draw the line."
President Bush warned, "These weapons of math instruction have the potential to decimal everything in their math on a scalene never before see unless we become exponents of a Higher Power and begin to factor-in random facts of vertex."
Attorney General Ashcroft said, "As our Great Leader would say, read my ellipse. Here is one principle he is uncertainty of: though they continue to multiply, their days are numbered as the hypotenuse tightens around their necks."
Ritað 7. desember 2004 kl. 13:50 um fyndið, stærðfræði| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)
Stórskemmtilegar sögur
Hérna er alveg stórskemmtileg síða þar sem carola segir á alveg ótrúlega skemmtilegan hátt frá lífi sínu: lífið í öllum litum !
Hér er dæmi um hvað hún hefur að segja:
Ég rak upp stríðsöskur :Drepstu, helv....druslan þín, drepstu !!!!
Ég stökk með ægilegum Matrix snúningi upp á borðstofuborðið og þaðan á sófaborðið, flugudruslan sat á mynd af brosandi foreldrum mínum sem hékk á veggnum.
Ég horfði á fluguna og við náðum við augnkontakti, mér sýndist hún brosa.
Ég hvet ykkur eindregið til að lesa þetta, þetta er drepfyndið!
Ritað 21. október 2004 kl. 10:46 um fyndið| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Veist þú hvað á að gera við neyðaraðstæður??
Veist ÞÚ hvað á að gera við neyðaraðstæður?? Hvað ef sprengja springur nálægt þér? Hvað ef hryðjuverkamennirnir hans Búsks gera árás? Veistu hvað á að gera? Veistu það?? VEISTU ÞAÐ?? Ja, þetta fólk hér veit það :D
Ritað 15. september 2004 kl. 12:48 um fyndið| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)
Dilbert er sérstaklega góður í dag
Oh, hvað það er gott að hafa frí í dag. Maður getur sofið frameftir, hugsað um að taka til heima en gert svo ekkert í því, hugsað um að baka, en gert svo ekkert í því heldur, lesið aðeins, þvælst á netinu og fleira skemmtilegt...
Mér fannst dilbert annars sérstaklega skemmtilegur í dag:
Hárið á Pointy Haired Boss er greinilega ekki jafn heimskt og afgangurinn af honum.
--------
Ritað 20. maí 2004 kl. 12:34 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)
Furðulegar póstsendingar
Stundum fæ ég furðulegar póstsendingar frá fólki. Yfirleitt er það ruslpóstur en stundum fæ ég póst sem er ætlaður einhverri annarri Valdísi og það getur verið alveg stórfurðulegt. Í morgun fékk ég til dæmis brandara:
((( drrring )))
((((((((((( drrring-g-g-g-g)))))))))))
***svarað ***
"Halló?"
"Hæ, elskan, þetta er pabbi, er mamma þarna?"
"Nei, pabbi, hún er uppi í svefnherbergi með Kalla frænda"
...
Eftir stutta stund segir pabbi:"En þú átt engan Kalla frænda,
elskan!?
"Jú víst, og hann er uppi í herbergi með mömmu núna!"
"Hmm, allt í lagi, gerðu þetta fyrir pabba: Leggðu frá þér símann,
bankaðu á svefnherbergisdyrnar og kallaðu til mömmu og Kalla frænda
að þú hafir séð bílinn hans pabba koma heim?
"Allt í lagi, pabbi!"
Nokkrum mínútum síðar kemur stúlkan aftur í símann:
"Ég gerði eins og þú sagðir, pabbi"
"Og hvað gerðist?" spyr hann.
"Mamma stökk allsber fram út rúminu og hljóp öskrandi út úr
herberginu en hrasaði í mottunni og datt út um gluggann, hún liggur
hreyfingarlaus úti í garði núna...."
"Guð minn góður, hvað með Kalla frænda?"
"Hann stökk allsber út úr rúminu og stökk út um gluggann og lenti í
sundlauginni. Verst að þú lést tæma hana hum helgina til að láta
þrífa hana. Hann liggur þar steindauður!
***löng þögn ***
***lengri þögn ****
Svo segir pabbi:,
"Sundlaug..........................Er þetta ekki 555 2755??"
--------
Ritað 3. maí 2004 kl. 12:14 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)
Fílabrandarar
Ég elska frekar heimskulega brandara. Þeir bestu af þeim eru oft fílabrandarar. Hérna eru nokkrir af síðu sem ég rakst á: Fílabrandarar
Hvers vegna eru fílar í bláum íþróttaskóm?
Hvítir skór skitna svo fljótt.
Hvers vegna halda fílar sig í stórum hjörðum?
Til þess að fá magnafslátt af bláum íþróttaskóm.
Hvers vegna láta fílar sig fljóta á bakinu?
Til að bleyta ekki íþróttaskóna sína.
Hvað er það sem er klomp, klomp, klomp, skvamp, klomp, klomp, klomp, skvamp?
Fíll í blautum íþróttaskóm.
hehehehe...
--------
Ritað 19. apríl 2004 kl. 11:02 um blogger, fyndið| Skoðanir (0)
Nú er komið að prófum og það er stórundarleg tilfinning að vera allt í einu manneskjan sem leggur prófin fyrir. Ég hef komist að því að það að búa til próf er alveg hundleiðinlegt, en maður verður víst að gera það. Nú verður prufukeyrsla hjá mér eftir tæpan hálftíma þegar fyrstu bekkirnir taka próf hjá mér. Þetta verður mjög spennandi, sérstaklega að vita hvort prófið er of langt, of stutt eða hvað.
Svo vil ég senda með brandara dagsins: Hvað þarf marga súrrealista til að skipta um ljósaperu? Svarið... Reiðhjól!
--------
Ritað 14. janúar 2003 kl. 12:25 um blogger, fyndið, mitt| Skoðanir (0)
