Keila með meiru
Þessi vika er búin að vera klikk! Mér finnst eins og ég hafi varla nokkuð gert annað en að fara yfir heimadæmi og tímapróf síðan á sunnudag. Ég hef meira að segja vaknað óeðlilega snemma til að fara yfir suma skammtana. Nú á ég einn bunka eftir, sem ég ætla að klára af í dag, og legg fyrir próf á morgun, sem vonandi verður fljótlegt í yfirferð. Þegar ég loksins kláraði enn einn bunkann í dag og var alveg algjörlega búin, þá ákvað ég samt að skreppa í keilu með STAMA (Starfsmannafélagi MA). Það var vel þess virði! Ég náði meira að segja einni fellu! Svo fannst mér líka lífga upp á skólann að í gær var haldinn RauðMA dagurinn, þar sem rauðhært fólk var heiðrað. Þá voru hengdar upp myndir af rauðhærðu fólki út um allan skóla, bæði nemendur og þekkt fólk utan skólans. Ég er ekki frá því að það hafi lífgað upp á tilveruna, það setti allavegana meiri lit í daginn!
Ritað 20. nóvember 2008 kl. 14:26 um mitt| Skoðanir (1)
Sónar nr. 2
Við Tryggvi fórum saman í sónar í dag. Barnið var mælt í bak og fyrir, skoðuð allskonar líffæri, mældar lengdir á beinum og guð má vita hvað.
Erfingjanum þótti þetta greinilega töluverð frekja í okkur að kíkja svona á hann, iðaði og krosslagði fæturna til að passa að tilraunir til kyngreiningar myndu ekki takast. Annars leit allt vel út og talningar okkar voru staðfestar um það hversu langt ég er gengin með.
Þessu til viðbótar þá buðum við í raðhús í dag og fengum sent heim stærðarinnar rúm. Við bíðum þess nú að vita hvort tilboðinu verði tekið.
Ritað 13. nóvember 2008 kl. 18:50 um mitt| Skoðanir (1)
Barnablogg
Ég var að átta mig á því að töluvert af þeim bloggum sem ég les reglulega eru barnablogg, þ.e. blogg sem foreldrar semja í nafni barna sinna, blogg þar sem allar færslurnar fjalla um börnin og jafnvel eitt blogg þar sem höfundurinn er barn. Þetta setur sinn svip á bloggrúntinn. Ég verð að viðurkenna að mér finnst einna skemmtilegast að lesa bloggið hans Magna Steins, þó að barnalands bloggið hans Hrafnkels Myrkva sé líka í uppáhaldi.
Ritað 4. nóvember 2008 kl. 20:08 um mitt| Skoðanir (0)
Samlíkingar í kennslu
Ég á það til að grípa til samlíkinga í máli mínu þegar ég reyni að útskýra hluti fyrir nemendum. Í dag var ég að rökræða við einn um það hvort það ætti að gefa eitthvað fyrir það ef nemandi beitir kolrangri aðferð frá upphafi til enda en endar samt með rétt svar. Nemandinn vildi meina það að rétta svarið væri nokkurra punkta virði. Ég svaraði honum svona:
K: „Er ólöglegt að keyra utan vegar?“
Nemandinn féllst á það.
K: „Ef þú endar á réttum stað, en keyrir utan vegar alla leið, var það samt ekki lögbrot?“
Úr þessu varð hálfvegis svona Gee-Mr-Brady-I-Never-Thought-Of-It-Like-That-móment.
Ritað 30. október 2008 kl. 21:24 um mitt| Skoðanir (2)
Mæðraskoðun nr. 2
Ég mætti í morgun í mæðraskoðun nr. 2. Enn er allt í góðu, þyngdin stendur í stað og hjartsláttur barnsins var sterkur og hraður (ca. tvöfaldur á við minn). Reyndar var krakkinn á fullu í gærkvöldi, ég fann hreyfingar sem ekki var hægt að taka fyrir neitt annað. Ég er farin að hlakka alveg ferlega til 13. nóvember, en þá förum við Tryggvi í sónar og fáum að sjá barnið betur.
Ritað 29. október 2008 kl. 21:04 um mitt| Skoðanir (2)
Allt of fljótt fyrir jólaskap
Ég sá það í gærkveldi að nágranni minn í næstu blokk var búinn að setja upp jólaseríurnar í gluggann hjá sér. Mér finnst það of fljótt, enda er október ekki liðinn. Ég vil líka berja niður hjá mér allt jólaskap, enda vil ég ekki jóla-skreyta fyrr en við erum komin í nýtt húsnæði, þó að þeir hlutir hreyfist löturhægt hjá okkur.
Ritað 27. október 2008 kl. 15:00 um mitt| Skoðanir (5)
Geysp!
Svakalega er ég syfjuð! Þegar ég ætlaði í vinnuna í morgun, ákvað bíllinn minn að leggjast á magann á miðju bílastæðinu við blokkina og fara ekki lengra. Ég neyddist til að skilja hann eftir þar, enda enginn á svæðinu til að hjálpa mér með hann af stað og ég var á góðri leið með að verða of sein. Ég skokkaði samt aftur heim eftir hádegi til að reyna að laga ástandið, enda sá ég að það yrði erfitt fyrir nágranna mína að komast út úr stæðunum beint fyrir aftan bílinn. Þeir höfðu reyndar reddað sér og ég kom bílnum aftur í stæðið sitt og skildi hann eftir þar. Labbaði svo aftur í vinnuna. Eftir allt þetta labb er ég bara býsna syfjuð, þó ég hafi vaknað vel við að labba á milli.
Ritað 23. október 2008 kl. 15:37 um mitt| Skoðanir (0)
Hreyfingar og fallið í freistni
Ég féll í freistni á föstudaginn. Ég var á röltinu niðri á Glerártorgi og sá að það var 30% afsláttur í DoReMí. Ég stóðst það ekki, heldur keypti pínulitlar smekkbuxur og treyju handa krílinu væntanlega. Allt saman vandlega litakóðað í hvítu, grænu og rauðu, ferlega kyn-hlutlaust allt saman. Þá er heildareign mín í barnafötum komin upp í þennan galla og útigalla/poka sem keypt var í BabyGap.
Ég lá svo uppi í rúmi í kvöld og ég er ekki frá því að ég sé farin að finna hreyfingar. Örlítið flökt sem ég held að séu ekki bara meltingartruflanir. Það er afskaplega gaman að finna þetta.
Ritað 20. október 2008 kl. 22:02 um mitt| Skoðanir (3)
Annar í hausverk
Í dag er dagur 2 í stingandi hausverk. Ég veit ekki hvað veldur. Þetta er frekar þreytandi. Það sem verra er að erfinginn harðneitar að leyfa mér að njóta nokkurs matar og lyktarskynið er að gera mig brjálaða. Ég finn andfýlu af margra metra færi, hrökklaðist áðan frá stofu M5 því mér fannst hún bara full af andfýlu og öll matarlykt er orðin ógeðsleg. Matarlyst er í takti við það.
Ritað 14. október 2008 kl. 11:33 um mitt| Skoðanir (5)
Ég er heppin...
Ég tel sjálfri mér trú um það að ég sé bara býsna heppin. Ég...
- hef aldrei tekið myntkörfulán.
- á öll mín lán hjá Íbúðalánasjóði.
- hef aldrei átt nógu mikinn pening til að kaupa hlutabréf.
- á bílinn minn skuldlaust.
- er ekki ein af þeim sem búa í útlöndum en þurfa samt að lifa af því sem fæst fyrir íslensku peningana sína.
- á aðeins eina eign, íbúðina mína, og þegar ég kemst úr henni fer ég væntanlega í stærri eign, svo að ef íbúðin rýrnar að verðmæti þá rýrnar stærri eignin samt væntanlega líka.
- er ríkisstarfsmaður með þokkalegt starfsöryggi.
- á von á barni og hef miklar vonir um að geta hafið búskap með mínum manni sem fyrst.
Ritað 9. október 2008 kl. 15:47 um mitt| Skoðanir (2)
Óborganlegt
Mér finnst óborganlegt að fylgjast með táknmáls-þýðandanum í horninu á fréttunum á RÚV, sérstaklega þegar sagt var að allt væri á niðurleið.
Svo hefur mér verið hugsað til þess í dag, vesalings krakkarnir í 1. bekk sem eiga að vera með fréttavakt þessa vikuna í FÉL103. Það er í raun bara ein frétt þessa vikuna, vandamálið verður hjá þeim að finna út úr því á hversu stóru má stikla til að gera þessu almennileg skil.
Ritað 6. október 2008 kl. 19:33 um mitt| Skoðanir (1)
Hrafnhildur Lilja, hvíl í friði
Ég fór með Mömmu og Pabba til Ólafsfjarðar í dag, til að vera við útför Hrafnhildar Lilju. Mér var hugsað til þess í kirkjunni, þegar einhverntímann var rætt um það í skólanum hvað þætti vera góður mælihvarði á líf fólks, hversu mikils virði fólk hefði verið, þegar lífi þess er lokið. Sumstaðar telst það vera fyrir öllu að geta eftirlátið aðstandendum sínum sem mest fé. Sumstaðar skiptir öllu máli að geta haldið stóra og íburðarmikla jarðarför þar sem engu er til sparað. Hér á landi held ég að fólk horfi frekar á það hversu margir mæta í jarðarförina. Ef við notum þann mælikvarða má segja að Hrafnhildur Lilja hafi skorað býsna hátt. Kirkjan var troðfull, fólk bættist við fram á síðustu mínútu og alltaf var verið að sækja fleiri stóla. Fólk sat frammi á gangi, í safnaðarheimilinu, í stiganum og inni í eldhúsi. Áætlað var að þarna hefðu verið um 350 manns. Það var greinilegt að hún var mikils metin og hennar er sárt saknað.
Mér var líka hugsað til þess hvað það er sorglegt hvað maður ræktar lítið tengslin við þessa ættingja sem búa jafnvel í sama sveitarfélagi og maður sjálfur. Hrafnhildur Lilja bjó lengi á Akureyri og gekk í næsta skóla við mig, en allan þennan tíma töluðum við ekkert saman, áttum hreinlega engin samskipti. Við höfðum næg tækifæri til að kynnast betur og rækta tengslin, en einhvernveginn gerðum við það ekki og nú eru tækifærin uppurin. Ég held að maður verði að fara að gefa sér tíma til þess að kynnast ættingjum sínum betur.
Ritað 4. október 2008 kl. 17:43 um mitt| Skoðanir (1)
Snjór
Já, það snjóaði á Akureyri í dag. Það snjóaði reyndar ekki nóg til að allt verði hvítt og fallegt, meira bara nóg til að það yrði kalt og blautt. Mér hefði fundist það allt í lagi, nema fyrir það að fólki var almennt séð svo kalt í dag að allir kepptust við að loka gluggum svo að ég gekk úr einni loftlausri stofu í aðra í allan dag og fannst ég alltaf vera að kafna. Í lok dags var ég farin að finna fyrir hausverk sem eflaust hefur rætur að rekja til loftleysisins, en líka til vöðvabólgu eftir alla kyrrsetuna í gær. Mín endaði með að fara heim seint og um síðar meir, leggjast þar í bað og reyna að mýkja vöðvana. Svo er það bara snemma í rúmið.
Ritað 30. september 2008 kl. 21:38 um mitt| Skoðanir (0)
Blendnar tilfinningar
Tilfinningar mínar hafa verið á fleygiferð í dag. Mamma og Pabbi sögðu mér í gær frá því að frænka mín, Hrafnhildur Lilja, hefði verið myrt úti í Dóminíkanska lýðveldinu. Eftir því sem leið á kvöldið fór þetta að verða raunverulegra og ég hef varla hugsað um annað í dag. Í góðum takti við það hef ég verið frekar langt niðri.
Í löngu frímínútunum var hins vegar afmæliskaffi og þá mætti orlofsdeildin á gripasýningu, þ.e. starfsmenn í fæðingarorlofi mættu með börn sín. Þetta voru samtals 6 börn á aldrinum 3-6 mánaða. Það má segja að það hafi verið líflegt á kennarastofunni þegar allir voru samankomnir. Mér fannst þetta hafa líka mjög góð áhrif á geð mitt, að sjá svona mikið líf. Það vegur aðeins upp á móti sorgarfréttum gærdagsins.
Ritað 24. september 2008 kl. 12:54 um mitt| Skoðanir (0)
Busavígsla
Nú er busavígslan langt komin hérna í MA og mér sýnist nemendur 1. bekkjar óðum nálgast það að verða útlærðir í þeim góðu siðum sem menntskælingar þurfa að tileinka sér. Þeir kunna núna að syngja Hesta Jóa og Heimaleikfimi og hafa lært að „steikjast eins og beikon“.
Ritað 16. september 2008 kl. 12:36 um mitt| Skoðanir (0)
Svifið á skýi
Ég hef svifið gersamlega á skýi síðan í morgun. Ég fór nefnilega í fyrsta sónarinn, þ.e. hnakkaþykktarmælingu á FSA. Tryggvi komst ekki með, enda var fyrirvarinn aðeins um 1,5 klst. en ég gat fengið Krissu til að koma með mér í staðinn. Allt leit vel út og ég fékk nokkrar myndir til að taka með mér. Þessi hérna er skást:
Þetta er semsagt andlitsmynd, barnið liggur á hliðinni og andlitið er vinstra megin á myndinni. Hægt er að sjá augabrúnirnar og augun þar fyrir neðan, svo má líka sjá móta fyrir kjálkum og munni. Svo er flekkurinn til hægri brjóstkassi barnsins.
Læknirinn fékk mig til að hósta djúpt og vel og þá vaknaði barnið. Ég réð varla við mig af spenningi að sjá það hreyfa sig.
Og já, fyrir þá sem ekki hafa frétt það áður, þá eigum við Tryggvi von á erfingja í lok mars.
Ritað 12. september 2008 kl. 21:11 um mitt| Skoðanir (8)
Ég öskraði af hlátri
Ég mæli alveg óskaplega með því að lesa þessa grein:
Svona gerist þegar fólk hefur horft á of margar bandarískar myndir, frekar en að læra nokkur grundvallaratriði eðlisfræðinnar.
Ritað 3. september 2008 kl. 00:10 um mitt| Skoðanir (4)
Íslensk kjötsúpa
Ég keyrði frá Akureyri til Reykjavíkur í gær og mestalla leiðina lét ég mig dreyma um alvöru íslenska kjötsúpu. Í dag lét ég slag standa, keypti súpukjöt, súpujurtir, rófu, kartöflur og gulrætur og mallaði þessa svakalegu súpu. Við Tryggvi buðum svo tengdó í mat. Hrikalega var þetta góður matur!
Ritað 31. ágúst 2008 kl. 22:39 um mitt| Skoðanir (2)
Stórhættulegur kjúklingur
Ég ætlaði að vera svakasniðug í gær og hafa kjúkling í matinn. Byrjaði á að brúna hann aðeins og ætlaði svo að setja sósu útá og láta krauma. Haldiði að helvítið hafi ekki ákveðið að bíta til baka?? Ég fékk þessa stærðarinnar slummu af heitri olíu upp á handlegg. Núna ber ég stríðsörin eftir bardagann, reiða, rauða flekki sem munu prýða handlegginn á mér í nánustu framtíð.
Ritað 15. ágúst 2008 kl. 15:46 um mitt| Skoðanir (0)
Þrjátíu ára!
Mikið óskaplega er ég orðin gömul í dag. Ég hef hreinlega aldrei verið svona svakalega gömul áður! Nú er ég búin að fylla heila þrjá tugi ára! Það var haldið aðeins upp á það með smá kökuboði heima í Tjarnarlundinum í gær, en við Tryggvi renndum norður um helgina til að skoða betur nokkur hús.
Við erum reyndar farin að komast á þá skoðun að kannski er það aðeins of stór biti fyrir okkur að ætla að kaupa einbýlishús því að við getum fengið svo miklu betri eignir, ýmist hæðir eða raðhús, fyrir sama pening. Þau hús sem eru á okkar verðbili eru yfirleitt meingölluð á einhvern hátt.
Annars lítur allt mjög vel út í sambandi við sölu á Öldugrandanum, nokkrir búnir að skoða og við teljum líklegt að hann seljist í vikunni. Tjarnarlundurinn verður sennilega aðeins rólegri í sölu.
Ritað 11. ágúst 2008 kl. 13:26 um mitt| Skoðanir (2)
Mikið að gerast
Já, það hefur ýmislegt verið að gerast undanfarnar vikur. Við Tryggvi fórum til Bretlands, flugum fyrst til London og vorum þar í nokkra daga, skoðuðum söfn og túristuðumst, og tókum svo lest til Portsmouth til að heimsækja Díönu. Portsmouth reyndist vera stórskemmtilegur bær, hlýlegur og rólegur og þar tókst mér að ná mér í nettan sólbruna. Eftir nokkra daga þar fórum við svo aftur til Íslands, þó svo að Iceland Express reyndi sitt allra besta til að koma í veg fyrir það.
Þá var stoppað í nokkra daga í Reykjavík, tekin staðan á garðinum, sem er orðinn vel þökulagður og fínn, og kíkt í eitt gott partý. Eftir það var rennt af stað norður, stoppað við í Ráðleysu, og brunað til Akureyrar. Þar tókum við, í gær, góðan skurk í því að skoða hús sem voru til sölu. Við komumst aðallega að því að einbýlishús eru helst ekki á okkar verðbili, nema þau séu vandlega undirlögð af fúski. Eitt hús kom samt vel út. Um kvöldið fórum við svo á Friðrik V og fengum góðan mat þar.
Í dag erum við svo búin að skoða eitt hús til viðbótar, Tryggvi er lagður af stað suður og ég ætla að fara austur í Teiginn þegar ég er búin að spjalla við Krissu. Það er gott að vera í fríi.
Ritað 22. júlí 2008 kl. 14:40 um mitt| Skoðanir (0)
Þetta er í lagi... ég er í fríi!
Já, þetta er allt í lagi. Pallurinn er horfinn af lóðinni við Öldugrandann. Tryggvi bar því við að ég hafi sýnt frekar tryllta takta með kúbeinið (venjulegt, ekki innbrots) og sagði að ég væri sennilega að fá útrás á plönkunum vegna þess að ég fengi ekki að gera það í vinnunni. Nú er kominn sandur á lóðina og nýjar þökur fara á hana á morgun. En ég sé það ekki í svona viku því að í rauða bítið í fyrramálið förum við Tryggvi til Bretlands. Vúhú!
Ritað 7. júlí 2008 kl. 22:26 um mitt| Skoðanir (0)
Another one bites the dust
Já, við Tryggvi réðumst í það í dag að rífa pallinn við Öldugrandann. Reyndar var hann svo fúinn að sumar spýturnar leystust upp í öreindir sínar bara við að horfa á þær (eða svo gott sem). Við rifum semsagt niður skjólveggina og slatta af pallinum sjálfum og ætlum að halda áfram á morgun.
Ritað 28. júní 2008 kl. 16:10 um mitt| Skoðanir (0)
10 ára stúdentsafmæli
Já, nú eru 10 ár síðan ég útskrifaðist úr MA og svo er líka búið að koma Rögnu í gegnum skólann líka. Síðustu dagar hafa verið illa rosalegir, því að það þurfti að halda vel og vandlega upp á þessa tvo atburði. Við Tryggvi byrjuðum á laugardagskvöld á bekkjarpartýi TUVX bekkjanna (fórum heim um kl. 3), tókum óvissuferð og partý á sunnudag (fórum heim um kl. 4) og svo var auðvitað all-out djamm á mánudeginum 16. (fórum heim um hálf sex). Villi Stebba stóð sig svakavel í hlutverki gestgjafa í bekkjarpartýinu (dýfan var mögnuð!) og Auður Karen, Sólveig og Elva gjörsamlega mössuðu óvissuferðina, með nóg af sprautum og hlandpokum handa fólkinu. Þegar leystist úr óvissunni reyndist ferðin vera heimsókn í skólann til að hlýða á gamla kennara, svo var farið að keppa í kíló og boðhlaupi, rennt yfir í Kalda til að fá bjór og langsteikur og loks farið í sund á Dalvík. Um kvöldið var svo góð stemmning uppi í fjalli á skíðahótelinu.
Maður hefði kannski haldið að eftir þetta alltsaman þá væri farið að draga aðeins af manni, en djammleysið hjá mér undanfarin misseri hlýtur að hafa bara hlaðið batteríin en ekki komið mér úr æfingu. Á sextándanum hafði ég það af að kíkja aðeins í vinnuna og fara svo í höllina um kvöldið bara þónokkuð hress. Þar var stemmarinn bara jafn góður og hann hafði verið og bara batnaði eftir því sem á leið. Bábákórinn heillaði veislugesti upp úr skónum og aðalfjörið var úti við búsbílinn. Þegar Jónsi þagnaði loksins var ákveðið að halda fjörinu áfram í eftirpartýi hjá Villa og það var í fullum gangi þegar við Tryggvi fórum með semingi heim að sofa, enda þurfti að ná smá kríu fyrir útskriftina um morguninn. Við mættum, eiturhress og ímynd íslenskrar íþróttamennsku, til að sjá litlu systur (og litla frænda hans Tryggva) taka við skírteininu og setja upp húfu. Ég verð reyndar að játa á mig að hafa lagt mig seinnipartinn til að hressa mig aðeins upp fyrir veisluna um kvöldið.
Það sem mér fannst einna skemmtilegast við stúdentsafmælið, var það hvað bekkjamörkin fóru að óskýrast og fólk var að mynda allskonar tengsl sem áður hafði haft lítil samskipti. Mér finnst ég þekkja suma betur eftir þessa nokkra daga, en ég gerði eftir fjögurra ára nám með þeim. Ég er strax farin að hlakka til næsta afmælis og það er klárt að við bíðum ekki tíu ár þangað til!
Ritað 18. júní 2008 kl. 11:00 um mitt| Skoðanir (2)
Ég man þá tíð...
Munið þið þegar olíufélögin voru að fara í kleinu, út af því að það voru ekki til nógu mörg sæti á bensíndælunum til að hækka bensínið yfir 99,99 kr á lítrann?
Ritað 10. júní 2008 kl. 18:32 um mitt| Skoðanir (5)
Yfirferð verkefna
Ég er að moka mér leið í gegnum verkefni nemenda í STÆ313. Verkefnin hafa legið hjá mér í mánuð og ég er að klára yfirferðina svo að krakkarnir nái að fá þetta fyrir prófið á föstudaginn. Verkefnin eiga öll að vera verðkannanir úr nokkrum vöruflokkum en eru æði misjöfn, allt frá háfleygum hugleiðingum um ferðalög almennt, yfir í lýsingar á formúlum sem slegnar eru inn í Excel („...og svo ýtum við á Enter...“). Sumir hitta alveg naglann á höfuðið, á meðan aðrir ákveða greinilega að sleppa bara naglanum og nota lím í staðinn.
Jæja... þrjú verkefni eftir...
Ritað 4. júní 2008 kl. 17:59 um mitt| Skoðanir (0)
Jarðtenging
Það er spurning hvort maður ætti ekki að ganga um með hönk af vírum í gulri og grænni kápu. Þá er hægt við viðeigandi tækifæri að rétta fóki bút af svoleiðis vír og tilkynna því: „Gjörðu svo vel. Þig vantar greinilega jarðtengingu!“
Ritað 28. maí 2008 kl. 07:33 um mitt| Skoðanir (2)
Dimissio
Dagurinn hefur svo sannarlega verið skemmtilegur. Ég byrjaði á því að kveðja hinn eiturhressa 1A og svo byrjaði dagskráin í kringum dimissio 4. bekkjar. Það er þetta venjulega, 4. bekkur var borinn að þrautabraut, þau pínd pínu, svo var farið í búninga, kennarar og starfsfólk kvatt í Kvosinni og svo var brunað út um allan bæ og fleiri kvaddir.
Svo var Dimissio í kvöld og það var alveg bráðskemmtilegt, þar var gleðin ríkjandi og mikið hlegið en ég er ekki frá því að nokkur væmnari atriðin hafi laðað fram býsna innileg snökt úr salnum.
Dagurinn var ekki síst sérstakur fyrir mig. Þessir krakkar byrjuðu flestir í skólanum um leið og ég byrjaði að kenna hér og ég hef fylgst með þeim í gegnum árin og séð þau þroskast um leið og ég hef sjálf lært betur á starfið. Svo horfi ég líka á þau og hugsa um hvað það var nú svakalega gaman þegar maður sjálfur stóð í þessu, að dimitera (ég vild' ég væri orðin emmogemm, aha) og útskrifast og er farin að hlakka skuggalega mikið til þess að hitta samstúdenta mína í júní. Það verður geggjað.
Ritað 23. maí 2008 kl. 21:59 um mitt| Skoðanir (0)
Önn og önnum að ljúka
Já, nú eru síðustu dagar þessarar annar að líða hjá. Nú fer fram loka upprifjun fyrir próf, allstaðar er dreift prófsýnum og yfirlitum og kennarar keppast við að klára að fara yfir próf og verkefni til að geta skilað áður en tíminn rennur út. Ég hef setið við til kl. 7 öll kvöld að reyna að klára, hef ekkert komist til að hreyfa mig, hef borðað mjög óhollt og útlitið á mér er frekar mikið eftir því (bólur spretta upp hér og þar (eflaust líka stresstengdar) og árangurinn af Danska hverfur jafnt og þétt, áherslan á þétt). Ég sé samt fram á að nú fari að birta til enda hefst próftíð núna á mánudaginn. Vissulega er mikið álag þá líka en það er allt öðruvísi álag og því felst léttir í því að breyta til.
Ég er farin að hlakka verulega til... hlakka til að klára kennsluna (þó að mér finnist nemendahópurinn minn sérstaklega góður núna)... hlakka til að halda upp á 10 ára stúdentsafmæli... hlakka til að mæta í útskriftina hennar Rögnu... hlakka til að komast í sumarfrí... hlakka til að komast til Köben... Ástandið er ekki svo slæmt ef maður hefur eitthvað til að hlakka til!
Ritað 21. maí 2008 kl. 13:08 um mitt| Skoðanir (0)
Gæs!
Frænkur og systur Elvu hrifu hana af stað í gær til að gæsa hana. Fyrsta stopp var Bruggsmiðjan á Árskógssandi þar sem við fengum hollan og góðan bjór, kynningu á fyrirtækinu og svo fékk Elva einkasöng frá Rúnari Júl (vildi að ég gæti tekið kredit fyrir skipulagningu þess). Þá var rennt til baka til Akureyrar, gripinn matur í hvelli og svo kíkt í pottinn hjá Abaco. Síðan var endað í Tjarnarlundinum þar sem við fengum kynningu frá Adam og Evu og svo var setið yfir víni og spjalli frameftir kvöldi.
Ritað 11. maí 2008 kl. 10:48 um mitt| Skoðanir (2)
Allt að gerast
Síðasta helgi var stórundarleg. Tryggvi kom norður í síðustu viku og við fórum saman suður á laugardagsmorgun til að fara í brúðkaup. Það reyndist vera hin mesta skemmtun, nóg af MA-ingum (sérstaklega góður þéttleiki af útskriftarárgangi 1998) og vel veitt af mati og víni. Ég flaug svo norður um miðjan sunnudaginn og tókst að ná mér í eitt gott über kvef á leiðinni.
Ég sá það reyndar í þessu brúðkaupi að það sé algjörlega ómögulegt að leyfa Elvu að gifta sig án þess að gæsa hana. Svo að ég fór í málið, bjó til dagskrá fyrir næsta laugardag og þetta verður AWESOME!
Ritað 6. maí 2008 kl. 16:00 um mitt| Skoðanir (3)
Kjóll og hvítt... nema bara ekkert hvítt
Ég var afskaplega þreytt eftir daginn, búin að eiga mörg erfið samtöl við vinnufélaga, og langaði að gera eitthvað til að lyfta mér upp. Ég setti mig því í samband við konuna í mér og renndi mér niður í miðbæ og keypti mér sparidress til að fara í öll þessi brúðkaup sem eru framundan. Ég ákvað að fjárfesta í forláta kjól, jakka í stíl og meira að segja slæðu. Allt er þetta í fölgrænum lit sem wikipedia myndi kalla asparagus eða jafnvel camouflage green. Allavegana þá er þetta allt ofsalega sætt og mér sýnist settið vera bæði stelpulegt og líka frekar virðulegt.
Ritað 29. apríl 2008 kl. 18:54 um mitt| Skoðanir (7)
Hvort kom á undan, gasið eða grjótið?
Ég átta mig ekki alveg á þessu... Ég hef verið að lesa mbl.is og visir.is og mér finnst fréttirnar vera misvísandi. Sumar fréttirnar líta út eins og löggan hafi byrjað að sprauta táragasi (sem í sumum fréttum er kallað piparúði) og enginn verið að gera neitt (álíka trúlegt og tölvunotandi sem situr við rjúkandi rústirnar af vélinni sinni og segir „Ég gerði ekki neitt!“) en aðrar fréttir segja að mótmælendur hafi kastað grjóti og eggjum og svo hafi löggan dúndrað gasinu. Veit einhver hvort er rétt?
Lögreglumaður á slysadeild
Lögregla beitir táragasi
„Vonandi að fólkið stígi fram"
Ritað 23. apríl 2008 kl. 13:23 um mitt| Skoðanir (5)
Notalegur dagur
Dagurinn er búinn að vera fínn. Ég er búin að þvo eina vél af suðuþvotti og hengja út á snúru (svakalega verður góð lykt af þessum rúmfötum!), kaupa mér nærföt, fara í ræktina og djöbblast aðeins, þvo bílinn að utan, þvo bílinn að innan (telst sem tvær aðskildar aðgerðir því að ég fór heim til að þvo bílinn að innan) og fara í svakalega gott bað. Þetta myndi ég kalla hæfilegt jafnvægi dugnaðar og dekurs.
Ritað 5. apríl 2008 kl. 17:21 um mitt| Skoðanir (0)
Bölvaður melurinn!
Ég fékk bréf frá Kaupþingi í dag, með upplýsingum um inneignina mína í Vista séreignarsjóðnum. Ávöxtunin hjá sjóðnum í fyrra: -2,1%! Já, þessi æðislega vel stjórnaði sjóður skilaði mér neikvæðri ávöxtun! Ég tapaði yfir áttaþúsundkalli. Ástæðan leyndi sér ekki á baksíðu bréfsins: Marínó Örn Tryggvason, forstöðumaður í Eignastýringu Kaupþings... Þar sannast hið fornkveðna: Helvítis Marínó.
Ritað 4. apríl 2008 kl. 19:11 um mitt| Skoðanir (1)
Vikan loksins búin
Vinnuvikan er loksins búin, hún er búin að vera erfið þessi. Ekki það, að bæði nemendur, kennarar og annað samstarfsfólk mitt hafa öll verið afskaplega ljúf í alla staði, en samt hafa legið frekar þungt á mér þessi vandræði með nýju tölvuna. Ég var búin að prófa allskonar lyklaborðs-kombó til að ná sambandi við hana og á tímabili leið mér eins og ég væri að spila tölvuleik á PS vélina hans Magna Steins (hringur, hringur, kassi, þríhyrningur, R2, R2, kassi, og þá kemst maður í Target Mode). Eftir að hafa prófað allskonar mismunandi lyklaborð, sett bæði Windows og MacOS uppsetningardiska í hana, tengt hana með FireWire í aðra vél og gvuð má vita hvað, ákvað ég að kalla til fagmenn og fór með hana niður í Haftækni. Þeir tóku afskaplega ljúflega á móti mér en sögðu að líklegast yrði að senda hana suður. Þó könnuðust þeir við vandamálið og sögðu að það yrði væntanlega að skipta um disk. Sennilegast fæ ég tölvuna aftur þegar ég kem að sunnan.
Ritað 4. apríl 2008 kl. 18:00 um mitt| Skoðanir (0)
Vesen
Ég gerði tilraun í gær til að nota Boot Camp til að setja Windows á hluta af disknum á nýju vélinni. Var þá ætlunin að nota það stýrikerfi til leikja. Það má segja að tilraunin hafi mistekist. Hrapalega.
Boot Camp skipti harða disknum fyrir mig, átti að nota 32 GB fyrir Windows en um 290 GB fyrir MacOS. Síðan keyrði ég uppsetningardiskinn fyrir Windows en þá sá það ekkert nema eina 160 GB partition. Skrítið. Eftir að hringja í Tryggva fyrir stuðning tókst að ná geisladisknum úr drifinu en annars fékk ég tölvuna ekki til að gera neitt nema sýna mér ljósgráan skjá, nema stundum sem hún sýndi mér ljósgráan skjá með svörtum músabendli sem ekki hreyfðist.
Núna er markmiðið hjá mér að ná að setja MacOS aftur upp og koma vélinni í nothæft ástand. Annars gæti verið að ég setji Haftækni í málið.
Það var samt erfitt að sofna í nótt.
Ritað 2. apríl 2008 kl. 10:43 um mitt| Skoðanir (6)
Bíræfinn þjófnaður
Tryggvi stal heimasímanum mínum.
Ritað 30. mars 2008 kl. 20:59 um mitt| Skoðanir (3)
Tryggvi farinn aftur suður
Tryggvi mætti óvænt norður á föstudaginn. Reyndar voru samskiptin okkar svo góð að um 9 leitið spurði tendó mig hvort hann væri kominn norður og ég kom alveg af fjöllum, kannaðist ekkert við neitt svoleiðis. Í ljós kom að hann hafði jú sent mér SMS fyrr um daginn... Seint um nóttina kom hann svo drulluþreyttur hafandi gengið frá bifreiðaskiptum.
„Nýji“ bíllinn er svakafínn. Allskonar dót og dæmi í honum og töluvert þægilegri í samskiptum en krúserinn. Hann jafnvel fer þangað sem maður ætlar honum möglunarlaust.
Reyndar er einn örlítill ókostur... Hann er nefnilega með kassettutæki en ekki geislaspilara. Reyndar bauð ég Tryggva að taka af spólusafninu mínu; ég á nefnilega slatta af spólum frá því í gamladaga niðri í geymslu. Þær geyma æðisleg dæmi um tónlistarsmekk táningsstelpu fyrir 15 árum síðan... Af einhverri ástæðu þáði Tryggvi boðið ekki...
Ritað 30. mars 2008 kl. 17:35 um mitt| Skoðanir (0)
Ný tölva
Já, mín skellti sér af stað og fékk sér nýja tölvu. Ég brunaði áðan niður í Haftækni og festi kaup á gullfallegu eintaki af iMac, 20". Nú er ég að vinna í því að koma þeim hugbúnaði inn sem ég þarf og svona. Víííí!!!
Ritað 17. mars 2008 kl. 16:26 um mitt| Skoðanir (5)
Bang
Á leiðinni á aðalfund FF... æ, andskotinn, Grand Hótel er hægra meginn við Kringlumýrarbraut en ekki vinstra meginn... þarf að komast til hægri... hægja á bílnum... gefa stefnuljós... allt fullt af bílum í kring... þarf að gefa í og drífa mig til hægri... löppin gróin við bremsuna... hvar er kúplingin?? æ, hann er sjálfskiptur!
KLANK!!!
Þá komst ég að því hvað maður fær þegar maður blandar saman Volvo og BMV. Bimminn var töluvert meira beyglaður en Ovlov, ef maður horfði beint framan á bílinn sást inn í dekk, á Volvonum var brotið afturljós. Vesen.
Það meiddist enginn. Vildi bara taka það fram.
Ritað 13. mars 2008 kl. 22:35 um mitt| Skoðanir (1)
Biluð þvottavél
Það er hræðilegt ástand hjá mér. Öll fötin mín eru skítug og þvottavélin er biluð. Hvað gerir kona þá? Lærir að spinna?
Ritað 7. mars 2008 kl. 14:16 um mitt| Skoðanir (1)
Reykjavíkurdekur
Síðasta föstudag var dregið í undanúrslit í Gettu Betur. Það kom mér ekki á óvart að MR „lenti“ á föstudagskvöldinu. Þeir voru nefnilega búnir að panta þetta kvöld.
Samkvæmt frásögn Jóns Más, skólameistara MA, þá báðu nemendur MA um að fá að keppa á föstudagskvöld, svo að ekki þyrfti að fella niður jafn mikla kennslu fyrir stuðningsliðið. Þessa bón lögðu þau fram þegar ljóst var orðið að MA kæmist áfram og var jafnframt orðið eini landsbyggðarskólinn sem eftir var í keppninni. Svarið, sem kom frá umsjónarmanni Gettu betur, var að það væri ekki hægt að lofa slíku því að MR hefði þegar pantað föstudagskvöldið. MR, sem ekki hafði einu sinni tryggt sér þátttöku í undanúrslitum! MR, sem þarf ekki að fara lengra en í næsta sveitarfélag með sitt stuðningslið! MR, sem getur sent sitt stuðningslið beint heim í rúmið að lokinni keppni, í staðinn fyrir að útvega gistingu eða leggja í margra tíma rútuferð heim. Og það sem verst var: SJÓNVARPIÐ LÉT ÞETTA EFTIR ÞEIM!!!
Nú þurfa skólar höfuðborgarsvæðisins ekki að kosta neinu til þess að taka þátt í Gettu Betur, nema í þau örfáu skipti sem þeir þurfa að kíkja út á land. Það gerist kannski einu sinni á vetri að það komi upp og hver skóli lendir í því kannski einu sinni til tvisvar á áratug. Landsbyggðarskólarnir þurfa hins vegar að borga fokdýrar rútur til að koma sínum stuðningsliðum til keppni fyrir sunnan og jafnvel útvega gistingu. MA hefur sýnt ótrúlegt langlundargeð og farið ferð eftir ferð suður undanfarin ár og kostað til þess stórum upphæðum. Enn og aftur eru nemendur tilbúnir til að fara suður og styðja sitt lið en hafa eina litla ósk, að fá að keppa á föstudegi, því að þó þeir meti mikils að taka þátt, þá meta þau líka mikils námið sem fer fram í daglegu starfi. Af hverju var ekki hægt að láta það eftir þeim???
Mér þætti athyglisvert að gera samanburð á því, hverju nemendafélög framhaldsskólanna hafa til kostað til að taka þátt í þessari keppni undanfarinn áratug. Gæti ég trúað að kostnaðinum sé eitthvað misskipt...
Ritað 5. mars 2008 kl. 10:46 um mitt| Skoðanir (15)
Frasi helgarinnar
Þetta datt upp úr Tryggva í gærkvöldi (tilefnið var eitthvað klaufalegt orðalag í Laugardagslögunum):
Alveg myndi Sverrir Páll snúa sér við í gröfinni ef hann heyrði þetta ef hann væri dauður.
Ritað 24. febrúar 2008 kl. 22:28 um mitt| Skoðanir (1)
Über kvef
Mitt kvef getur sparkað í rassinn á kvefinu þínu. Atsjúúúúú!!
Ritað 20. febrúar 2008 kl. 10:46 um mitt| Skoðanir (3)
Karlmenn í eftirdragi í tíma (og ótíma)
Kennslan er búin að vera skrítin þessa tvo daga. Í gær kenndi ég 1A með Ingvar Sigurgeirsson (jup, the one and only) í stofunni og í dag hafði ég hjá mér áheyrnarnema í réttindanámi. Það var frekar spes, ekki síst þar sem áheyrnarneminn útskrifaðist úr MA 1963.
Ritað 19. febrúar 2008 kl. 21:21 um mitt| Skoðanir (2)
Nokkrir nýjir diskar
Það er óskaplegur föstudagur í mér. Búinn að vera í allan dag. Gerði smá að gamni mínu í morgun... „Við skulum kanna formerki þessarar margliðu, en svona eins og í Stundinni okkar í gamla daga (til að flýta fyrir mér, á ég annan renning hér) skulum við gefa okkur að það sé búið að þátta hana...“ Held að það hafi verið föstudagur líka í nemendunum mínum, sá allavegna einhver glott yfir slöppum aulabrandara. Svo stóð ég fyrir því seinna á kennarafundi að fólk fari á ónefnda ölstofu í bænum að eiga góða stund í kvöld. Rebbúl pebbúl.
Skellti mér svo á nokkra DVD diska frá Play.com, mestmegnis gamla söngleiki. Passaði mig samt að kunna mér hóf í þeim efnum þó að ég rækist á miklu fleiri myndir sem mig langaði að kaupa. Áreiðanleg heimild segir nefnilega:
Þér finnst þú mikill og ágengur. Þú hefur allan rétt til að vilja það sem þú vilt. Lífið er eitt stórt hlaðborð og það er betra að stoppa áður en maður fær illt í magann.
Ritað 15. febrúar 2008 kl. 18:25 um mitt| Skoðanir (0)
MA heldur áfram
Gettu betur var aldeilis spennandi í kvöld. Ég hafði gaman af, enda hafa Arna, Konni og Svala öll verið nemendur mínir. Þau stóðu sig vel og komu skólanum áfram.
Ritað 8. febrúar 2008 kl. 21:16 um mitt| Skoðanir (6)
Í hvaða stofu???
Þegar ég fékk stundatöflu fyrir önnina stóð á henni að síðustu tveir tímarnir á fimmtudögum væru í stofum M6 og M7. Ég útskýrði fyrir skrifstofustjóra að ein stofa nægði okkur alveg og M7 var látin duga. Ég lét boð um það berast til nemenda minna.
Þegar þau svo fóru að tínast í stofuna áðan sýndist mér óvissa ríkja meðal þeirra, enda kom það í ljós þegar þau skoðuðu stofutöfluna sem hangir fyrir framan M7 að í þessum tímum eigi að kenna íslensku í stofunni. Nánari eftirgrennslan leiddi í ljós að stofutaflan sem þar hangir er merkt H7 en ekki M7. Við ákváðum þá að halda til streitu að hafa tímann þarna en ég ákvað að skreppa í kaffi, enda 10 mínútur þangað til tíminn byrjaði. Þá tók ég eftir því að mér var veitt eftirför: tvær nemendur sáu mig á ganginum og héldu í humátt á eftir mér, enda hlyti ég að vera á leiðinni í stofuna þar sem tíminn átti að vera!
Svona er að byrja nýja önn!
Ritað 7. febrúar 2008 kl. 17:57 um mitt| Skoðanir (0)
Klaufaskapur í hannyrðunum
Ég er búin að vera undanfarið að hekla teppi og er núna að vinna í því að sauma það saman. Þegar ég svo kippti upp málbandi og mældi teppið kom í ljós að dúllurnar mínar, sem áttu allar að vera u.þ.b. 8 cm á kant voru í raun u.þ.b. 6 cm á kant. Mér sýnist allt stefna í það að ég verði að hekla helling af dúllum í viðbót til að teppið verði aðeins meira en smá pjatla.
Ritað 5. febrúar 2008 kl. 20:57 um mitt| Skoðanir (2)
Suður og aftur heim
Ég skrapp suður um helgina, hafði reyndar ekkert sérstakt erindi annað en það að fá að hitta kallinn aðeins. Ég velti því aðeins fyrir mér þegar ég fór niður á völl á föstudaginn, hvort væri sniðugra að keyra niður á völl eða taka leigubíl þangað. Ég sá það í hendi mér að ég þyrfti að grafa bílinn út hvort sem er, en hugsaði sem svo að ef ég hefði hann niðri við völl, þá myndi það koma betur út ef bílastæðið heima yrði rutt. Þegar ég kom svo norður áðan sá ég að bíllinn minn leit svona út:
Sem alvöru íslensk sveitastelpa, réðist ég auðvitað bara á skaflinn, gróf þokkalega frá bílnum að aftan og hreinsaði helstu glugga og brunaði svo út úr stæðinu áður en ég kláraði að hreinsa. Þengill var að búinn að losa sinn bíl úr svipaðri stöðu rétt hjá og lýsti því yfir að ég væri greinilega ekkert borgarbarn!
Ritað 3. febrúar 2008 kl. 18:09 um mitt| Skoðanir (2)
Spaugstofan og Ólafur
Ég horfi yfirleitt ekki á Spaugstofuna en fólki var eitthvað svo mikið niðri fyrir út af þættinum á laugardaginn að ég ákvað að kíkja. Mér fannst þátturinn bara óvenju fyndinn. Mér finnst Ólafur vera allt of hörundsár til að vera í pólitík ef hann ræður ekki við skotin sem hleypt var af í þættinum. Hann kom ekki (mikið) verr út úr þessum hætti en t.d. Villi („Ég man ekki...“) eða Bingi með hnífana. Eins hefur nú skapast löng hefð fyrir því að mála Halldór Ásgríms sem vitgrannan aumingja, svo maður nefni dæmi.
„Kúkú!“
„Sömuleiðis.“
Ritað 28. janúar 2008 kl. 18:34 um mitt| Skoðanir (2)
Æðisleg hríð
Mér finnst geggjuð hríðin sem er úti núna. Það sést varla yfir bílastæðið við MA og notalegheitin í Gamla Skóla eru yfirgengileg í þessu veðri. Ég verð kannski ekki jafn sæl þegar ég þarf að grafa bílinn út úr skafli til að komast heim, en samt er þetta voðalega kósí á meðan ég þarf ekki að fara út.
Við bíðum þess núna að krakkarnir klári sjúkraprófin sín svo við getum klárað okkur endanlega frá þessari próftíð.
Ritað 25. janúar 2008 kl. 10:40 um mitt| Skoðanir (3)
Yfirferðin mjakast
Ég veit, ég hef ekki verið dugleg að blogga undanfarið. Það hefur gengið á ýmsu í próftíðinni og ég hef setið langt frameftir alla daga að fara yfir próf. Þegar ég svo druslast heim nenni ég ekki að taka með mér tölvuna heldur fer frekar bara að horfa á sjónvarpið. Þess utan þá hef ég bara ekkert að segja.
Nema þetta: Það er komin helgi!! Víííííííí!!!
Ritað 18. janúar 2008 kl. 18:18 um mitt| Skoðanir (2)
Smá tiltekt
Ég gerði áramótatiltekt um daginn á myndasafninu mínu. Reyndar gæti ég helst trúað því að tilvísanir í myndir úr blogginu mínu brotni flestar, en það verður bara að hafa það. Ég bætti líka inn myndum sem höfðu setið bara í tölvunni minni.
Finnlandsferðin
Ættarmótið í Reykjaskóla
Eyjafjörður, Laugafell, Aldeyjarfoss
New York ferðin
Ritað 13. janúar 2008 kl. 17:21 um mitt| Skoðanir (0)
Próftíð og matur
Já, próftíðin er byrjuð. Ég hef ákveðið að taka þá stefnu að vera ofurdönsk nokkrar næstu vikur, færa í matardagbók hvern einasta bita sem ég borða og hreyfa mig eitthvað. Einnig ætla ég að sniðganga kennarastofuna og veislurnar þar kvölds og síðdegis hvern dag. Ég er búin að skrifa vandlega niður síðan á mánudag og fór í gær og fyrradag að djöflast á Bjargi. Ég er ekki frá því að það hafi virkað, að bruninn sé nokkuð góður hjá mér, því að ég verð svöng æ ofan í æ. Venjulega er alveg nóg að borða eftir danska en ég held að með hreyfingu sé þétta í minnsta lagi. Ég ætla samt að halda áfram og ef ég verð voðalega svöng læt ég kannski eftir mér auka ávöxt af og til.
Við sjáum til þegar síga tekur á seinni hlutann hvernig gengur að forðast veislurnar...
Ritað 11. janúar 2008 kl. 15:01 um mitt| Skoðanir (1)
iPod notkunin nýlega
Ég keypti mér nýjan, voða sætan, rauðan iPod Nano úti í útlandinu. Ég valdi rauðan vegna þess að hann er geggjað flottur á litinn og líka vegna þess að hluti söluverðsins fer til baráttu gegn alnæmi í Afríku. Ég hef notið þess undanfarna daga að horfa á Vini og Dexter í honum, geggjað kósí að liggja uppi í rúmi og horfa á þætti. Ég nota samt ennþá krúttlega, litla, bleika iPod Shuffle sem ég átti fyrir, hann hentar betur í ræktina og það er auðveldlega hægt að smella honum á hálsmál, buxnavasa eða jafnvel brjóstahaldara. Hentar mjög vel til að hlusta á hljóðbækur. Núna er hann Stephen Briggs að lesa fyrir mig Making Money eftir Terry Pratchett.
Ritað 4. janúar 2008 kl. 22:51 um mitt| Skoðanir (0)
Nýársveikindin
Ég er að taka út svipuð veikindi eins og ég gerði fyrir um ári síðan. Vona að þetta verði ekki að árlegum atburði hjá mér. Vaknaði í fyrrinótt og hreinsaði ærlega út úr meltingarkerfinu hjá mér, reyndar í nokkrum atrennum. Síðan þá hef ég verið algjör aumingi með hausverk og hálsbólgu en þó hitalaus og meltingin er nokkurn veginn komin í lag. Þetta skal lagast fyrir morgundaginn en þá hefst kennsla á ný.
Ritað 3. janúar 2008 kl. 16:51 um mitt| Skoðanir (0)
Áramótapistill
Árið 2007 hefur verið ár ferðalaga hjá mér. Ég er ekki vön að ferðast mjög mikið erlendis, svo að tvær utanlandsferðir á sama árinu voru frekar mikil viðbrigði. Í sumar fórum við Tryggvi með samstarfsfólki mínu austur yfir haf og heimsóttum Stokkhólm í Svíþjóð (mjög stutt), Helsinki, Turku og fleiri staði í Finnlandi, Tallin í Eistlandi (líka stutt) og St. Pétursborg í Rússlandi. Svo fórum við Tryggvi saman um jólin til New York í Bandaríkjunum og höfðum mikið gaman af. Eftir þessi ferðalög lítur kort mitt yfir þau lönd sem ég hef heimsótt svona út:
Árið hefur líka einkennst af góðum og slæmum fréttum af heilsufari mínu. Ég hef tekið til við ýmiskonar likamsrækt og réð mér m.a. einkaþjálfara í haust. Ég er ekki frá því að það hafi haft góð áhrif á mig, t.d. eru hendurnar á mér miklu betri eftir að ég byrjaði að lyfta lóðum og fituprósentan mín hrundi niður (hún gæti reyndar hafa læðst upp aftur). Hins vegar hefur þyngdin hjá mér farið í þveröfuga átt, fyrst og fremst vegna þess að ég hef ekki haldið mér við gott mataræði. Það verður verkefni næsta árs að koma þyngdinni í betra lag.
Ragna flutti út frá mér í vor og ég tók svo til við það að taka herbergið hennar í gegn. Í haust málaði ég veggi og loft og svo fékk ég Pabba til að koma og leggja hjá mér parket á gólfið. Nú hef ég alveg fínasta gestaherbergi. Fyrr á árinu skellti ég mér líka í það að mála geymsluna og í sumar máluðum við Tryggvi baðherbergið og eldhúsið í Öldugrandanum.
Ég gerði lítilsháttar breytingar á græjustöðunni í ár. Brio gamli fékk að fjúka og iPod-inn sem ég átti tjónaðist svo að endurnýjunar var þörf. Bleikur iPod shuffle dugði ágætlega til að brúa bilið fram að New York ferð en svo keypti ég mér rauðan iPod nano vestan hafs.
Annað er varla að frétta af mér. Aðrir hafa séð um það að skipta um vinnustaði, fara til náms í Danmörku eða Bretlandi, flytja milli landshluta, ná sér í maka eða flytja í sína fyrstu íbúð. Á næsta ári er helsta markmið mitt að ná að sameina heimili okkar Tryggva, ef ég næ að skafa af mér nokkur fleiri kíló, endurnýja tölvukostinn minn og sleppa við verkfall þá verð ég nokkuð ánægð.
Gleðilegt árið!
Ritað 1. janúar 2008 kl. 19:07 um mitt| Skoðanir (0)
Happy holidays!
Gleðileg jól! Jólin hér í New York hafa verið ágæt. Það er ágætt að þurfa ekki að hafa neinar áhyggjur af því að þrífa, elda eða sinna öðrum heimilisstörfum og við Tryggvi höfum haft það mjög notalegt. Stemmningin í kringum verslanirnar á 5th Avenue er mjög skemmtileg og mér sýnist einmitt ekki bera svo mikið á jólastressinu (kannski af því að maður er ekki stressaður sjálfur) heldur er fólk frekar að koma með börnin sín niður í bæ til að skoða skreytingarnar. Við erum búin að taka nokkur skylduverk hér í bæ, skoða Rockafeller Center, taka hestvagnaferð um Central Park, skoða American Museum of Natural History, borða amerískar pönnukökur með beikoni og borða beyglur. Á aðfangadagskvöld var svo asískur matur á Tao. Við erum hérumbil orðin gengin upp að hnjám og ætlum að halda labbinu áfram næstu daga.
Ritað 25. desember 2007 kl. 16:22 um mitt| Skoðanir (0)
0 dagar... I'm leaving today
Já ég flýg af stað eftir rétt tæpa fimm tíma. Við förum að leggja af stað út á völl eftir smá, þegar Tryggvi er búinn að pakka. Þetta verður magnað!
Við ræddum um það í morgun að nú væri runninn upp stysti dagur ársins. Í smástund töldum við okkur trú um það að við værum sko aldeilis að svindla á kerfinu með því að lengja daginn um 5 tíma, en svo áttuðum við okkur á því að við fljúgum af stað þegar verður þegar orðið dimmt svo að í raun erum við að lengja lengstu nótt ársins um 5 tíma.
Leggjum í hann! Vííííí!!!
Ritað 21. desember 2007 kl. 12:11 um mitt| Skoðanir (0)
1 dagur... allt tilbúið...
... held ég... Ég er búin að pakka niður (snyrtivörur, spariföt, föt til skiptana, hellingur af nærfötum og sokkum, vegabréfið...) og er að reyna að muna hverju ég er að gleyma. Rétt mundi eftir NY bókinni... og lyklunum fyrir lásana á töskunum... ég held samt að nú sé bráðum málið að hætta að hugsa um þetta.
Ritað 20. desember 2007 kl. 14:36 um mitt| Skoðanir (0)
2 dagar... jólafrí?
Jón Már blés til jólafrís áðan, þ.e. breiddi út boðskap þann að kennsla skyldi gjörast þennan dag eins og gjört hefur verið ráð fyrir, en að þá taki við jólafrí. Reyndar verður það ekki raunin hjá vor aumum kennurum, því að þá verður blásið til kennarafundar. Reyndar kem ég sennilegast seint á þann fund, þar sem sumir nemendur mínir koma í aukapróf til að sýna mér það að þeir hafi bætt fyrir syndir sem framdar voru fyrr í haust. Heppnist það hjá þeim verður þeim væntanlega fyrir-gefið.
Þetta óvænta jólafrí liðkar töluvert fyrir mínum áætlunum því að ég get þá væntanlega pakkað niður í rólegheitunum á morgun.
Ritað 19. desember 2007 kl. 11:52 um mitt| Skoðanir (2)
3 dagar... stress...
Já, nú styttist í ferðina. Ég eyddi gærdeginum í það að fara yfir próf og náði því einstaka afreki að fara yfir 5 bekkjarskammta af prófum, samtals 97 úrlausnir (töluvert marga vantaði í prófið). Verð að segja að ég finn aðeins fyrir því, fæ hausverk út af vöðvabólgunni í herðunum og er mjög þreytt. Óskaplega verður gott að komast í jólafrí.
Ritað 18. desember 2007 kl. 15:01 um mitt| Skoðanir (0)
6 dagar... jólainnkaupin byrjuð
Við systurnar (ég, Elva og Ragna) þvældumst um Glerártorg í dag og keyptum slatta af dóti fyrir jólin. Ég er búin að afgreiða nokkrar gjafir en á ennþá slatta eftir. Ég þreif líka svefnherbergið mitt og er búin að skella í nokkrar þvottavélar. Á morgun tekur meira við af því sama. Ég vonast til að klára jólagjafirnar frá og klára að þrífa íbúðina á morgun.
I wanna wake up in the city that never sleeps
And find I’m a number one, top of the list,
King of the hill, a number one...
Ritað 15. desember 2007 kl. 22:15 um mitt| Skoðanir (0)
7 dagar... Langþráð helgi
Helgin er loksins komin. Ég vaknaði sjúklega snemma í morgun og er núna ógeðslega þreytt. Ég er að pæla í að fara í langt bað á eftir og skola þreytu vikunnar í í góðu freyðibaði. Ennþá styttist í New York ferð...
If I can make it there, I'll make it anywhere
It's up to you - New York, New York
Ritað 14. desember 2007 kl. 20:15 um mitt| Skoðanir (0)
8 dagar... Helgin nálgast
Kennslan er búin í dag og núna þarf ég að semja prófsýni og hinstadagsdreifildi auk þess að fara yfir heimadæmin sem fyrsti bekkur skilaði á mánudaginn. Um helgina ætla ég að kaupa jólagjafir og síðan verður planið stíft eftir helgi: Á mánudag set ég fimm hópa í próf og ætla að fara yfir sem mest af því til að skila á þriðjudegi en þá fer ég um kvöldið í jólatros kennara á Greifanum. Á miðvikudag verður kennarafundur og extrapróf fyrir fyrsta bekk og þegar heim er komið verð ég að pakka niður. Ég reikna með að þvottavélin fái að vinna fyrir kaupinu sínu jafn óðum því að ég vil hafa sem mest hreint þegar ég flýg suður. Svo á fimmtudag er síðasti kennsludagur og ég flýg suður seinnipartinn. Föstudag förum við svo út.
These little town blues are melting a way
I'll make a brand-new start of it in old New York
Ritað 13. desember 2007 kl. 17:04 um mitt| Skoðanir (0)
9 dagar... Viljastyrkurinn
Mér tókst áðan að fara niður á kennarastofu og borða bara mín vínber án þess að kasta mér á kaf í terturnar sem voru í afmæliskaffinu þar. Svo kíkti ég inn í Græna leður þar sem voru tveir ofurkrúttlegir einstaklingar (annar klæddur í svo rækilega ókyngreind föt að kíkja þurfti á bleiku sokkana til að fullvissa sig um kyn hans) en ég flúði þaðan þegar ég fann eggjastokkana fara að víbra. Fór frekar yfir Leðrið. Þar var mér tilkynnt að þetta hefði verið eins gott hjá mér vegna þess að aðeins má einn vera í barneignafríi í einu í hverri deild.
I wanna wake up in a city, that doesn't sleep
And find I'm king of the hill - top of the heap
Ritað 12. desember 2007 kl. 11:16 um mitt| Skoðanir (8)
10 dagar... Jólastressið
Jólastressið hjá mér lýsir sér yfirleitt í því að ég, verandi kennari, hef áhyggjur af því að komast ekki yfir allt efnið. Það er sama sagan núna, nema með 3AB þar sem ég veit ekki alveg hvað ég get látið þau gera. Ætli það verði ekki jólatími hjá okkur í næstu viku?
Maður er farinn að huga að prófsýnum, hinstadagsdreifildum og síðustu tímaprófum annarinnar. Svo telur maður hversu marga tíma maður fær með nemendum sínum eftir áramót. Hólí sjitt! Bara EINN tími með 2F! Greyin munu ekki taka því vel þegar það rennur upp fyrir þeim. Helst vilja þau auðvitað fresta því framyfir jól að þurfa að sinna stærðfræðinni en þá kemur babb í bátinn ef tíminn eftir jól er mjög stuttur.
Jæja, þá, maður þarf að fara yfir heimadæmi svo þau geti fengið þau til baka greyin.
These vagabond shoes, are longing to stray
Right through the very heart of it - New York, New York
Ritað 11. desember 2007 kl. 17:19 um mitt| Skoðanir (2)
11 dagar... Enn einn mánudagurinn...
...og nei, ekki N1 mánudagurinn, hell no! Ég gerði þau mistök í gærkvöldi að fá mér kaffi. Helvíti gott kaffi sosum en ég átti afskaplega erfitt með að sofna og svaf svo næstum yfir mig í morgun. Rétt náði í tíma.
Skrapp í Teiginn yfir helgina, skoraði lambalæri, pottaferð og gistingu. Óskaplega langt samt síðan ég fór þangað síðast.
Nú eru 11 dagar þangað til við Tryggvi fljúgum út til Brandararíkjanna að upplifa jólabrjálæðið í Nýju Jórvík.
Start spreading the news, I'm leaving today
I want to be a part of it - New York, New York
Ritað 10. desember 2007 kl. 16:34 um mitt| Skoðanir (0)
Jólagjafalistinn í ár
Ég setti inn jólaóskalista í fyrra og ég er bara ekki frá því að það hafi verið góð hugmynd. Ég fékk allavegana bæði ilmvatn og minnislykil. Nú er ég pínulítið frjórri en þá... ekki mikið samt.
Ég er búin að vera yfir mig hrifin af Burberry London ilmvatninu alveg frá því að ég fékk prufu af því með einhverjum snyrtivörum, væri alveg til í svoleiðis. Díana gaf mér fyrir nokkrum árum erkiengilinn Gabríel frá Georg Jensen og ekki myndi ég úthýsa hinum englunum ef þeir kæmu upp úr jólapakka. Baðsloppurinn sem Mamma og Pabbi gáfu mér fyrir lifandis löngu síðan hefur gefist vel, en það væri samt allt í lagi að endurnýja hann.
Mér finnst samt líklegt að ég taki jólagjafirnar ekki með mér út til New York heldur opni þær frekar þegar heim er komið. Það hljómar eitthvað svo undarlega að flytja með sér pakka yfir í aðra heimsálfu til þess eins að flytja innihaldið beint til baka aftur.
Ritað 3. desember 2007 kl. 17:35 um mitt| Skoðanir (0)
Epic vorpal kvef +5
Ég kvefaðist með látum í nótt, held að annað lærið hafi staðið undan sænginni og ég ekki þolað það. Dagurinn hefur einkennst af nefrennsli, hnerrum og lítilsháttar jólaskreytingum. Ég vona að ég lagist fyrir fyrramálið.
Ritað 2. desember 2007 kl. 22:42 um mitt| Skoðanir (1)
Árshátíðin
Árshátíð MA var haldin í gær. Stórglæsileg að vanda. Ragna systir tók sig mjög flott út í upphlutnum og bar hann jafnvel ennþá betur en ég gerði fyrir áratug síðan. Nokkur atriði komu mér á óvart. Ræða formanns nemendafélagsins var skemmtileg, ég er ekki frá því að þetta hafi verið fyrsta ræða formanns Hugins sem ekki var hrútleiðinleg. Skaupið var hins vegar slappt. PRIMA og LMA komu með flott atriði en einna skemmtilegast var að sjá einvígi PRIMA og DANSMA. Geggjaðir taktar hjá báðum liðum.
Ritað 1. desember 2007 kl. 21:47 um mitt| Skoðanir (3)
Foreldrasamstarf
Foreldri hringdi í mig áðan. Ég ætla ekki að lýsa innihaldi samtalsins, en það nægir að segja að skap mitt eftir það var þannig að ég ákvað að snerta ekki á prófabunkanum heldur fara frekar að djöflast í ræktinni.
Ritað 20. nóvember 2007 kl. 18:12 um mitt| Skoðanir (0)
„Ég vona að þið hafið notið flugsins.“
Ég flaug norður áðan, eftir að hafa skroppið suður til að halda upp á þrítugsafmælið hans Tryggva með honum. Helgin var frábær, gott partý á föstudagskvöld, Stokkseyri með álfum, tröllum, draugum og humri á laugardagskvöld og svo rólegt og gott í Reykjavík í dag.
Annars vildi ég bara segja frá fluginu. Við skoppuðum út og suður, austur og vestur yfir allan Eyjafjörð á leiðinni niður. Eftir nokkrar mínútur þar sem ég hafði á tilfinningunni að við værum í kokteilhristara þá skellti flugmaðurinn vélinni niður af svo miklu afli að hún skoppaði (ég sver það!). Svo datt hún aftur niður og loks kom framhjólið niður líka. Þá heyrðist í flugfreyjunni í hátölurunum: „Velkomin til Akureyrar! Ég vona að þið hafið notið flugsins.“
...ehe... I hate to disappoint you but...
Ritað 18. nóvember 2007 kl. 21:23 um mitt| Skoðanir (0)
Fjölpóstur = Ruslpóstur
Ég tók upp á því fyrir talsvert löngu að setja miða á póstkassann minn þar sem ég afþakkaði bæði Fréttablaðið og fjölpóst. Mér fannst einna best að sjá að þetta virkar fyrir mesta parta. Ég fæ ekkert Fréttablað en 24 stundum er þó troðið í kassann. Einnig fæ ég Dagskrána og Extra, sem ég er þó þakklát fyrir, en því miður er þröngvað upp á mig fréttablöðum íþróttafélaganna og Safnaðarfréttum Akureyrarkirkju, hvort tveggja óþarfi því að ég er ekki meðlimur í þessum klúbbum. Reyndar skil ég alls ekki hví íþróttafélögin eru í útgáfustarfsemi yfirleitt.
Ég fæ reyndar ekki að vita af ýmiskonar tilboðum í hinum og þessum verslunum en á móti kemur að ég finn ekki hjá mér þessa miklu löngun sem áður greip mig þegar kom girnilegt blað hlaðið gylliboðum. Ég er ekki frá því að kannski eyði ég minni pening fyrir vikið og er líka almennt séð sáttari við sjálfa mig, lífið og tilveruna.
Ég hvet sem flesta til að gera slíkt hið sama. Blaðberinn á svæðinu mínu og póstberinn taka báðir tillit til minna óska. Mér þykir reyndar verst að þó að ég fá ekki eintakið mitt, þá er eflaust prentað eintak handa mér svo að umhverfið fær ekki að njóta þessa. Þó vonast ég til að ef fleiri gera þetta þá muni auglýsendur draga úr fjölda prentaðra eintaka af hverju blaði.
Mbl.is - Frétt - Leitað leiða til að draga úr blaðaúrgangi
Ritað 14. nóvember 2007 kl. 16:06 um mitt| Skoðanir (0)
Ofur Pabbi
Pabbi kom í gær og við lögðum parketið á litla herbergið. Þ.e.a.s. Pabbi lagði parketið og ég rétti honum næsta borð, hamarinn, sögina, blýant og svoleiðis. Fyrir rest var parketið komið á, listar meðfram veggjum og þröskuldur. Nú er allt annað að sjá herbergið. Ofur Pabbi!

Ritað 10. nóvember 2007 kl. 15:57 um mitt| Skoðanir (5)
Framkvæmdagleði í haustfríi
Já, nú er haustfrí MA og ég nýt þess í botn. Ég fór með umsjónarbekknum mínum í skálaferð á þriðjudag-miðvikudag og gleymdi hleðslutækinu fyrir tölvuna þar, svo að ég get ekki notað hana yfir helgina (skrifa þetta á tölvuna hans Tryggva). Þannig að ég þurfti að finna mér eitthvað til dundurs sem ekki þyrfti tölvu til.
Ég ákvað að drífa í því að mála litla herbergið (áður þekkt sem Rögnu herbergi). Það var í alveg hræðilegum gulum lit sem þakti bæði loft og veggi en var ekki sérlega vel málað svo að blái liturinn sem var undir skein í gegn. Heildareffektinn var innilokunarkennd tilvistarkreppa, þar sem augun og heilin voru bara alls ekki sammála um það hvernig umhverfið leit út. En allavegana, þá ákvað ég að mála loftið arkitektahvitt og á veggina fór litur sem heitir apótek og er frekar hlýr ljósgrár litur. Heildar effektinn er miklu stærra herbergi og töluvert viðkunnalegra.
Til viðbótar við þetta renndi ég í BYKO áðan og keypti nokkrar pakkningar af plastparketi sem mig langar að leggja í staðinn fyrir dúkinn sem er núna á gólfinu. Dúkurinn er reyndar orðinn allur útataður í málningu því að ég ákvað að sletta nógu helvíti mikið á gólfið svo ég gugnaði alveg örugglega ekki á því að skipta um gólfefni. Nú er bara spurning um að hringja í Pabba og athuga hvort hann sé ekki til í að kíkja í heimsókn við tækifæri með sögina sína...
Ritað 2. nóvember 2007 kl. 16:50 um mitt| Skoðanir (0)
Möðrópartý
Já, ég hýsti eitt stykki svokallað Möðrópartí í gærkvöldi. Þetta var lítið rólegt teiti en bara mjög skemmtilegt. Það segir nú sitt um hópinn að hægt var að segja brandara um afstæðiskenninguna og óvissulögmálið og allir skellihlæja, í stað þess að þagna, horfa undarlega á spaugarann og hækka svo duglega í tónlistinni svo að hann tjái sig ekki frekar. Mér skilst að síðasta svona Möðrópartí hafi verið haldið fyrir um 35 árum síðan en vonir standa til að biðin eftir næsta verði styttri.
Ritað 27. október 2007 kl. 11:57 um mitt| Skoðanir (0)
Haustþing og kjararáðstefna
Ég er búin að hafa allt of mikið að gera undanfarið. Í síðustu viku var ég í geggjuðu stressi að reyna að klára allt sem ég þurfti að gera til að komast á kjararáðstefnu KÍ í Reykjavík á föstudeginum. Það var mjög fróðleg ráðstefna og margir pólar teknir í þá ágætu hæð sem er kjarabarátta kennara. Kvöldið eftir hitti ég grunnskólabekkinn minn og fékk mér aðeins í glas... eða nokkur glös... kannski aðeins of mörg. En gaman var það.
Þessi vika hefur verið svipað kreisí. Mikið að gera í vinnunni og svo endaði vikan með haustþingi kennara á Norðurlandi en það var á Sauðárkróki í þetta skiptið. Það endaði með kvöldverði í Ljósheimum þar sem framan af stefndi í óefni þar sem engar vínveitingar voru á staðnum, en það bjargaðist fyrir horn með neyðarferðum í ríkið. Kennarar og aðrir starfsmenn skólanna tóku gleði sína. Kvöldið var í alla staði mjög skemmtilegt, ekki síst á leiðinni heim þar sem við Hóa sýndum hvað í okkur býr þegar kemur að rútusöng.
Ritað 13. október 2007 kl. 00:29 um mitt| Skoðanir (2)
Ræktin á morgnana
Sumir hafa reynt að segja mér að það sé hægt að fara í ræktina á morgnana fyrir vinnu. Það gildir ekki um mig. Ég á erfitt með að komast af stað, kemst ekki á neinn skrið þegar ég er byrjuð að hreyfa mig, er orkulaus og nenni engu. Byrja strax að telja mínúturnar í það að þetta verði nú búið. Þó borða ég morgunmat áður en ég fer af stað. Svo er ég það sem eftir lifir dags ýmist svöng, syfjuð eða bæði og á almennt séð erfitt með að lifa.
Ég held að ég haldi mig við það að fara eftir vinnu.
Ritað 1. október 2007 kl. 16:47 um mitt| Skoðanir (3)
Íþróttabuxur
Ég er búin að vera dugleg að mæta alltaf reglulega í Bjarg síðan í byrjun ágúst. Ástandið er orðið slíkt að ég fann mig knúna til að fjárfesta í fleiri íþróttaflíkum. Ég gekk því inn í Toppmenn & Sport áðan og keypti léttar og þægilegar buxur sem ná u.þ.b. niður að hnjám.
Þetta er kannski ekki merkilegur atburður, en ég get varla annað en borið þetta saman við það þegar ég keypti hin íþróttafötin mín fyrir einu og hálfu ári síðan. Þá gekk ég inn í Sportver og mig vantaði allt, enda hafði ég ekki stundað neina líkamsrækt svo árum skipti. Í alvöru talað, þegar ég stundaði síðast íþróttir, þá var standardbúningur stúlkna frekar stór stuttermabolur og hjólabuxur. Ég vissi ekkert hvað ég ætti að biðja um einusinni. Þetta heppnaðist þó og ég gekk út með æfingabuxur, æfingatopp og skó. Núna vissi ég hinsvegar alveg hvað mig vantaði svo ég gekk bara inn, fann það, mátaði og keypti. Ekkert mál.
Það sem ég er að reyna að koma orðum að, er að það er erfitt fyrir þann sem ekki hefur stundað líkamsrækt að byrja, ekki bara vegna þess að líkaminn á erfitt með að takast á við álagið, heldur líka vegna óttans við félagslega þáttinn. Þetta er eins og að ætla að bæta sér inn í annan þjóðflokk, án þess að vita hverjar venjur og siðir eru innan hans. Maður veit ekki einu sinni hvernig skal klæðast eða hvað er ásættanleg hegðun í hópi þeirra sem stunda líkamsrækt.
Ritað 29. september 2007 kl. 16:39 um mitt| Skoðanir (2)
Fundnir fundir
Ég fann mér nokkra fundi í dag. Eftir hádegi byrjaði ég með því að setjast á fund með sjálfsmatsnefnd skólans. Svo fór ég og stýrði aðalfundi Kennarafélagsins og lét kjósa mig aftur formann. Ágætt, þar með var einu heilu ári lokið formlega. Síðast varð til skyndifundur Félags ungra Möðruvellinga... þ.e.a.s. ég, Hóa og Ísak funduðum heillengi á stigapallinum á miðhæð Möðruvalla og ræddum þar ýmis málefni, m.a. trúfrelsi, aga, undirbúning nemenda og partýplön kennara, allt saman í fullkomlega meðvituðum hroka, eins og sæmir kennurum í hallærislegum, gamaldags bekkjarskóla.
Ritað 28. september 2007 kl. 17:43 um mitt| Skoðanir (0)
Smá málfræði
Samkvæmt samkennara mínum er orðið pera lýsingarorð... ljósa-pera, skiljiði? Ég veit, en aulahúmor er líka fyndinn stundum. Fast á hæla perunnar fylgdi orðið rigning, en það hlýtur samkvæmt sama kerfi að vera vottorð...
Einna best fannst mér þegar tvöfaldur rökstuðningur kom fyrir því að orðin einn, tveir, þrír og fjórir væru fallorð, en fimm og hærri tölur væru það ekki. Jú, þessar fyrstu fjórar fallbeygjast vissulega á meðan fimm, sex o.s.frv. eru alltaf eins, en svo má líka setja tölurnar í semhengi við einkunnir... 1-4: fall, 5-10: staðið.
Ritað 25. september 2007 kl. 17:08 um mitt| Skoðanir (2)
Kennsluvikan búin
Þessi vika er búin að vera stórskrítin. Byrjaði með algjörri martröð... ég er ekki að grínast! Ég vaknaði á sunnudagsnóttina af draumi þar sem ég leit inn um glugga og sá tvö lík hangandi í loftinu og sveiflast rólega til og frá. Scared the bujesus out of me. Svo fékk ég aðra góða á mánudags- eða þriðjudagsmorgun þar sem ég hafði mætt í brúðkaup á Húsavík þar sem Aðalbjörg og Stefán í Rein voru að gifta sig (!) en í miðri veislunni, um það bil þegar verið var að ráðast á þessa svaka fínu tertu, þá hófst fjöldamorðingi handa við að myrða veislugesti alla sem einn, með bréfahníf. Það sem var einna skelfilegast var að hnífurinn var af þessari týpu hér:

Vökustundirnar voru þó öllu skárri í vikunni, ég er búin að hitta ógnarfjölda af nýjum nemendum og sem betur fer nokkra sem ég hef kennt áður. Það er huggun að þekkja þó nokkra. Töluverður tími hefur farið í félagsstörf en við því er svo sem að búast.
Nú er bara helgi og ég er bara fegin því að horfa fram á helgi án ferðalaga og vonandi alveg stresslausa.
Ritað 21. september 2007 kl. 15:56 um mitt| Skoðanir (5)
Helgarpistill
Ég hef ótalmörg verkefni sem ég þarf að sinna núna, en þau eru eiginlega það mörg að mér fallast hendur og ég fer að gera eitthvað allt annað. Ágætt t.d. að blogga í staðinn fyrir að undirbúa mig almennilega fyrir kennsluna á morgun.
Ég fór suður á fimmtudag til að sækja fund hjá Félagi framhaldsskólakennara á föstudaginn. Ýmsar fréttir þaðan, kjaramál í umræðunni, allt voðalega svart en ég gladdist þó yfir því að sjá að fella á brott ákvæðið í grunnskólalögum um kristna siðferðið. Á laugardag var svo haldið upp í Landmannalaugar þar sem okkur var boðið í mat, en þar sem veðrið var frekar leiðinlegt var ákveðið að gista í stað þess að troðast aftur til baka. Í gær var svo frekar langdregin ferð aftur í borgina og naumlega náðist að koma mér í flug.
Ritað 17. september 2007 kl. 15:32 um mitt| Skoðanir (0)
Hellirigning og grátt í hlíðum
Já, það rignir eins og hellt væri úr fötu hérna á Akureyri og Hlíðarfjall er hvítt. Mér finnst það of snemmt.
Ritað 12. september 2007 kl. 17:34 um mitt| Skoðanir (4)
Vinnan farin aftur af stað
Já, nú er kennarablókin farin aftur að vinna, hinu endalausa sumarfríi hefur víst lokið. Námskeið eru nú á fullu í nokkra daga og eftir daginn í dag er ég t.d. miklu fróðari um það sem hefur skeð í stjörnufræði undanfarinn áratug, sem og tilraunir í skólastarfi í Borgarfirði og á Laugum. Á morgun: stærðfræðinámskeið!
Ritað 10. september 2007 kl. 20:14 um mitt| Skoðanir (0)
Norah Jones og kaldar kveðjur frá FL
Norah Jones stóð alveg fyrir sínu í gærkvöldi. Hún var alveg rosalega ljúf og skemmtileg og ofboðslega krúttleg. Hún og hennar hljómsveit sýndu það og sönnuðu að þarna eru mjög fjölbreyttir listamenn á ferðinni og hágæða tónlistarmenn.
Hins vegar fannst mér minna eftirsóknarverðar kveðjurnar sem FL-group sendi tónlistargestum. Við innganginn var stærðarinnar banner sem tilkynnti okkur að tónleikarnir væru í boði FL-Group. Í boði já? Óbreyttir borgarar þurftu samt að borga á sjöunda þúsund króna fyrir sætið. En jæja, rétt rúmlega átta byrjar Norah að syngja ásamt nokkrum öðrum, svo bakkar hún út en félagar hennar taka við og spila nokkur lög. Á meðan var öll miðjan í salnum að mestu leiti tóm, boðsgestir FL-Group greinilega ennþá að kyngja kokteilunum og lutu ekki svo lágt að mæta tímanlega í upphitunaratriðið. Svo tekur við hálftíma pása á meðan hinu fína fólki þóknaðist loksins að drattast inn í sal. Þessa uppákomu get ég ekki séð öðruvísi en sem eitt stórt „Fokk þú og þitt krú“ frá corporate-Iceland.
Ritað 3. september 2007 kl. 20:41 um mitt| Skoðanir (1)
Astrópía, Norah og nýr iPod
Við Tryggvi fórum á Astrópíu í gær eftir monstermáltíð hjá Tengdó. Við vorum orðin frekar syfjuð þegar við komum í bíóið klukkan hálftíu en þreytan breyttist fljótlega í svefngalsa þegar myndin byrjaði. Þessi mynd er alveg frábær og ég hika ekki við að setja hana á sömu hillu og Sódómu, Með allt á hreinu og Stellu í orlofi. Ekki skemmdi fyrir að í nokkur skipti hló ég eins og vitleysingur að bröndurum sem óskaplega fáir í salnum föttuðu. Ég er nokkuð sannfærð um það að ég muni kaupa þessa mynd þegar hún kemur út á DVD og ég gæti alveg verið til í að sjá hana aftur (hint, hint, Elva).
Í kvöld er svo hópferð á Norah Jones tónleika. Efast ekki um að það verði töluverð upplifun. Svo má líka bæta við þeirri gleðifrétt að ég er komin með ofurkrúttlegan bleikan iPod shuffle. Vííííí!
Ritað 2. september 2007 kl. 15:57 um mitt| Skoðanir (0)
Muuuuu...
Tryggvi kom norður í gær og ég ákvað að bjóða honum upp á góðan mat og jafnframt að gera smá tilraunir í eldamennskunni. Steikti þetta líka fína nautafillé, borið fram með steiktu grænmeti, kartöflum og salati og þessari líka fínu bernaise sósu, en svoleiðis hafði ég aldrei áður prófað að elda. Þetta reyndist vera ekkert mál, sósan hafði fína áferð og skildi sig ekki, eina sem vantaði var að kjötkrafturinn minn leystist ekki nógu vel upp. Með þessu öllu saman var svo alveg ágætt rauðvín. Namm...
Ritað 26. ágúst 2007 kl. 21:26 um mitt| Skoðanir (0)
+1 kg af bláberjum, -1 iPod
Ég tel mig hafa verið þokkalega duglega í gær. Fór í ræktina og spriklaði þar í ca. klukkutíma. Var reyndar illt í hnénu svo að ég sleppti niðurstigunum. Missti iPodinn í gólfið inni í kvennaklefa og hann beyglaðist á einu horninu. Held að hann hafi verið í gangi.
Fór svo niður í miðbæ, matur og svo cappuchino hjá Te & Kaffi þar sem ég hitti Villa og Anton sem voru báðir eiturhressir. Svo renndi ég austur í Teiginn og tókst að blikka mömmu til að koma með mér niður í Aðaldalshraun að tína bláber. Þar tíndum við ca. kíló af berjum. Svo var mér boðið í ekta gamaldags langtímasteiktan lambahrygg með brúnni sósu. Nammm...
Sorglegu fréttirnar eru samt þær að eitthvað hefur skemmst þegar greyið iPodinn fór í gólfið. Á leiðinni austur hætti hann að spila og hitnaði alveg óhugnalega. Þegar heim var komið reyndi ég öll r-in sem Apple benti mér á að gera (reset, retry, restart, reinstall, restore) en tölvan gat engan veginn áttað sig á því að iPod væri tengdur við hana. Það gæti verið að ég verði að úrskurða iPodinn látinn.
Ritað 20. ágúst 2007 kl. 10:49 um mitt| Skoðanir (7)
Geymslan máluð
Liturinn á geymslunni minni hefur farið í taugarnar á mér alveg síðan ég flutti inn. Einhver snillingur hafði málað hana í dökkfjólubláum lit sem hafði svo lítinn gljáa að það virðist helst vera að þekjulitir hafi verið notaðir til verksins. Ég notaði gamalli málningu sem ég átti frá því í fyrra, gula málningin af ganginum fór á loftið og svo skellti ég græna litnum úr horninu útí og málaði veggina uppúr honum. Útkoman varð reyndar frekar ófríður gamlaskóla-langagangs litur, gæti kallað hann sjúkrahúsgrænan, en hann var ljós og það var nóg fyrir mig.
Nú eru hillurnar komnar aftur upp og allt draslið mitt aftur inn. Ljósi liturinn á veggjunum og loftinu, plús smá tiltekt og endurröðun, gera það að verkum að geymslan virðist stærri og nú er pláss fyrir helling þarna inni.
Ritað 17. ágúst 2007 kl. 17:37 um mitt| Skoðanir (0)
Valdís: 29 ára!
Ég veit, ég var fyrir löngu búin að lofa fréttum af ættarmóti og svo er ég búin að vera löt að blogga. Æ, fokkit! Ég á ammæli!!! Nú er kellingin orðin 29 ára gömul.
Í tilefni þess ætla ég að bruna til Reykjavíkur og fara út að borða með kallinum, sem er nýkominn frá úgglöndum. Ef einhvern fyrir norðan dauðlangar að gefa mér ammælisgjöf bið ég viðkomandi að hinkra með hana þangað til ég kem aftur, það ætti að vera á morgun eða mánudag.
Skoppedískopp....
Ritað 11. ágúst 2007 kl. 08:37 um mitt| Skoðanir (1)
Ökulag Akureyringa...
... eða slyddujeppakarla, veit ekki hvor hópurinn á frekar heiðurinn... Ég er nefnilega komin aftur til Akureyrar og ákvað að sækja mér kvöldverð niður í bæ en á leiðinni til baka þurfti ég að keyra gilið. Eitthvað var blái Terrible II ræfillinn fyrir framan mig vera kraftlítill því að ekki hafðist það hjá honum að komast upp fyrir 30 km/klst hraða þarna upp. Þetta fannst mér miður, því að bíllinn minn er líka kraftlítill og þar að auki framhjóladrifinn og ég var farin að hafa áhyggjur af því að hann færi að kvarta yfir ökulaginu svo að þegar hraðinn fór alla leið niður í 20 km/klst ákvað ég að senda félaga mínum fyrir framan mig vingjarnlega kveðju með því að flauta örstutt. Hann veifaði mér til baka, en því miður gleymdi hann, sennilegast alveg óviljandi, að nota alla fingurna. Blessað skinnið.
Ég set inn fréttir helgarinnar á morgun, segi þá frá vel heppnuðu ættarmóti í Reykjaskóla.
Ritað 29. júlí 2007 kl. 21:11 um mitt| Skoðanir (6)
Sumarhátíð o.fl.
Já, stefnan var tekin um helgina í Vík í Mýrdal til að taka þátt í sumarhátíð f4x4. Þrátt fyrir þoku, úða og jafnvel outright rigningu þá var vistin þar alveg ágæt og þetta reyndist vera hin mesta skemmtun. Lókal klúbburinn hafði skipulagt leiki og skoðunarferð um nágrennið með leiðsögn og öllu og mér fannst þetta í alla staði mjög vel heppnað.
Ekki síst var hressandi að sjá að f4x4 er vel fær að setja upp fínustu fjölskylduskemmtun, því að það sem ég hafði fram til þessa tekið þátt í með honum gekk mest út á það að keyra og keyra og keyra og keyra og keyra og keyra og detta svo skuggalega í það í einhverjum skála. Reyndar hef ég líka farið í dagsferðir með þeim, en þær ganga ekki út á það að detta í það heldur bara að keyra og keyra og keyra og keyra og keyra og keyra og fara svo heim.
Þessi vika fer sennilegast í það að mestu hjá okkur Tryggva að mála baðherbergið og eldhúsið í íbúðinni hans, sendast með tengdó og álíka stúss. Næstu helgi verður svo stefnan tekin á Reykjaskóla á ættarmót. Víííí!
Ritað 24. júlí 2007 kl. 12:25 um mitt| Skoðanir (0)
Monumental dugnaður
Já, við Tryggvi vorum dugleg í dag. Það sem við afrekuðum í dag var:
- Brio var slátrað og fargað.
- Skrifborðið undan Brio var fært inn í Rögnu herbergi (nú er það alvöru fullt).
- Keyptur bókaskáp í Vörubæ, honum púslað saman og settar á hann hurðir.
- Stóra bókahillan þrifin og raðað í hana aftur.
- Ein planta skorin við nögl og annarri fargað.
- Mikið magn húsgagna keyrt úr Huldugilinu á hina ýmsa staði og gjarnan borið upp um margar hæðir (Tryggvi stóð reyndar meira í því en ég).
- Tekið til í íbúðinni og rýmt til fyrir grænu leðursófasetti (með sófaborði).
Það skal viðurkennast að töluvert er þéttar raðað í íbúðina mína en áður og stofan virkar aðeins minni en áður, en ég held samt að heildarsvipurinn sé flottari.
Ritað 17. júlí 2007 kl. 23:07 um mitt| Skoðanir (4)
Potter eða...?
Fékk áðan SMS um að Amazon.co.uk hefði tekið út 1405 kr af kortinu mínu. Þeir eru víst að taka til nýjustu Harry Potter bókina til að senda hana. Það er spurning um það hvort hún nær að koma áður en ég fer suður?
Ritað 14. júlí 2007 kl. 23:49 um mitt| Skoðanir (5)
Góður dagur
Dagurinn í gær var góður. Við Tryggvi brunuðum í Hrísateiginn til að sækja Accident, en Pabbi er búinn að gera við startarann í honum. Planið var að ég færi í klippingu og svo færum við saman í hvalaskoðun, en við hættum við skoðunina vegna veðurs. Því renndi Tryggvi aftur inneftir og ég fór í mína klippingu (held að ég hafi sparað nokkra þúsundkalla við að fara í klippingu á Húsavík) og svo kíkti ég við á Knútstöðum í kaffi til Una. Það var alveg rosalega hressandi að hitta hann, enda langt síðan við hittumst síðast. Svo var þessi líka fíni endir á deginum að kíkja niður í Hafnarstrætið og fá kjötsúpu hjá Ömmu hans Tryggva.
Ritað 14. júlí 2007 kl. 13:26 um mitt| Skoðanir (0)
Komin aftur
Já, ég er lent, tókst að dröslast aftur heim frá Finnlandi. Nú er ég að vinna mig í gegnum tölvupóst, fréttir, blogg, myndasafnið og svoleiðis, ásamt því að jafna mig á því að hafa farið þrjár klukkustundir aftur í tímann á leiðinni heim. Ég ætla að ná áttum og segja betur frá ferðinni á morgun.
Ritað 6. júlí 2007 kl. 18:33 um mitt| Skoðanir (0)
Hjónabönd Svía
Ég er ekki moggabloggari, en ég finn mig knúna til að tjá mig um þessa frétt:
Svíar haldast lengst allra í hjónabandiÞrátt fyrir að 40% allra sænskra hjónabanda endi með skilnaði, virðast hin hjónaböndin halda í mettíma og aldrei fyrr hafa svo margir Svíar verið giftir sömu manneskjunni.
...
Hjá mér vakna tvær spurningar:
- Hver er þessi manneskja sem svo margir Svíar eru giftir?
- Af hverju er hinni tölunni aldrei slegið upp í fyrirsögn fréttar?
60% sænskra hjónabanda enda með dauða annars aðilans eða beggja.
Ritað 22. júní 2007 kl. 18:38 um mitt| Skoðanir (1)
Skólanum slitið
Já, skólanum var slitið í gær. Hellingur af nemendum útskrifaðist og mér fannst gaman að sjá hvað voru margir gamlir hafralækingar og hrísateigingar í hópnum. Þarna voru bæði Aðalheiður, sem einu sinni var minni en gleraugun sem hún bar á nefinu, og Siggi fagri (úr Fagranesi) en líka gamlir nágrannar eins og Kristín Helga Schiöth og Daníel Starrason. Mér hefur fundist frekar undarlegt að sjá þessa krakka þessi undanfarin þrjú ár í skólanum, þar sem ég man mest eftir þeim sem sex ára skottum.
Jón Már sagði frá ýmsu í ræðunni sinni, m.a. að hann langi til að gera skólann að einkaskóla. Ég held að ég bíði þangað til þessar hugmyndir hafa verið útskýrðar fyrir starfsfólki áður en ég tjái mig opinberlega um það.
Mér fannst skemmtilegt að sjá muninn á júbílöntunum sem ávörpuðu samkomuna í gær. 60 ára stúdentinn var hress og skemmtilegur, 10 ára stúdentinn var þegjandi hás, eins og lög gera ráð fyrir, en 50 ára stúdentinn sá ástæðu til að ræða um alla þá sem höfðu dáið úr árganginum og leit helst út fyrir að vera hvað úr hverju að safnast í þeirra hóp.
Ég hugsa að á næsta ári verði dagskráin hjá mér töluvert þéttari, enda verð ég 10 ára stúdent og Ragna útskrifast. Ætli það verði ekki massa vika?
Ritað 18. júní 2007 kl. 12:48 um mitt| Skoðanir (3)
Sjúkra- og endurtökupróf
Ég er að verða búin að semja öll endurtökupróf sem ég þarf að semja, enda verða þau fyrstu lögð fyrir á morgun. Það versta er að í huganum er ég komin í frí og á því erfitt með að halda mig að verki. Voðalega er erfitt að vera svona latur.
Ritað 12. júní 2007 kl. 10:45 um mitt| Skoðanir (0)
TGIF!
Já, guði sé lof að það sé föstudagur! Nú eru öll venjuleg próf frá og allar einkunnir komnar inn á INNU. Það er ekki laust við að sú staðreynd komi illa við suma, ég er ekki frá því að ég hafi séð eitt eða tvö tár í dag (það skal tekið fram að það var ekki ég sem grætti þessa nemendur, mínir nemendur hafa séð sóma sinn í því að gráta í hljóði). Það er búið að vera ólíft í skólanum vegna veðurs og óvinnufært vegna stöðugs ágangs nemenda sem vilja fá að sjá prófin sín þó að prófsýningar verði ekki fyrr en á mánudag.
En nú er lífið samt ljúft! Ég er komin með miða á Norah Jones, var að taka tappann úr flösku af Moselland Ars Vitis, ætla bráðum að mixa mér glas af banananana dakrí, úti hamast slátturvélarnar og framundan eru tveir ofurljúfir frídagar.
Ritað 8. júní 2007 kl. 17:59 um mitt| Skoðanir (4)
Undarlegt ástand
Ég er búin að fara yfir fyrsta bekk og gefa mínum nemendum einkunnir inni á INNU, búin að semja sjúkrapróf og endurtökupróf og hef eiginlega ekkert sérstakt að gera í vinnunni nema að sitja yfir prófum. Í ofanálag er ég með hausverk sem kemur og fer, líkist eiginlega helst því að fá smá rafstraum efst í hvirfilinn í nokkrar sekúndur í einu. Hvimleitt og allt það, en ekki þess virði að taka verkjatöflu.
Ritað 4. júní 2007 kl. 10:56 um mitt| Skoðanir (0)
Næstum keyrð niður í Öxnadal
Stjórn kennarafélagsins í MA fór í gærkvöldi á Halastjörnuna í Öxnadal þar sem við fengum afbragðsgóðar veitingar. Það sem var öllu verra var það sem við lentum í rétt áður en við komum á staðinn. Nokkrum kílómetrum áður en við komum að staðnum kom flutningabíll á vælandi siglingu upp að okkur og smellti sér fast upp við greyið Accidentinn minn. Ég er að tala um það að hann var svo langt uppi í rassgatinu á mér að ég fann díselbragð í kokinu. Tek það fram að ég var ekki að keyra neitt sérstaklega hægt, einhverstaðar milli 90 og 100 km/klst. Nema hvað, að við komum nú að Hálsi, þar sem Halastjarnan er, og ég gaf stefnuljós vel tímanlega áður en ég byrjaði að hægja á mér. Í stað þess að slá af fór kvikindið bara að blikka á fullu og flauta! Ég sá hann bara nálgast alltaf meira og meira og það var ljóst að ef ég reyndi að hægja á mér nógu mikið til að ná beygjunni, þá yrði bíllinn minn sennilegast að varanlegu húddskrauti hjá honum! Ég endaði með því að keyra framhjá afleggjaranum og tókst loks að skjóta mér út í kannt og horfði á hann bruna framhjá. Þá sá ég að þetta var stærðarinnar skærrauður póstbíll með aftanívagn. Ætli hann hafi einusinni litið í baksýnisspegilinn til að athuga hvort ég hafi endað inni á veginum?
Það er alveg ljóst að þessi bíll hefði lögum samkvæmt átt að keyra a.m.k. 10 km/klst hægar en ég og svo eiga ökumenn svona bíla að vita að þeir þurfa að hafa jafnvel enn meira bil í næsta bíl en minni bílar, vegna þess hvað tekur miklu lengri vegalengd fyrir þá að hægja á sér eða stoppa.
Geðsjúki brjálæðingur!
Ritað 2. júní 2007 kl. 15:39 um mitt| Skoðanir (5)
Próftíð komin á fullan skrið
Já, prófin eru komin á fulla ferð. Á þriðjudag lögðum við fyrir próf í STÆ202 og STÆ203 og tókum til hendinni við að fara yfir þau strax sama dag. Nú er yfirferð lokið í STÆ202, það eina sem er eftir er að reika lokaeinkunnir m.v. vetrareinkunnir, og við erum að nálgast endasprettinn í STÆ203.
Það er kannski óhætt að segja frá því núna, en ég klúðraði einmitt frekar glæsilega í síðustu viku, með töluverðri aðstoð þó. Atburðarásin var þannig að ég fékk póst frá tveimur nemendum þar sem þeir báðu um að fá sent prófsýni. Mér fannst það svo sem ekki nema sjálfsagt en átti skrána ekki til svo að ég sendi póst á Unnar og bað hann að senda mér prófsýnið. Hann sendi mér skrá til baka sem ég svo áframsendi á nemendur.
...
Eruð þið búin að koma auga á það hvað gerðist? Þrautreyndir „sitcom“-áhorfendur ættu að sjá að auðvitað var skráin sem ég fékk og áframsendi, ekki prófsýnið, heldur LOKAPRÓFIÐ! Prófið, sem var tilbúið, ljósritað og frágengið, þar sem við höfðum, aldrei þessu vant, skilað því frá okkur fyrir tilsettan tíma. Og hvernig uppgötvuðum við mistökin? Jú, önnur nemöndin var svo heiðarleg að senda mér póst þar sem hún spurði hvort ég hefði sent henni rétt prófsýni, á því sem hún hefði fengið stæði „Vorönn 2007“?
Við settumst niður, skömmuðumst okkur, hlógum svo aðeins að þessu og sömdum svo nýtt próf.
Enginn vafi samt á því að þessi nemönd fær 10 í kennaraeinkunn.
Ritað 31. maí 2007 kl. 11:16 um mitt| Skoðanir (5)
Njú Jork, Njú Jork
Við Tryggvi gengum frá því í gær, við ætlum til Njú Jork yfir jólin! Förum út 21. des og komum til baka 28. Þó að ég eigi eftir eina utanlandsferð þangað til, þá er ég strax farin að hlakka til! Vííííííí!!!!
Ritað 27. maí 2007 kl. 11:15 um mitt| Skoðanir (0)
Kennslan búin
Nú er kennslan formlega búin í MA og fyrstu prófin verða á morgun. Af því tilefni var pöntuð þessi eðal snjókoma... nei, annars, við pöntuðum ekki snjó, getum alveg framleitt þann snjó sem okkur vantar. Þetta hlýtur að hafa átt að fara eitthvað annað.
Ég held að ég sé að kvefast.
Ritað 24. maí 2007 kl. 08:27 um mitt| Skoðanir (0)
Litlu ólmpíuleikarnir
Litlu ólympíuleikarnir voru haldnir í dag. 4U skoraði á kennara í óhefðbundnum íþróttum og í sönnum íþróttaanda tóku kennarar áskoruninni. Eftir keppni í þrautabraut, magarennsli, söng, dansi, fótbolta og reiptogi.
Eins og oft áður þurftu nemendur utanaðkomandi hjálp til að komast alla leið.
Reyndar voru nemendur með töluvert heiðarlegri keppni en verið hefur og viðburðurinn var alveg ágætis skemmtun, ef frá er talið kulda og leiðinlegt veður.
Ritað 14. maí 2007 kl. 23:26 um mitt| Skoðanir (0)
Misskilinn listamaður
Af og til lendi ég í samræðum við samkennara mína, einkum af eldri gerðinni, og rökræði við þá um blogg. Sumir virðast alls ekki skilja blogg vegna þeirra vandræða sem þeir eiga með að koma blogginu fyrir í þeim samskiptaflokkum sem þeir þekkja frá fornu fari.
Innst inni finnst mér það örlítið fyndið. Ég hugsa með sjálfri mér: „Þau skilja þetta greinilega bara ekki.“ en get ekki annað en hugsað strax á eftir: „Er ég þá misskilin listamaður?“
Glott.
Það er nefnilega svo fjarri mér að halda það að bloggið sé einhver djúp og dularfull list eða að bloggarar séu viðkvæmir, misskildir og djúphugsandi listamenn sem þurfa útrás fyrir snilligáfu sína.
Ritað 11. maí 2007 kl. 12:00 um mitt| Skoðanir (0)
Beðið eftir sunnudeginum
Mikið verð ég fegin þegar sunnudagurinn rennur upp. Kosningarnar búnar, stjórnin fallin og Eiríkur búinn að vinna Eurovision fyrir okkur... Ja, ég skal alveg vera sátt við tvö atriði af þremur... Þá verður loksins hægt að tala um eitthvað annað en stjórnmál!
Ritað 10. maí 2007 kl. 13:21 um mitt| Skoðanir (3)
Annarlok
Jú, nú líður að síðustu vikum annarinnar og þá fer maður að finna fyrir annmörkum allrar áætlanagerðar. Hópurinn minn í STÆ203 er á eftir áætlun og á eftir að missa tíma vegna lögbundins frídags en hópurinn í STÆ202 er á áætlun en samt á undan öllum hinum vegna þess að ég kann svo illa að kenna tveggja eininga áfanga með sex tímum á viku. Jæja, tvær vikur eftir. Þetta reddast.
Ritað 7. maí 2007 kl. 14:05 um mitt| Skoðanir (0)
Endalaus dugnaður
... eða því sem næst. Síðasta vika var slík geðveiki hjá mér að ég náði ekkert að sinna heimilisverkum af viti. Því tók ég mig til í gær og byrjaði að taka íbúðina í gegn. Þurrka af, sópa, skúra, ryksuga, þvo þvott, brjóta saman og pússa spegla. Við það bætist gönguferð þvert yfir bæinn, bílferð í Teiginn og pottaferð. Bara nokkuð gott. Verst að eldhúsið mitt er ennþá eins og sprengja hafi lent þar og baðherbergið er subbulegt...
Ritað 29. apríl 2007 kl. 18:12 um mitt| Skoðanir (0)
Fæstir eru eins og fólk er flest
Nei, mér fannst þetta bara flott lína og langaði til að nota hana sem titil á færslu. Það er annars nokkuð til í þessu, því til eru ófáar rannsóknir þar sem fólk er beðið um að bera sig saman við meðalmanninn. Það er spurt spurningar á borð við „Telur þú þig [vera betri ökumann / hafa betri siðferðiskennd / vera greindari / hafa betra vinnusiðferði o.s.frv] en meðalmaðurinn?“ Yfirleitt segir yfirgnæfandi meirihluti þátttakanda að þeir séu betri en meðalmaðurinn, raða sér jafnvel í efstu 20%.
Meira um þetta: Lake Wobegon effect á Wikipedia
Ritað 27. apríl 2007 kl. 14:56 um mitt| Skoðanir (0)
Ofurþreyta
Mín svaf yfir sig í morgun. Ég ætlaði að vakna ofursnemma til að fara yfir verkefni, en það gekk ekki betur en svo að ég gleymdi að stilla klukkuna og vaknaði tíu mínútur í átta, þegar Ragna var að fara af stað. Þannig að ég mætti, mest mygluð, í vinnuna og þóttist vera að kenna fólki eitthvað um margliður. Right...
Síðustu dagar hafa verið skrítnir. Allt of mikið að gera, mörg verkefni sem ég er orðin of sein að skila af mér og ofan á það leggjast mikil framtíðarplön. Það lagast vonandi næstu daga.
Það hefur enginn tjáð sig um útlitið á síðunni. Kannski finnst engum þetta flott nema mér?
Ritað 24. apríl 2007 kl. 10:18 um mitt| Skoðanir (3)
Pólitísk staða
Jú, ætli ég fylgi ekki hinum (Tryggva, Elvu o.fl.) og taki ekki líka pólitíska áttavitann aftur. Ég tók það síðast 1. mars 2005 og læt niðurstöðurnar þá fylgja með núna.
Economic Left/Right: -3.63 (2005: -4.25)
Social Libertarian/Authoritarian: -5.33 (2005: -3.38)
Mér finnst þetta áhugavert. Mér fannst ég vera jafn mikill vinstri maður og áður, en virðist þó vera að færast nær miðju á þeim ásnum. Mest er ég þó hissa yfir því hversu mikið frjálslyndari ég er orðin! Ég, manneskjan sem tekur manntal á 45 mínútna fresti daginn út og inn, manneskjan sem ráðskast með vinnu fólks svo tugum skiptir, manneskjan sem var að vinna í því að raða niður námsferlum í forpokaða gamla bekkjarskólanum, já, ég sjálf er greinilega orðin frjálslyndari. Usss...
Ritað 17. apríl 2007 kl. 19:42 um mitt| Skoðanir (0)
Bloggleti
Ég hef verið að slappa svo fullkomlega af síðustu daga að ég hef ekki einusinni nennt að blogga. Ég er búin að liggja í fullkominni leti, borða allt of mikið af allt of óhollum mat og hreyfa mig ekki neitt (nema BodyJam í síðustu viku, það var... spes...), og spila Neverwinter Nights óhemju mikið. Ég náði mér nefnilega í viðbæturnar og hef verið að spila mig í gegnum þær. Er þegar búin með Shadows of Undrentide og er að mjatla mig í gegnum Hordes of the Underdark. Hef setið heldur mikið við þetta og er komin með verk í hægri handlegginn... snertimús er kannski ekki málið?
Inn á milli hef ég farið hingað og þangað, fór með 4x4 upp í Laugafell, upp og niður alveg skelfilegan nýjan veg, skrapp út á Dalvík, fór í páskahlaðborð og renndi í Hrísateiginn. Ég á samt eftir að þræða mig í gegnum myndirnar sem voru teknar og setja þær inn á vefinn.
Ritað 11. apríl 2007 kl. 10:20 um mitt| Skoðanir (0)
Gott að vera í fríi
Nú eru komnir nógu margir dagar í páskafrí til að ég sé farin að geta vaknað aftur fyrir hádegi og er ágætlega hvíld. Reyndar hvíldist ég ekki vel síðustu nótt þegar veðrið var gersamlega brjálað... eða eins og innfæddir kalla það: „Blessað lognið og blíðan á Akureyri voru að færa sig rosalega hratt frá einum stað til annars.“ Ég kíkti um miðja nótt út um gluggann og dáðist að því að aspirnar úti fykju ekki bara um koll, og gladdist í leiðinni yfir því að þurfa ekki að mæta til vinnu í dag, eftir svefnlitla nótt.
Ritað 4. apríl 2007 kl. 23:58 um mitt| Skoðanir (0)
Komdu með mér í kennarapartý
Í gær hleypti ég samstarfsmönnum mínum inn á heimili mitt, enda þótti mér of langt síðan ég hafði komist í almennilegt kennarapartý. Reyndar vissi ég ekkert hvað ég ætti að eiga von á mörgum gestum svo að um miðjan dag ákvað ég að hringja í tengdó og betla af henni nokkra stóla til að bæta við hjá mér. Það reyndist svo vera eins gott, því að þegar sem flestir voru þá var setið á öllum stólum, meira að segja gömlu, ljótu, svörtu klappstólunum. Gestirnir voru úr öllum deildum en sögukennarar eiga væntanlega titilinn "most fashionably late". Ég myndi segja að þetta hafi verið í alla staði frekar vel heppnað partý.
Ritað 31. mars 2007 kl. 12:57 um mitt| Skoðanir (0)
Ósammála
Ég er búin að vera ósammála mörgum í dag og það sem verra er þá hef ég töluvert þurft að standa á máli mínu, sem mér fellur ekki vel. Mér hættir voðalega til að segja oft já og amen og líkar ekki vel við átök, en nú þurfti ég að vera frekar hávær. Ég vona samt að þessi hávaði í mér muni leiða til heilbrigðra skoðanaskipta og að eftir umræðu, þrætur, hávaðarifrildi og jafnvel fýlu, komist fólk niður á einhverja vitræna lausn sem menn geta verið sáttir við.
...já, og til að fyrirbyggja misskilning þá voru lætin vinnutengd, ekki persónuleg ;)
Ritað 29. mars 2007 kl. 17:06 um mitt| Skoðanir (1)
Vorverkir
Mér finnst vorið vera komið í fólk. Mér finnst eitthvað svo erfitt að fá nemendur mína til að vinna, ætli það sé ekki erfiðast vegna þess að ég sjálf er algjörlega hætt að nenna öllu? Ratatoskur, suðurferð, samningaviðræður og almennt vesen dregur úr mér orku, fyrir utan að allt framtak frá mér fauk burt í rokinu í síðustu viku. Ætli það sé ekki einhverstaðar í námunda við Grímsey núna?
Síðasta helgi var annars fín, flaug suður og fór með Tryggva á árshátíð Erfðagreiningar, í svaka svaka fína kjólnum mínum (held reyndar að ég þyrfti að eiga hlýralausan brjóstahaldara...). Það var nokkuð gaman, ef frá er talið „skemmtiatiðið“.
Ritað 27. mars 2007 kl. 14:08 um mitt| Skoðanir (0)
Hitt og þetta
Ég hef óvænt nokkrar mínútur milli stríða, vegna þess að sjálfsmatsnefnd skólans ákvað að „hlýða á nemendur“, þar sem nemendur ræða málin í litlum hópum án eftirlits kennara (jeminn!) og skila skriflegu áliti um ýmis málefni. Tíminn hefði átt að fara í verkefnavinnu hjá mínum nemendum þar sem þeir gera verðkönnun í verslunum bæjarins, en ég bauð þeim í staðinn að nýta mánudagstímann í vinnuna. Þar sem mánudagstíminn er frá 8:15-9:40 þá bauð ég þeim einnig að ef þau vildu færa vinnuna til eftir eigin þörfum þá væri þeim það frjálst, þ.e. ég treysti því að þau vinni vinnuna og merki við þau mætin








