Gamlar myndir
Ég tók mig til á annan í páskum og skannaði inn nokkrar gamlar myndir í möppunum hjá Mömmu og Pabba.
Þar ber helst að nefna myndina af Vaninum gamla:

... en hann var vel skreyttur:

Og svo eldri systir að leggja fyrir mann gildrur:

Loks skín einbeitingin út úr þessum svip:

Ritað 12. apríl 2007 kl. 17:26 um myndir| Skoðanir (8)
Heimsókn í Hrísateiginn
Kíkti í Hrísateiginn á sunnudag og hitti þá fyrir Mömmu og frændur mína tvo. Smellti af nokkrum myndum og setti þær inn.
Ritað 9. maí 2006 kl. 13:02 um myndir| Skoðanir (2)
Tunglmyrkvi
Svona getur gerst ef maður fylgist ekki með. Ég hélt að ég væri með það nokkurn veginn á tæru hvenær sól- og tunglmyrkvar væru og því kom það alveg aftan að mér að heyra að það myndi verða tunglmyrkvi síðastliðna nótt. Auðvitað fór mín á stúfana og reddaði myndavél og vaknaði svo tvisvar í nótt til að taka myndir af atburðinum. Það gekk ágætlega að ná myndum af almyrkvanum en flestar myndir af deildarmyrkvanum urðu hristar. Þær skástu eru samt komnar inn á myndasafnið.
Ritað 28. október 2004 kl. 10:56 um myndir| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)
Íbúðarmyndir
Ég er búin að setja fleiri myndir af íbúðinni minni inn. Kíkið endilega inn á Íbúðarmyndir til að sjá afraksturinn.
Ritað 23. september 2004 kl. 15:50 um myndir| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)
Málningarmyndir
Hérna sést hornið á svefnherberginu mínu í miðjum framkvæmdum.
![]()
Og hérna sést hvernig sama horn lítur út eftir allt saman.
![]()
Hérna er skotið við skápinn fyrir málningu.
![]()
Hér er svo hornið við skápinn fyrir málningu...
![]()
Ritað 10. september 2004 kl. 11:22 um myndir| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)
Karlotta snýr við blaðinu
Karlotta fór hinumegin á vefinn sinn áðan... smellti af henni mynd. Hérna sér maður bakið á henni, en áðan sást bara kviðurinn...
![]()
--------
Ritað 12. ágúst 2004 kl. 18:19 um blogger, myndir| Skoðanir (0)
Karlotta á veiðum
Sá þessa flottu könguló í garðinum hans Tryggva og reyndi að taka myndir af henni. Hún var búin að búa sér til þennan flotta vef og akkúrat þegar ég byrjaði að taka myndirnar flaug fluga í vefinn svo ég gat fylgst með því þegar Karlotta veiddi fluguna og pakkaði henni inn.
![]()
--------
Ritað 12. ágúst 2004 kl. 16:28 um blogger, myndir| Skoðanir (0)