Lög samþykkt og Ísland skelfur
Í gær var samþykkt sú ómynd sem stjórnin vill kalla lög um framhaldsskóla. Þetta gerðist í kyrrþey og nánast án þess að nokkur tæki eftir. Lyddurnar í Samfylkingunni samþykktu orðalaust frumvarp sjálfstæðismanna, þvert á gefin kosningaloforð. Stuttu seinna hristist allt og skalf. Væri maður hjátrúaður myndi maður setja einhverskonar tengingu þarna á milli.
Ritað 30. maí 2008 kl. 15:10 um pólitík| Skoðanir (4)
Firring ráðamanna
Ég held að þetta sé langt frá því að vera einsdæmi:
Geir með leiguvél til SvíþjóðarGeir H. Haarde forsætisráðherra heldur til bæjarins Riksgränsen í Svíþjóð seinni partinn á morgun í leiguvél frá flugfélaginu Erni. Tilgangurinn er að sækja fund norrænu forsætisráðherranna og er kostnaður 800 til 900 þúsund krónum meiri en ef um áætlunarflug væri að ræða eftir því sem fram kemur í tilkynningu á vef Forsætisráðuneytisins.
Stutt uppfletting hjá Icelandair sýnir að hægt sé að fara fram og til baka á Saga class til Stokkhólms fyrir tæp 90 þús, án millilendingar. Flogið er á hverjum degi. Ætli það sé 800-900 þús. kr. virði að sleppa við innanlandsflugið í Svíþjóð?
Ritað 6. apríl 2008 kl. 22:13 um pólitík| Skoðanir (1)
Hundaskítsútnári
Fari það í sótsvartasta, heitasta helvíti! Andskotans, helvítis, djöfulsins, satans, bölvaðir, djöfulsins vitleysingar! Sama þroskahefta vitleysan og síðast!
Er málið að flytja til Noregs?
Ritað 13. maí 2007 kl. 12:15 um pólitík| Skoðanir (19)
Flokkaflakk
Ég er tvístígandi í skoðun minni á svo mörgu þessa dagana. Ein þeirra er skoðun mín á flokkaflökkurunum sem eru býsna margir undanfarið. Ég er á því að fyrst okkur kjósendum er gert að kjósa lista en ekki einstaklinga, þá ættu þingsætin að vera eyrnamerkt framboðslistanum eftir kosningar. Það ætti ekki að mínu mati að vera leyfilegt að yfirgefa flokkinn sinn en halda áfram þingsætinu og öllum nefndasætunum sem maður var búinn að koma sér fyrir í.
Hin hlið málsins er hvort maður eigi að skipta um flokk yfirleitt. Ég er fylgjandi þeirri skoðun að maður hafi meiri áhrif ef maður spilar með en ef maður hættir leiknum, en stundum hefur fólk reynt að spila með en þróunin er þvert á persónulega sannfæringu viðkomandi. Þá finnst mér heiðarlegra að segja sig úr flokknum en að sitja áfram og greiða atkvæði þvert á sannfæringu sína. Ég ber samt einna mesta virðingu fyrir þeim sem þora að greiða atkvæði gegn flokknum sínum ef sannfæring þeirra segir þeim svo. Mér finnst leiðinlegt að sjá ríkisstjórnina ná í gegn málum sem hafa lítið fylgi þjóðarinnar og ekki sterkt fylgi heldur innan stjórnarflokkana, en hópsálirnar sem kosnar voru á þing fylgja forystusauðunum gagnrýnislaust! (Meee...)
Hvernig væri samt að gera þetta bull allt óþarft? Hvernig væri að hafa einstaklingskosningar en ekki lista?
Ritað 26. febrúar 2007 kl. 16:23 um pólitík| Skoðanir (3)
Hvað er að???
Ég er farin að halda það að sjálfstæðisflokkurinn ætti bara að setja í stefnuskrá sína: "Ef þér líkar ekki við landslög, þá skaltu bara brjóta þau, því að þau eru hvort eð er asnaleg!" Þetta sýna allavegana forystumenn þeirra hvað eftir annað í verki. Má ég telja upp:
- Davíð Oddson, í samfloti við Dóra sinn, stóð í samningaviðræðum við Kanana án þess að tala við kóng eða prest. Allt í lagi, það voru víst engir kóngar eða prestar sem áttu að skipta sér að þessu, en hann hefði átt, samkvæmt okkar lögum, að renna málinu í gegnum utanlandsnefnd. Honum fannst það hins vegar asnalegt, svo að hann gerði það ekki.
- Þegar var haldið uppá afmæli heimastjórnar var kallað til fundar ríkisráðs. Einhver skrautfundur haldinn í raun og veru bara fyrir einhvern hégóma, en samt sem áður þá láðist þessum vinum okkar alveg að hafa samband við forsetann okkar. Það virtist vera allt of erfitt fyrir þessa menn að taka upp síma (eins og er nú erfitt að finna svoleiðis tæki nú til dags) og hringja í karlinn og bjóða honum. Þegar þjóðin hváði yfir þessu þá báru þessir mætu menn við: "Ja, það er hvort eð er svo asnalegt að hafa forseta!" Hvað kemur það málinu við? Við erum með forseta og mér finnst að við eigum að sýna honum að minnsta kosti jafn mikla kurteisi eins og við myndum sýna hverjum öðrum manni.
- Nú seinast var Björn Bjarnason að brjóta jafnréttislög. Þá segir hann bara "Þessi lög eru gamaldags og asnaleg." HALLÓ! Lögin eru frá árinu 2000! Það eru FJÖGUR ÁR síðan það var! Heldur maðurinn að heimurinn hafi breyst í grundvallaratriðum síðan það var? Fyrir utan það að það er ekki málið! Lögin eru í gildi og þá áttu að fara eftir þeim Bjössi!
Það sem mér finnst grátlegast við þetta allt saman er það að þessir menn eru við stjórnvöldin í landinu. Þeir eru í bestu stöðu af öllum í landinu til að breyta lögunum. Ef þeir eru svona rosalega ósáttir við lögin eiga þeir að breyta þeim en ekki brjóta þau. Það sem þeir velja hins vegar AFTUR OG AFTUR er að brjóta lögin og þrátt fyrir það eru til mörg þúsund Íslendingar sem eru til í að kjósa þessa vitleysinga aftur og aftur.
Ég sver það, ég er farin að halda það að þeir sem kjósa sjálfstæðisflokkinn séu með minni sem slagar hátt í það sem gullfiskar hafa.
--------
Ritað 15. apríl 2004 kl. 15:43 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)
Þak á fæðingarorlof
Mér finnst svo sérstök þessi umræða um þakið á laununum sem fólk á að fá þegar það fer í fæðingarorlof. Margir tala um að þarna sé verið að "mismuna þeim sem hafa há laun" og að launaháir karlmenn þurfi að lækka í launum til að fá að eyða tíma með ungunum sínum. Alveg finnst mér þetta einstakt. Á meðan fólk er að tóra á 88.000 kr. á mánuði þá er verið að vorkenna þessum greyjum sem geta varla látið enda ná saman með 480.000 kr. á mánuði! Sorrý, en ef þú ert með yfir 600.000 kr. á mánuði í laun þá ættir þú alveg að geta andskotast til að leggja bara eitthvað til hliðar þessa níu mánuði meðan þú bíður eftir barninu og tekið til í fjármálunum hjá þér! Í alvörunni talað, þetta eru kannski fordómar hjá mér en ég hef ekki samúð með fólki sem vælir "aumingja, aumingja ég, ég hef svo há laun". ÓHEPPNI!!!
--------
Ritað 1. apríl 2004 kl. 08:28 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)
Enn einu sinni...
Þetta er alveg ótrúlegt. Bandaríkjamenn spyrja heiminn "Af hverju er öllum svona illa við okkur?" og hafa ekki hugmynd um af hverju þeir verða fyrir árásum. Þeir sem eru svo réttlátir og góðir og gera aldrei neitt nema til að hjálpa öðrum. Samt sem áður sýna þeir hlutdrægni sýna í verki aftur og aftur og núna seinast með því að beita neitunarvaldi gegn ályktun hjá öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna, en þessi ályktun átti að fordæma aðgerðir Ísraela þegar þeir myrtu Ahmed Yassin, stofnanda Hamassamtakanna. Hvernig ætlast þessi þjóð eiginlega til að hún sé tekin alvarlega? Hvernig ætlast hún til að þjóðir heimsins standi með henni ef hún sýnir í verki að hún leggi blessun sína yfir svona lúalegt athæfi?
Í annan stað þá vil ég líka leggja áherslu mína á það að mér finnst ótrúlegt hvað Íslenskir kjósendur geta verið heimskir og haft minni á við heilaskemmda gullfiska. Okkar eigin stjórnvöld hafa lagt stuðning þjóðarinnar við þessa vitleysinga þarna fyrir vestan og jafnvel þó að flestir Íslendingar séu á móti því, þá eru þessir aular kosnir aftur og aftur... Hvernig væri að sýna í verki að við viljum búa í lýðræðisþjóðfélagi þar sem tveir menn á valdatrippi fá ekki að stjórna öllum högum þjóðarinnar eftir sínu höfði? Þeir segja að árásin 11. september hafi verið árás á lýðræðið, en það er að mínu mati ekkert á við þær árásir sem þessir höfðingjar okkar hafa gert á lýðræði okkar. Mesta ógn lýðræðisþjóðfélagsins hjá okkur er ekki einhverjir múslimar í hermannaleik, heldur okkar eigin stjórnvöld.
--------
Ritað 26. mars 2004 kl. 10:08 um blogger, pólitík| Skoðanir (0)