LaTeX rúlar!!

Já, ég elska LaTeX! Ég sem hélt að ég myndi þurfa að þræla mér út til að setja upp margliðudeilingu fyrir lausn næstu heimadæma í STÆ203 en fljótleg leit á netinu gaf mér svarið: Auðvitað \polylongdiv! Setja bara inn margliðurnar og þýða skjalið og HókusPókus! Margliðudeiling! Í tilefni af þessu, þá ætla ég heim til mín!

Ritað 23. nóvember 2006 kl. 17:20 um stærðfræði| Skoðanir (2)

Vel þegin helgi

Mikið svakalega er gott að fá helgi núna. Reyndar sé ég fram á nokkra vinnu yfir helgina, ég þarf að fara yfir heimadæmin hjá hundraðogþristunum mínum og svo er ég að stjórna afhendingu verðlauna úr Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanema á sunnudaginn. Flensborgarskólinn hefur í mörg ár haldið þessa keppni fyrir grunnskólana á höfuðborgarsvæðinu og nú ákvað MA að færa keppnina norður fyrir heiðar. Þetta verður eflaust gaman.

Ritað 10. mars 2006 kl. 15:36 um mitt, stærðfræði| Skoðanir (0)

Jólasagan hans Níelsar

Ég man eftir að Níels sagði okkur einhverntíma jólasögu í stærðfræði. Ég kíkti á netið og fann að þessi saga er rakin til David Hilbert's sem var þýskur stærðfræðingur. Sagan er stílfærð en hljómar nokkurn vegin svona:...

Lesa meira... "Jólasagan hans Níelsar"

Ritað 16. desember 2004 kl. 16:57 um stærðfræði| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)

Í tilefni árstíðarinnar

Í tilefni þess hvaða árstíð er núna datt mér í hug að setja inn einn góðan klassíker:...

Lesa meira... "Í tilefni árstíðarinnar"

Ritað 10. desember 2004 kl. 14:41 um fyndið, stærðfræði| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)

Al-gebra hryðjuverkasamtökin

Tal nokkurra nemenda hjá mér í dag minnti mig á þennan brandara:

At New York's Kennedy airport today, an individual later discovered to be a public school teacher was arrested trying to board a flight while in possession of a ruler, a protractor, a setsquare, a slide rule, and a calculator.

At a morning press conference, Attorney General John Ashcroft said he believes the man is a member of the notorious al-gebra movement. He is being charged by the FBI with carrying weapons of math instruction. "Al-gebra is a fearsome cult,", Ashcroft said. "They desire average solutions by means and extremes, and sometimes go off on tangents in search of absolute value. They use secret code names like "x" and "y" and refer to themselves as "unknowns", but we have determined they belong to a common denominator of the axis of medieval with coordinates in every country. "As the Greek philanderer Isosceles used to say, there are 3 sides to every triangle," Ashcroft declared.

When asked to comment on the arrest, President Bush said, "If God had wanted us to have better weapons of math instruction, He would have given us more fingers and toes. "I am gratified that our government has given us a sine that it is intent on protracting us from these math-dogs who are willing to disintegrate us with calculus disregard. Murky statisticians love to inflict plane on every sphere of influence," the President said, adding: "Under the circumferences, we must differentiate their root, make our point, and draw the line."

President Bush warned, "These weapons of math instruction have the potential to decimal everything in their math on a scalene never before see unless we become exponents of a Higher Power and begin to factor-in random facts of vertex."

Attorney General Ashcroft said, "As our Great Leader would say, read my ellipse. Here is one principle he is uncertainty of: though they continue to multiply, their days are numbered as the hypotenuse tightens around their necks."

Ritað 7. desember 2004 kl. 13:50 um fyndið, stærðfræði| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)

Stærðfræðinámskeið

Það er svo margt undarlegt sem maður gerir þegar maður er stærðfræðikennari, eitt af því var að fara á námskeið um helgina. Flötur, félag stærðfræðikennara, hélt námstefnu fyrir okkur í VMA á föstudag og laugardag og þar fengum við að kynnast ýmsum nýjum hlutum. Eins og krakkar í dótabúð fengu stærðfræðikennararnir stundum stjörnur í augun og andvörpuðu "Svona langar mig í!" Þetta gerðist t.d. þegar Jón Eggert Bragason sýndi notkun á gagnvirkri töflu í kennslu við MK og þegar Jóna Guðmundsdóttir kynnti fyrir okkur forritið FX-Draw. Við störðum opinmynnt á hvernig var hægt að teikna upp pýramída og sívalninga án nokkurrar fyrirhafnar og hvernig mátti setja hnitakerfi inn í próf án þess að þurfa að eyða fleiri klukkutímum í að föndra eitthvað í Word eða klippa og líma á gamla mátann.

Ég skal reyndar ekki halda því fram að ég hafi talið allt það sem þarna fór fram vera neitt sérstaklega gagnlegt, en ég held að ég hafi haft töluvert gagn af þessu.

Ritað 22. nóvember 2004 kl. 09:20 um stærðfræði| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Q.E.D.

Ég er að kenna nemendum mínum sannanir í rúmfræði og gömul sérviska segir mér að setja alltaf Q.E.D. þegar sönnun er lokið. Ég fletti upp á Acromyn Server Simplified þar sem maður getur flett upp á ýmsum skammstöfunum, því ég var ekki viss um hvernig maður skrifar frasann. Niðurstaðan var:

Q.E.D. - Quod Erat Demonstrandum
Latin: that which was to be shown/proved

Það sem sýna átti.

Ritað 15. nóvember 2004 kl. 14:48 um stærðfræði| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)

Á ég að þora...?

Lagði próf fyrir fyrsta bekk í dag. Er að manna mig upp í að fara yfir það...

Ritað 27. október 2004 kl. 15:47 um stærðfræði| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Verkefni

Nú er það svo undarlegt að maður er kominn hinumegin við borðið, maður er sjálfur að leggja fyrir og fara yfir verkefnin sem nemendurnir vinna. Nú í gær var ég að fara yfir heimadæmin sem nemendurnir mínir voru að skila á föstudagsmorgun. Ég er á móti því sem prinsippmál að taka heimaverkefni með mér heim um helgar. Ég skal sitja hér í skólanum langt fram eftir degi, eða eins og í gær, til kl. 19, en ég vil eiga helgarnar fyrir sjálfa mig.

Þegar ég gróf mig í gegnum bunkann var það æ ofan í æ sem sama atriðið var að fara í taugarnar á mér. Þegar krakkarnir voru í grunnskóla lærðu þeir það að reikna vexti yfir ár og leggja við höfuðstólinn til að finna stöðuna eftir árið. Nú erum við búin að fara yfir formúlu sem gerir þeim kleyft að reikna í eini færslu stöðuna eftir einhver n mörg ár. Samt sá maður í mörg skipti að krakkarnir reiknuðu

80.000*0,075=6.000, 80.000+6.000=86.000
86.000*0,075=6.450, 86.000+6.450=92.450
92.450*0,075=6933,75 92.450+6933,75=99.383,75

þegar þau áttu að reikna stöðu á 80.000 sem liggja á 7,5% vöxtum í 3 ár. Ég persónulega myndi reikna þetta með b3=80.000(1+0,075)3 sem gefur sömu niðurstöðu, en það er greinilega miklu flóknara að reikna í einu þrepi en að nota sex þrep. Undarlegt.

Ég reyndi að segja þeim að það að reikna í sex þrepum gefur sexfalda möguleika á vitleysu, en ég er ekki viss um að það hafi náð í gegn. Þá fékk ég spurninguna "Af hverju megum við ekki nota þær aðferðir sem við lærðum í grunnskóla, fyrst þær gefa rétt svör?" Ég svaraði einfaldlega "Ef þið ætlið ekki að læra neitt nýtt, til viðbótar við það sem þið lærðuð í grunnskóla, getið þið labbað ykkur beint yfir á skrifstofuna og sagt ykkur úr skóla og sleppt því að eyða fjórum árum í vitleysu." Þá sló þögn á bekkinn. Vonandi hafði þetta einhver áhrif.

Ritað 26. október 2004 kl. 16:58 um stærðfræði| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

Endalaus yfirferð

Úff.... 51 verkefni eftir... best að halda sig að verki...

Ritað 11. október 2004 kl. 18:30 um stærðfræði| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)

Formúlufár

Það hefur löngum verið sagt að hægt sé að lýsa öllu með stærðfræðilegum formúlum. Það er löngu þekkt að hægt er að lýsa ferð fallandi hlutar með formúlu, eins geta formúlur sagt fyrir um staðsetningar himintunglanna langt fram og aftur í tímann. Samt getur þetta gengið of langt. Í mars kom út formúla fyrir réttri hælahæð þar sem var búið að reikna út ákveðna hæð fyrir hverja skóstærð.

Hættan á að detta, reynsla og innkaupsverð reiknast saman í breytuna Q, en nákvæmlega rétt hæð hælanna nefnist h. Formúlan hljóðar í heild þar með svona: h=Q(12 3s/8).

Í júní var svo gefið út að "vísindamenn" hefðu reiknað út formúlu fyrir fyndnasta brandaranum.

The formula - c=(m+nO)/p - was worked out by Helen Pilcher and Timandra Harkness. (...)

In the formula, c is the funniness of the joke; m is the comic moment which is arrived at by multiplying the punchline’s funniness rating by the length of the joke’s build up.

Pilcher og Harkness eru reyndar bara stand-up grínistar sem skelltu þessu saman í djóki, en dagblöð fundu sig knúin um allan heim til að slá þessu upp á síður sínar, þó að oft komst þetta ekki nema í litla hliðargrein. Ástæðan fyrir því að þær bjuggu þessa formúlu til var sú að þeim fannst merkilegt hvernig allavegana formúlur voru orðnar fréttaefni, sama hversu heimskulegar þær voru. Fyrir utan formúluna fyrir hælnum var búið að birta formúlur fyrir samlokum og hvernig á að leggja í stæði.

En svona fyrst maður er farinn að velta fyrir sér furðulegum formúlum langar mig til að skella inn uppáhalds formúlunni minni, sem er úr The Discworld Companion eftir Terry Pratchett:

The relevant equation is Knowledge = Power = Energy = Matter = Mass; a good bookshop is just a genteel Black Hole that knows how to read.

Ritað 23. september 2004 kl. 10:00 um stærðfræði| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)