Posts Tagged ‘árekstur’

Fender-bender, fýluferð og fótbolti

Friday, July 3rd, 2009

Ég lenti í smá fender-bender í gær á bílastæðinu við Skipagötu þegar ég tók af stað út úr bílastæði en gamall kall ákvað að gera slíkt hið sama. Við lentum saman með afturenda bílanna, en mér fannst eiginlega verst að ég þurfti að flauta til þess að hann hætti að keyra á mig, hann virtist ætla bara í gegn. Við sammæltumst um sameiginlega ábyrgð á þessu, fylltum út tjóntilkynningar og fórum með yfir í VÍS. Sem betur fer var ég bara á Accident og það eina sem skemmdist hjá mér var litaða plastið á afturljósinu og svo kom smá beygla fyrir ofan ljósið.

Þessu tók ég með jafnaðargeði en varð aðeins pirraðari yfir fýluferðinni sem við fórum í morgun. Fasteignasalinn hafði boðað okkur í undirritun kaupsamnings fyrir Ásveginn kl. 10 í morgun og við mættum stundvíslega, eftir að hafa vakið Hartmann af morgunlúrnum sínum, en gripum í tómt. Enginn samningur, enginn seljandi. Við vorum smá fúl yfir því. Þetta verður samt vonandi frágengið á mánudag.

Svo höfum við verið að velta því fyrir okkur af hverju tuðarar bæjarins, sem gátu svo aldeilis barmað sér yfir Bíladögum, hafa ekkert látið í sér heyra út af þessu fótboltamóti sem er í gangi. Undanfarna daga hafa verið samfelld öskur og læti, allan liðlangan daginn. Meira að segja í gærkvöldi heyrðum við að sprengdir voru kínverjar fyrir utan hjá okkur, ekki gerðist það á Bíladögum. Og það sem meira er, þá sá maður allavegana dálítið af flottum bílum á Bíladögum, bílarnir sem fylgja þessu liði eru allt annað en flottir.

Annars er ég alls ekki í jafn vondu skapi og restin af færslunni gæti gefið til kynna. Veðrið hefur verið frábært síðustu daga og Hartmann nokkuð hress. Ekki yfir neinu að kvarta, í raun og veru.