Blogg í andarslitunum
Tuesday, October 6th, 2009Er þetta blogg mitt bara að deyja? Ég veit ekki, en tveggja mánaða hlé milli færslna gefur ekki góðar lífslíkur. Vandamálið hefur eiginlega verið að það hefur ekki verið mikið að gerast hjá mér, fyrir utan alla stórsigrana sem ég horfi á son minn vinna. Fréttir af þeim fara yfir á síðuna hans.
Það vantar svo sem ekki að ég hafi skoðanir á þjóðmálunum þessa dagana, en er endilega á það bætandi að blogga um Icesave, stjórnmál, stjórnarkreppu, vælið í stjórnarandstöðunni og bullið í hinum og þessum sem allir telja sig vita betur en allir aðrir? Æ, ég held ekki. Berjumst fyrir einum Icesave-lausum degi!
Kannski ég ætti að breyta þessu bloggi í handavinnublogg? Ég er búin að vera frekar dugleg að prjóna undanfarið og hef uppgötvað að til er ýmiskonar yndislegt garn, annað en Tinnu garnið. Undanfarið hef ég t.d. verið að prjóna úr Katia Scotch Tweed, afar skemmtilegu garni sem er mestmegnis silki og ull.
Ég held að ég fari að hugsa málið… eitthvað ætti ég að reyna til að blása líf í bloggið.