Posts Tagged ‘íbúð’

Fender-bender, fýluferð og fótbolti

Friday, July 3rd, 2009

Ég lenti í smá fender-bender í gær á bílastæðinu við Skipagötu þegar ég tók af stað út úr bílastæði en gamall kall ákvað að gera slíkt hið sama. Við lentum saman með afturenda bílanna, en mér fannst eiginlega verst að ég þurfti að flauta til þess að hann hætti að keyra á mig, hann virtist ætla bara í gegn. Við sammæltumst um sameiginlega ábyrgð á þessu, fylltum út tjóntilkynningar og fórum með yfir í VÍS. Sem betur fer var ég bara á Accident og það eina sem skemmdist hjá mér var litaða plastið á afturljósinu og svo kom smá beygla fyrir ofan ljósið.

Þessu tók ég með jafnaðargeði en varð aðeins pirraðari yfir fýluferðinni sem við fórum í morgun. Fasteignasalinn hafði boðað okkur í undirritun kaupsamnings fyrir Ásveginn kl. 10 í morgun og við mættum stundvíslega, eftir að hafa vakið Hartmann af morgunlúrnum sínum, en gripum í tómt. Enginn samningur, enginn seljandi. Við vorum smá fúl yfir því. Þetta verður samt vonandi frágengið á mánudag.

Svo höfum við verið að velta því fyrir okkur af hverju tuðarar bæjarins, sem gátu svo aldeilis barmað sér yfir Bíladögum, hafa ekkert látið í sér heyra út af þessu fótboltamóti sem er í gangi. Undanfarna daga hafa verið samfelld öskur og læti, allan liðlangan daginn. Meira að segja í gærkvöldi heyrðum við að sprengdir voru kínverjar fyrir utan hjá okkur, ekki gerðist það á Bíladögum. Og það sem meira er, þá sá maður allavegana dálítið af flottum bílum á Bíladögum, bílarnir sem fylgja þessu liði eru allt annað en flottir.

Annars er ég alls ekki í jafn vondu skapi og restin af færslunni gæti gefið til kynna. Veðrið hefur verið frábært síðustu daga og Hartmann nokkuð hress. Ekki yfir neinu að kvarta, í raun og veru.

Algjör bilun?

Tuesday, June 9th, 2009

Við Tryggvi erum í hálfgerðu sjokki, vorum að skrifa undir kauptilboð sem seljandinn er búinn að gangast inná. Við erum semsagt að fara að kaupa Ásveg 20, efri hæð. Það verður nýja höllin keisarans, eða hið nýja Völundarhús. Í tilefni þessa var rándýra viskýflaskan, sem keypt var fyrir dýrmæt sterlingspund, opnuð og bragðað á innihaldinu með viðhöfn.

Eitthvað að frétta?

Monday, June 8th, 2009

Litla fjölskyldan hefur verið í fýlu undanfarna daga… ekki vondu skapi, bara fýlu. Við höfum nefnilega öll þrjú verið eitthvað skrítin í maganum, tökum það svosem ekki út með kvölum, en loftið í íbúðinni hefur verið svolítið þungt.

Annars bíðum við þess spennt að fá að vita hvað verður úr íbúðamálum hjá okkur. Við vorum nefnilega að gera tilboð í eign í dag og fáum gagntilboð á morgun. Ekki er búið að selja Tjarnarlundinn ennþá (þó það gætu farið að verða hreifingar í þeim málum) en við sáum að við gætum gert þetta tilboð þó hann seljist ekki strax. Ef við náum lendingu í þessu skal ég birta meiri upplýsingar um málið.

Við fórum svo í algjöra barnaveislu áðan, því að Kristbjörg var að skíra hana Karen Irani sína. Þar var náttúrulega stjarna dagsins, hún Karen, tæplega tveggja ára, á spani út um allt, en svo voru frændur hennar, þeir Stefán Þór og Daníel Arnar, þarna líka, en þeir fæddust báðir í vor. Það var ákveðin upplifun fyrir Hartmann að vera ekki minnstur, því að Daníel Arnar er algjör pínupons.