Posts Tagged ‘prjón’

Vesti og trefill

Tuesday, November 3rd, 2009

Ég kláraði nýlega vesti á Hartmann úr Sirdar Snuggly Baby Bamboo garninu. Það er rosalega þægilegt að prjóna úr þessu garni og afurðin verður verulega lipur og þægileg, en það olli mér vonbrigðum að sjá að það virtist breyta aðeins um lit við þvott. Þannig komu smá litaskil á bolinn þar sem ég hafði skipt um dokku, þó að dokkurnar væru báðar úr sömu litalotu. Fyrir ofan stroffið og á öxlunum hafði ég mynstur byggt á Daisy Stitch (veit ekki hvað það kallast á íslensku). Hægt er að sjá myndband með aðferðinni á YouTube.

Vesti úr Sirdar Snuggly BabyBamboo.

Vesti úr Sirdar Snuggly BabyBamboo.

Svo langar mig líka til að sýna mynd af treflinum/sjalinu sem ég prjónaði handa tengdó í fimmtugsafmælisgjöf. Trefillinn er úr Katia Scotch Tweed garninu sem ég notaði í töskuna sem ég sýndi um daginn en uppskriftin er fengin af Vogue Knitting.

Trefill/Sjal úr Katia Scotch Tweed

Trefill/Sjal úr Katia Scotch Tweed

Taska úr Katia Scotch Tweed

Monday, October 19th, 2009

Hérna er taska sem ég prjónaði um daginn sem afmælisgjöf handa mömmu. Garnið er Katia Scotch Tweed, frekar skemmtilegt garn sem ég fékk í Quiltbúðinni en þar voru restarnar af þessu garni á útsölu. Mér skilst að það sé ekki framleitt lengur. Það er 65% silki, 19% ull og 6% viscose, frekar gróft og skemmtilega ójafnt.

Svo var ég að klára vestið á Hartmann. Það virðist passa og er alveg endalaust mjúkt, en það er samt býsna þykkt eins og vill oft verða þegar maður gerir litamunstur.

Með ýmislegt á prjónunum

Monday, October 12th, 2009

Ég er búin að vera að prjóna töluvert undanfarið, enda finnst mér það svo óskaplega þægilegt t.d. yfir sjónvarpinu á kvöldin, að hafa eitthvað í höndunum. Ég skal bráðum setja inn myndir af því sem ég hef verið að gera, en núna er ég að vinna í vesti handa Hartmanni. Mig dauðlangar nefnilega í fallegt vesti handa honum með V-laga hálsmáli og svo þegar ég fann Sirdar Snuggly Babybamboo garnið (80% bambus, 20% ull) á útsölu hjá Quiltbúðinni fannst mér alveg tilvalið að prófa. Ég hafði reyndar ekki fundið neina uppskrift sem mér líkaði almennilega við, svo að ég ákvað að gera tilraun til að búa hana bara til uppúr sjálfri mér. Í ljós kom að ég átti ekki til rétt númer af prjónum, þannig að ég ákvað að nota stærri prjóna og búa til prjónfestuprufu. Þá fann ég hvað þetta garn verður geðveikislega mjúkt þegar búið er að prjóna úr þessu.

Hér að neðan sést hvernig vestið er orðið en ég birti frekari myndir þegar ég er búin að klára.