Vesti og trefill
Tuesday, November 3rd, 2009Ég kláraði nýlega vesti á Hartmann úr Sirdar Snuggly Baby Bamboo garninu. Það er rosalega þægilegt að prjóna úr þessu garni og afurðin verður verulega lipur og þægileg, en það olli mér vonbrigðum að sjá að það virtist breyta aðeins um lit við þvott. Þannig komu smá litaskil á bolinn þar sem ég hafði skipt um dokku, þó að dokkurnar væru báðar úr sömu litalotu. Fyrir ofan stroffið og á öxlunum hafði ég mynstur byggt á Daisy Stitch (veit ekki hvað það kallast á íslensku). Hægt er að sjá myndband með aðferðinni á YouTube.

Vesti úr Sirdar Snuggly BabyBamboo.
Svo langar mig líka til að sýna mynd af treflinum/sjalinu sem ég prjónaði handa tengdó í fimmtugsafmælisgjöf. Trefillinn er úr Katia Scotch Tweed garninu sem ég notaði í töskuna sem ég sýndi um daginn en uppskriftin er fengin af Vogue Knitting.

Trefill/Sjal úr Katia Scotch Tweed

