Taska úr Katia Scotch Tweed
Monday, October 19th, 2009Hérna er taska sem ég prjónaði um daginn sem afmælisgjöf handa mömmu. Garnið er Katia Scotch Tweed, frekar skemmtilegt garn sem ég fékk í Quiltbúðinni en þar voru restarnar af þessu garni á útsölu. Mér skilst að það sé ekki framleitt lengur. Það er 65% silki, 19% ull og 6% viscose, frekar gróft og skemmtilega ójafnt.
Svo var ég að klára vestið á Hartmann. Það virðist passa og er alveg endalaust mjúkt, en það er samt býsna þykkt eins og vill oft verða þegar maður gerir litamunstur.

