„Vísindasamfélagið segir…“
Wednesday, November 11th, 2009Var að hlusta á „umfjöllun“ morgunútvarpsins á heimsendaspám áðan. Er ekki hægt að finna einhvern aðeins áræðanlegri en Gunnar í Krossinum til að segja fólki frá því hvað „vísindasamfélagið segir“?? Væri ekki hægt að velja að handahófi einhvern eðlisfræðing, stjörnufræðing eða bara einhvern sem veit eitthvað um vísindi til að segja hvaða kenningar eru ofaná í dag? Óttast útvarpsmenn að svarið verði líklegast „Jú, jörðin ferst sennilegast á endanum, ekki svo mikið í eldi og brennisteini heldur líklega frekar í glóandi vetni og helíum. Þetta gerist sennilega eftir u.þ.b. fimm milljarða ára. Ég er ekki stressuð yfir því.“ Gallinn við slíka umfjöllun er að hún hræðir fólk ekki, sennilega þess vegna sem þessi leið er ekki farin.