MacTeX

Gleði! Mér tókst að setja upp LaTeX fyrir MacOS!. LaTeX er reyndar sem slíkt platform-independent, en maður þarf að hafa þýðanda til að byggja skrárnar og búa til öll fallegu og flottu verkefnin og prófin, að maður tali nú ekki um kennsluefnið. Ég náði í MacTeX, sem er vöndull af öllum pökkum sem maður þarf, auk þess að hafa nokkur GUI forrit til að vinna með þetta.

Ef fólk er hissa yfir gleðinni, þá er hún vegna þess að ég er búin að vera að reyna að ná þessu inn í tölvuna eiginlega frá því ég fékk hana. Síðan sem dreifir þessu (http://www.tug.org/mactex/) býður upp á niðurhal, en skráin er 744MB (!) og ítrekaðar tilraunir, bæði heima og í vinnunni, gáfu engan árangur, niðurhalið rofnaði alltaf. Einnig prófaði ég að sækja þetta með ftp (ftp://tug.ctan.org/pub/tex-archive/systems/mac/mactex/) en fékk bara villur þegar ég reyndi að mount-a .dmg skrána. Fyrir rest fann ég torrent skrá og gat halað niður óskemmdu eintaki. Ég mæli með því að fólk geri þetta helst, ef það vill hafa LaTeX á makkanum sínum, sem sagt, sækið þetta með torrent.

Ritað 5. júní 2008 kl. 13:04 um tölvur| Skoðanir (0)

Bloggað með GSM

Veit einhver hvernig ég get bloggað með því að senda SMS úr símanum mínum? Þetta gat ég lengi vel en nú er Hexia búin að breyta kerfinu sínu svo að ég get engan veginn komin færslunum úr símanum og inn á þetta blogg. Hexia og Vodafone leyfa mér bara að hýsa blogg hjá sér, ekki að senda færslurnar hingað inn á Movable Type bloggið mitt. Ég kynni vel að meta allar ábendingar, sérstaklega ef þær berast fyrir sunnudagskvöld, svo ég geti nú bloggað í Finnlandsferðinni.

Ritað 22. júní 2007 kl. 12:26 um tölvur| Skoðanir (0)

Nýtt útlit í tilefni sumars

Fyrir um ári síðan setti ég nýtt útlit á síðuna mína. Nú er ég lítillega fyrr á ferðinni með annað útlit á vefinn. Ég ætla að byrja á forsíðunni, en næstu daga set ég þetta líka á aðrar síður vefsins.

Ritað 18. apríl 2007 kl. 21:34 um tölvur| Skoðanir (0)

Gúgúl Ríder

Ég er orðin mjög hrifin af fyrirbæri sem heitir Google Reader. Þetta hjálpar mér að fylgjast með bloggum allra þeirra sem eru með rss skrá fyrir bloggið sitt. Þarna fæ ég að sjá ef einhver setur inn færslu á bloggið sitt, ef XKCD birtir nýja mynd eða ef Föruneytið gerir vart við sig. Þetta hefur þó gert mér erfiðara fyrir að fylgjast með skoðanaskiptum sem verða oft lífleg á bloggum. Þess vegna ákvað ég að búa til rss skrá fyrir skoðanir sem settar eru inn á mitt blogg og vona að fleiri geri slíkt hið sama.

Ritað 28. febrúar 2007 kl. 10:16 um tölvur| Skoðanir (1)

Snap.com

Ég rakst á skemmtilega græju áðan: Snap.com. Ef þið prófið að setja músina yfir tenglana til vinstri þá kemur mynd af síðunum sem tenglarnir vísa á. Það er ofureinfalt að setja þetta inn. Smellið bara á tengilinn Snap.com og fylgið leiðbeiningunum.

Ritað 25. janúar 2007 kl. 20:21 um tölvur| Skoðanir (0)

Spam, endalaust spam

Ég hef verið undir endalausum spamárásum undanfarna daga. Nokkrir tugir eða hundruð ruglskilaboða berast inn á síðuna mína á hverjum degi og ég sit sveitt við það að eyða þessu aftur út. Pirrandi.

Ritað 10. október 2006 kl. 14:29 um tölvur| Skoðanir (3)

RoboGeo

Mjög sniðugur hugbúnaður til að tengja saman myndirnar sem teknar eru á ferðalögum og staðina sem þær voru teknar á. Þeir sem láta GPS tækið merkja track fyrir ferðina geta látið RoboGeo lesa saman logginn úr GPS tækinu og tímastimplana á myndunum. Þá finnur forritið út hvar hver mynd var tekin og skrifar hnit fyrir lengd, breidd og hæð yfir sjávarmáli inn í EXIF upplýsingar skrárinnar. Einnig er hægt að skrá inn áttina sem myndin var tekin í. Þá gefur forritið m.a. möguleika á að búa til GoogleMap eða GoogleEarth skrár fyrir slóðina sem farin var.

Svo er hægt að nota GoogleMap með góðu íslandskorti, t.d. úr MapSource, til að finna hvaða staðarnöfn eiga við hvaða myndir. Til að sjá prufu af því sem forritið gerir má t.d. skoða kort sem ég gerði af ferð okkar Tryggva um Vestfirðina.

Reyndar er ég ekki sátt við að hafa ekki fundið ennþá leið til að stilla stafasettið í .htm skránni sem verður til. Smá galli.

Ritað 23. júlí 2006 kl. 21:44 um tölvur| Skoðanir (0)

hot.is

hot.is er sniðugt kerfi til að skrá inn það sem maður borðar og þá reiknar það út hversu mikla orku maður innbyrðir og skiptingu milli prótíns, fitu og kolvetna. Það geymir líka hvað maður borðar á hverjum degi svo að maður getur fengið yfirlit yfir lengri tíma. Einnig er hægt að sjá næringarinnihald hverrar máltíðar.

Það sem ég hef samt helst að setja út á þennan vef er að hann er mjög IE háður, það virkar ekkert af viti í Firefox.

Ritað 18. júní 2006 kl. 15:12 um tölvur| Skoðanir (0)

Hverjum líkist þú?

Síðan www.myheritage.com gefur möguleika á að hlaða upp andlitsmynd og finna hverjir líkjast manni. Ég hlóð upp andlitsmynd af mér og fékk að vita að Marcia Cross (úr Desparate Housewives) og Renee Zellweger er líkastar mér (73%) og þvínæst koma Maria Montez, Kirsten Dunst, Gloria Estefan og Brooke Shields (72%).

Ritað 9. maí 2006 kl. 15:45 um tölvur| Skoðanir (3)

Nýtt útlit

Jæja, ég er öll á leiðinni með að fá mér nýtt útlit sjálf, þannig að það er ekki úr vegi að gefa síðunni minni smá makeover. Eins og sjá má (ef þið hafið komið inn á forsíðuna) þá er komið nýtt útlit á síðuna mína. Ég fer fljótlega í það að breyta öðrum undirsíðum.

Ritað 1. maí 2006 kl. 12:24 um tölvur| Skoðanir (0)

Valdís KJÁNI!

Jæja, myndavélin var farin að kvarta svo að ég ákvað að hlaða hana, með svipuðum hætti og ég hleð iPod-inn minn: með því að koma henni í samband við USB port. Mér fannst þó skrítið að það kviknaði ekkert ljós á vöggunni við þetta, en það á að skína appelsínugult þegar er verið að hlaða en grænt þegar vélin er full hlaðin. Hmmmm... Morguninn eftir var vélin alveg jafn svöng og áður, ef ekki svengri. Mín var orðin illa fúl, hélt ég hefði skemmt eitthvað. Ég potaðist í öllu mögulegu, reif meira að segja fram manúalinn, áður en ég fattaði það að vaggann þyrfti að vera í sambandi við innstungu, spennan frá USB portinu dygði ekki. Þetta er kannski merki um að maður þyrfti að nota vélina meira? (Greyið er í sambandi núna).

Ritað 25. mars 2006 kl. 11:15 um tölvur| Skoðanir (0)

Jibbí! Ný tölva í vinnunni!

Jibbíjei! Ég fékk nýja tölvu til að nota í vinnunni. Þessi hefur um 500MB í minni, svo að nú getur maður vonandi farið að vinna á mannsæmandi hraða! Þetta er frábært!

Ritað 2. mars 2006 kl. 13:22 um tölvur| Skoðanir (9)

LaTeX víman dvínar ekki!

Ég er alltaf að læra nýja hluti í LaTeX. Núna hef ég komist að því að þetta hefur frábæran stuðning fyrir heimildaskráningu, ef maður notar BibTeX. Ég get skráð allar mikilvægu upplýsingarnar í .bib skrá, sett inn eina skipun í .tex skrána mína og þá setur kerfið upp heimildaskrá eftir því í hvaða færslur er vísað. Einnig býður WinEdt upp á það að þegar ég ætla að vísa í færslu í heimildaskránni minni þá fæ ég upp lista þar sem ég get valið heimildina mína. Stórsniðugt! Þegar ég fer aftur í nám ætla ég sko að TeXa öll verkefni, sérstaklega lokaverkefni!

Ritað 16. desember 2005 kl. 15:25 um tölvur| Skoðanir (5) | Tilvísanir (1)

LaTeX er sniðugt

Ég er búin að ákveða það að LaTeX er sniðugt. Ég hafði áhyggjur af því í byrjun að það væri ekki hægt að setja inn hvaða mynd sem er en ég gat fundið workaround fyrir það. Einnig leist mér ekki á að þurfa að handskrifa kóðann fyrir töflum, en ég fann skrá sem lætur Excel flytja töflurnar yfir í LaTeX fyrir mann.

Núna síðast var Unnar að kenna mér skipun sem slær allt út. Með því að gefa skipunina \vfill á milli liða, t.d. á prófi, þá dreifir forritið auðu plássi jafnt á milli allra þeirra staða þar sem skipunin er gefin. Í stað þess að hamast á ENTER í Word og lenda í því að allt fari í vitleysu þegar einhverju er breytt, þá er öllu haldið snyrtilegu og fínu fyrir mann. Sjáið bara!

--- Bætti við tengli í Xl2Latex skrána. 17:07 13. des. '05.

Ritað 13. desember 2005 kl. 08:32 um tölvur| Skoðanir (4) | Tilvísanir (0)

LaTeX námskeið

Ég fékk smá innsýn inn í LaTeX (lesist "latekk") áðan. Þetta er alveg schnilldar umhverfi til að skrifa allskonar tæknilegan texta. Þetta er semsagt markup mál, svipað og HTML en er ætlað til umbrots fyrir prent, en hefur þann kost að geta sett upp allskonar formúlur og fínt. Einnig er góður kostur að maður skrifar sjálfur allar skipanir þannig að það er ekki um það að ræða að forritið fokki upp í útlitinu hjá manni, eins og Word á t.d. til að gera. Enn einn kostur er sá að hægt er að skrifa TeX skrár og þá má þýða þær hvort sem er á Windows, Mac, Linux eða öðru. Ég notaði WinEdt áðan og það býður upp á að búa sjálfkrafa til .pdf skrár sem allir geta lesið. Ég hlakka til að prófa mig áfram með þetta. Kannski janúarprófin verði samin í þessu?

Ritað 3. desember 2005 kl. 15:14 um tölvur| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Civil

Amazon var að benda mér á að Civilization IV er að koma út... Held að ég verði að standast freistinguna samt...

Ritað 17. október 2005 kl. 14:40 um tölvur| Skoðanir (3) | Tilvísanir (0)

Sítengd?

Hvaða merkingu leggur fólk í orðið sítenging? Í mínum orðaforða þýðir fortengingin sí- að þessi hlutur á alltaf, ávallt, sífellt að gilda. Þannig að sí-tenging er tenging sem á alltaf að vera virk... Greinilega ekki sú merking sem The Evil Empire leggur í orðið. Mér finnst of oft koma fyrir að ég verð netsambandslaus og þá hef ég sárafá tól til að komast að því hvað er að. Í nótt ákvað ég að blogga áður en ég fór að sofa, en í miðri færslu gerðist eitthvað með tenginguna mína þannig að ég fékk engin svör frá neinum síðum og ekkert haggaðist. www.valdisbjork.com svaraði Ping en ég fékk ekkert svar í Firefox um að færslan hefði vistast... en eitthvað hefur þó gerst þar sem hún kom svo fimm sinnum inn á síðuna.

Ég er ekki alveg sátt við þetta.

Ritað 29. ágúst 2005 kl. 12:07 um tölvur| Skoðanir (8) | Tilvísanir (0)

Tengd? Já, sítengd!

Ég vaknaði í morgun og sá að DSL ljósið var kviknað á beininum mínum. Tók reyndar smá tíma í viðbót áður en ég gat notað þessa fínu tenginu, því að Síminn hafði gleymt að setja upp notanda fyrir mig, en símtal við þjónustuver reddaði því. Ég er svo ánægð!

Ritað 18. ágúst 2005 kl. 11:42 um tölvur| Skoðanir (9) | Tilvísanir (0)

JPG yfir í ASCII kóða

Skemmtileg síða sem ég rakst á í gegnum Userfriendly, þarna er hægt að hlaða upp JPG myndum, þær þurfa reyndar að vera pínu litlar, bara 60*50 pixelar, en síðan breytir myndinni sem sagt í ASCII kóða. Tók andlitsmyndina mína og setti hana inn í þetta. Frekar flott. Skoðið: Andlit

Ritað 27. júní 2005 kl. 17:50 um tölvur| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Þráðlausar pælingar

Ég er risaeðla. Ég nota gamla HP Brio borðvél og hringi mig inn á netið með módemi, með tilheyrandi skruðningum og látum. Í gamla daga vissi maður að maður ætti erfitt með að komast inn á netið á ákveðnum tímum, þegar IRC liðið var mætt á svæðið og blokkeraði alla umferð. Síðastliðin ár hafa allir fengið sér þráðlaust og maður hefði haldið að álagið á innhringisambandið hefði aðeins lagast. En nei. Það tekur mig 3-6 tilraunir í hvert skipti að hringja mig inn á netið og hraðinn er skiljanlega lélegur þegar maður er loksins kominn inn. Þar af leiðandi er ég loksins farin að hugsa með mér að ég ætti að fá mér þráðlaust samband í íbúðina... gæti notað lappann sem ég er með í vinnunni... Er að pæla í því að sameina fjarskiptakostnað á einn reikning og fá mér þráðlaust hjá Símanum og færa GSM þangað líka...

Ritað 22. júní 2005 kl. 20:16 um tölvur| Skoðanir (2) | Tilvísanir (0)

Slæmar síður

Illa hannaðar síður fara gríðarlega í taugarnar á mér. Nýlega rakst ég á tvær og var að velta því fyrir mér að blogga um þær en ákvað að bíða með það... Í morgun bættist enn ein við, svo að ég gat ekki orða bundist.

  1. Norðurorka - Greinilega hefur einhverntíma einhver hönnuður fengið að koma nálægt hönnun þessarar síðu en svo hefur eitthvað möppudýrið tekið ákvörðun um að það væri of dýrt að láta fagmann klára verkið. Bakgrunnurinn er fallegur en allt annað við þessa síðu er slæmt. Rammarnir eru slæmir, textinn neðst á síðunni sem er settur fram í myndum er slæmur (munið: mynd segir meira en 1000 orð, tekur líka 1000 sinnum meira pláss í tölvunni), mest allt innihaldið er sett í Excel skjöl og .pdf skrár og að undanskildum bakgrunninum eru allar myndir á síðunni illa unnar. Hér vantar einhvern sem kann til verka til að kíkja á málið.
  2. Paparnir - Reyndar ekki alslæm síða, virðist vera fagmannlega unnin, en það fer í taugarnar á mér þegar vefhönnuðir tékka ekki á því hvort síðurnar þeirra líta almennilega út í öðrum vöfrum en Internet Explorer. Ef ég skoða síðuna í Firefox, þá lendir aðal content kassinn ofan á leiðarkerfinu sem var sett neðst á síðuna, þannig að síðan virkar ekki. Smá vinna ætti að geta lagað þetta.
  3. Barnaland - Barnaland er nýkomið undir mbl.is og fær útlitið og allt frá þeim ágæta miðli. Flest er í lagi, við könnumst við leiðakerfið sem er efst og til vinstri, en það sem er verra er bölvuð auglýsingin sem er lengst til hægri (einhver Tripp-Trapp stóll sem er að valda mígreniköstum hægri-vinstri) og það sem fer mest í taugarnar á mér: eitthvað script sem lætur gluggann hjá mér hoppa til og fara úr Maximized stillingu yfir í Restore stillinguna. Það kemur einhverjum vefhönnuði bara ekkert við hvað ég vil hafa gluggann minn stóran. Ef mér finnst hann of stór hjá mér þá minnka ég hann bara sjálf! Þarna mætti laga síðuna heilmikið ef dregið verður úr þessum flogakasta-valdandi auglýsingum og þessari afskiptasemi af stærð gluggans verði hætt.

Ef þið verðið vör við úrbætur á þessum síðum mæli ég eindregið með því að þið skellið inn athugasemd hjá mér um það :D

Ritað 30. maí 2005 kl. 09:03 um tölvur| Skoðanir (3) | Tilvísanir (0)

Spam athugasemdir í bloggum

Ég hef ekki lent svo mikið í því vandamáli að það komi inn spam í athugasemdirnar á síðunni minni. Ég ákvað samt að kíkja inn á póstinn minn hjá Ísmennt og komst að því að síðan sem ég hélt aðeins við í fyrra á http://borgarholsskoli.simblogg.is/valdisbj væri orðin öll full af svona athugasemdum. Þá fór ég í það að skoða allar færslurnar mínar (ekki svo hrikalega margar), eyða þessum ógeðslegu færslum og loka fyrir nýjar færslur. Mér hefði svo sem verið sama, nema að nafn Borgarhólsskóla er í slóðinni og síðan er á nafni skólans, svo að mér fannst mjög slæmt að auglýsingar fyrir klámi, stinningarlyfjum og þunglyndislyfjum væru þar inni. Þetta er allavegana afgreitt mál núna.

Ritað 7. desember 2004 kl. 17:42 um tölvur| Skoðanir (0) | Tilvísanir (0)

Ruslpóstur...

Tryggvi lenti í vandamáli með GMail spamsíuna fyrir nokkrum vikum síðan, en núna virðist sama vandamál vera komið upp hjá mér :( Ég er búin að fá hellings mörg tilboð um Viagra og þunglyndislyfjum síðustu tvo daga. Það er spurning hvort þetta lagist eins og hjá Tryggva...

Ritað 30. nóvember 2004 kl. 13:04 um tölvur| Skoðanir (1) | Tilvísanir (0)

Filemaker Pro

Úff, ég verð að ranta aðeins um verkefni sem ég er með í gangi. Þeim sem forðast tæknimál er bent á að vinda sér beint í aðrar færslur....

Lesa meira... "Filemaker Pro"

Ritað 10. október 2004 kl. 15:45 um tölvur| Skoðanir (6) | Tilvísanir (0)

Löng nöfn skráð í þjóðskrá

Sá þessa frétt áðan á mbl.is: Löng nöfn skráð í þjóðskrá

Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hefur endurflutt þingsályktunartillögu sína, frá síðasta þingi, um að ráðin skuli bót á því að löng nöfn eru ekki skráð í þjóðskrá. Beinir hann því til ráðherra Hagstofu Íslands að finna lausn á þessu.

Held það sé kominn tími til. Fáráðlegt að láta svona pínulítið tæknilegt atriði hafa svona mikil áhrif. Auðvitað á að vera hægt að skrá heil löng nöfn í þjóðskrá!

Ritað 7. október 2004 kl. 10:27 um tölvur| Skoðanir (4) | Tilvísanir (0)

GMail

GMail er frábær þjónusta sem ég kynntist í vor. Sem bloggari á Blogger.com fékk ég boð um að fá netfang hjá GMail, sem er póstþjónusta sem Google býður uppá. Enn er þessi þjónusta á þróunarstigi en hún virkar mjög vel og virðist vera vel unnin.

Það sem GMail hefur framyfir ýmis önnur kerfi er margþætt:

  1. Gmail býður upp á geymslu á 1 GB af pósti. Það þýðir að maður þarf sennilega aldrei að henda pósti. Jafnvel þó maður hafi safnað sér pósti með viðhengjum árum saman er ólíklegt að maður því yfir 1 GB. Þetta er miklu meira en Hotmail býður upp á þar sem allt fer í baklás ef maður hefur meira en 2 MB í hólfinu sínu.
  2. Gmail býður manni allt aðra leið til röðunar á skilaboðunum sínum. Venjan er að raða skilaboðunum í möppur en í GMail merkir maður skilaboðin með merkjum (labels). Hægt er að merkja hver skilaboð með mörgum merkjum, t.d. get ég fengið skilaboð frá Eddu systur sem fjalla um heimasíðuna mína og þá get ég merkt skilaboðin bæði Edda og Heimasíða. Þá sjást skilaboðin í báðum flokkum.
  3. GMail sýnir samtöl í þráðum. Skoðið á mynd. Þetta er held ég einn mesti kosturinn við GMail. Segjum sem svo að á póstlistanum X98 fari af stað umræða um að hittast. Þá raðar GMail samtölunum upp þannig að ég sé hversu margir hafa lagt til umræðunnar og sýnir mér alla umræðuna í einu. Þá þarf ekki meira en að smella á hvern sendanda til að sýna eða fela skilaboðin hans. Ótrúlega gott.
  4. GMail býður upp á alveg rosalega góða ruslpóst síu. Hún ein og sér er vel þess virði að fara yfir í GMail. Síðan ég fór yfir á GMail hef ég fengið kannski 5 ruslpósta inn í innboxið hjá mér. Ef maður hefur áhyggjur af því að eitthvað sem maður vill fá sé að fara í ruslpósthólfið, þá getur maður alltaf skoðað hvað er þar, sagt kerfinu að þetta sé ekki ruslpóstur og fljótlega er kerfið búið að læra það að þetta sé í lagi og megi koma beint í innhólfið. Rosalega gott.
  5. Netfangaskráin hjá GMail er frekar sérstök. Það er ekki boðið upp á að geyma mjög miklar upplýsingar, þó að maður hafi athugasemdareit sem maður getur í sjálfu sér sett hvað sem er í. Það sem er samt mikill kostur við netfangaskrána er það að þegar maður byrjar að skrifa nýjan póst, þá flettist sjálfkrafa upp í netfangaskráni, þ.e. ég skrifa Tr... og þá sé ég strax netföngin hjá Tryggva og get valið úr línu. Það er einstaklega auðvelt líka (sérstaklega miðað við vefpóst) að bæta sendanda skilaboða beint í netfangaskránna.
  6. GMail býður upp á óvenju mikla stjórn beint í gegnum lyklaborðið. Hægt er að gera flesta hluti án þess að fara nokkurn tíma yfir á músina. Þetta er ótvíræður kostur miðað við flest önnur vefpóstkerfi.

Fyrir utan þessa kosti býður GMail líka upp á að búa til reglur sem flokka fyrir mann póstinn jafnóðum og hann kemur inn, að leita í öllum pósthólfum og sjálfvirka áframsendingu.

Sem virkur notandi GMail hef ég möguleika á að bjóða nokkrum til að fá GMail aðgang. Þeir sem vilja fá aðgang skulu endilega setja athugasemd í umræðuna, eða senda mér línu á valdis@gmail.com

Ritað 22. september 2004 kl. 14:10 um tölvur| Skoðanir (3) | Tilvísanir (0)

Velkomin á nýja svæðið mitt

Já, verið velkomin á www.valdisbjork.com! Nú er ég loksins komin með mitt eigið lén, þökk sé Tryggva, sem var svo sætur að skrá þetta fyrir mig og hýsa það. *Knús*

Ég hlakka til að halda áfram að blogga hér, enda er þetta búið Movable Type og fleiri skemmtilegum græjum. Miklu betra en Blogger.

Þetta sjálfgefna útlit sem er núna á vefnum verður bara að vera í bili, en ég ætla að vinna í nýju útliti fljótlega ;)

Ritað 10. september 2004 kl. 08:36 um mitt, tölvur| Skoðanir (1)

ADSL pælingar

Ég er búin að vera mikið að pæla síðustu daga í því hvort maður þurfi ekki að fá sér ADSL og þá frá hverjum maður ætti að kaupa þetta. Mér sýnist að maður endi með því að kaupa græjurnar hjá Margmiðlun en ég er samt tvístígandi í þessu. Það sem ég hef sérstaklega áhyggjur af er hvernig fjárhagsstaðan verður hjá mér á næstu mánuðum. Nú er ég búin að skipta um starf og fá launahækkun, en ég er líka búin að kaupa íbúð og með því fylgja aukin útgjöld... Þetta er erfitt mál...
--------

Ritað 8. september 2004 kl. 10:49 um blogger, tölvur| Skoðanir (3)

Það er allt reynt

Þetta er alveg stórmerkilegt. Ég var að lesa frétt áðan um einhverja stofnun, sem er vandlega styrkt af Microsoft, sem er búin að birta skýrslu um niðurstöður "rannsóknar" um uppruna Linux stýrikerfisins. Þar kemur fram að það geti ekki verið að Linus Torvalds hafi búið til Linux frá grunni heldur hafi hann stuðst við kóða úr Unix eða Minix kerfunum. Það sem mér finnst merkilegast við það sem ég las er að niðustöðurnar virðast bara vera byggðar á spekúleringum um að kannski hafi einhver annar gaur geta gert þetta á lengri tíma, en ekki Linus á sínu hálfa ári með litla reynslu. Ég hef ekki lesið skýrsluna sjálfa, bara fréttina, en ég ætla að vona að þetta fólk hafi ekki byggt alla skýrsluna sína upp á svona lélegum vinnubrögðum.

Jæja, kallið mig barnalega, en ég vil frekar trúa því að hann hafi kannski bara alveg getað gert þetta. Sérstaklega þegar maður tekur tillit til þess að upprunalega útgáfan af Linux var nú ekki beinlínis Linux eins og það er í dag... þetta var beinagrind með helling af böggum en mikla möguleika. Ég vona að Linusi takist að hrista þetta af sér.
--------

Ritað 23. maí 2004 kl. 13:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Tilraunum lokið

Ég held ég sé hætt tilraunum í bili. Ég prófaði að setja inn þetta tilbúna útlit í Blogger, fyrst þeir eru farnir að bjóða upp á fleiri útlit en þessi gömlu ljótu. Hins vegar nenni ég ekki að uppfæra útlitið á þessum gömlu til að þær líti út eins og þessi þannig að þær verða alveg eins og út úr kú í bili. Athugasemdirnar verða áfram keyrðar á Haloscan því að Blogger athugasemdirnar virðast virka þannig að bara þeir sem nota Blogger fyrir vefdagbók megi setja athugasemdir inn, nema þeir vilji gera það sem Anonimous. Ekki nógu sniðugt. Ég hefði samt gjarnan viljað geta sett athugasemdakerfi sem tengdist Blogger betur, því að það er pirrandi að þurfa að vinna þetta í mörgum kerfum.

Það eru samt margir góðir kostir við Bloggerinn sem þeir eru búnir að bæta við og ég hlakka til að prófa mig áfram með þá.
--------

Ritað 17. maí 2004 kl. 17:56 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Athugasemdir

Ég sá það að Blogger er farinn að bjóða upp á athugasemdir svo að ég þarf ekki að styðjast við Haloscan til að gera þetta. Á meðan ég er að prófa mig áfram með þetta munu athugasemdirnar vera allavegana.
--------

Ritað 17. maí 2004 kl. 10:39 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Gestabókin komin í lag

Gestabókin mín er komin í lag þannig að það ætti að vera hægt að nota hana núna. Hún virkaði ekki rétt af einhverjum ástæðum, en ég hef skellt henni í lag núna.
--------

Ritað 13. maí 2004 kl. 17:51 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Hreyfimyndir

Ég var að prófa mig áfram með forrit sem heitir WinMorph. Ég sótti það ókeypis hjá Tucows en það er eins og maðurinn sagði, maður fær það sem maður borgar fyrir. Forritið er óstöðugt og hjálpin er alveg vonlaus. Mér tókst samt að fikta í því og búa til þessa skrá.
--------

Ritað 12. maí 2004 kl. 10:20 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Smá slys í gær

Blogger var að setja nýtt útlit á síðuna hjá sér, en það olli smá vandræðum fyrir mig. Ég er nefnilega með nokkur blogg í gangi, s.s. þetta blogg, glósurnar mínar, fréttablogg hjá Tónlistarskólanum og síðan myndablogg fyrir Tónlistarskólann. Ég var vön því að hafa mitt prívat blogg efst svo ég smellti á það og byrjaði að tjá mig. Ég skrifaði sem sagt heillanga grein um helgina og sendi inn en sá svo að greinin hafði endað á glósunum mínum. Þá hafði sem sagt glósubloggið verið efst á lista, en ekki mitt blogg. Ákaflega slæmt því að ég var nýbúin að senda kennaranum mínum slóðina að þessu sem verkefnaskil fyrir eitt verkefnið. Vægt áfall. Reddaði því reyndar með því að eyða því út og setja á réttan stað. Svona getur maður fengið hland fyrir hjartað.
--------

Ritað 11. maí 2004 kl. 15:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Músagangur á síðunni minni

Ég ákvað að prófa að setja annað útlit á síðuna mína. Með því að skipta um Stylesheet og setja nýjar myndir inn á svæðið mitt er hægt að breyta um útlitið í einu lagi. Skemmtilegt.
Myndirnar eru sem áður frá GraphicGarden.com.
--------

Ritað 29. apríl 2004 kl. 11:21 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Sniðugur vefur

Orkustofunun er búin að opna gagnasjá þar sem maður getur skoðað Íslandskort, súmmað inn og valið hvers konar hlutir eiga að sjást. Sniðugt.
--------

Ritað 27. apríl 2004 kl. 12:56 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Góðar síður sem tengjast samræmdum prófum

Einar Jónsson er með góða síðu með gagnvirkum æfingum og leslistum fyrir náttúrufræði.

Skólavefurinn er með góða síðu með gagnvirkum æfingum. Vefurinn er reyndar alltof þungur og tekur langan tíma að hlaðast ef maður er ekki með þeim mun betri tengingu.

Húsaskóli er með síðu sem tekur saman helling af upplýsingum um samræmdu prófin.
--------

Ritað 19. apríl 2004 kl. 14:42 um blogger, menntamál, tölvur| Skoðanir (0)

Óhollusta tölvanna

Nú er búið að gera rannsóknir í Bretlandi þar sem kom fram að þau börn sem hafa tölvur, leikjatölvur eða sjónvörp inni í herbergjum sínum þjást af svefnleysi. Börnin segjast vera að fara að sofa en stelast í tölvurnar og sjónvörpin áður en þau leggja sig. Önnur rannsókn segir að svefnleysi sé að valda nemendum þunglyndi. Tölvur og sjónvarpsáhorf eru semsagt tiltölulega skaðleg heilsu barna. Eða hvað?
--------

Ritað 15. apríl 2004 kl. 11:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (1)

Sniðugar græjur

Ég rakst á þessa sniðugu síðu sem gerir manni kleyft að setja mynd sem sýnir hvernig veðrið er hjá manni á hverjum tíma. Þessi mynd er reyndar tengd Akureyri, en ekki Húsavík, en það var bara ekki boðið upp á Húsavík. Samt, nógu nálægt. Mér fannst þetta sætt. Myndin er á tenglarammanum hérna til vinstri.

The WeatherPixie
--------

Ritað 15. apríl 2004 kl. 10:18 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ruslpóstur

Ég byrjaði áðan að sækja póstinn minn í pósthólfið... hætti þegar ég sá að Outlookið sagði "Receiving message 4 of 134". 134!!!! Ég veit að ég er ekki svona vinsæl og það þýðir bara eitt: ruslpóstur. Ég hef verið að berjast við þetta vandamál í smá tíma, fengið svona 10-20 pósta á dag sem hafa flestir borið titlana Re: Hi og Interesting Stuff. Óþolandi. Hvað heldur fólk eiginlega að ég hafi áhuga á að kaupa mikið Viagra, Lavitra eða annað slíkt og hvað heldur það eiginlega að ég hafi mikið að gera með að láta stækka á mér typpið!

Mér sýnist allar líkur vera á því að ég þurfi að fara að skipta um netfang... pirrandi. Ég er búin að nota sama netfangið í fleiri ár og mér þykir vænt um það. Svo er önnur hugsanleg lausn á málinu, að uppfæra aðganginn minn hjá Margmiðlun upp í Silfur eða Gull áskrift svo að ég fái ruslpóst þjónustu hjá þeim. Ég á bara svo fáa peninga þessa dagana að ég vil helst ekki vera að bæta á mánaðarleg útgjöld að óþörfu.

Hins vegar er ég hrædd um að ég eigi eftir að henda pósti frá einhverjum sem ég þekki vegna þess að ég held að hann sé rusl... Þannig að: Vinsamlegast skrifið skýrar og greinargóðar setningar í Subject þegar þið sendið mér póst, því annars gæti ég hent honum ólesnum.
--------

Ritað 6. apríl 2004 kl. 14:16 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Síðan stenst staðlana!

Ég keyrði síðuna mína í gegnum vélina hjá W3C og eftir örlitlar tilfæringar reyndist síðan mín standast staðlana til að vera XHTML 1.0! Ég má því setja þetta merki á síðuna mína:

Valid XHTML 1.0!

Ég ætla að finna því einhvern góðan stað bráðum, en ég á enn eftir að láta staðfesta að CSS skráin mín standist staðlana. Svo þarf ég líka að koma fyrir tengli yfir á www.graphicgarden.com, Blogger.com og fleiri svoleiðis staði.
--------

Ritað 1. apríl 2004 kl. 10:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

And they said it couldn't be done...

Ég er óendanlega stolt af sjálfri mér. Ég er búin að setja þessa síðu upp alveg með CSS, algjörlega töflulaust og það sem meira er... HÚN LÍTUR RÉTT ÚT Í MOZILLA!! Nú þarf ég reyndar að athuga hvort hún virkar rétt í Makka, Linux og gvöð má vita hverju.

Allavegana... jei!!
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 22:05 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Gallar á síðunni :-(

Jæja, Tryggvi var náttúrulega snöggur til og kíkti á síðuna mína og benti mér á að hún hreinlega bara virkar ekki nema maður skoði hana í Internet Explorer fyrir Windows. Ég fer þá bara í það að reyna að laga hana til svo að hún verði nýtileg þeim líka sem ekki nota þann ágæta vafra eða það ágæta stýrikerfi. Ég vil samt ekki gefast upp á því að það sé hægt að hafa dálka án þess að nota töflu, þeir gera það a.m.k. á síðunni http://www.mozilla.org/. Ég hlýt að geta þetta líka. Ég fer bara í source-inn hjá þeim og skoða hvernig þetta er gert. Ég neita að gefast upp!! (í bili...)
--------

Ritað 31. mars 2004 kl. 13:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Nýja síðan opnuð!!!

Nýja síðan mín er tilbúin og nú geta allir skoðað hana og skilið eftir athugasemdir við færslurnar mínar. Þetta er stórskemmtilegt! Segið mér endilega hvað ykkur finnst og skrifið í gestabókina mína.
--------

Ritað 30. mars 2004 kl. 08:58 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Nýja síðan að skríða saman...

Ég er búin að stilla bloggerinn til að vista bloggið mitt inni á nýju síðunni minni. Núna verður spennandi að vita hvernig gengur að láta þetta allt saman virka...
--------

Ritað 29. mars 2004 kl. 14:30 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ný heimasíða...

Ég er búin að skrá mig fyrir nýju heimasvæði og er að vinna í að setja síðuna upp... Ég skelli hérna inn bráðlega slóðinni á síðuna en ég vil síður setja inn tengil meðan hún er ennþá svona hálf köruð.
--------

Ritað 26. mars 2004 kl. 18:17 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég hef verið að hugsa málið svolítið... ég held ég haldi áfram að viðhalda blogginu mínu á http://borgarholsskoli.simblogg.is/valdisbj en það svæði er svo mikið tengt vinnunni minni að vil ég ekki vera að birta þar mjög persónulegar upplýsingar um mig og mín mál. Það er frekar fyrir samskipti við nemendur, samkennara og aðra sem tengjast skólanum en ekki til að lýsa timburmönnum, túrverkjum og skemmtanaáætlunum. Þess vegna hef ég ráðgert að vinna meira í því að viðhalda þessu bloggi sem minni reglulegu vefdagbók. Ég ætla líka að fara að vinna meira í útliti þessarar síðu, færa hana á annan þjón og annað svoleiðis dútl.
--------

Ritað 25. mars 2004 kl. 10:13 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég er búin að setja upp aðra síðu sem samstarfsverkefni milli Borgarhólsskóla, Þekkingar og Hex. Kíkið endilega við. http://borgarholsskoli.simblogg.is/valdisbj
--------

Ritað 27. janúar 2004 kl. 14:23 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég er búin að bæta við síðu á vefinn minn, þar sem hægt er að nálgast forritin mín.
Ég bjó til leik sem ég hvet ykkur til að kíkja á. Ég setti líka upp vef fyrir bekkjarfélaga mína úr MA.
--------

Ritað 12. október 2001 kl. 16:00 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Hananú!! Núna er mín búin að php-væða vefinn sinn!! Nú er aðeins um eina "template"-skrá að ræða og svo textaskrár sem innihalda þann texta sem er að finna á síðunum. Þetta þýðir m.a. að ég get látið sama efnið birtast á html hlutanum og flash hlutanum án mikilla vandamála.

To the End of the Universe and Beyond!!
--------

Ritað 21. ágúst 2001 kl. 18:12 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Jæja, nú hefur mín verið dugleg og kom upp myndasíðu á vefnum. Kíkið á myndasíðuna!! Fyrsti skammturinn inn á síðuna eru annars vegar myndir úr bústaðarferð TUT brautarinnar nú í vor, og hins vegar eru myndir sem ég hef tekið hér og þar, t.d. í útskriftarferðinni til London.

Ég mun bráðlega fara í það að uppfæra flash hlutann af vefnum svo að hann endurspegli almennilega það sem er í þessum hluta vefsins.
--------

Ritað 20. ágúst 2001 kl. 22:10 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Laugardagskvöld og ég hef ekkert mikið að gera, ákvað að uppfæra heimasíðuna mína dálítið. Ég var nefnilega að hjálpa Kristbjörgu að setja upp sitt eigið blogg og nú er hún komin með síðu. Kíkið endilega á Dagbók Properu. Ég bætti henni líka við á tenglasíðuna mína.

Í guðana bænum verið aðeins duglegri við að skrifa í gestabókina mína, ég gæti farið að halda að það komi enginn að skoða þetta.
--------

Ritað 18. ágúst 2001 kl. 19:48 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Verslunarmannahelgin hefur nú gengið í garð og ég ákvað að setja inn eina seinustu uppfærsluna áður en ég fer út á djammið. Þeir sem hafa minna við að vera ættu endilega að skoða litabókina sem ég gerði. Hún er über schtrumpuð og er gerð með þeim hugsunarhætti að allt er vænt sem vel er blátt...
- Skoðið litabókina.
- Hlaðið bókinni niður og leikið ykkur heima (bara að un-zippa).
--------

Ritað 3. ágúst 2001 kl. 19:53 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Jæja, boys and girls, núna er þetta komið í lag og lítur meira að segja út eins og ég vildi. Þetta sýnir bara það fornkveðna að ég er algjör snillingur (hógværðin, sko). Jæja, þá er maður búinn að leika sér að þessu skemmtilega og þá er eins gott að fara að gera eitthvað af viti. Það er slatti sem maður þarf að gera fyrir helgina.
Skemmtið ykkur vel yfir Versló!
--------

Ritað 3. ágúst 2001 kl. 10:27 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Ég er enn að prufa mig áfram með hugbúnaðinn. Nú er spurning um það hvort þetta líti eins út og ég vil.
--------

Ritað 3. ágúst 2001 kl. 09:42 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)

Jæja, fimmtudagur fyrir Verslunarmannahelgi og ég rakst á þennan fína hugbúnað til að setja uppfærslur inn á heimasíðuna mína. Alltaf gaman að prófa nýja hluti.
--------

Ritað 2. ágúst 2001 kl. 19:46 um blogger, tölvur| Skoðanir (0)