Hjálmarnir

March 28th, 2009 by valdis

Við Tryggvi gáfumst upp á Hjálmatónleikum áðan. Eflaust voru Hjálmarnir sjálfir ágætir, en því miður voru áheyrendur ekki alveg á réttum kalíber. Við mættum þokkalega tímanlega, að okkar mati, en náðum sætum úti í horni nálægt innganginum. Nokkuð inn í tónleikana gáfumst við upp, þegar það lagðist á eitt að við heyrðum varla tónlistina fyrir kjaftagangi allstaðar í kringum okkur, sáum ekki hljómsveitina fyrir fólki sem stóð á fáránlegum stöðum (þetta áttu jú að vera sitjandi tónleikar) og svo var mér farið að verða flökurt út af reyknum sem barst inn um dyrnar. Það endaði þannig að við stungum af.
Annars tók Tryggvi nokkrar myndir áður en við fórum af stað.

Hedging your bets

March 26th, 2009 by valdis

Dagurinn í dag er áætlaður fæðingardagur erfingjans. Við Tryggvi bíðum spennt eftir því að eitthvað gerist, en ef ske kynni að ekkert gerist þá eigum við til miða á Hjálmana á laugardaginn. Hinsvegar er alveg séns að ef krakkinn kemur í heiminn í millitíðinni þá geta áhugasamir haft samband og fengið að hirða miðana ;-)

Kríli?

March 23rd, 2009 by valdis

Jamm, kríli. Við renndum í vaxtasónar í morgun og barnið var mælt fram og til baka. Ragnheiður læknir lýsti því yfir að það væri svona 14-15 merkur núna, gæti orðið 16-17 við fæðingu. Ekkert stress.
Ég var líka sett í mónitor og það var reyndar frekar skemmtilegt að heyra hvernig hjartslátturinn í barninu hraðaðist þegar það byrjaði að sparka. Frekar fyndið að fylgjast með mónitornum á fleygiferð þegar barnið sparkaði í hann.

Enn fleiri bumbumyndir

March 19th, 2009 by valdis

Já, Tryggvi smellti nokkrum af mér áðan. Svo bætast líka við myndir frá því í síðustu viku, sem rötuðu ekki inn á vefinn þá.
37 vikur, 10. mars:

39 vikur, 19. mars:

Barnaspeki

March 19th, 2009 by valdis

Ég keypti bakka af páskaeggjum nr. 1 frá Nóa í gær og maulaði eitt yfir tölvuleik sem ég var að spila. Málshátturinn var: „Barnalán er betra en fé.“ Nokkuð viðeigandi. Svo laumaði ég mér í annað þegar ég horfði á House aðeins seinna um kvöldið. Málshátturinn: „Bundinn er sá sem barnsins gætir.“ Eitthvað þema í gangi?

Kríli… nei, aldeilis ekki!

March 18th, 2009 by valdis

Það var mæðraskoðun í morgun. Ljósan potaði í barnið, hlustaði, mældi blóðþrýsting hjá mér og legbotnshæðina og lýsti svo yfir að hún ætlaði að senda mig í vaxtasónar! Fannst bumban of stór og stækka of hratt, sérstaklega miðað við það að ég er ekki að þyngjast svo hratt, stóð meira að segja í stað milli vikna núna. Þannig að við erum á leiðinni í sónar á mánudaginn. Það er greinilega algjör óþarfi að vera eitthvað að tala um kríli hér á bæ.
Nú er allt að skríða saman, verða tilbúið fyrir barnið. Pabbi er á fullu að gera vögguna fína og flotta, hann og Mamma komu með þessa líka fínu kerru handa okkur í síðustu viku (græn og fín, á eftir að setja inn myndir) og pakkinn með bleyjunum frá Bandaríkjunum kom í gær. Erfinginn getur þá glaður og sæll pissað og kúkað í fínar taubleyjur í allskonar litum.

Letikast

March 16th, 2009 by valdis

Ég trúi því varla hvað við Tryggvi náðum massívri letihelgi! Sváfum, lágum í leti, horfðum á sjónvarp og spiluðum tölvuleiki eins og ekkert væri sjálfsagðara. Ætli þetta verði ekki síðasta svoleiðis helgin sem verður möguleg í bili?

Allt í undirbúningi

March 6th, 2009 by valdis

Já, við Tryggvi erum óðum að gera allt klárt fyrir erfingjann. Nú er búið að:

  • sækja vögguna og rimlarúm ofan af háalofti í Hafnarstrætinu og koma þeim í sprautun í Teignum.
  • fá barnavagn að láni.
  • kaupa skiptiborð (vantar reyndar skiptidýnu, hvar kaupir maður svoleiðis?)
  • panta taubleyjur frá USA (með milligöngu Elvu systur).
  • sækja barnaföt úr bílskúrnum í Teignum og þvo vél eftir vél af þeim.
  • fá ungbarnasæng (30 ára gamla) heiman úr Teignum og láta fatahreinsun ná úr henni 20-30 ára gömlum pissublettum.
  • kaupa eitt stykki gjafabrjóstahaldara (þarf eflaust fleiri fljótlega).
  • kaupa prentara svo hægt sé að prenta út jafnóðum myndir af dýrgripnum.

Annars er allt gott að frétta. Barnið er búið að skorða sig og nú er komin vika 37 svo að ef það fæddist bara í dag, það myndi það ekki teljast sem fyrirburi. Eftir tvær vikur förum við Tryggvi svo bæði í fæðingarorlof.
Jæja, tónleikar með Hálfvitunum í kvöld. Við sjáum til hvort barninu líkar betur við tónlistina þeirra eða Naglbítanna.

Afi gamli…

February 28th, 2009 by valdis

Í dag hefði hann Ragnar afi orðið 95 ára gamall. Ég myndi drekka honum skál, ef ég væri að stunda svoleiðis hluti núna. Kannski í þessu fokdýra flotta Whiskey sem fjárfest var í í haust. Mér dettur samt ekki í hug að skála kallinum í óáfengu, hann myndi örugglega ekki fíla það.

Fleiri bumbumyndir

February 24th, 2009 by valdis

Erfinginn virðist hafa verið alveg úrvinda eftir tónleikana á laugardagskvöldið. Hann hafði sig allavegana töluvert til hlés á sunnudag og mánudag, hvíldi sig og lét lítið fara fyrir sér. Í dag var síðan tekið á því, mikið sparkað og iðað í allan dag. Greinilega ekki varanlegur skaði af því að hlusta smá á Naglbítana.
Tryggvi skaut síðan af mér nokkrum bumbumyndum áðan. Þetta er allt að verða nokkuð myndarlegt. Það má smella á myndina til að sjá fleiri.