Tryggvi skaut nokkrum bumbumyndum af mér í gærkvöldi. Eins og sjá má er þetta orðið býsna myndarlegt

Barnaföt og heimsóknir
Við Tryggvi vorum þokkalega dugleg um helgina, fannst okkur. Renndum í Teiginn á laugardag og áttum gott kvöld með gamla settinu og komum svo til baka í gær með bílinn fullan af barnafötum sem Edda hafði komið fyrir í vandlega merktum kössum úti í skúr. Ferðin gaf líka af sér ungbarnasæng sem reyndar þarf að senda í hreinsun. Eftir stutt stopp renndum svo við yfir til Dallas city að heimsækja Ömmu og Afa hans Tryggva.
33 vikur: Staðan
Þetta er hálfgert skyldublogg, hef ekki svo margt að segja. Fór reyndar í mæðraskoðun í fyrradag og ljósan dáðist að því hvað bumban mín væri orðin stór. Hún mældi legbotnshæðina og sagði að hún væri að stækka svo hratt að ef það héldi áfram ætli hún að senda mig í vaxtasónar. Mér fannst það reyndar bara allt í lagi. Hef ekki voðalegar áhyggjur af því þó barnið stækki.
Krakkinn er að róast niður í spörkunum, nú er plássleysið orðið þannig að hann er aðallega að endurraða sér og ýta frá sér. Stundum verð ég reyndar að ýta litlum fótum rólega en ákveðið aftur niður, þegar mér finnst þeir vera komnir óþarflega langt upp.
Umræður á kennarastofunni beinast sífellt oftar að nýjum matráði okkar starfsfólksins. Nú er ég yfirleitt ekki talin matvönd, en það hefur komið fyrir að ég hafi ekki getað fengið mig til að borða matinn frá þessum manni. Í gær var æðislegt kombó: ofsoðið og of lítið saltað spaghettí með rauðri sósu (ekki vottur af kjöti eða grænmeti útí sósuna) og heimabakað brauð með. Brauðið virtist hafa fengið allan saltskammtinn. Fyrir stuttu: Tómatsúpa með brauði. Tómatsúpan minnti helst á sósuna sem ég bý til í pylsupottrétt, þ.e. tómatsósa, þynnt út með vatni og svo þykkt aftur með hveitijafningi, og út í súpuna voru svo settir hnefastórir bitar af brokkólí og blómkáli. Brauðið var alvöru dwarven bread, svo hart að mínar aumu geiflur náðu ekki að vinna á því. Yfirleitt hafði ég haldið að slæmir kokkar hefðu aðallega fáa rétti sem þeir réðu við að gera og treystu mikið á tilbúnar lausnir úr pökkum. Ég hef aldrei áður upplifað neinn elda svona marga mismunandi rétti sem allir eru jafn skelfilega vondir! Hverjum dettur í hug að bjóða fólki upp á salat með endurskins-bleikri spægipylsu útí??
Ég nenni annars ekki að pirra mig mikið yfir þessu, það styttist óðum í fæðingarorlofið og þá borða ég bara það sem ég vil, heima.
Bílaraunir
Bílarnir okkar Tryggva eru ekki beinlínis að þýðast okkur þessa dagana. Accidentinn minn er nú fyrir sunnan svo Tryggvi geti skutlast á honum þegar hann er að vinna þar. Hann tók upp á því í síðustu viku að hristast og skjálfa og stefna í allt aðrar áttir en ökumaður hafði hugsað sér. Tryggvi ætlaði að koma honum út í Hafnarfjörð til bifvélavirkjans sem sá hvað mest um Krúserinn á sínum tíma. Komst í Garðabæ. Enn er ekki ljóst nákvæmlega hvað var að, við bíðum úrskurðar bifvélavirkjans. Bara kaldhæðnislegt að í fyrsta skipti í langan tíma sem þessi bíll kemst í gegnum skoðun í fyrstu atrennu, þá bilar hann almennilega um mánuði seinna.
Bimminn er ekki jafn slæmur, en hann mótmælir harðlega að hafa verið fluttur á svona kaldan stað eins og Akureyri er. Ef aftursætisdyrnar vinstra megin eru opnaðar, þá er ekki hægt að loka þeim almennilega fyrr en bíllinn er orðinn heitur, lásinn einfaldlega grípur ekki. Þar að auki er læsingartakkinn á lyklinum/fjarstýringunni orðinn svo slitinn að hann sendir ekki alltaf merki. Ég hélt að puttarnir á mér myndu detta af í morgun við að hamast á þessum blessaða takka.
Spurning um að nýta sér meira ókeypis strætó á Akureyri?
Allt of mikið að gerast
Ég næ ekki að fylgjast með öllu því sem er að gerast þessa dagana. Menn hrynja niður í krabbameini hægri, vinstri, óeirðir í miðbænum í Reykjavík, afsagnir og allt á fullu. Ég hef varla gert mér neina skoðun á því t.d. hvort ég vilji fá nýja strjórn eða ekki. Held samt að það væri til bóta að skipta um fólk, hvort sem það kemur úr sömu flokkum og eru nú við völd eða öðrum.
Ég hef samt nokkrar áhyggjur af því að þegar kosið verði í vor, þá taki ekkert betra við. Við, óbreyttir kjósendur, erum nauðbeygðir til að kjósa sömu óhæfu, spilltu flokkana og áður, sama gallaða listafyrirkomulagið verður áfram það eina sem er í boði, og íslenska þjóðin mun eflaust sýna sömu skammsýnina eins og venjulega og kjósa bara nákvæmlega það sem hún er vön að gera. Við erum þrátt fyrir allt skepnur vanans.
Mér er nefnilega meinilla við kosningakerfið okkar eins og það er í dag. Mér er illa við það að ég verði að setja atkvæði mitt við lista og að ef ég vil gera breytingar á honum þá verður meirihluti kjósenda þessa lista að gera nákvæmlega sömu breytingu og ég. Dæmi: á framboðslista er maður í efsta sæti. Ég, ásamt 30% kjósenda þessa lista strikum hann út. 30% til viðbótar endurraðar listanum svo að hann lendi í neðsta sæti. Semsagt, 60% kjósenda breyta listanum þannig að þessi maður ætti ekki að komast inn á þing. En þá ræður minnihlutinn, vegna þess að þessi 60% gerðu ekki nákvæmlega sömu breytinguna.
Annað sem mér er illa við, það er flokkahoppið eftir að menn hafa verið kosnir inn á þing. Ef einhver er kosinn inn á þing í nafni þingflokksins síns og ákveður síðan að skipta um flokk þá finnst mér fáránlegt að hann fái að halda sínu þingsæti. Kjósendurnir fengu nefnilega ekki að kjósa einstaklinginn, heldur þurftu þeir að kjósa lista. Því ætti listinn að halda þingsætinu, en ekki einstaklingurinn, ef það ætti að gæta samræmis í þessu kerfi.
Ég hef tillögu að breytingu á þessu kerfi. Leyfum þjóðinni að kjósa einstaklinga í staðinn fyrir að kjósa lista. Þessir einstaklingar mega mín vegna halda áfram að bjóða sig fram í nafni flokkanna, en ég vil geta krossað við þá einstaklinga sem ég vil fá inn á þing, jafnvel þó þeir séu ekki einusinni í sama flokki.
Fyrirkomulagið getur verið svona:
- Kjósendur fá áfram sinn kjörseðil. Á honum eru nöfn allra frambjóðenda í viðkomandi kjördæmi.
- Hver kjósandi fær jafn marga krossa og eru þingmenn í því kjördæmi. Þannig fengi ég að setja allt að 10 krossa, þar sem það eru 10 þingmenn í norðausturkjördæmi.
- Kjósanda er frjálst að setja krossana sína við nöfn frambjóðenda úr mörgum mismunandi flokkum. Þannig mætti ég setja 4 krossa við samfylkingarmenn, 5 við vinstri græna og 1 við framsóknarmann. Of margir krossar gera seðilinn ógildan.
- Kjörseðlar eru lesnir og taldir með rafrænum hætti. Þó finnst mér eðlilegt að halda pappírskjörseðlunum, svo að hægt sé að telja handvirkt ef tæknin bregst. Mér sýnist meira að segja að þetta ætti að vera auðvelt, því að nú er búið að leggja af samræmd próf í 10. bekk að vori, svo að yfirferðarvélarnar hjá Námsmatsstofnun liggja bara og rykfalla á vorin.
- Þeir frambjóðendur sem fá flest atkvæði vinna.
- Jöfnunarþingsæti ættu að verða óþörf með þessu fyrirkomulagi.
Væru fleiri til í þetta?
Týndur snýr aftur!
Ó, þvílíka gleðin! Þvílíka geðshræringin! Ég á erfitt með að tárast ekki. Ég var að grafa mig niður úr pappírshraukunum á básnum mínum hérna á Möðruvöllum þegar uppúr kafinu kemur elsku, besti, yndislegi iPodinn minn. Ég var orðin svo sannfærð um að ég hefði týnt honum á búðarrápi fyrir viku síðan og að hann lægi sennilegast í snjóruðningi af bílastæði einhverstaðar, eftir að hafa dottið úr úlpuvasa. En aldeilis ekki, hann var bara undir heljarinnar hrauk af gömlum verkefnum og hinum og þessum pappírum sem ég er að vinna mig í gegnum núna.
Nú er þungu fargi af mér létt!
Stöðugur straumur
Mér finnst eins og ég hafi verið stanslaust á klósettinu í nótt. Nú er greinilega farið að þrengjast um í kviðarholinu mínu svo að ég þarf alltaf að fara að pissa. Tveir mánuðir til viðbótar af þessu. Úff.
Nú sit ég geyspandi, geðveikt þreytt, og reyni að fara yfir. Best að koma sér aftur að verki…
Alvöru ólétt
Já, ég hef fundið það undanfarna viku að nú er ég alveg hætt að vera ófrísk og er orðin alvöru ólétt. Þ.e.a.s. ég er löngu hætt að gubba og vesenast svoleiðis, þó að ég fái einstaka sinnum brjóstsviða. Hins vegar hefur undanfarin vinnuvika sýnt mér að tveggja vikna jólafrí getur breytt töluverðu. Í lok dags á mánudag og þriðjudag fann ég að bumban var farin að síga töluvert í og það var orðið mjög erfitt að standa við töfluna. Nú er ég mjög fegin að þurfa ekki að kenna á næstu önn, heldur fæ ég í staðinn að vinna ýmis önnur verkefni, eins og t.d. að vinna tölfræðilega úrvinnslu fyrir sjálfsmatsnefndina.
Leki
Smá vesen hjá okkur í öllum flutningunum: pípa undir vaskinum í eldhúsinu ákvað að byrja að leka yfir jólin. Enginn fossleki, en nóg til að skemma part úr innréttingunni. TM ætlar að senda einhvern til að líta á þetta á föstudaginn.




