December 30th, 2008 by valdis
Smá vesen hjá okkur í öllum flutningunum: pípa undir vaskinum í eldhúsinu ákvað að byrja að leka yfir jólin. Enginn fossleki, en nóg til að skemma part úr innréttingunni. TM ætlar að senda einhvern til að líta á þetta á föstudaginn.
Posted in mitt | Comments Closed
December 27th, 2008 by valdis
Við fluttum Tryggva norður í dag. Við vorum búin að pakka mestöllu niður í gær og í dag kom svo vaskur her fólks og hjálpaði okkur að rútta öllu úr og þrífa. Stór hluti innbúsins hans Tryggva fór í geymslu úti á Granda en svo fylltum við bæði bimmann og accident og brunuðum með þá norður. Öll heila aðgerðin tókst svakalega vel, en ég verð að viðurkenna að elsku litli accident er farin að sýna ýmis druslumerki. Hann tók t.d. upp á því að slökkva á mælaborðinu niðri í miðjum Hvalfjarðargöngum, svo að ég varð hálfvegis að giska á hraðann minn restina af ferðinni. Það reddaðist svosem þegar ég fann Tryggva aftur og hékk aftan í honum og studdist við hraðamælingar hans.
Ég verð að viðurkenna það að nú er mín orðin pínu þreytt. Held að málið sé heitt bað og svo rúmið.
Posted in mitt | 1 Comment »
December 24th, 2008 by valdis
Jólin hjá okkur Tryggva verða frekar losaraleg þetta árið. Við höfum ekkert skreytt og flestar eignir Tryggva komnar ofan í kassa, enda ætla ég að taka hann með mér norður milli jóla og nýárs. Við ætlum að hefja sameiginlegan búskap okkar í Tjarnarlundinum um næstu helgi. Aðfangadagskvöld verður haldið hjá Tengdó og miðað við ástandið í gærkvöldi þá virðist ekki vera hörgull á gjöfum, jafnvel þó það sé ekki komið neitt smábarn í fjölskylduna ennþá. Krakkinn sparkar og spriklar og ég er ekki frá því að hann sé þokkalega sáttur við stöðugan straum af jólaöli og góðgæti sem ég hef verið að raða í mig. Gleðileg jól!
Posted in mitt | 1 Comment »
December 19th, 2008 by valdis
Já, í dag er ég komin 26 vikur á leið og krílið er spriklandi hraust. Nú segja sumar bækurnar að það ætti að vera byrjað að opna augun og bregðast jafnvel við ljósi og hljóðum. Kennslu lauk í dag, eða í raun og veru í gær, því að ég kenni ekki fyrr en kl. 10 á föstudögum og í dag var hringt til söngsals og jólatrés-kringum-gangs í löngu. Ég er samt ennþá í skólanum, er að reyna að berja saman svo sem eitt próf sem er á fyrsta prófdegi eftir áramót, en það er rólegt og gott fyrst kallarnir eru farnir í jólafrí. Ég stefni á að fara á jólakaffi í kvöld og renna svo af stað suður í fyrramálið.
Sparki, sparki, spark…
Posted in mitt | Comments Closed
December 10th, 2008 by valdis
Mér finnst bumban mín vaxa með ógnarhraða þessa dagana. Miðað við síðustu skoðun þá er ég samt ekkert að þyngjast, heldur er þyngdin bara að færast til. Krakkinn er hress, iðar og sparkar oft á dag. Hann var meira að segja til í að sparka aðeins fyrir pabba sinn um síðustu helgi, þó að Tryggvi haldi því fram að hann hafi svo róandi áhrif á barnið að það sleppi því bara að sparka þegar það heyrir í honum.
Almennt séð líður mér vel, þó að brjóstsviðatöflurnar hafi færst smám saman til, ofan úr skápnum, niður í veski og svo niður í buxnavasann. Ég hef meira að segja þurft að grípa dolluna upp í miðjum tíma til að bryðja töflu.
Mikið óskaplega verður samt gott að komast í jólafrí í næstu viku.
Posted in mitt | 7 Comments »
December 4th, 2008 by valdis
Nágrannar mínir í Tjarnarlundi 15i hafa skreytt hjá sér með því að setja jólaljósin í fleygboga yfir stofugluggana. Aðdáunarvert.
Bætt við 5. des:

Posted in mitt | 10 Comments »
December 4th, 2008 by valdis
Í gær fór ég í mæðraskoðun og hafði síðan helling af háværum skoðunum eftir hádegi. Í dag skrapp ég svo með Accident í skoðun hjá Frumherja og detti mér allar dauðar lýs úr höfði, haldiði að druslan hafi ekki bara komist í gegn! Hefði aldrei búist við því.
Posted in mitt | 1 Comment »
December 3rd, 2008 by valdis
Ég byrjaði daginn á því að skreppa í mæðraskoðun. Allt var í góðu lagi, blóðsykur og -þrýstingur hvort tveggja gott og hjartsláttur krakkans nokkuð góður, þó að tækið sem ljósan notaði hafi orðið batteríslaust.
Seinnipartinn var svo felld niður kennsla og kennaraliðið brunaði yfir í Sveinbjarnargerði til að halda vinnufund. Þar var skipt niður í hópa og rætt um það hvernig fyrirkomulag náms við MA ætti að vera, í grunninn sko. Ég verð að viðurkenna það að ég hafði smá gaman af þessu, komst á flug við það að rífast við málabrautarfólkið um að þau þyrftu VÍST að læra stærðfræði, að það hentaði ekki öllum að hafa endalaust langar kennslustundir, fólk þyrfti að læra heima og bera ábyrgð á námi sínu, lýsti hugmyndum um hvernig væri gaman að samþætta stærðfræði og sögu á félagsfræðibraut (væri ekki geggjað gaman að læra líka aðeins um pjakka eins og Pýþagóras og Arkímedes, inni í stærðfræðiáfanga? eða jafnvel að leggja ennþá meiri áherslu á teikningar, frekar en útreikninga?) og var eitilhörð á móti því að binda heimanámstíma í stundarskrá og líka því að byrja seinna á morgnana. Það var heldur ekki verra að heyra svipaðar skoðanir heyrast úr óvæntum áttum.
Posted in mitt | 3 Comments »
November 29th, 2008 by valdis
Huginn, nemendafélag MA, hélt árshátið sína í gærkveldi og okkur starfsfólkinu var boðið. Eins og venjulega var hátíðin svakalega glæsileg, þemað rautt og rómantískt, og dagskráin mjög flott. Ég lét mig reyndar hverfa þegar formlegri dagskrá lauk, nenni yfirleitt ekki að vera á ballinu og var líka orðin þreytt.
Mamma og pabbi fengu að gista í nótt, voru að fara á jólahlaðborð. Mér fannst viturlegast að leyfa þeim að sofa í nýja rúminu en ég kom mér fyrir inni í gestaherbergi, enda óþarfi að ég hringli ein í risastóru rúmi á meðan þau kúldrast tvö á miklu minna rúmi.
Posted in mitt | 1 Comment »
November 20th, 2008 by valdis
Þessi vika er búin að vera klikk! Mér finnst eins og ég hafi varla nokkuð gert annað en að fara yfir heimadæmi og tímapróf síðan á sunnudag. Ég hef meira að segja vaknað óeðlilega snemma til að fara yfir suma skammtana. Nú á ég einn bunka eftir, sem ég ætla að klára af í dag, og legg fyrir próf á morgun, sem vonandi verður fljótlegt í yfirferð. Þegar ég loksins kláraði enn einn bunkann í dag og var alveg algjörlega búin, þá ákvað ég samt að skreppa í keilu með STAMA (Starfsmannafélagi MA). Það var vel þess virði! Ég náði meira að segja einni fellu! Svo fannst mér líka lífga upp á skólann að í gær var haldinn RauðMA dagurinn, þar sem rauðhært fólk var heiðrað. Þá voru hengdar upp myndir af rauðhærðu fólki út um allan skóla, bæði nemendur og þekkt fólk utan skólans. Ég er ekki frá því að það hafi lífgað upp á tilveruna, það setti allavegana meiri lit í daginn!
Posted in mitt | 3 Comments »