Sónar nr. 2

November 13th, 2008 by valdis

Við Tryggvi fórum saman í sónar í dag. Barnið var mælt í bak og fyrir, skoðuð allskonar líffæri, mældar lengdir á beinum og guð má vita hvað.

Erfingjanum þótti þetta greinilega töluverð frekja í okkur að kíkja svona á hann, iðaði og krosslagði fæturna til að passa að tilraunir til kyngreiningar myndu ekki takast. Annars leit allt vel út og talningar okkar voru staðfestar um það hversu langt ég er gengin með.
Þessu til viðbótar þá buðum við í raðhús í dag og fengum sent heim stærðarinnar rúm. Við bíðum þess nú að vita hvort tilboðinu verði tekið.

Barnablogg

November 4th, 2008 by valdis

Ég var að átta mig á því að töluvert af þeim bloggum sem ég les reglulega eru barnablogg, þ.e. blogg sem foreldrar semja í nafni barna sinna, blogg þar sem allar færslurnar fjalla um börnin og jafnvel eitt blogg þar sem höfundurinn er barn. Þetta setur sinn svip á bloggrúntinn. Ég verð að viðurkenna að mér finnst einna skemmtilegast að lesa bloggið hans Magna Steins, þó að barnalands bloggið hans Hrafnkels Myrkva sé líka í uppáhaldi.

Samlíkingar í kennslu

October 30th, 2008 by valdis

Ég á það til að grípa til samlíkinga í máli mínu þegar ég reyni að útskýra hluti fyrir nemendum. Í dag var ég að rökræða við einn um það hvort það ætti að gefa eitthvað fyrir það ef nemandi beitir kolrangri aðferð frá upphafi til enda en endar samt með rétt svar. Nemandinn vildi meina það að rétta svarið væri nokkurra punkta virði. Ég svaraði honum svona:
K: „Er ólöglegt að keyra utan vegar?“
Nemandinn féllst á það.
K: „Ef þú endar á réttum stað, en keyrir utan vegar alla leið, var það samt ekki lögbrot?“
Úr þessu varð hálfvegis svona Gee-Mr-Brady-I-Never-Thought-Of-It-Like-That-móment.

Mæðraskoðun nr. 2

October 29th, 2008 by valdis

Ég mætti í morgun í mæðraskoðun nr. 2. Enn er allt í góðu, þyngdin stendur í stað og hjartsláttur barnsins var sterkur og hraður (ca. tvöfaldur á við minn). Reyndar var krakkinn á fullu í gærkvöldi, ég fann hreyfingar sem ekki var hægt að taka fyrir neitt annað. Ég er farin að hlakka alveg ferlega til 13. nóvember, en þá förum við Tryggvi í sónar og fáum að sjá barnið betur.

Allt of fljótt fyrir jólaskap

October 27th, 2008 by valdis

Ég sá það í gærkveldi að nágranni minn í næstu blokk var búinn að setja upp jólaseríurnar í gluggann hjá sér. Mér finnst það of fljótt, enda er október ekki liðinn. Ég vil líka berja niður hjá mér allt jólaskap, enda vil ég ekki jóla-skreyta fyrr en við erum komin í nýtt húsnæði, þó að þeir hlutir hreyfist löturhægt hjá okkur.

Geysp!

October 23rd, 2008 by valdis

Svakalega er ég syfjuð! Þegar ég ætlaði í vinnuna í morgun, ákvað bíllinn minn að leggjast á magann á miðju bílastæðinu við blokkina og fara ekki lengra. Ég neyddist til að skilja hann eftir þar, enda enginn á svæðinu til að hjálpa mér með hann af stað og ég var á góðri leið með að verða of sein. Ég skokkaði samt aftur heim eftir hádegi til að reyna að laga ástandið, enda sá ég að það yrði erfitt fyrir nágranna mína að komast út úr stæðunum beint fyrir aftan bílinn. Þeir höfðu reyndar reddað sér og ég kom bílnum aftur í stæðið sitt og skildi hann eftir þar. Labbaði svo aftur í vinnuna. Eftir allt þetta labb er ég bara býsna syfjuð, þó ég hafi vaknað vel við að labba á milli.

Hreyfingar og fallið í freistni

October 20th, 2008 by valdis

Ég féll í freistni á föstudaginn. Ég var á röltinu niðri á Glerártorgi og sá að það var 30% afsláttur í DoReMí. Ég stóðst það ekki, heldur keypti pínulitlar smekkbuxur og treyju handa krílinu væntanlega. Allt saman vandlega litakóðað í hvítu, grænu og rauðu, ferlega kyn-hlutlaust allt saman. Þá er heildareign mín í barnafötum komin upp í þennan galla og útigalla/poka sem keypt var í BabyGap.
Ég lá svo uppi í rúmi í kvöld og ég er ekki frá því að ég sé farin að finna hreyfingar. Örlítið flökt sem ég held að séu ekki bara meltingartruflanir. Það er afskaplega gaman að finna þetta.

Annar í hausverk

October 14th, 2008 by valdis

Í dag er dagur 2 í stingandi hausverk. Ég veit ekki hvað veldur. Þetta er frekar þreytandi. Það sem verra er að erfinginn harðneitar að leyfa mér að njóta nokkurs matar og lyktarskynið er að gera mig brjálaða. Ég finn andfýlu af margra metra færi, hrökklaðist áðan frá stofu M5 því mér fannst hún bara full af andfýlu og öll matarlykt er orðin ógeðsleg. Matarlyst er í takti við það.

Ég er heppin…

October 9th, 2008 by valdis

Ég tel sjálfri mér trú um það að ég sé bara býsna heppin. Ég…

  • hef aldrei tekið myntkörfulán.
  • á öll mín lán hjá Íbúðalánasjóði.
  • hef aldrei átt nógu mikinn pening til að kaupa hlutabréf.
  • á bílinn minn skuldlaust.
  • er ekki ein af þeim sem búa í útlöndum en þurfa samt að lifa af því sem fæst fyrir íslensku peningana sína.
  • á aðeins eina eign, íbúðina mína, og þegar ég kemst úr henni fer ég væntanlega í stærri eign, svo að ef íbúðin rýrnar að verðmæti þá rýrnar stærri eignin samt væntanlega líka.
  • er ríkisstarfsmaður með þokkalegt starfsöryggi.
  • á von á barni og hef miklar vonir um að geta hafið búskap með mínum manni sem fyrst.

Óborganlegt

October 6th, 2008 by valdis

Mér finnst óborganlegt að fylgjast með táknmáls-þýðandanum í horninu á fréttunum á RÚV, sérstaklega þegar sagt var að allt væri á niðurleið.
Svo hefur mér verið hugsað til þess í dag, vesalings krakkarnir í 1. bekk sem eiga að vera með fréttavakt þessa vikuna í FÉL103. Það er í raun bara ein frétt þessa vikuna, vandamálið verður hjá þeim að finna út úr því á hversu stóru má stikla til að gera þessu almennileg skil.